Tíminn - 26.11.1993, Side 12
FJÖLBREYTTAR
FÓÐURVÖRUR
. MR búðin »Laugavegi 164
simi 11125 -24355
NYTTOG
FERSKT
DAGLEGA
I #-+
reiðholtsbakarí
VOLVUFELU 13 - SÍMI 73655
IPÓSTFAX TÍMANS 1 ^
Ritstjóm: 61-83-03 Æm
Auglýsingar: 61-83-21
:
Föstudagur 26. nóvember 1993
Kvótakerfið kallað skipu-
lögð glæpastarfsemi
Nokkrir þingmenn Alþýðubandalagsins lýsa stríði á hendur kvótakerfinu.
Jóhann Ársaelsson, þingmaður Alþýðubandalagsins, gekk svo langt á
Aiþingi í gær að líkja kvótakerfinu við skipulagða glæpastarfsemi. Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegsráðherra sagði þessa yfirlýsingu einkenni-
lega í ljósi þess að Aiþýðubandalagið hefði staðið að því að koma
kvótakerfinu á með því að samþykkja lög um stjómun fiskveiða.
Ummæli Jóhanns um að hægt
væri að líkja kvótakerfinu við
skipulagða glæpastarfsemi féllu í
umræðum utan dagskrár um dóm
Hæstaréttar um skattalega með-
ferð á kvóta. Jóhann gagnrýndi
kvótakerfið harðlega í ræðu sinni.
Hann sagðist vona að dómur
Hæstaréttar yrði til þess að vekja
Alþingi tii umhugsunar um hvert
kvótakerfið stefndi. Hann sagði að
það kynni þó svo að fara að Al-
þingi vaknaði ekki fyrr en sjó-
menn hefðu gert alvöru úr hótun
sinni að fara í verkfall, yrði sala
kvóta ekki stöðvuð.
Þorsteini Pálssyni fannst eins og
fleirum lýsing Jóhanns á kvóta-
kerfinu nokkuð hörð. Hann sagði
að þegar lögin um stjóm fiskveiða
vom samþykkt vorið 1990 hafi
þáverandi stjómarandstaða viljað
fá lengri tíma til að skoða málið.
Þingmenn Aiþýðubandalagsins
hefðu hins vegar ekki talið mikla
þörf á því og knúið á um að lögin
yrðu samþykkt. Hann rifjaði
einnig upp að nýlega hefði komið
fram tillaga á miðstjómarfundi
Alþýðubandalagsins um að banna
framsal aflaheimilda. Miðstjómin
hefði ekki treyst sér til að sam-
þykkja hana, en vísað henni til
nánari skoðunar.
Sighvatur Björgvinsson við-
skiptaráðherra rifjaði einnig upp
að þegar lögin vom til umfjöllun-
ar á Alþingi vorið 1990 hefði Al-
þýðubandalagið haft tækifæri til
að stöðva samþykkt fmmvarpsins
með því að samþykkja frávísunar-
tillögu. Nægt hefði að einn al-
þýðubandalagsmaður í neðri
deild þingsins greiddi tillögunni
atkvæði. Það hefðu þeir ekki gert
því allir þingmenn flokksins í
deildinni hefðu greitt atkvæði
gegn frávísunartillögunni. -EÓ
Þagnarmúr-
inn rofinn
KK i stríð við Skífuna og Spor
Enn harðnar stríðið á plotumarkaðnum og nú hefur KK-Band
ákveðið að selja ekki lengur geislaplötur sínar og tónbönd til
Skífunnar hf. og Spors hf. Þær verða hinsvegar til í öllum öðrum
plötubúðum. Aðaleigandi beggja fyrirtækja er Jón Ólafsson sem
jafnframt er einn stærsti hluthafi í íslenska útvarpsfélaginu sem
rekur Stöð 2 og Bylgjuna.
í tilkynningu frá KK-Band er
ástæðan fyrir þessari ákvörðun
hljómsveitarinnar sögð það við-
mót sem þessir aðilar hafa sýnt
óháðum útgefendum og lista-
mönnum. Þetta viðmót lýsi sér
m.a. í því að fyrirtækin tvö hafi
ekki sinnt af sanngimi öðmm
plötum en þau gefa sjálf út, gefi
trekk í trekk út misvísandi upp-
lýsingar og „rægi“ þá listamenn
sem gefa sjálfir út sínar plötur.
Skemmst er að minnast fréttar
frá Sambandi hljómplötuútgef-
enda, þar sem látið var í það
skína að nýjasta plata KK-Band
væri mun dýrari en aðrar að
teknu tilliti til tónlistartímans á
plötunni. Formaður Sambands
hljómplötuframleiðenda er Jón
Ólafsson.
Jafnframt sakar KK-Band um-
rædd fyrirtæki um að hafa ekki
tónlist þeirra til sölu „þar sem
hún er sögð ekki til eða er
geymd í kassa undir borði."
Þessar staðhæfingar KK-Band
á hendur Jóni Ólafssyni og fyrir-
tækjum í hans eigú eru ekki nýj-
ar af nálinni, en þetta er í fyrsta
skipti sem tónlistarmenn ákveða
að ijúfa opinberlega „þagnar-
múrinn" um stefnu þessara fyr-
irtækja í garð óháðra útgefenda
og listamanna.
Til skamms tíma hefur t.d. nýj-
asta plata Rúnars Þórs ekki ver-
ið fáanleg í verslunum Spors og
Skífunnar. Þá var Bjartmar Guð-
laugsson á sínum tíma settur á
svartan lista fyrir að beita sér í
hagsmunabaráttu tónlistar-
manna gagnvart útgefendum,
svo dæmi séu nefnd. -GRH
Ellilífeyrisréttindi
Lífeyrisrétturinn veröi sameign hjóna
Ekkert velferð-
arþjóðfélag hér
segir Jóhanna Sigurðardóttir
Jóhanna SigurSardóttir félagsmólaróðherra.
Nokkrir þingmenn Sjálfstæðis-
Ðokksins hafa lagt fram frumvarp
um að ellilífeyrisréttindi sem
hjón hafa aflað í hjónabandi
skiptist jafnt milli hjóna ef til
skilnaðar kemur. Fyrsti flutnings-
maður frumvarpsins er Guð-
mundur Hallvarðsson.
Eins og nú er háttað eru ellilíf-
eyrisréttindi beiniínis tengd þeirri
persónu sem aflað hefur tekna og
greitt af þeim iðgjald, enda þótt
önnur eignamyndun af tekjum
hjóna teljist hjúskapareign þeirra
og henni sé skipt við slit hjúskap-
ar. Flutningsmenn frumvarpsins
telja eðlilegt að litið sé á öflun
ellilífeyrisréttinda sem eigna-
myndun sem báðir aðilar hafi
stuðlað að með ákveðinni verka-
skiptingu.
Auðvelt er að taka dæmi í þessu
máli: Karlmaður vinnur úti og
aflar þar tekna fyrir heimilið, en
konan vinnur heima að umönn-
un bús og bama. Eftir áratuga
hjónaband skilja hjónin. Sam-
kvæmt núverandi lögum myndi
karlmaðurinn halda öllum sínum
ellilífeyrisréttindum sem hann
hefur aflað á langri ævi, en kon-
an hefði engin ellilífeyrisréttindi.
Þessu vilja flutningsmenn breyta.
Frumvarpið hefur áður verið
flutt á Alþingi en ekki fengið af-
greiðslu. -EÓ
Kaupleiguíbúðir eru góður kost-
ur fyrir ungt fólk sem á lítið
sparifé. Efla þarf hlut þeirra inn-
an félagslega kerfisins. Jafnframt
er brýnt að rétta hlut leigjenda á
húsnæðismarkaðnum. Þetta kom
fram í ræðu Jóhönnu Sigurðar-
dóttur félagsmálaráðherra á ráð-
stefnu um húsnæðismál ungs
fólks sem haldin var í fyrradag.
Jóhanna sagði nauðsynlegt að
traustur leigumarkaður væri
raunhæfur kostur fyrir þá sem
ekki eru tilbúnir í húsnæðiskaup.
Hún sagði að núverandi ástand
hæfði ekki velferðarþjóðfélagi.
„Við getum ekki talað um vel-
ferðarþjóðfélag þar sem hópur
fólks þarf að borga helming til
tvo þriðju af mánaðarlaunum
sínum í húsaleigu. Meirihluti
þeirra sem býr í leiguhúsnæði er
láglaunafólk en það fær húsnæð-
iskostnað sinn ekkert niður-
greiddan eins og þeir sem þó geta
fest kaup á húsnæði.'
Jóhanna sagði æskilegt að mis-
munandi valkostir væru fyrir
hendi í húsnæðismálum. Það
eru: almenna íbúðalánakerfið,
félagslega íbúðakerfið, búsetu-
réttaríbúðir og leiguíbúðir. Hún
sagði ljóst að fé til félagslega
íbúðakerfisins yrði ekki aukið á
næstu árum og þess vegna væri
mikilvægt að nýta það fjármagn
vel sem veitt væri þangað. í þeim
tilgangi þyrfti að efla hlut kaup-
leiguíbúða. „Kaupleiguíbúðir
henta vel ungu fólki og eins þeim
sem detta á milli félagslega kerf-
isins og húsbréfakerfisins. Fólk
getur fengið langtímalán fyrir allt
að 90 hundraðshlutum af verði
íbúðanna og þarf því ekki að eiga
eins mikið sparifé og þeir sem
taka húsbréf."
Félagslegar íbúðir eru 9% af
íbúðum landsmanna sem er
langt undir því hlutfalli sem
þekkist í nágrannalöndunum.
Jóhanna hafnar því alfarið að
með því að efla félagslega kerfið
sé einstaklingsframtakið drepið
niður. „Félagslegar íbúðir eru
byggðar fyrir fólk sem með engu
móti getur keypt sér íbúð á al-
mennum markaði. Félagslegar
íbúðir eru of fáar á íslandi og
leigumarkaðurinn of þröngur,'
sagði Jóhanna Sigurðardóttir að
lokum. -GK
IfTTi
Vinn ngstölur
miövikudaginn:
24. nóv. 1993
a
m
VINNINGAR
6 af 6
5 af 6
l+bónus
5 af 6
4 af 6
a
3 af 6
;+bónus
FJOLDI
VINNINGA
406
1.408
UPPHÆÐ
Á HVERN VINNING
12.674.000.
1.056.856,-
83.818.-
1.970.-
244,-
Aðaltölur:
14) (22) (24;
2531 34
BÓNUSTÖLUR
38 42 43
Heildarupphæð þessa viku:
104.095.136.-
á Isl.:
2.703.136.-
-mm-------------——----------------------------
I/inningur fór til: Noregs (7) og Finnlands (1)
UPPLYSJNGAR, SIMSVAR! 91* 68 15 11
LUKKUUNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
BIRT UEO FYRIRVARA UM PRENTVILLUR