Tíminn - 27.11.1993, Qupperneq 7
Laugardagur 27. nóvember 1993.
Fjölskyldur
örvænta
Útgerðarmeim hunsa átakið „íslenskt, já takk" og flytja skipaverk-
efni úr landi
Ástand atvinnumála í skipaiðn-
aðinum er nú komið á það stig að
mikillar örvæntingar er farið að
gæta meðal fjölskyldna starfs-
manna. Á skrifstofum stéttarfélaga
í atvinnugreininni fer sífellt meiri
tími í að svara t.d. fyrispumum frá
aðstandendum starfsmanna sem
vita varla sitt rjúkandi ráð um
hvert stefnir og hvað framtíðin ber
í skauti sér.
Því miður er fátt um svör enda
virðist ekkert lát á því að útgerðar-
menn flylji verkefni til útlanda í
stað þess að skipta við innlendar
stöðvar. Að mati Samiðnar, sam-
bands iðnfélaga, stuðlar þessi út-
flutningur verkefna að „gjaldþroti
skipaiðnaðarins og atvinnuleysi
hundmða starfsmanna til viðbótar
við þá 500 sem þegar hafa misst
vinnuna í skipaiðnaði frá 1987.*
Nýjasta dæmið í útflutningi
skipaverkefna er að útgerðarmað-
ur frystitogarans Péturs Jónasson-
ar í Reykjavík hefur ákveðið að
láta smíða nýtt skip fyrir sig í
skipasmíðastöð í Noregi. Sam-
kvæmt fréttum frá Noregi er litið á
þessa ákvörðun útgerðarmanns
sem Jólagjöfina frá íslandi,* enda
er talið að verkefnið muni veita
150 manns þar vinnu í tæpt ár.
Það kaldhæðnislega við þetta er að
á sama tíma er átakið .íslenskt, já
takk* í fullum gangi.
Þá hafa borist óstaðfestar fréttir
um að verið sé að semja við Pól-
vetja um endurbætur á Svémi RE.
Nýlega rituðu formaður og vara-
formaður Samiðnaðar, sambands
iðnfélaga, Qármálaráðherra og iðn-
aðarráðráðherra bréf þar sem vak-
in var athygli þeirra á áhrifum er-
lendra undirboða og ríkisstyrkja á
atvinnugreinina. í bréfinu kemur
fram að fyrrgreind verkefni hafi
ekki verið boðin út hérlendis held-
ur hafi verið samið beint við er-
lenda aðila .sem beita rQdsstyrkj-
um og undirboðum til að ná verk-
efnum frá íslenskum skipasmíða-
fyrirtækjum.*
, Ein aðalkrafa iðnaðarins á hend-
ur stjómvöldum er að settir verði
jöfnunartollar á erlend skipa-
smíðaverkefni í því skyni að auka
markaðshlutdeild innlendra
stöðva. Þrátt fyrir að þessi krafa
um jöfunartolla hafi verið uppi á
borðinu í nokkur ár bendir fátt eitt
til þess að hún nái fram að ganga.
Þá bendir margt til að þess að
umsvifamikill ríkisstyrkur norsku
ríkisstjórnarinnar til skipasmíða-
stöðvar í Norður — Noregi muni
leiða til uppstyttu verkefna við
rússneska togara hérlendis. En
m.a. hefur Stálsmiðjan í Reykjavík
notið góðs af vinnu við rússneska
togara.
Til marks um umsvif þessa út-
flutnings á skipaverkefnum til er-
lendra stöðva, þá voru skip nær
þriðjungur af heildarinnflutningi
íslendinga í jólamánuðinum í
fyrra. í þessum eina mánuði vom
flutt inn skip fyrir 3,4 milljarða
króna, sem ollu því að viðskipta-
halli við útlönd í þessum eina
mánuði nam rúmlega þremur
milljörðum króna.
Árið 1992 voru keypt skip er-
lendis fyrir 6,6 milljarða króna.
Það er fjórum til fimm sinnum
meiri skipainnflutningur en tvö
næstu ár á undan, eða ámóta upp-
hæð og Flugleiðir notuðu til þotu-
kaupa árið 1990, svo dæmi sé tek-
ið. -GRH
Fyrirtæki og félagasamtök
í Reykjavík
Styrkir
til nýrra viöfangsefna
Atvinnumálanefnd Reykjavikur
lýsir hér með eftir hugmyndum
um ný viðfangsefni fyrirtækja og
félagasamtaka í borginni
með vísan til reglna nr. 31/1993
um úthlutun styrkja
úr Atvinnuleysistryggingasjóði.
Til að verkefnið teljist styrkhæft þarf
það að vera:
Skýrt afmarkað og tímabundið
(ekki til lengri tíma en 6 mánaða)
Nýtt viðfangsefni
Unnið af fólki af atvinnuleysisskrá
í Reykjavík. Þeir sem lengst hafa
verið á atvinnuleysisskrá hafa
forgang að starfi við verkefnið.
Styrkhæf verkefni yrðu unnin á
vegum umsækjenda en á ábyrgð
Reykjavíkurborgar.
Fjárhæð styrks yrði jafnhá þeim
atvinnuleysisbótum, er ella hefðu
verið greiddar þeim einstaklingum,
sem falla af atvinnuleysisskrá vegna
þátttöku í verkefninu.
Umsóknir skulu sendar borgar-
hagfræðingi, Ráðhúsi Reykjavíkur,
fyrir 7. desember næstkomandi.
Atvinnumálanefnd
Reykjavíkur
Nýtt heiti
Framkvæmdadeildar
Innkaupastofnunar
ríkisins
Framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins
fer með yfirstjórn verklegrar framkvæmdar
skv. lögum nr. 63 / 1970 um opinberar
framkvæmdir.
Nafni Framkvæmdadeildar hefur verið breytt
og heitir hún nú Framkvæmdasýslan.
Breytingin er gerð til samræmis við nýja tíma
og vegna breyttra áherslna hvað varðar
starfsemi stofnunarinnar.
Aukin áhersla er nú lögð á undirbúning
framkvæmda, útboðum beitt við val
hönnunar - og framkvæmdaaðila auk þess að
lokaskil framkvæmda verða
undantekningalaust innt af hendi.
Því er nafni stofnunarinnar breytt í hentugra
og þjálla orð.
Sí
FRAMKVÆMDASYSIAN
Framkvœmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins
Borgartúni 7 - 105 Reykjavík Kt.: 510391- 2259
Sími: 91 - 623 666 Bréfasími: 91 - 623 747
ATV?
STUÐLAHÁLSI2. P. 0. B0X 5350 • 125 REYKJAVÍK
Könnun — útboð
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins auglýsir eftir húsnæði
undir vinbúð á Blönduósi og eftir samstarfsaðila um
rekstur verslunarinnar.
Lýsing á þessu verkefni er fáanleg á skrifstofu Blönduós-
bæjar.
Þeir, sem áhuga hafa á samstarfi, sendi nafn og heimilis-
fang til ÁTVR eigi síðar en 7. des. 1993. ÁTVR mun
velja aðila úr röðum þeirra sem gefa erindi þessu gaum
og bjóða þeim þátttöku í útboði.
Áfengis- og tóbaksverstun ríkisins,
Stuðlahálsi 2,110 Reykjavík
Skattframtöl
Bókhaldsþj ónusta Rekstr arráðgj öf Júlíana Gísladóttir
, Viðskiptafræðingur Meistari 1 mafkaðsfræðum
Langholtsvegur 82 Sími: 68 27 88
104 Reykjavík Fax: 67 88 81
Reykrör - Loftræstingar
Smíöa og set upp reykrör, samþykkt af
brunamálastofnun frá 1983
Smíöa og sett upp loftræstingar
<3
Er viöurkenndur af bygglnga-
fulltrúa Reykjavlkur frá 1983
’BLIKKSMIÐJA skúlagötu34
BENNA 44