Tíminn - 02.02.1993, Qupperneq 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
Áskriftarsími
Tímans er
686300
NYTT OG
FERSKT
DAGLEGA
reiðholtsbakarí
VÖLVUFELL113 - SÍMI73655
m m J ^rSabriel HÖGG- DEYFAR Verslið hjá fagmönnum
Gi ► varahlutir
Haaarsbofða 1 - s. 67-6744
Tíminn
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR1993
Stálsmiðjan hf. ætlar að höfða skaðabótamál gegn Dagsbrún fyrir að hindra sjósetningu báts úr slippn-
um. Deilt um réttmæti uppsagnar á fimm yfirvinnutímum. Verkamenn:
„Við munum leita réttar
okkar fyrir Félagsdómi“
Júlíus ÁR frá Þorlákshöfn var sjósettur í gærmorgun eftir aö Dagsbrúnarverkamenn hindruðu sjó-
setninguna sl. laugardag. Þessi sjálfsprottna aögerð verkamannanna var gerð til aö mótmæla upp-
sögn Stálsmiðjunnar á sérkjarasamningi viö verkamennina á greiðslu fimm tíma yfirvinnu á viku sem
tók gildi um nýliöin áramót. Tfmamynd.'Ámi Bjama
Stálsmiðjan hf. ætlar að höfða
skaðabótamál gegn Verka-
mannafélaginu Dagsbrún fyrír
Félagsdómi vegna meints skaða
sem fyrírtækið varð fyrir sl.
laugardag þegar verkamenn
hindruðu sjósetningu skips úr
slippnum. Að sama skapi undir-
býr Dagsbrún málshöfðun gegn
fyrírtækinu fyrir Félagsdómi
vegna uppsagnar á sérkjara-
samningi við félagið á samn-
ingsbundinni fimm tíma unnrí
yfirvinnu starfsmanna á viku.
Ámi Kristjánsson, trúnaðarmaður
Dagsbrúnarverkamanna hjá Stálsmiðj-
unni hf., segir að sérkjarasamningur-
inn sé hluti af aðalkjarasamningi og því
geti fyrirtækið ekki sagt honum upp
nema í tengslum við uppsögn á aðal-
kjarasamningi. Hann segir jafnframt
að verkamennimir hafi tilkynnt for-
stjóra Stálsmiðjunnar sl. föstudag að
þeir mundu ekki vinna við sjósetningu
Júlíusar ÁR frá Þorlákshöfn, enda hafi
verkamennimir ekki unnið yfirvinnu
hjá fyrirtaekinu frá áramótum í mót-
mælaskyni við meint samningsbrot
fyrirtæksins. Engu að síður hefði for-
stjóri fyrirtæksins mætt með flokk
manna til að ganga í störf verkamann-
anna við að sjósetja skipið og því getur
hann varla kennt öðmm en sjálfum sér
um það fjárhagstjón sem hann telur
fyrirtækið hafa orðið fyrir.
Skúli Jónsson forstjóri Stálsmiðjunn-
ar segir að fyrirtækið sé í fullum rétti til
að segja upp þessum yfirvinnutímum
starfsmanna með samningsbundum
fyrirvara. Það hefði verið gert þann 1.
október sl. og tekið gildi frá og með ný-
liðnum áramótum og hið sama hefði
verið gert varðandi yfirvinnu málmiðn-
aðarmanna hjá fyrirtækinu.
Hann segir að Stálsmiðjan hafi engan
samning gert við Dagsbrún og því
furðar hann sig á þessari uppákomu
formanns félagsins sem hann telur
vera sprottna af einhverjum öðrum
hvötum en að stuðla að atvinnuöryggi
starfsmanna fyrirtæksins.
Sl. laugardag komu Dagsbrúnar-
verkamenn hjá Stálsmiðjunni hf. í veg
fyrir sjósetningu Júlíusar ÁR frá Þor-
lákshöfh úr slippi fyrirtæksins með
formann Dagsbrúnar í broddi fylking-
ar. Þessi sjálfsprottna aðgerð verka-
mannanna var gerð til að mótmæla
því að fyrirtækið sagði einhliða upp
ákvæði sérkjarasamnings sem kveður
á um að verkamennimir eigi að fá
greidda fimm unna yfirvinnutíma í
viku hverri. Þessi samningur hefúr
verið í gildi frá því árið 1988 og var
gerður við Slippfélagið á sínum tíma
en seinna yfirtók Stálsmiðjan rekstur
og eignir þess og að mati verkamanna
einnig allar skyldur og þau réttindi
sem samningurinn kveður á um.
Þessu mótmælir forstjóri Stálsmiðj-
unnar og telur sig vera í fullum rétti til
að grípa til viðeigandi ráðstafana í
rekstri fyrirtæksins hverju sinni.
-grb
vinníngstoiur 30. janúar 1993
laugardaginn
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSFIAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5al5 1 2.355.890
2. 4^58! B 1 409.484
3. 4af5 89 7.936
4. 3al5 3.067 537
Heildarvinningsupphæð þessaviku:
kr. 5.118.657
upplVsingarsímsvari91 -681511 lukkulIna991002
ERLENDAR FRETTIR.
DENNI DÆMALAUSI
LONDON
Ótti við gjaldeyrisóróa
Ótti viö gjaldeyrisóróa skók fjármála-
markaöi i gær þegar enska pundiö sem
ráöist hefur veriö aö úr öllum áttum
lækkaöi meir en nokkru sinni fyn- gagn-
vart markinu. Spákaupmenn virtust þó
hikandi viö aö hrinda af staö stórfelldri
árás á gjaldeyriskerfi Evrópubandalags-
ins.
ZAGREB
Serbar og Króatar herða
bardaga
Bardagar milli Króata og Serba hörön-
uöu I gær I Krajina-héraöi sem er undir
yfin-áöum Serba eftir smáhlé um helg-
ina i kjölfar framsóknar króatiska hers-
ins. Vflrvöld uppreisnarserba í aöalborg
Krajina, Knin, sökuöu Króata um aö
gena árásir meöffam suövesturmörkum
héraösins.
KINSHASA
Bannaðir fundir og
samkomur
Yfirborgarstjórinn i höfuöborg Zaire,
þar sem taugamar eru þandar til hins
ýtrasta, bannaöi i gær alla pólitíska
fúndi og almennar samkomur eftir
óeirðir þar sem a.m.k. 65 manns létu lif-
iö. Allt virtíst meö kyrrum kjönjm I Kins-
hasa I gær en allt sunnudagskvöldiö
mátti heyra skotiö af rifflum og drunur úr
þyngri vopnum um alla þessa dreiföu
borg.
PHNOM PENH
Stjórnarherinn ræðst
gegn Rauðum kmerum
Her stjómarinnar í Phnom Penh hefur
hmndiö af stokkunum aö þvi er virðist
samstilltri árás á stöövar skæruliöa
Rauöu kmeranna i fjölmörgum héruöum
Kambódiu aö sögn embættismanns
friðargæslusveita Sameinuöu þjóöanna
Igær.
BAGDAD
írakar skynja viðræðu-
vilja frá Washington
Nizar Hamdoon, sendiherra Iraks hjá
Sameinuöu þjóöunum, sagöi i gær aö
hann heföi merkt skilaboö frá yfirvöldum
i Washington sem kynnu aö gefa I skyn
aö Bill Clinton forseti væri tilbúinn aö
hefja viöræöur viö Iraka.
MARJ AZ-ZOHOUR, Libanon
Palestínumennirnir vilja
enga málamiðlun
Palestlnumennimir sem Israelar ráku
úr landi tilkynntu gyöingarikinu og
Bandarikjunum í gær aö þeir værn ekki
til tals um aö vikja frá kröfu sinni um aö
snúa aftur heim.
BRUSSEL
EB hefur formlega við-
ræður við umsækjendur
Evrópubandalagiö hóf I gær formlega
undirbúning aö þvi aö taka I sinn hóp
Austurriki, Finnland og Sviþjóð, fyrstu
nýju aöildam'kin eftir aö þau uröu 12 á
árinu 1986.
„Snati er bara að gelta, Jói. Hann er að reyna
að segja okkur að hann sé brjálaður, eða hrædd■
ur, eða svangur, eða lukkulegur, eða þyrstur eða
þreyttur.“