Tíminn - 26.11.1993, Page 6
6
Föstudagur 26. nóvember 1993
Legið á upplýs-
ingum í borgar-
kerfinu?
Borgarfulltrúar fá óljós og jafnvel villandi
svör við fyrirspurnum sínum
Ólína Þorvarðardóttir, borgar-
fulltrúi Nýs vettvangs, ásakar
embættismenn Reykjavíkurborg-
ar um að gefa óljós og jafnvel
villandi svör við fyrirspurnum
sem borgarfulltrúar bera fram í
Lægri
vísitala
Vísitala byggingarkostnaðar í
nóvember er 0,1 % lægri en hún
var í október, eða 195,6 stig,
samkvæmt útreikningum Hag-
stofunnar miðað við verðlag um
miðjan þennan mánuð. Vísitalan
gildir fyrir desember.
Síðastliðna 12 mánuði hefur
vísitala byggingarkostnaðar
hækkað um 3,4%, um 0,4% síð-
astliðna 3 mánuði, sem jafngildir
1,7% hækkun á ári.
Þá er launavísitalan óbreytt í
nóvember miðað við fyrri mán-
uð miðað við meðallaun, eða
131,5 stig. Samsvarandi launa-
vísitala, sem gildir við útreikning
greiðslumarks fasteignaveðlána,
er því sömuleiðis óbreytt, eða
2.875 stig í desember í ár. -GRH
borgarráði og borgarstjóm. Ólína
og raunar fleiri borgarfulltrúar
hafa gripið til þess ráðs að spyija
oftar en einu sinni um sama efni
tíl að knýja fram skýr svör.
„Óljós og jafnvel villandi svör
embættismanna við fyrirspum-
um borgarfulltrúa eru ámælis-
verð og áhyggjuefni, þar sem
kjörnir fulltrúar þurfa að geta
treyst því að allar umbeðnar
upplýsingar séu ekki einungis
sannar og réttar, heldur einnig
skýrar og aðgengilegar,' segir í
bókun Ólínu.
Ólína vísar til fyrirspuma um
framkvæmdir við Korpúlfsstaði
og við Ingólfstorg, en sama á
einnig við um fyrirspurn um
leiguíbúðir í eigu borgarinnar,
sem borgarstjóri ráðstafar.
Borgarstjóri Iét bóka af þessu
tilefni að svör embættismanna
borgarinnar hljóti að vera eins
ítarlegar og fyrirspurnirnar gefa
tilefni til. Hann sagði að það að
borgarfulltrúar Nýs vettvangs
þurfi að spyrja aftur um sama
málefni sýni ónákvæm vinnu-
brögð þeirra þegar fyrirspumim-
ar eru upphaflega settar fram.
Borgarstjóri hafnaði því alger-
lega að legið sé á upplýsingum í
borgarkerfinu. -EÓ
Atvinnustefna
Nýafstaðinn sambandsstjómarfundur ASÍ telur mikilvægt að Alþýðu-
sambandið hefji þegar nauðsynlega vinnu við mótun heilsteyptrar at-
vinnumálastefnu.
Sambandsstjórnin felur at-
vinnumálahópi ASÍ að hafa náið
samráð við formenn landssam-
banda við mótun slíkrar at-
vinnumálastefnu, með það fyrir
augum að niðurstaða liggi fyrir á
næsta sambandsstjórnarfundi
haustið 1994.
í ályktun fundarins kemur m.a.
fram að mikilvægt sé að at-
vinnumálastefna ASÍ nái til allra
þátta atvinnuuppbyggingar til
Maríus Sverrisson og Sóley Elíasdóttir í Skilaboðaskjóðunni.
Skilaboðaskjóðan
Nýtt íslenskt barnaleikrit
Þjóðleikhúsið frumsýndi bama-
leikritið Skilaboðaskjóðuna á
Stóra sviðinu í gærkvöldi. Höf-
—undur verksins er Þorvaldur
mótuð
lengri tíma litið. Jafnframt eigi
atvinnumálastefnan að tengja
saman áherslur verkalýðshreyf-
ingarinnar hvað varðar efna-
hagsmál, starfsmennta- og iðn-
fræðslumál, tækniþróun og
tæknivæðingu, rannsóknir og
þróun, umhverfismál, starfsskil-
yrði atvinnuveganna, virka
vinnumarkaðsstefnu o.fl. -GRH
Þorsteinsson og byggir hann
verkið á sögupersónum úr sam-
nefndri verðlaunabarnabók
sinni. Þorvaldur samdi einnig
söngtextana í sýningunni, en
tónlistin er eftir Jóhann G. Jó-
hannsson, sem einnig er hljóm-
sveitarstjóri. Leikstjóri sýningar-
innar er Kolbrún Halldórsdóttir,
leikmynd og búningar eru eftir
Karl Aspelund og Ástrós Gunn-
arsdóttir semur dansa.
Þorvaldur Þorsteinsson er rit-
höfundur og myndlistarmaður.
Sagan um Skilaboðaskjóðuna
kom fyrst út árið 1986, mynd-
skreytt af höfundi. Hann hefur
einnig samið örleikrit, sem hafa
mörg verið flutt í útvarpi.
Jóla, jóla í
Kjallaranum
Nær öll kvöld fram til jóla verð-
ur boðið uppá fjölbreytta dag-
skrá í Leikhúskjallaranum, sem
samanstendur af upplestri, ljóða-
lestri, leik, söng og dansi. Um
100 listamenn munu taka þátt í
þessari jóladagskrá í Kjallaran-
um.
N.k. mánudags- og miðviku-
dagskvöld verða kynntar nýjar
íslenskar bókmenntir og á
fimmtudagskvöldum troða upp
vinsælir tónlistarmenn og leika
lög af nýútkomnum geisladisk-
um.
Á sunnudagskvöldum verður
gestum skemmt með lifandi
flutningi jólalaga og öðmm létt-
um lögum og mánudaginn 13.
desember n.k. verður m.a. flutt-
ur leikþátturinn Hinn sterki eft-
ir Ágúst Strindberg.
Sérstöku dagatali verður
dreift um borgina til að auð-
velda fólki að átta sig á því
hvað er á boðstólum hveiju
sinni.
1SARAJEVO - Millj-
ónir fólks standa
frammi fyrir hörmu-
legri neyð og mannfelli í vetur.
Þrátt fyrir að SÞ hafi náð nokkr-
um árangri við að koma hjálpar-
gögnum til fólks í mið-Bosníu
þá er það hvergi nærri nóg að
því er talsmenn SÞ segja. AI-
þjóða rauði krossinn hefur kom-
ið upp súpueldhúsum í og í
kring um hina umsetnu Saraje-
vo sem geta gagnast um 15000
manns
2CAIRO - Herskáir mús-
limar reyndu að
sprengja Atef Sedki, for-
sætisráðherra Egyptalands, í loft
upp með bílsprengju í Cairo-
borg. Hann slapp ósærður en
skólastúlka lét lífið í sprenging-
unni.
3PARÍS - Frakkar hafa
dregið úr Iíkum á að það
takist að ljúka viðræðum
EB og Bandaríkja um GATT-
samning fyrir 15. desember með
því að lýsa yfir að samningsupp-
kastið þurfi að koma til af-
greiðslu beggja deilda franska
þingsins. Ólíklegt er talið að
samþykki þingdeildanna fáist
fyrir 15. des.
4BONN - Skjólstæðing-
ur Helmuts Kohl sem
frambjóðandi til forseta-
embættis Þýskalands, a-þjóð-
veijinn Steffen Heitmann, hefur
dregið framboð sitt til baka. Aft-
urköllunin er mikið pólitískt
áfall fyrir kanslarann og flokk
hans sem aftur verður að fara
að leita logandi ljósi að nýjum
frambjóðanda.
TBILISI - Edouard She-
vardnadze, leiðtogi Ge-
orgíu, skundaði í tvígang
út af þingfundi þegar hann var
sakaður um að reyna að leysa
upp löggjafarþingið.
6MOSKVA - Stjóm Jelt-
síns leitast nú við að
halda almennri gagnrýni
á það, hvemig uppreisn þingsins
var brotin á bak aftur með
blóðsúthellingum, utan við
kosningabaráttuna.
- ISLAMABAD Sendi-
ráð Bandaríkjanna í Asíu
hafa aðvarað bandaríska
borgara í álfunni í kjölfar fundar
Clintons forseta og Salmans
Rushdie. Sendiráðin biðja fólkið
að varast árásir hryðjuverka-
manna og uppþot skríls. franir
dæmdu Rushdie á sínum tíma
til dauða fyrir að hafa skrifað
bókina Söngva Satans.
8BONN - Ríkisendur-
skoðun Þýskalands hefur
lagt til við stjórnvöld að
kaupa færri Eurofighter orrnstu-
þotur en áætlað er og fá í þeirra
stað ódýrari MiG 29 handa flug-
hemum.
9- NEW YORK - Tveir
fyrrverandi lífverðir Mi-
chael Jackson segja að
hann eyði oft nóttum með „litl-
um vinum" sínum.
WLONDON
Anthony Burgess,
einn þekktasti rit-
höfundur Breta sem skrifaði
m.a. Clockwork Orange, lést í
gær, 76 ára að aldri.