Tíminn - 30.04.1993, Qupperneq 5
Föstudagur 30. apríl 1993
Tíminn 5
Birgir Thorlacius:
Mynd Egils í Skalla-
grímsgarði
Þegar komið er inn fyrir hliðið að Skallagrímsgarði í Borgarnesi, er til
vinstri stór lágmynd af Agli Skallagrímssyni þar sem hann reiðir Böðv-
ar son sinn drukknaðan áleiðis til haugs Skaliagríms. Mynd þessi er eft-
ir danska listakonu, Anne Marie Brodersen, en hún var eiginkona tón-
skáldsins Carl Nielsen. Dætur þeirra hjóna, Anne Marie Telmanyi og Ir-
meiin, ásamt eiginmanni hennar, dr. Eggert Möller prófessor í læknis-
fræði, gáfu íslenska ríkinu myndina árið 1963.
Menntamálaráðuneytið bauð Lista-
safni íslands myndina, en forráða-
menn þess höfðu ekki áhuga á að fá
hana til sín. Þá sneri ráðuneytið sér
til sveitarstjómar Borgamess og
varð að ráði að myndinni skyldi val-
inn staður í Skallagrímsgarði.
Höfundur myndarinnar, Anne
Marie Nielsen, f. Brodersen, ólst upp
á búgarðinum Thygesminde í ná-
grenni Kolding í Danmörku, þar
sem foreldrar hennar stunduðu um-
fangsmikinn búskap. Snemma bar á
löngun hennar og hæfileikum til að
teikna og móta myndir. Faðir henn-
ar vildi að hún menntaðist til þeirra
starfa, sem húsmóðir þyrfti einkum
að leysa af hendi, og var lítið hrifinn
af listadraumum hennar. Anne
Marie vandist öllum sveitastörfum,
var óhrædd við að þeysa á lítt tömd-
um stóðhesti föður síns og að fást
við naut Hún var mikill dýravinur,
teiknaði dýr og mótaði myndir af
þeim. Hún mótaði mynd af kálfun-
um, annar stóð beinn en hinn var að
klóra sér. Henni gekk illa að fá þá til
að „sitja fyrir", einkum þann sem
átti að vera að klóra sér. Þá datt
henni það snjallræði í hug að laum-
ast yfir í beitiland nágrannans og tók
einhverja óværu af kálfunum þar og
setti á kálfa föður síns. Og þá stóð
ekki á að þeir „sætu fyrir", sífellt að
klóra sér. En faðir hennar var ekki
hrifinn af þessu framtaki dóttur
sinnar.
Þegar Anne Marie var átta eða m'u
ára hugðist faðir hennar rífa gamla
hlöðu og byggja aðra í staðinn. Fjór-
tán ára gamall sonur hans var í verki
með honum. Svo slysalega vildi til
að veggur hrundi á drenginn og beið
hann bana. Anne Marie sagðist aldr-
ei gleyma þegar hún sá föður sinn
bera son sinn látinn heim, þenna
fjörmikla og gáfaða dreng. Þegar
hún löngu síðar gerði myndina af
Agli Skallagrímssyni með Böðvar
drukknaðan, þá var það þessi fjöl-
skylduharmleikur, sem vakti í vit-
und hennar. Hún meitlaði sorg sína
í myndina.
Anne Marie fékk leyfi til að fara til
náms í Kaupmannahöfn til reynslu,
komst í listaháskólann og vann sér
smátt og smátt álit og hlaut verð-
laun fyrir verk sín. Hún komst til
Parísar. Þar kynntist hún Carl Niels-
en, sem síðar varð eiginmaður
hennar og eitt af fremstu tónskáld-
um Dana. Saman ferðuðust þau til
Ítalíu og þegar ferðaféð þraut hurfu
þau heim til Kaupmannahafnar og
settust að í risíbúð í Nýhöfninni.
Bæði unnu þau af kappi að list sinni.
Carl Nielsen fékk vinnu í hljómsveit
Konunglega leikhússins jafnframt
því sem hann vann að tónsmíðum.
Anne Marie fékk einnig verkefni og
vann mikið að þeim heima á búgarði
foreldra sinna, Thygesminde. Bæði
Carl Nielsen og Anne Marie sóttu
hugmyndir í íslenskar fombók-
menntir. Árangurinn varð ekki ein-
ungis myndin af Agli Skallagríms-
syni, heldur einnig hljómsveitarverk
Carl Nielsen, Sagadröm.
Á heimili Nielsens-hjónanna var
dugmikil ráðskona, Maren að nafni,
sem bar hag fjölskyldunnar mjög
fyrir brjósti og var á heimilinu í
fjörutíu ár. Hún gætti þess vandlega
að enginn ónáðaði húsbóndann þeg-
ar hann vann að tónsmíðum. Eitt
sinn kom höfðingsmaður í heim-
sókn og vildi endilega ná tali af Carl
Nielsen. Maren kvað það vera
ómögulegt, hann væri ekki viðlát-
inn. Varð maðurinn frá að hverfa við
svo búið. En rétt í sama mund kom
frúin heim og hitti manninn þar
sem hann stóð vandræðalegur fyrir
dyrum úti. Spurði hún hann að er-
indi og kom þá í ljós að þetta var
Egill reiöir Böövar son sinn látinn. Lágmynd f Skallagrímsgaröi í
Borgarnesi. Þessa mynd eftir dönsku listakonuna Anne Marie Bro-
dersen neitaöi Listasafn íslands aö þiggja.
sendiherra Svía, kominn til þess að
afhenda Carl Nieisen heiðursmerki.
Öðru sinni voru gestir hjá hjónun-
um, þ.á m. maður einn lítill og fi'n-
legur en ekki atkvæðamikill og kona
hans stórvaxin, hávær og sítalandi.
Þegar þessi hjón voru farin segir
Maren: „Það hlýtur að vera mikill
léttir þegar svona manneskja sofn-
ar.“ í blaðaviðtali, þegar Maren hafði
verið áratugum saman í vistinni, var
hún spurð, hvort hún hefði f önd-
verðu ætlað sér að vera svona Iengi.
„Nei,“ svaraði hún, „ég hafði ekki
gert mér grein fyrir að það yrði
svona skemmtilegt."
Stöðugur straumur listamanna var
á heimilinu. Yngri dóttirin stundaði
listmálaranám í listaháskólanum og
þar var margt af ungu fólki sem síð-
ar urðu þekktir listamenn, meðal
þeirra Guðmundur Thorsteinsson
(Muggur). Heimilislífið var litríkt og
glaðvært, en á ýmsu gekk á vinnu-
stað húsbóndans, Konunglega leik-
húsinu, sem ekki mun ótítt þar sem
margir hæfileikamiklir og blóðheitir
listamenn starfa og stundum sýnist
sitt hverjum. En Carl Nielsen mun
yfirleitt hafa verið vinsæll af vinnu-
félögum sínum, þótt öldumar risu
stundum nokkuð hátt Álit hans fór
sífellt vaxandi heima og erlendis. Við
undirbúning Alþingishátíðarinnar
1930 tók Carl Nielsen sæti í dóm-
nefnd um tónverk, ásamt Haraldi
Sigurðssyni og Sigfúsi Einarssyni.
Anne Marie gerði fjölmargar mynd-
ir, sem ýmist eru í söfnum eða á
torgum og í skemmtigörðum í ýms-
um borgum í Danmörku og öðrum
löndum. Við Kristjánsborgarhöll í
Kaupmannahöfn var árið 1927 reist
stórt líkneski af Kristjáni konungi
IX., þar sem hann situr á fögrum
gæðingi. Hafði hún lengi unnið að
þeirri mynd.
Carl Nielsen andaðist í Kaup-
mannahöfh 3. október 1931 og Anne
Marie kona hans aðfaranótt 23.
febrúar 1945.
Að þeim hjónum látnum ákváðu
dætumar, Anne Marie Telmanyi,
listmálari, og Irmelin Möller, ásamt
eiginmanni hennar dr. Eggert Möll-
er prófessor, að gefa íslenska ríkinu
myndina af Agli Skallagrímssyni,
eins og getið er um hér í upphafi.
Fer vel á því að mynd hinnar dönsku
listakonu sé varðveitt á heimaslóð
Egils í garði sem konumar þar hafa
gert af alúð og smekkvísi.
Anne Marie Telmanyi hefur ritað
bók um foreldra sína, sem nefnist
J4it bamdomshjem. Erindringer
om Anne Marie og Carl Nielserí'.
Höfundur er fyrrv. ráðuneytlsstjórl.
I vændum á árinu
Tveir em þeir flokkar frímerkja,
sem virðast orðnir ,/astir liðir eins
og venjulega" í frímerkjaútgáfu hér-
lendis. Það em Evrópufrímerkin,
eða CEPT-frímerkin eins og þau em
líka kölluð. Þá em einnig Norður-
landafrímerkin í þeim flokki. Á
þessu ári, 1993, er myndefni þessara
frímerkja, að því er CEPT varðar, nú-
tímalist. Hinsvegar að því er Norð-
urlandafrímerkin varðar er mynd-
efnið .Áfangastaðir ferðamanna".
Nútímalistin verður túlkuð með
höggmyndum, sem em annarsvegar
á Akureyri, en hinsvegar Þotu-
hreiðrið við Leifsstöð á Keflavíkur-
flugvelli. Það verða hinsvegar Bláa
lónið og Perlan, sem skreyta nor-
rænu frímerkin. Er þetta góð aug-
lýsing fyrir báða veitingastaðina.
Norðurlandafrímerkin verða eðli-
lega gefin út á venjulegan hátt, bæði
sem óstimpluð og fyrsta dags
stimpluð frímerki. Auk þess verður
svo gefin út sérstök bók með frí-
merkjunum og svo gjafamöppur.
Hver á að safna þessu öllu og til
hvers? Þá er þess skemmst að minn-
ast að Evrópublokk frímerkjanna í
fyrra var einnig gefin út í gjafa-
möppu. Þá virðist augljóst að með
þeim útgáfuhraða sem er á frí-
merkjaflokkunum „Keppnisíþrótt-
ir“, „íslenskar brýr", „Dagur frí-
merkisins", Jólafrímerki" og svo
framvegis, að þeir geti vel átt heima
í gjafamöppum. En þá vaknar önnur
spuming. Hve margar útgáfur á ári
hveiju em ekki orðnar bundnar við
fasta flokka frímerkja? Mér virðist
við vera búin að binda okkur í helsi
útgáfu sem að öllu leyti er bundin
fyrirfram. Er það heppilegt, eða væri
meira frelsi betra?
Þá verða norrænu frímerkin og
CEPT-frímerkin gefin út þann 26.
aprfl næstkomandi. Síðan er ákveð-
in útgáfa þann 9. október, eða á degi
frímerkisins. Þá mun eiga að gefa út
frímerki með fjórum flugvélum, á
Kapellan á Núpsstaö.
sama hátt í smáörk og skipin og bíl-
amir hafa verið. Ef reynt er að draga
ályktanir af því sem á undan er
gengið, þá kom út frímerki með
mynd Sjómannaskólans um leið og
skipin og merki með brúm, svo að
bflamir kæmust yfir ámar. Þá hlýtur
að koma út frímerki sem að ein-
hverju leyti varðar flugsöguna, í
haust. Þætti mér tilvalið að það sér-
staka frímerki, jafnvel í blokk, verði
sérstaklega til að heiðra langa þjón-
ustu Þristanna. Til dæmis mynd af
Landgræðsluflugvélinni á söndum
Gunnarsholts, með Heklu í baksýn.
Jólafrímerki ársins koma svo út
þann 8. nóvember og verða eins og
áður tvö að tölu. í tilkynningunni er
tekið fram að þau verði í tveim verð-
gildum, þá sennilega mismunandi.
Það er gömul ósk þess er þetta rit-
ar, að gamlar íslenskar kirkjur verði
heiðraðar á íslenskum jólafrímerkj-
um. Ég kem þessari ósk að einu
sinni enn og minni þá á kapelluna á
Núpsstað. Ekki sakaði að minnast
landpóstanna með því að hafa mynd-
ina með Hannesi við dymar á kapell-
unni. Hann væri verðugur fulltrúi
þeirrar stéttar. fslensku landpóstun-
um, sem ferðuðust um hér áður fyrr,
ýmist gangandi eða á hestum, síðan
á hestvögnum og nú loks á jeppum
og vélsleðum, verður reist minnis-
merki á þessu ári. Hvað væri þá bet-
ur viðeigandi en að minnast þeirra
einnig á frímerki á árinu?
Einhvemveginn finnst þeim, sem
þetta ritar, að pláss væri fyrir eina
útgáfú enn á árinu. Til dæmis milli
26. apríl og 9. október.
Sigurður H. Þorsteinsson
TREGÐU-
VIRKJUN HF.
Tregðan er stærsta lögmál al-
heimsins á eftir móður náttúru.
Hennar gætir í vaxandi hlutfalli
eftir þvl sem sfórir hlutir
stækka I einu þjóðféiagi.
Stundum nær tregðan þeirri
hæð að upp ganga rætur
hennar í samfélaginu og hún
afmyndast f bákn með sjálf-
stætt llf. Snýst á eigin spor-
baug utan við æðaslög al-
mennlngs og ofar en önnur
himintungl.
Gott dæmi um íslenska
tregðu er Landsvirkjun. Reikn-
ingarsýna að hún tapaði rúrn-
um tvelm milljörðum króna f
fyrra og búast má við rúmlega
milljarðs tapi í ár. Tapið er góð-
ur þriöjungur af tekjum fyrir-
tækisins, sem voai tæpir sex
milljarðar króna og dugðu tekj-
ur ekkl fyrir vöxtum og afskrift-
um. En tregðan lætur ekki að
sér hæða.
Stjómarformaður Landsvirkj-
unar segir ekki ástæðu til ann-
ars en að sigla áfram fyrir full-
um seglum, þrátt fyrir tapið.
Ennþá séu til eignir til að
brenna á siglingunni og bráð-
um komi betri tlð með fleiri
iðjuver. Islensk orka tapi ekki
gildi sínu og tfmi sæstrengja sé
I nánd.
Það er rétt hjá formanni að
sæstrengir geti malað gull f
ríkiskassann, en tfmi þeirra er
ekki kominn. Ný iðjuver em
hins vegar skýjaborgir. Nú
dregur úr álnotkun I heiminum
og álverin loka fyrir fullt og fast.
Aðelns góður orkusamningur
íslendinga heldur Straumsvlk
opinni þangað til hann rennur
út og þá tekur óvissan við. Um
gildi orkunnar fer hins vegar
tvennum sögum og þarf ekki
aö seilast um hurð tii lokunnar.
Höfundur þessa pistils rak
veitingasölu á höfuðtorgi
Reykjavfkur f áratug á ódýru
kósangasi og svipaða sögu
segja brauögerðarmenn og
fleiri iðnrekendur um innlent
orkuverð. Skip keyra Ijósavélar
við bryggju á innfluttri oflu og
hafna dýru rafmagni úr landi.
Landsvirkjun ætti að kanna
þennan markað áður en hún
ræðst I landvinninga um sæ-
strengi.
Kjami vandans er að Lands-
virkjun siglír stöðugt áfram í
krafti tregðunnar til að halda
vinnu og verkefnum. Burtséð
frá þörfum þjóðarinnar fyrir raf-
magn á hverjum tima, eirts og
Bianda og Krafla vitna um. Hér
verðurað hagræða eins og i
öðmm rekstri. Landsvirkjun er
skorpufyrirtæki og á að virkja
þegar virkja þarf, en ekki eftir
þörfum starfsfólks eða byggð-
ariaga. Þess á milli þarf ekki
margt fólk á launaskrá og ýmis
dagleg verkefni má eins vel
bjóða út og virkjanimar sjálfar.
Fyrir siglingunni em stjómar-
menn einir ábyrgir, því enginn
gerir kröfu um að starfemenn
hagræði sjálfúm sér út af
launaskrá. En stjómarmenn
eiga það allir sameiginlegt utan
einn að hafa aldrei borið sjálfir
ábyrgð á eigin atvinnurekstri. í
stjóm Landsvirkjunarsitja þvi
dánumenn úr ýmsum áttum til
aö gæta herfangs, en ekki til
að takast á við tregðu.
Landsvirkjun stendur á tíma-
mótum og alit bendir til að erf-
iðir tfmar fari i hönd. Nú verða
stjómarmenn að láta af ffekari
hagsmunagæslu i bili og hugsa
um starfið sitt. Raunar þarf að-
eins einn stjómarmann til að
ganga á hólm við tregöuna og
spyrja hvort skipln þurfi að róa
fdag.