Tíminn - 26.11.1993, Side 5
Föstudagur 26. nóvember 1993
íþróttir xHl Umsjón: Kristján Grímsson
5
Stórsigur Hauka
Eru nú í 2. sæti B-riðils
Bragi Magnússon og samherjar hans í Haukum áltu ekki í
miklum erfiðleikum meS SauSkrækinga i gærkvöld.
Leikar enduSu 95-68, Haukum í hag. Timamynd Pjetur
Sú yngsta frá upphafi
Skíðakonan Franziska van Almsick varð í gær yngsti íþróttamaður-
inn í kvennaflokki til að hljóta þýsku einstaklingsverðlaunin sem
þarlendir íþróttafréttamenn veita. Almsick er aðeins 15 ára gömul og
það voru sex gullverðlaun á Evrópumótinu í sundi sem færðu henni
titilinn eftirsótta. Næstar á eftir Almsick voru Heike Drechsler lang-
stökkvari, Steffi Graf tenniskona og Katja Seizinger skíðakona. Alms-
ick er fyrsta sundkonan í 19 ár sem hlýtur verðlaunin og aðeins sú
fimmta í 72ja ára sögu þessara verðlauna.
í karlaflokki vann boxarinn í léttþungavigt, Henry Maske, sömu
verðlaun og skildi m.a. tenniskappann Michael Stich fyrir aftan sig.
Pýska körfuknattleiksliðið í karlaflokki sem vann Evróputitilinn í
sumar fékk hópíþróttatitilinn.
Houston
ósigraó
í elíefu
leikjum
Houston Rockets heldur áfram
sigurgöngu sinni í NBA körfubolt-
anum í Bandaríkjunum. í fyrri-
nótt lenti Houston í talsverðum
erfiðleikum með Utah Jazz á
heimavelli síðarnefnda liðsins.
Lokatölur urðu 93-95 eftir æsileg-
ar lokamínútur þar sem niður-
staða fékkst ekki í leiknum fyrr en
eftir framlengingu. Pegar tvær
sekúndur voru eftir af venjulegum
Charles Barldey skora&i 21
stig fyrir Phoenix i 130-107
sigurieik gegn Denver.
leiktíma var Utah tveimur stigum
yfir, 86-84, og var það reyndar í
eina skiptið sem Utah var yfir í
leiknum. En Mario Elie fékk þá
tvö vítaskot fyrir Houston og skor-
aði úr þeim báðum og það var svo
Vernon Maxwell sem tryggði 11.
sigur Houston í jafnmörgum leikj-
um í framlengingunni. Risinn í
Houston liðinu, Hakeem Olajuw-
on, skoraði flest stig í leiknum, 29,
og John Stockton gerði 24 stig fyr-
ir Utah Jazz.
Seattle Supersonics er einnig
ósigrað en þeir lögðu Sacramento
Kings, einnig á útivelli, 93-120.
Seattle hefur nú unnið mu fyrstu
leikina sína. Gary Payton gerði 23
stig fyrir Seattle en Mitch Richm-
ond gerði 24 stig fyrir Sacra-
mento. Pessir tveir voru stiga-
hæstir hjá hvoru liði.
Charles Barkley skoraði 21 stig
fyrir Phoenix Suns þegar liðið
vann stóran sigur á Denver Nug-
gets, 130-97.
Úrslitin í fyrrinótt
uróu þessi:
Utah Jazz-Houston ...........93-95
Phoenix Suns-Denver.'.......130-107
Sacramento-Seattle..........93-120
San Antonio-Chicago ........109-84
Minnesota-New Jersey........107-106
Milwaukee-Atlanta............85-89
Indiana-Philadelphia........97-108
Charlotte-L.A. Lakers .....141-124
Miami-Goiden State ........102-108
Cleveland-Washington ......113-107
Detroit-Boston ............103-118
Stafton
AHantshafsriðill
(sigur og tapleikir, vinningshlutfall)
New York ..................8 2 80.0
Boston ....................7 4 63.6
Orlando ...................6 4 60.0
Washington................5 5 55.5
New Jersey................4 7 36.4
Philadelphia ..............4 7 36.4
Miami.....................3 6 33.3
Miðdeild
Atlanta ...................7 4 63.6
Charlotte.................7 4 63.6
Detroit.................. 5 5 50.0
Chicago ...................4 7 36.4
Cleveland .................4 6 40.0
Indiana.................. 3 7 30.0
Milwaukee.................1 9 10.0
Miðvesturriðill
Houston...................11 0 100
Utah Jazz.................7 4 63.6
San Antonio.............. 7 5 58.3
Denver....................4 6 40.0
Minnesota .................3 6 33.3
Dallas....................1 9 10.0
Kyrrahafsriðill
Seattle ....................9 0 100
Phoenix Suns ..............7 2 77.8
Portland..................6 4 60.0
L.A. Clippers............ 5 5 50.0
Golden State..............4 6 40.0
Sacramento ................4 6 40.0
L.A. Lakers ...............3 9 25.0
Haukar úr Hafnarfirði áttu ekki í
miklum erfiðleikum með Tinda-
stól í viðureign liðanna í Visa-
deildinni í gærkvöld. Haukar
unnu stórsigur, 95- 68, og hefðu
þeir getað unnið stærri sigur ef
rétt hugarfar hefði fylgt allan
leikinn en kæruleysið var tals-
vert í lokin. Staðan í leikhléi var
43-36 fyrir Hauka.
Fyrri hálfeikur var ekki vel
Ieikinn af beggja hða hálfu. Mik-
ið var um mistök og fátt benti til
þess að Haukar ætluðu að kaf-
sigla Tindastólsmenn. Munurinn
á liðunum í fyrri hálfleik var
mestur í leikhléi, 43-36.
Haukar tóku sig talsvert á í
seinni hálfleik og lögðu grunn-
inn að stórsigrinum á fyrstu 10
mínútunum en þá gekk hvorki
né rak hjá Tindastóh í sókninni
og vörn þeirra var mjög slök.
Lokatölur urðu 95-68 fyrir
Hauka.
John Rhodes var bestur Hauka
og skoraði 21 stig en auk þess
hirti hann 16 fráköst. Jón Amar
Ingvarsson gerði 19, Pétur Ingv-
arsson 16 og Jón Örn Guð-
mundsson 14. Aðrir gerðu
minna. Hjá Tindastóli gerði Ro-
bert Buntic flest stig eða 21, Lár-
us Pálsson skoraði 13 og Ingvar
Ormarsson 12.
Haukar-Tindastóll . 95-68
(43-36)
ÍA-ÍBK 63-84
(31-45)
Skctllagr.-Snæfell ... 83-72
(46-40)
Sta&an
A-ri&ill
ÍBK......11 6 5 1092-960 12
Snæfell .11 5 6 906-950 10
Skaflagr. 11 4 7 884-916 8
ÍA ......:.10 2 8 798-944 4
Valur ....10 1 9 848-984 2
B-riðill
Njarðvík 10 9 1 950-817 18
Haukar .11 8 3 945-837 16
Grfndav. 10 8 2 906-846 16
KR.......10 6 4 956-919 12
Tindast. 10 3 7 750-852 6
Flestir knattspymuáhugamenn
kannast við hinn lipra knatt-
spyrnumann Roger Milla frá
Kamerún, sem nú er 41 árs, og
sló svo eftirminnilega í gegn á
síðasta heimsmeistaramóti á ítal-
íu ásamt landsliði Kamerún.
Milla var kjörinn maður þess
heimsmeistaramóts. Til að rifja
aðeins upp fyrir lesendum þá
vann Kamerún þáverandi
heimsmeistara Argentínu í opn-
unarleik mótsins, 1- 0. Sam-
kvæmt fréttum ítalskra blaða í
gær þá hefur Milla ákveðið að
fara að leika knattspyrnu að
nýju í heimalandi sínu með Uði
er kaUast Tonnerre Yaoundé og
er kennt við höfuðborgina þar í
landi, Yaoundé. MiUa gerði garð-
Kankkunen
fremstur
Juha Kankkunen sigraði í gær í kon-
unglega breska rallýinu og varð þar
með sigursælasti rallökumaður fyrr
og síðar. Kankunen, sem vann þetta
mót með talsverðum yfirburðum,
hefur m.a. á afrekaskrá sinni fjóra
HM-titla sem gefa honum viður-
nefnið sigursælasti rallökumaður frá
upphafi.
inn frægan hér á árum áður með
Valenda á Spáni og frönsku Uð-
unum St.Etienne, Bastia og
MontepeUier. En Milla ætlar sér
meira en bara að Ieika í heima-
landi sínu. Hann hefur sett sér
það takmark að komast í lands-
liðshóp Kamerún sem hefur
tryggt sér farseðilinn á heims-
meistarmótið í Bandaríkjunum á
næsta ári. Ef MUIa nær takmarki
sínu þá verður hann orðinn 42ja
ára þegar leikamir fara fram og
þar með elsti leikmaður sem
leikið hefur í heimsmeistara-
keppninni í knattspyrnu. Sá er
metið á er Stanley Matthews
sem lék með enska landsliðinu á
árunum 1935-1957 og var orð-
inn 41 árs þegar hann lék sinn
Cagliari vann
ítalska félagið Cagliari sigraði Mec-
helen frá Belgíu í fyrri leik liðanna í
Evrópukeppni félagsliða í gærkvöldi,
1-3. Leikurinn fór fram í Belgíu og
skoruðu leikmenn Cagliari tvö mörk
á síðustu átta mínútunum og ættu
að hafa tryggt sér farseðilinn í fjórðu
umferð. Matteoli, Oliviera og Pusc-
eddu gerðu mörk Cagliari en Czemi-
atynski mark Mechelen.
síðasta landsleik með Englend-
ingum.
íÍÍKyOlDl
Korfuknattieikur
Nissandeildin
Njarðvík-Grindav. ..kl. 20
Handknattleikur
Bikarkeppni karla
ló-liða úrslil
Völsungur-Selfoss .kl. 20
ÍH-KA..........kl. 20
Blak
KA-ÍS ka.......kl. 20
KA-ÍSkv........kl. 21.15
HK-Sindri kv...kl. 20
v__________________________J
41 árs oa tekur fram
skóna ao nýju
Roger Milla stefnir á að leika meá Kamerún í Bandaríkjunum á næsta ári
... Örebro í Svíþjóð hefur sýnt
áhuga á að fá Arnór Guðjohnsen
til liðs við félagið. Fyrir hjá Orebro
er Hlynur Stefánsson er forráðamen
félagsins voru í viðræðum við hann
hér á landi um helgina.
... Andy Cole, markahæsti leik-
maður ensku knattspyrnunnar, held-
ur til Lundúna á laugardaginn með
samherjum sínum í Newcaslle til að
leika gegn Arsenal. Þar mætir Cole
m.a. öðrum fram-
línumanni, lan
Wright, sem hald-
ið hefur Cole fyrir
utan enska lands-
liðið. Cole lék
einn leik á sínum
tima með Arsenal
en forráðmenn
liðsins sáu ekki
ástæðu til að
halda honum.
Cole hefur skor-
að 22 mörk í 18 leikjum með
Newcastle. Fyrirliði Arsenal, Tony
Adams, leikur líklega að nýju með
liðinu eftir að hafa verið frá í þrem-
ur leikjum vegna veikinda. Leikurinn
verður sýndur i beinni útsendingu í
rikissjónvarpinu.
Andy Cole hefur
skorað 18 mörk
i 11 leikjum.
... Gary Mabbut meiddist illa i
leik með liði sinu Tottenham gegn
Wimbledon á miðvikudaginn þeg-
ar hann lenti i samstuði við John
Fashanu. Fyrst var haldið að Mab-
but væri kinnbeinsbrotinn en nú hef-
ur komið i Ijós að hann er höfuð-
kúpubrotinn og gekkst Mabbut und-
ir aðgerð vegna þessa i gær. Fas-
hanu fékk ekki einu sinni að sjá
gula spjaldið og æHar Tottenham
að kvarta til réttra aðila vegna að-
gerðaleysis dómarans.
... Enska knattspyrnusambandið
hefur beðið Don Howe að hafa um-
sjón með enska landsliðinu í tveinrv
ur leikjum sem fyrirhugaðir eru á
næsta ári gegn Danmörku og
Þýskalandi þrátt fyrir að Howe hafi
lýst þvi yfir að hann hafi ekki
áhuga á starfinu. Howe var aðstoð-
armaður Bobby Robson þegar Eng-
lendingar komust i úrslit HM árið
1990.
... Þorvaldur Oriygsson og fé-
lagar hans í Stoke City hafa fengið
nýjan markvörð í leikmannahópinn.
Sá heitir Gordon Marshall og er 29
ára skoskur landsliðsmaður. Mars-
hall kemur frá Celtic og verður fyrst
í stað á mánaðarleigusamningi.
... Norwich tapaði fyrir Inler Mil-
an á miðvikudagskvöldið i Evrópu-
keppni félagsliða, 0-1. Nú hefur fé-
lagið heitið á leikmenn enska liðs-
ins um 10.000 pundum ef þeir
komast áfram. Þetta þykir há upp-
hæð miðað við það að Norwich
borgar ein lægstu launin i ensku úr-
valsdeildinni. „Launin hjá leikmönn-
um eru lág en bónusarnir eru háir
hjá okkur," sagði Mike Walker,
framkvæmdastjóri Norwich.
... Ronnie Rosenthal er efstur á
lista nýráðins þjálfara svissneska
liðsins Neuchatel Xamas, Don Gi-
vens. Til að rýma fyrir Rosenthal vill
Givens losna við bosníska leik-
manninn Sead Seferovic.
... Maradona á enn eftir að
fagna sigri með nýja félaginy, Ne-
well's Old Boys í Argentínu. í vik-
unni gerðu „gömlu drengirnir' D0
jafntefli og voru þeir óheppnir að
sigra ekki. Maradona þurfti að fara
af leikvelli vegna meiðsla þegar 20
mínútur voru eftir af leiknum.
... Brasiliska libið Sao Paulo
sigraði Flamengo, frá sama landi,
5- 3 í úrslitaleik i suður-amerísku
„Super-cup' bikarkeppninnar, eftir
vitaspyrnukeppni. Þetta var seinni
leikur liðanna en þeim fyrri lauk
með jafntefli, 2-2, rétt eins og niður-
staöan varð í seinni leiknum eftir
venjulegan leiktima.