Tíminn - 14.04.1994, Qupperneq 5

Tíminn - 14.04.1994, Qupperneq 5
5 Fimmtudagur 14. apríl 1994 Ingvar Níelsson: Das Vierte Reich1 — / dag heitir það Evrópusam- bandið; Europáische Union (EU). Upphaf þess má rekja til bandalags, sem ríki á norð- vestanverðu meginlandi Evr- ópu, standandi í hné í hálf- storknuðum blóðpolli heims- styrjaldarinnar síðari, stofnuðu til að standa vörð um úreltan kola- og stáliðnað á svæðinu — nefnilega ECSC (European Co- al and Steel Community eða Europáische Stahl und Kohle Union). Þá ógnaði snyrtileg há- tækni Bandaríkjamanna þess- um klunnalegu verksmiðjum, sem kunnu fátt annað en að steypa fallbyssuhlaup og skriö- drekabelti og gátu ekki lagað sig að þörfum friðartímanna. Því friðartímar eru auðvitað ekki annað en tímabilin á inilli styrjalda — bara eins og dag- amir milli jóla og nýárs. En síðan hefir margur þorsk- . urinn verið dreginn úr sjó og ECSC hefir átt í óteljandi til- vistarkreppum þar til það varð að EU. Ognun Ameríku við byssuhlaupaver Evrópu var leyst af hólmi af ástundunar- sömum þriðja heimi, sem nú hefir gengið af stáliðnaði beggja heimsálfanna hartnær dauðum. En ófétið skiptir um lit líkt og kameljón og nöfn rétt eins og mafíuforingi, svo að enginn einn maður hendir í dag reiður á hvað þama hefir átt sér stað á síðustu áratugum. Öll eiga þessi hamskipti rætur að rekja til innanhússvanda að- ildarríkjanna, sem hafa hrært upp í hefðum og þjóöernum meginlandsins með reglu- bundnum styrjöldum um alda- raðir. Þannig samanstendur Evrópa í dag af þúsundum tvístraðra þjóðarbrota, sem flest vilja ráða „Nú er það svo að stjóm- mál á alþjóðavettvangi eru háð hagsmunum þeirra embœttismanna, sem með þau fara. Þama er um að rceða há- launuð störf, fríðindi, samkvœmislíf, „jetsett- ing" og spennu. Hver vill ekki vera með í slíkum klúbbi?" hvert fyrir öðm og öll fengu blóðhefiid í arfleifð. Óttinn við það, sem skeð getur í þessari púðurtunnu, hræðir þá sem með völd fara til fálmkenndra aðgerða. Á meðan ekki er um aðrar og betri hugmyndir að velja er gripið til þess, sem hendinni er næst, jafnvel þótt þar sé um alls óskyld félags- form að ræða. Og allt skeður þetta undir breiðtjaldi, þar sem hrun Sovétríkjanna blasir við heiminum, en enginn þykist sjá þar víti til vamaðar. Eitt er þó alveg víst, nefnilega að allt þetta kemur okkur ekki við. Þetta em ekki okkar vandamál. Evrópusambandið er hræðslu- bandalag. í öngþveitinu missa menn sjónar á sjálfum vandan- um. Félagsleg forgangsmál em látin víkja fyrir hagrænum gæluverkefnum. Menn fyllast mikilfengleika og finnst þeir hafi stýrt atburðarásinni með því að taka sér mannaleg orð í munn: tollamúrar, viðskipta- samningar, úrlausnir, EES, GATT, framtíðarsýn. Þó er stað- reyndin sú að ef við emm jafn afbragðs góð og við látum í veðri vaka (stærsti þorskurinn, besta lambakjötið, tærasta vatnið, hreinasta loftið, feg- ursta landið), eiga óvemlegar viðskiptahindranir ekki að vera slíkt stórmál fyrir okkur. Það er líka staðreynd að öll viðskipti leita að eigin jafnvægi. Ef því er raskað, myndast bara nýtt jafn- vægi, sem hefir sínar neikvæðu hliðar alveg eins og hitt. En á meöan hnútamir em reyrðir í Evrópusambandinu, vinna öfgaöfl stórsigra um svæðið þvert og endilangt. Fyrst var það rússneskur of- drykkjumaður, sem minnir um of á Ádolf Hitler til að mönn- um standi á sama, og vefst nú fyrir mörgum stjórnmála- manninum að verja einfeldni- sumsagnir um Sovét-viðburð- arásina fyrir kjósendum. Á dög- unum fylgdi svo annað kjafts- högg — á Ítalíu, léttari enda möndulsins góða.2 En gamanið kámar, því þessum öflum er VETTVANGUR spáð enn einum sigrinum — í næstu þingkosningum í sam- einuðu Þýskalandi, þyngri enda möndulsins — á kostnað þeirra sem nú ráða í Evrópu- sambandinu. Menn em mátu- lega búnir að brjóta brýmar að baki sér. Nú spyr sá sem ekki veit, hvort verið geti að við höfum bara ekki skilið hvað aumingja Adolf var að fara á sínum tíma. Ef marka má af því hvernig Austurríkismenn grétu gleði- támm yfir að fá nú loksins að vera með Þjóðverjum eftir ára- mga aðskilnað og hvernig Norðmenn frændur okkar bíta neglur sínar upp í kviku þar til Fjórða þeir fá að færa velgjörðamönn- um sínum í soðið, mætti halda að við höfum lent í þessum il- lindum við Adolf af hreinum og beinum asnaskap. En það vom einmitt þessar tvær þjóð- ir, sem honum var hvað mest uppsigað við sakir þrjósku þeirra. Nú er það svo að stjómmál á alþjóðavettvangi em háð hags- munum þeirra embættis- manna, sem með þau fara. Þama er um að ræða hálaunuð störf, fríðindi, samkvæmislíf, „jetsetting" og spennu. Hver vill ekki vera með í slíkum klúbbi? Þeir sem til þekkja vita vel að líf þetta er vanabindandi og að sérhver alþjóðlegur stjómmálamaður er í raun van- hæfur — rétt eins og dómari, sem látinn er víkja vegna hags- munatengsla sinna við málin á dagskrá. Við emm ofurseld „intemationalistum", sem nærri liggur að hugsi fyrst um eigin hag — síðan okkar. En hvað getum við gert? Þetta er eina formið á meðferð þess- Lovísa Baldursdóttir: Réttindi sjúklinga Laugardaginn 19. febrúar var haldið málþing um- vanda þeirra, sem starfa við heilbrigðismál, á vegum Siðfræðistofnunar Háskóla ís- lands. Tilefnið var útkoma bókar Vilhjálms Ámasonar, dósents í heimspeki við HÍ, „Siðfræði lífs og dauða". Greinin, sem hér fer á eftir, er örlítið stytt erindi Lovísu Bald- ursdóttur, hjúkmnarfram- kvæmdastjóra á gjörgæslu og bráðamóttöku Landspítalans. ÁÞÁ Vísbendingar um viðhorf til þeirra, sem em sjúkir og- minna mega sín, má finna langt aftur í öldum. Þær end- urspegla menningu og samfé- lagsgerð þess þjóðfélags sem við er átt. Umhyggju og á- byrgð gagnvart sjúkum er að- finna allt frá tímum Neand- erdalsmannsins (80 þúsund ámm f.Kr.), þar sem þess hafa fundist merki ab eftir beinbrot vom bein lögð þannig tíl að þau gréru. Talið er aö elstu heimildir um „rétt" einstaklinga sé að- finna í fomritum Babylóníu- og Assýríumanna frá 7. öld f.Kr. Hippókrates (460-370 f.Kr.) er talinn hafa lagt gmnn ab MALÞING FYRRI HLUTI siðareglum varðandi samskipti læknis og sjúklings. Þar er m.a. fjallað um sjálfsvíg, líknardráp og fóstureyðingar. í hinum- fomu lögum þjóðveldisins, Grágás 1117-1118, kemur fyrst fram á íslandi skrifleg umfjöll- un um þarfir og rétt sjúkra. í alþjóðasiðareglum lækna, sem samþykktar vom 1948, er meðal annars kveðið á um upplýsingaskyldu læknis gagnvart sjúklingi. Á íslandi hafa Vísindasiða- nefnd Læknafélags íslands og Siðaráð landlæknis þab hlut- verk m.a. að gæta réttar ein- staklinga, þegar um er að ræöa vísindarannsóknir, auk þess sem Siðaráð landlæknis tekur ágreiningsmál milli sjúklinga og aðila innan heilbrigöis- þjónustunnar til umf jöllunar. Réttur til bestu þjónustu Á Landspítala og Borgarspít- ala em leiðbeiningar (Leið- beiningar um takmörkun meðferöar), sem kveða á um rétt deyjandi sjúklinga til upp- lýsinga og sjálfræðis eftir því sem við verbur komib, svo og rétt þeirra til þess að tekin sé ákvörðun um meðferð, þ.e. hvort meðferð skuli haldið áfram og í hversu miklum mæli eða hvort meðferð skuli hætt. Ennfremur hafa flestar sjúkrastofnanir hérlendis sett fram markmið með þjónustu- sinni. Sem dæmi má nefna að í markmiðum hjúkrunar á Landspítala er lögð áhersla á að sjúklingur hafi sínar ein- staklingsbundnu þarfir og þeim sé mætt, svo og að hon- um sé sýnd virðing og kærleik- ur. Því erum við að tala um rétt sjúklinga? Höfum við ekki sama rétt sem manneskjur, hvort sem við erum heilbrigb eða sjúk? Hvort sem okkur lík- ar betur eöa verr, þá virbist sjúklingurinn, í of mörgum tilvikum, vera rændur virð- ingu sinni, sjálfræði og per- sónu um leið og hann stígur fæti inn fyrir dyr sjúktahúss- ins. Sjálfsögðum persónurétt- indum fólks er ógnað, þegar það gengur inn í sjúklings- hlutverkið. Og á stundum viröist sem réttur sjúklinga sé háður aðstæðum innan og utan kerfisins hverju sinni. í lögum er kveðið á um rétt einstaklinga til bestu mögu- legu heilbrigðisþjónustu, sem unnt er að veita miðað við að- stæöur í þjóðfélaginu á hverj- um tíma. Besta mögulega heil- brigöisþjónusta er teygjanlegt hugtak, en flestir geta þó verib sammála um ab sú þjónusta, sem sjúklirigur á tilkall til, miðar að líkn og/eða bata, ásamt umhyggju fylir líkam- legum, andlegum (þ.m.t. trú- arþarfir) og félagslegum þörf- um sjúklings. Þessi réttur sjúklinga til- bestu þjónustu er gæðaréttur ara mála, sem við eigum til- tækt, og því er okkur nauðugur sá kostur einn að treysta hin- um kjömu fulltrúum okkar. Ef þeir bregðast okkur, getum við að vísu bundið þá á höndum og fótum, fleygt þeim út í ára- bát, ýtt frá og látið þá reka á haf út með sjávarföllunum, en á því stigi málsins gæti slík að- gerð verið um seinan. Eins og til að undirstrika þetta allt datt á dögunum inn um bréflúguna bæklingur frá íhald- inu. Á honum hafði heróp rót- tækra sigurvegara á Ítalíu verib gert að slagorði fyrir komandi borgarstjómarkosningar í Reykjavík. Þetta minnti á þá tíma þegar kommamir laum- uðust til Moskvu, til að „sækja línuna" eins og þá var sagt. í því sambandi þarf auðvitab að kanna hvort nýi borgarstjórinn hefir verið á Ítalíu nýlega og hvort nú þarf að taka z-una upp aftur til að koma línunni sómasamlega til skila. Forza Reykjavíka! 1 Fjórða ríkið, sbr. Þriðja ríkið (þý. Das Dritte Reich): Þýskaland á stjómarárum nasista 1933-45. Heil- aga rómverska keisaradæmið (962- 1806) taldist þá fyrsta ríkið og Þýska keisaradæmið (1871-1918) annað ríkið. Heimild: Islenska Al- fræðiorðabókin, Öm og Örlygur Í990. 2 Öxulríkin Möndulveldin, Öxull- inn Berlín-Róm(-Tókíó), Öxulveld- in: bandalag Þjóðverja, Itala og Jap- ana gegn Bandamönnum í síðari heimsstyrjöld; upphaflega banda- lag Þjóðverja og Itala 1936 og and- kommúnistabandalag Þjóðverja og Japana sama ár; urðu þrívelda- bandalag með samningi ríkjanna 1940. Heimild: íslenska Alfræði- orðabókin, Öm og Örlygur 1990. Höfundur var abalræbismabur íslands í Singapore um sjö ára skeib. og felur hann m.a. í sér að við mætum þörfum einstaklings- ins fyrir virbingu og sjálfræði, þ.e. sjálfræði í Ijósi faglegs for- ræbis. Sjúklingur á rétt á upp- lýsingum og fræðslu á máli sem hann skilur (um meðferð, horfur, fylgikvilla mebferðar og rannsókna, og niðurstöður rannsókna o.s.frv., ef hann óskar eftir) og ber mebferð- araðila að ganga úr skugga um að sjúklingur hafi meðtekið það sem við hann er sagt. Enn- fremur á sjúklingur tilkall til viðeigandi sérfræðiþjónustu sem fyrst, óski hann þess; ab hlustað sé á kvartanir eða áhyggjuefni af athygli og brugðist sé við skjótt og á ábyTgan hátt. En nýlegt dæmi, sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum, minnir okkur á mikilvægi þessa. Jafnframt er mikilvægt að sjúklingur þekki rétt sinn til þess að láta álit sitt í ljós varb- andi þá þjónustu sem hann fær, og að hann viti að með kvartanir hans sé farið á fag- legan hátt og hann ekki látinn gjalda þeirra. Sjúklingurinn á ennfremur rétt á því ab fá álit annarra sérfræðinga (second opinion) á meðferð sinni eða sjúkdómsgreiningu, ef hann óskar þess. ■

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.