Tíminn - 15.01.1994, Síða 10

Tíminn - 15.01.1994, Síða 10
10 f?íft$$99l} Laugardagur 15. janúar 1994 Jóhanna Björnsdóttir Fædd 3. júlí 1901 Dáin 5. janúar 1994 Hún amma okkar er dáin og okkur langar aö minnast hennar í örfáum or&um. Það þarf í sjálfu sér ekkert a& koma á óvart a& hún sé horfin á vit forfeðra sinna og til afa, hún var orðin háöldruö og hafði að auki verið lasin. Samt er það einhvern veginn svo að dauðinn kemur manni alltaf á óvart og maður er í raun aldrei viðbúinn honum. Amma var frá Grjótnesi á Mel- rakkasléttu í Norður- Þingeyjar- sýslu. Hún bjó á Raufarhöfn mest alla sína tíð, ásamt afa, og ól þar upp sín sjö börn. Viö, sem erum fæddar og uppaldar hér á Stór- Reykjavíkursvæðinu, töldum okkur ávallt njóta mikilla forréttinda að eiga ömmu og afa búsett í svona litlum bæ og fá þannig a& njóta frelsisins í sveitinni á sumrin. Það em nefnilega ekki allir svo lánsamir að fá að kynnast því og njóta. Það var alltaf mikill spenningur í gangi á sumrin, þegar það átti að leggja í hann norður, og við biðum óþreyjufullar eftir þeirri ferð. Það var líka svo afslappandi að koma til ömmu. Því það, sem einkenndi hana, var þessi stóíska ró og hlátur- mildi. Og það var alveg sama hvað gekk á og hversu mörg við vqrum, margmenni og félagsskapur átti við hana. Hún kom okkur fyrir vítt og breitt um húsið og rak heimilið áfram eins og ekkert hefði í skorist. Matur var stór hluti af tilvemnni hennar ömmu. Hún var mjög bú- sældarleg og þaö var alltaf nóg af mat til í húsinu. Það var nú ein- hvem veginn þannig að það var al- veg sama upp á hverju við bama- bömin tókum, og uppátækin vom jú ansi mörg og mörg hver ansi stórtæk, þá hélt hún amma okkar alltaf ró sinni. Henni fannst þetta ekkert til að æsa sig yfir, bara ef að við borðuðum þá var þaö nú ekkert tiltökumál ef að jafnvel heilt þorp t MINNING var í upplausn. Amma hafði mikinn áhuga á ætt- fræði, eins og títt er með marga ís- lendinga og þá sérstaklega af henn- ar kynslób. Hún vildi alltaf vita hverra manna fólk var og gat þá jafnvel rakið ættir þeirra langt aft- ur. Hún var líka mikib gefin fyrir lestur bóka og að spjalla við fólk. Fátt fannst henni skemmtilegra en að fá fólk í kaffi og þá fyigdi nú jafnan hlaðið borð af mat og alls kyns kræsingum í kjölfariö og spjalla við fólkið og fá fréttir. Enda var það nú svo, ab þó hún hafi á seinni árum ekki farið mikið út úr húsi vegna veikinda í fótum, þá fylgdist hún vel með þjóömálum. Og ekki síst með bæjarmálum, eng- inn vissi betur um aflabrögð og hvenær hvaða bátur heföi komiö að landi. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé loffyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Við vitum að nú er amma komin til afa og þar líbur henni vel. Minn- ing hennar mun lifa með okkur um ókomna tíð og einnig þakklæti fyrir allar þær stundir sem viö áttum með henni. Blessuð sé minning þín, elsku amma, og hvíl þú í friði. Anna, Amdís og Lilja í dag veröur til grafar borin á Rauf- arhöfn frænka okkar og vinkona, Jóhanna Bjömsdóttir frá Grjótnesi. Foreldrar hennar vom Bjöm Stefán Guðmundsson, bóndi á Grjótnesi, og kona hans, Aðalbjörg Pálsdóttir ljósmóðir. Jóhanna ólst þar upp ásamt bræðrum sínum fjórum. Grjótnesheimilið var einstakt að myndarskap og þrifnaði öllum. For- eldrarnir voru vel menntuð eftir þeirrar tíðar hætti. Björn hafði gengiö í Möðmvallaskóla, en Abal- björg í kvennaskólann á Laugalandi og var auk þess lærð ljósmóðir. Jó- hanna fékk góðan undirbúning fyr- ir lífsstarfið heima, því að auk ann- ars, sem til menningar horfir, var jafnan tekinn að Grjótnesi heimil- iskennari, þar eð þá vom að alast þar upp mörg námfús ungmenni á báðum búum. Auk þess stundaði hún nám við Kvennaskólann í Reykjavík. 25. júlí 1925 gengu þau í hjóna- band Jóhanna og Hólmsteinn Helgason, útgerðarmaður á Raufar- höfn, og stofnuðu þar sitt heimili. Þar með eignuðumst við systur okk- ar annað heimili. Haustið 1931 vom bömin orðin fjögur, en ekki lém þau hjón sig muna um að bæta okkur þremur skólastelpum á heim- ili sitt, því auk okkar tveggja frá Harðbak bjó þar vinkona okkar, Jó- hanna á Ásmundarstöðum. Þetta er aðeins eitt dæmi um greiðasemi þeirra og gestrisni, sem margir num. Hjónaerjur heyrðust aldrei í Hólmsteinshúsi. Jóhanna var ein- staklega glaðvær og skapgóð, þann- ig að öllum leið vel í návist hennar. Þeim hjónum varð sjö bama auð- ið. Þau em: Bjöm Stefán f. 21. jan. 1926, útgerðarmaöur og fiskverk- andi á Raufarhöfn, Aðalbjörg Jak- obína f. 21. jan. 1926, húsmæðra- kennari í Reykjavík, Helgi Sigurður f. 3. maí 1928, útgerðarmaður á Raufarhöfn, Amdís Sigurbjörg f. 12. feb. 1931, ljósmóðir í Reykjavík, Jónas Maríus f. 8. júlí 1934, Gunn- ar Þór f. 6. mars 1936, viðskipta- fræðingur í Reykjavík, og Baldur f. 24. sept. 1937, útgeröarmaður á Raufarhöfn. Við emm hryggar í huga er við hugsum til þess að þetta er hinsta kveðja til þessarar góðu velgerðar- konu okkar. Þaö er bjart yfir öllum minningunum um Jóhönnu og Hólmstein og mikið gaman að hugsa til allra þeirra góðu sam- skipta sem vom með þeim hjónum og foreldmm okkar. Þær vom syst- ur, Borghildur amma okkar á Odds- stöðum og Aðalbjörg móðir Jó- hönnu. Vinátta var ætíð óvenju sterk meö ffændsemi milli þessara heimila, ef til vill vegna þess að þær systur vom aðkomnar í þessa sveit og áttu hér ekki aðra ættingja, en þær vom ættabar úr Mývatnssveit. Börnum Jóhönnu og Hólmsteins, bamabömum og tengdafólki send- um viö hugheilar samúðarkveðjur. Við kvebjum hana með söknuði og þökk. Blessuð sé minning henn- ar. Ása og Aðalbjörg Guðmundsdætur frá Haröbak Þegar líkaminn er orðinn slitinn og hugurinn þreyttur er gott að fá hvíld. Amma mín, Jóhanna Bjöms- dóttir, lést á sjúkrahúsinu á Húsa- vík 5. janúar síðastliðinn, á 93. ald- ursári, eftir nokkurra missera legu þar. Minningamar um ömmu em sam- tvinnaðar minningunni um Hólm- stein afa, sem lést fyrir rúmum 5 ár- um, svo og bemskuámnum á Rauf- arhöfn. Um það leyti sem ég fædd- ist, fluttu foreldrar mínir í nýbyggt hús, Setberg, og nokkrum árum seinna fluttu afi og amma á efri hæðina og bjuggu þar næstu árin. Þetta var því eitt stórt heimili, sem gaf okkur bömunum kost á uppeldi sem ég er óendanlega þakklátur fyr- ir, þó ab oft hafi verið þröngt á þingi. Þegar viö systkinin vorum orðin fimm, sem deildum meb okk- ur stofunni á neðri hæðinni, og þörf var orbin fyrir nýtingu efri hæðarinnar, fluttu amma og afi. En það breytti litlu, því fjarlægðirnar voru ekki miklar og alltaf átti amma eitthvað í skápnum sínum til að gauka að sísvöngum munn- um. Amma var ein af þessum sígildu hvunndagshetjum. Hún giftist Hólmsteini afa í júlí 1925, þá 24 ára gömul, og eignuðust þau sjö mann- vænleg böm, sem öll em á lífi og em talin hér í aldursröð: Tvíburam- ir Bjöm Stefán og Aðalbjörg Jakob- ína, Helgi Siguröur, Arndís Sigur- björg, Jónas Maríus, Gunnar Þór og Baldur. Amma hafði því alltaf í nógu að snúast. Gestkvæmt var æt- íð á heimilinu, bæöi vegna gestrisni þeirra, svo og alls konar umsýslu og félagsmála sem fylgdu afa. Þetta þótti sjálfsagt og ekki eftir talið. Þau reistu sér steinsteypt íbúðarhús nið- ur við höfnina, sem þau fluttu í ár- ib 1925 og bjuggu þar allt þar til þau fluttu í Setberg, sem áður er getið. Þetta hús nefndu þau Sjávar- borg og stendur það enn og var reyndar endurbyggt fyrir nokkmm ámm og er í eigu fjölskyldunnar. Síðustu 20 árin bjuggu þau í húsi sem þau keyptu og heitir Sjónar- hóll. Það ber nafn með rentu, því útsýni er þaðan gott, innsiglingin í höfnina blasir viö út um stofu- gluggann. Þar geymdi amma sjón-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.