Tíminn - 26.11.1993, Side 7
Föstudagur 26. nóvember 1993
Mikið í húfi við Svalbarða
Landsbyggðarbröltið hefur skilað árangri í Smugunni
„Ég veit ekki hvað við gerum
eða hvernig málið endar. Við
höfum ekkert ákveðið hvernig
við spilum þetta. Auðvitað er
mikið í húfi ef Norðmenn láta til
skarar skríða gegn skipunum og
að sjálfsögðu erum við hræddir
við það. En það gerist ekkert
nema með áhættu. Þetta kemur
allt í rólegheitum og það þarf að
fara öðruvísi að okkur en svona.
íslensk stjómvöld em lin miðað
við íslenska hagsmuni. Við vilj-
um bara ná árangri miðað við
okkar framtíðarhagsmuni, eins
og við teljum okkur vera búna
að gera í Smugunni. Það þurfum
við að gera þarna smátt og
smátt/ sagði Jóhann A. Jónsson,
framkvæmdastjóri Hraðfrysti-
stöðvar Þórshafnar hf, sem gerir
út frystitogarann Stakfell ÞH.
Togarinn var í gær á veiðum
norðan við Bjarnarey, á fisk-
vemdunarsvæði Norðmanna við
Svalbarða. Tvö önnur íslensk
skip voru einnig á svæðinu,
Snæfugl frá Reyðarfirði og
Skúmur frá Grindavík. íslensk
stjómvöld hafa beint þeim ein-
dregnu tilmælum til útgerða
skipanna þriggja að þau hverfi
tafarlaust á braut af svæðinu og
áréttað fyrri yfirýsingu þess efnis
að þau geti ekki veitt þeim vemd
ef Norðmenn láta verða af hót-
unum sínum um „harðar að-
gerðir' gegn skipunum. Yfirlýs-
ing ríkisstjómarinar var send út-
gerðum skipanna í gær og voru
menn að lesa hana yfir og ráð-
færa sig við lögfræðinga og aðra
útvegsmenn þegar síðast fréttist.
Veiðar íslensku skipanna á fisk-
verndarsvæðinu við Svalbarða
hafa vakið hörð viðbrögð í Nor-
egi, þar sem þess er krafist að
skipin hverfi af svæðinu. M.a.
var Eiður Guðnason, sendiherra
íslands í Noregi, kallaður inn á
teppið hjá norska utanríkisráðu-
neytinu í gær þar sem formleg-
um mótmælum var komið á
framfæri við íslensk stjómvöld.
Auk þess hefur norski sjávarút-
vegsráðherrann rætt málið við
Þorstein Pálsson sjávarútvegsráð-
herra.
Á ríkisstjórnarfundi í gær var
m.a. rætt um hugsanlega aðild
íslands að Svalbarðasáttmálan-
um svokallaða og hefur t.d. ut-
anríkisráðherra lýst sig fylgjandi
því að það mál verði skoðað
frekar.
Tvö norsk varðskip hafa verið á
miðunum þarna norður frá og
m.a. hafa norskir gæsluliðar farið
um borð hjá Stakfellinu og Snæ-
fugli. En í gær höfðu þeir farið
frá borði en varðskipin héldu sig
áfram í grenndinni.
„Þetta mál verður áfram í um-
ræðunni, vonandi í stjómkerfinu
og einnig meðal útgerðannanna.
Smugan er hinsvegar unnin og
farin að skila milljörðum og mér
skilst að Norðmenn séu búnir að
viðurkenna hana sem alþjóðlegt
hafsvæði. Það var ekki sá tónn
hjá þeim í sumar þannig að eitt-
hvað hefur áunnist með þessu
landsbyggðarbrölti héma,' segir
Jóhann A. Jónsson.
-GRH
Erlendir ferðamenn eyða
9,8% meira hér á landi
Tekjurnar 12 milljarðar það sem af er árinu
Gjaldeyristekjur af erlendum
ferðamönnum fyrstu níu mán-
uði ársins eru 11,9 milljarðar
króna og er það 18% aukning í
krónum talið frá sama tímabili á
síðasta ári, eða um 9,8% ef tekið
er tillit til gengisbreytinga. Á
sama tíma í fyrra vom tekjur af
erlendum ferðamönnum orðnar
rúmir 10 milljarðar.
Eyðsla ferðamanna í landinu er
7,7 milljarðar fyrstu níu mánð-
uðina á móti 5,7 milljörðum á
því síðasta og er það 22,5%
aukning í krónum talið, eða
14% raunaukning. Á hinn bóg-
inn hefur orðið 4,2% raunlækk-
un á fargjaldatekjum, sem þó
Áfangasigur gegn
sjávarmengun
„Það er engin spuming að þetta var tímamótafundur. Nú ríður á að
eftir þessu verði farið, en orð em til alls fyrst,' segir Davíð Egilsson,
deildarstjóri mengunardeildar Siglingamálastofnunar.
Nýverið lauk ársfundi Lúndúna-
sáttmálans sem haldin var í sam-
nefndri borg. Þar var samþykkt til-
laga um bann við losun geislavirks
úrgangs í hafið og einnig var sam-
þykkt tillaga sem þrengir all vem-
lega að losun iðnaðarúrgangs í
hafið. Við atkvæðagreiðslu um til-
löguna um bann við losun geisla-
virks úrgangs sátu fimm þjóðir
hjá. Það voru Bretar, Frakkar,
Belgar, Rússar og Kínveijar.
Davíð segir að ein helsta ástæðan
fyrir því að tillagan um bann við
losun geislavirks úrgangs náði
fram að ganga á fundinum, hafi
verið stuðningur Bandaríkja-
manna og Japana.
En afstaða Bandaríkjamanna til
umhverfismála hefur mikið breyst
eftir síðustu forsetakosningar.
Sömuleiðis varð breyting á afstöðu
Japana til þessara mála eftir að
Grænfriðungar upplýstu svonefnt
„Rússavarp' geislavirkra efna í
hafið í grennd við Japansstrendur,
hafa aukist um 12% í krónum
talið.
Ferðamönnum fjölgaði um 7%
á milli ára og er raunaukning
gjaldeyristekna af hverjum er-
lendum ferðamanni 3%. Raun-
aukning á meðaleyðslu hvers er-
lends ferðamanns í landinu er
rúmlega 6%. -PS
ekki alls fyrir löngu.
Áðurnefndar samþykktir árs-
fundar Lundúnasáttmálans voru
teknar beint inn í stofnskrá sátt-
málans. Jafnframt var samþykkt
að breyta stofnskránni, sem er frá
árinu 1972. En sökum þess hversu
snúið og margbrotið það verk er
þá ætla menn að ljúka því á næstu
þremur árum, eða árið 1996.
„Þá verður stofnsamningurinn
uppfærður til nútímahorfs og til
meira raunsæis í stað loðinna
viljayfirlýsinga,' segir Davíð Egils-
son.
-GRH
Bókmenntavaka gegn
bókaskatti
Rithöfundar lesa úr nýjum bókum á bókmenntavöku í Ráðhúsinu
Rithöfundasamband íslands efndi til bókmenntavöku í Ráðhúsi
Reykjavíkur í gær sem standa mun til laugardags. Vakan er haldin
m.a. til að mótmæla álagningu bókaskatts. Á vökunni eru flutt erindi
og lesið úr nýjum bókum.
Bókmenntavakan hófst á fyrir-
lestrum Péturs Gunnarssonar og
Kolbrúnar Bergþórsdóttur um
gagnrýni og rithöfundar lásu úr
nýútkomnum skáldsögum.
í kvöld flytur Silja Aðalsteins-
dóttir fyrirlestur um barnabók-
menntir og Vésteinn Valgarðsson
fjallar einnig um bamabókmennt-
ir, en Vésteinn er aðeins 13 ára
gamall. Rithöfundamir Guðmund-
ur Ólafsson, Andrés Indriðason og
Guðrún Helgadóttir munu síðan
lesa úr verkum sínum. Eftir kaffi-
hlé flytur Ingólfur Margeirsson
fyrirlestur um ævisögur og ævi-
sagnaritun. f framhaldi af fyrir-
lestrinum lesa Jóhanna Kristjóns-
dóttir, Baldur Gunnarsson, Eh'sa-
bet Jökulsdóttir og Þorsteinn
Gylfason úr bókum sínum.
Á lokadegi bókmenntavökunnar
flytur Aðalsteinn Ásberg Sigurðs-
son fyrirlestur um barnabók-
menntir og Halldóra Jónasdóttir
ræðir um bama- og unglingabæk-
ur frá sjónarmiði lesanda, en Hall-
dóra er 14 ára. í framhaldi af því
lesa Elías Snæland og Vilborg Dav-
íðsdóttir úr bókum sínum og
Kristín Steinsdóttir les úr bók
Heiðar Baldursdóttur, Galdur
steinsins, en Heiður lést fyrr á
þessu ári. Torfi Túliníus mun flytja
erindi um mótunaráhrif bók-
mennta. Birgir Sigurðsson les úr
nýrri skáldsögu sinni, Vigdís
Grímsdóttur mun lesa úr nýrri
Ijóðabók Sigurðar Pálssonar og
Guðlaugur Arason les úr nýrri
skáldsögu sinni. Þá flytja Gísli Sig-
urðsson og Soffía Auður Birgis-
dóttir fyrirlestra um íslenskar nú-
tímabókmenntir og Einar Már
Guðmundsson, Álfrún Gunnlaugs-
dóttir og Kristján Jóhann Jónsson
lesa úr nýjum bókum sínum. Bók-
menntavökunni lýkur síðan með
Iokaorðum Sigurðar A. Magnús-
sonar. -EÓ
Danskir fer&amenn ó jeppaferð á íslandi. Tímamynd Pjetur
Ráðstefna um
ofbeldi
Foreldrasamtökin, Heimdallur
og Æskulýðssamband kirkjunnar
í Reykjavíkurprófastsdæmi boða
til ráðstefnu um ofbeldi í ís-
lensku þjóðfélagi. Á ráðstefn-
unni verður meðal annars fjallað
um þá aukningu sem hefur orð-
ið á alvarlegum ofbeldisverkum
að undanfömu og þá sérstaklega
á meðal ungs fólks.
Rætt verður um leiðir til úrbóta
og hluta einstakra hópa eða
stofnana í því skyni. Rætt verður
um ábyrgð og hlutverk foreldra,
lögreglu, borgaryfirvalda og fé-
lagsmálastofnana.
Framsögumenn verða Eiríkur
Ingólfsson formaður foreldra-
samtakanna, Gunnar J. Birgis-
son héraðsdómslögmaður, Ómar
Smári Ármannsson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn og Kristín Þ. Tóm-
asdóttir formaður Æskulýðssam-
bandsins. Á eftir framsöguerind-
um verða pallborðsumræður og
fyrirspurnir, þar sem þau Ólöf
Helga Þór forstöðumaður Rauða-
krosshússins og Brynjólfur Mog-
ensen yfirlæknir taka þátt auk
framsögumanna.
Ráðstefnan verður haldin í
safnaðarheimili Dómkirkjunnar,
Lækjargötu 14a, laugardaginn
27. nóvember og hefst klukkan
13.30.
-PS
Reykrör - Loftræstingar
Smíða og set upp reykrör, samþykkt af
brunamálastofnun frá 1983
ff\\\ Smíöa og sett upp loftræstingar
Cp ' Er viöurkenndur af bygginga-
Jfulltrúa Reykjavlkur frá 1983
■SHW BLIKKSMIÐJA
Hbenna
SKULAGOTU34
SÍMI11544
Skattframtöl
Bókhaldsþj ónusta Rekstrarráðgjöf Júlíana Gísladóttir
j Vjðskiptafræðingur Meistari í mafkaðsfræðum
Langholtsvegur 82 Sími: 68 27 88
104 Reykjavík Fax: 67 88 81