Tíminn - 26.11.1993, Side 1
KALLAR KVÓTA-
KERFIÐ Á SKIPU-
LAGÐA GLÆPA-
STARFSEMI?
-sjá baksíðu
BORGARFULL-
TRÚAR FÁ ÓUÓS
OG VILLANDI
SVÖR VIÐ FYRIR-
SPURN
-sjá síðu 3
LÍFEYRISRÉTTUR-
INN VERÐI SAM-
EIGN HJÓNA
-sjá baksíðu
LANDSBYGGÐAR-
BRÖLTID HEFUR
SKILAÐ ÁRANGRI
í SMUGUNNI
-sjá síðu 7
KK í STRÍÐ VIÐ
JÓN BÆJÓ
-sjá baksíðu
AÐGÁTSKAL
HÖFÐ í SAM-
SKIPTUM VIÐ
BAKKUS KON-
UNG
-sjá síðu ó
Samkeppnis-
stofnun kannar
auglýsinga-
bann
Samkeppnisstofnun hefur
hafið könnun á auglýsinga-
banni því sem við greindum
frá á forsíðu blaðsins í gær,
þar sem kaupmenn í Kringl-
unni komu í veg fyrir að
Laugavegssamtökin gætu
birt auglýsingar á auglýsing-
arskilti við Kringluna. í
fréttatilkynningu frá Lauga-
vegssamtökununi segir að
þau hafi haft samband við
Samkeppnisstofnun og það
virðist véra um brot á sam-
keppnislögum að ræða.
Auglýsingarskiltið um-
rædda er í eigu Kringlunnar
en Kviksýn hefur það á
leigu og selur auglýsingar á
það. -PS
Atvinnuleysið kostar
7,3 milljarða
Þjóðhagsstofnun telur að atvinnuleysið kosti samfélagið um 7,3
milljarða króna á þessu ári og kostnaðurinn verði a.m.k. 8 milljarðar
á næsta ári. Er þá hvorki talinn með ýmis konar óbeinn kostnaður af
atvinnuleysi, s.s. aukið álag á heilbrigðiskerfið og ýmsir aðrir samfé-
lagslega þættir, né heldur hin neikvæðu félagslegu áhrif sem fylgja
atvinnuleysi, félagsleg einangrun, vanmetakennd og misnotkun
áfengis og annarra vímuefna.
Niðurstöður Þjóðhagsstofnunar
er kynntar í skýrslu sem félags-
málaráðherra hefur lagt fram á Al-
þingi um rannsókn á afleiðingum
atvinnuleysis. Skýrslan var unnin í
framhaldi af þingsályktunartillögu
sem samþykkt var á Alþingi síðast-
liðið vor.
Þjóðhagsstofnun bendir á að erf-
itt sé að meta allan kostnað sem
hlýst af atvinnuleysi. Það sé t.d.
erfitt að skilgreina og mæla auk-
inn kostnað í heilbrigðiskerfinu
sem rekja megi til atvinnuleysis.
Sama eigi við um aukna misnotk-
un áfengis og fíkniefna, afbrota
o.fl. Þjóðhagsstofnun bendir á
þessa þætti í skýrslu sinni, en
reynir ekki að meta þá í útreikn-
ingum sínum.
Það er hins vegar tiltölulega auð-
velt að meta hvað ríkið tapar í
skatttekjum vegna atvinnuleysis,
hvað það þarf að borga í atvinnu-
leysisbætur, hvað tekjur heimil-
anna minnka mikið og eins hver
beinn kostnaður sveitarfélaganna
er vegna atvinnuleysis.
í skýrslu Þjóðhagsstofnunar segir
að beinn kostnaður ríkis og sveit-
arfélaga vegna atvinnulauss
manns hafi verið um 1.081 þús-
und krónur á síðasta ári. Við það
bætist lækkun ráðstöfunartekna
um 412 þúsund krónur þannig að
beinn kostnaður samfélagsins
vegna atvinnuleysis sé um 1.493
þúsund krónur. Þetta þýðir að
beinn kostnaður samfélagsins
vegna atvinnuleysis á síðasta ári sé
áætlaður 4.058 milljónir. Miðað
við áætlað atvinnuleysi á þessu ári
gæti kostnaðurinn numið 7,3
milljörðum og gangi spár um at-
vinnuleysi á næsta ári eftir, gæti
kostnaðurinn það ár orðið um 8
milljarðar.
í skýrslu Þjóðhagsstofnunar er
bent á þá staðreynd að atvinnu-
leysi hér á landi jókst samhliða
hjöðnun verðbólgunnar og að
reynsla margra annarra vestrænna
þjóða sé hin sama. Hagfræðingar
telji að orsakasamband sé á milli
minni verðbólgu og aukins at-
vinnuleysis, a.m.k. til skemmri
tíma litið. „Margir hagfræðingar
hafa einmitt dregið í efa að ávinn-
ingur af lækkun verðbólgu réttlæti
þær fórnir sem atvinnuleysi er
samfara,' segir í skýrslu Þjóðhags-
stofnunar. „Á hinn bóginn mæla
margvísleg rök með því að lægri
verðbólga og almennur stöðugleiki
sé til þess fallinn að auka hagvöxt
er til lengri tíma sé litið og leiði
þar með til fleiri atvinnutæki-
færa.' -EÓ
Ingólfstorg í gærkvöld. Hönnun og fromkvæmdir ver&a bæði dýrari og tímafrekari en ætlað var í upphafi.
Hönnun Ingólfstorgs
kostar 29 milljónir
Kostnaður við framkvæmdir stefnir í 210 milljónir
Hönnunarkostnaður vegna framkvæmda við Ingólfstorg í miðbæ
Reykjavíkur er orðinn 29 milljónir króna og hefur farið 31% fram úr
áætlun. Framkvæmdimar í heild hafa einnig farið fram úr áætlun og er
nú talið að þær kosti alls a.m.k. 210 milljónir króna.
Mikið vantaði á að hönnun Ing-
ólfstorgs væri lokið þegar fram-
kvæmdir hófust við torgið. Þetta
mun vera ein af ástæðunum fyrir
því að hönnunarkostnaður varð
meiri en ráð var fyrir gert í upp-
hafi.
1 bókun sem borgarfulltrúarnir
Ólína Þorvarðardóttir, Sigrún
Magnúsdóttir og Margrét Sæ-
mundsdóttir lögðu fram á borgar-
ráðsfundi segir: „Hringlandaháttur
og fáránlega hár hönnunarkostn-
aður við framkvæmdir á Ingólfs-
torgi er verðugt umhugsunarefni
fyrir kjörna fulltrúa og víti til
varnaðar. Enn sem fyrr ætlar
Reykjavíkurborg að reynast það
ofraun að semja raunhæfar áætl-
anir um hönnunarkosmað mann-
virkja.'
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins svöruðu þessu og bentu á að
hönnunarkostnaður Ingólfstorgs
hefði verið áætlaður 15% af fram-
kvæmdakostnaði. Það kæmi til
með að standast. Kostnaður við
framkvæmdina sem heild, þar
með talinn hönnunarkostnaður,
hafi farið fram úr áætlun.
„Þaö er hins vegar full ástæða til
að taka til endurskoðunar hönn-
unarkostnað við svokölluð sérstök
og flókin verkefni í þeim tilgangi
að draga úr honum eins og kostur
er,' segir í bókun sjálfstæðis-
manna.
í áætlun var gert ráð fyrir að
framkvæmdir við Ingólfstorg
myndu kosta 145 milljónir króna
og þar af yrði hönnunarkostnaður
tæpar 22 milljónir. Nú stefnir í að
heildarkostnaður vegna gerðar
torgsins og umhverfis verði 170
milljónir á þessu ári og 40 milljón-
ir síðar. Hönnunarkostnaður er
áætlaður 28,2 milljónir. -EÓ
Farmenn í
útrýming-
arhættu
Af 20 kaupskipum sigla
aðeins 9 undir íslensk-
um fána
Með áframhaldandi útflöggun
kaupskipaflotans kann svo að fara
að engir vilji fara til náms í yfir-
mannastörfin og skólar skipstjórn-
ar- og vélstjórafræðslu líði hægt
og sígandi undir lok. Þar með
mundi atvinnustéttum landsins
fækka um eina.
Á sl. þremur árum hefur stöðu-
gildum fslendinga á kaupskipaflot-
anum fækkað úr því að vera 375 í
ársbyrjun 1990 í 253 í janúar
1993, eða úr 81,5% í 74,2%. Þetta
þýðir að ársstörfum íslenskra far-
manna hefur fækkað um 183 sé
gert ráð fyrir því að hver staða
jafngildi 1,5 ársstarfi.
Á síðastliðnum áratug og það
sem af er þessum hefur skipum
sem gerð eru út af útgerðum inn-
an Sambands íslenskra kaupskipa-
útgerða fækkað úr 51 skipi í 30
miðað við janúar 1993. En árið
1980 voru 48 þessara skipa skráð
á íslandi. Síðan í ársbyijun hefur
kaupskipunum fækkað um eitt og
af 29 skipum sigla aðeins 9 undir
íslenskum fána en 20 undir þæg-
indafána.
Til að snúa vörn í sókn horfa
hagsmunasamtök farmanna eink-
um til þeirra aðgerða sem Danir
hafa gert til bjargar sínum kaup-
skipaflota með góðum árangri. En
árið 1988 voru nær öll kaupskip
þeirra skráð undir þægindafána og
mönnuð útlendingum frá lág-
launalöndum. En aðgerðir þeirra
sneru dæminu við, nær öll kaup-
skip sigla undir dönskum fána og
eru 90%-95% mönnum dönskum
áhöfnum. -GRH
rBÓNVARP
ÚTVARP
SIÐAÖ
W pl* * ÍÞRÓTTIR
W SIÐA11 SÍÐA 5