Tíminn - 14.04.1994, Side 8

Tíminn - 14.04.1994, Side 8
8 mivmvm Fimmtudagur 14. apríl 1994 Eistland farið að ná sér Meb endurreisn gömlu eistnesku krónunnar var grunnur lagbur ab velgengni (ab mælikvarba fyrrverandi sovétlýb- velda) í efnahagsmálum. Þrátt fyrir gífurlega erfið- leika sem nýsjálfstætt Eistland á við að stríöa vegnar því betur í efnahags- málum en nokkru ööru fyrr- verandi sovétlýöveldi. Á síð- asta ári vottaði þar meira að segja fyrir hagvexti. Er það í fyrsta sinn sem svoleiðis gerist í sovétlýöveldunum fyrrver- andi. Eistar lögðu að nokkru gmnninn að þessari tiltölu- lega miklu velgengni er þeir tóku upp eigin mynt (sem heitir króna eins og hjá nor- rænum þjóöum, á eistnesku kroon) í júní 1992. Varð Eist- land fyrst fyrrverandi sovét- lýðvelda til slíkrar ráðstöfun- ar. Eistneska krónan hefur á bak við sig allnokkurn forða af gulli og erlendum gjaldeyri og gcngi hennar er miðað við þýska markið. Meö ráðstöfun- um þessum í gjaldeyrismálum tókst Eistum að hrista af sér tengslin við rússnesku (fyrr- verandi sovésku) rúbluna. Losnuðu þeir þannig við óða- verðbólgu rúblusvæðisins og gátu komið á þeim stöðugleika í gjaldeyrismálum sem nauð- synlegur var til að komast í viðskiptasambönd við Vestur- lönd. Finnland helsta viðskiptalandið Einkavæðing atvinnulífs er lengra komin í Eistlandi en öörum fyrrverandi sovétlýð- veldum og hefur núverandi ríkisstjórn, sem kom til valda síbla árs 1992, beitt sér mjög fyrir henni. Ráöherrar eru flestir ungir; forsætisráðherr- ann, Mart Laar, þannig 33 ára. Smærri fyrirtæki eru flest þeg- ar í einkaeign og einkavæðing stórfyrirtækja eitthvað á veg komin. Ýmsir telja þetta lykil- atriði á bak við velgengni Eista, en benda má á að einnig á sovéska tímanum var Eist- land framar öðmm sovétlýð- veldum í efnahags- og kjara- málum, þrátt fyrir miöstýr- ingu sovéska kerfisins. Ferða- menn, sem þá komu frá Rússlandi til Eistlands, furð- uðu sig t.d. á því hvað sa- myrkjubúskapur Eista virtist blómlegur í samanburði við þann rússneska. Eistar hafa lengi haft orð á sér sem iðnir og dyggir verkmenn. Náinn skyldleiki Eista við Norðurlandamenn og Þjóð- verja hvað mál og menningu varðar er að líkindum ekki þýbingarlaus í þessu sam- bandi. Finnska og eistneska em náskyld mál og viðmót fólks í Eistlandi og bragurinn á því minnir á Finna og Svía. Tortryggni í garö Þjóbverja mun vera minni í Eistlandi en í Lettlandi og Litháen. A Kadakamarkabi í Tallinn: „Eistland er komib yfir þab versta og á vesturleib," segir fulltrúi Alþjóbabankans þar í borg. Meira en helmingur utanrík- isverslunar Eistlands er nú við Vesturlönd og Finnland er orðið helsti viðskiptavinur þess í stað Rússlands áöur. All- mikið er orðið um erlendar fjárfestingar I Eistlandi og kveöur í því mest ab Svíum. Nýjar verslanir og veitingahús em farin að lífga upp á gömlu borgina í Tallinn, fallega en slitna, og skrifstofur innlendra og erlendra kaupsýslumanna em hér og hvar um nýlegri hverfin sem byggb vom á sov- éska tímanum. A hótelunum í Tallinn og í Párnu, vinsælum sumarleyfastað, er mergð sænskra og finnska túrista. Rússneskar mafíur Fyrir erlenda fjárfesta og ferbamenn er Eistland þó lík- lega í tölu hættulegri Evrópu- landa, vegna gríðarlegrar glæpaplágu sem mikið til er af- leggjari samskonar plágu í Rússlandi. Tallinn, höfuðborg Eistlands, er sögb vera með hættulegustu borgum í heimi. Á síöasta ári vom framin þar 60% fleiri morð en áriö áður og að tiltölu við fólksfjölda meira en helmingi fleiri en í New York á sama tíma. Rúss- neskar mafíur eiga þar drjúgan hlut ab máli. Þær nota Tallinn sem viðskiptamibstöö milli fyrrverandi Sovétríkja og Vest- urlanda. Til vesturs smygla BAKSVIÐ DAGUR ÞORLEIFSSON Efnahagslíf á upp- leib, mikiö um er- lendar fjárfesting- ar og yfir helm- ingur utanríkisviö- skipta viö Vesturlönd. þær eiturefnum, þriðjaheims- fólki, eöalsteinum og jafnvel efni í kjamavopn og flytja inn þaðan margskonar vaming, yfirleitt illa fenginn. Þribjungi allra bíla í Tallinn var stolið í Vestur-Evrópu. Mafíumar gera mikið af því að kúga fé af fyrirtækjum og valda þeim tjóni með spreng- ingum, ef fyrirtækin tregðast við að sinna fjárkröfunum. Slíkar sprengingar urðu 55 í Eistlandi í fyrra. Sprengjumar em ýmist heimatilbúnar eða frá rússneska hemum. Frá honum er mestur hluti vopna mafíulýbsins, enda kváðu vera náin tengsl milli hans og aðila í hernum. Að sögn eistnesku lögreglunnar er margt fyrrver- andi rússneskra herforingja í mafíunum. Lennart Meri, forseti Eist- lands, sagði fyrir skömmu að hætta væri á að mafíurnar yröu svo valdamiklar í land- inu að þær hefðu í fullu tré við stjómvöld þess. ítalir em í þann veginn að senda Eistum til hjálpar sérfræðinga í bar- átm gegn mafíum (með ítölsk- um og rússneskum mafíum er og mikið samstarf) og Finnar, Svíar og Þjóbverjar em famir að hjálpa eistnesku lögregl- unni um ýmiskonar útbúnað og sjá henni fyrir þjálfun. Bág lífskjör, bjartsýni Margir munu mæla ab Eistar hafi gildar ástæbur til að hafa þungan hug á Rússum, og nú hefur mafíuplágan bæst ofan á annað í því samhengi. Með hliðsjón af þeirri plágu, meðal annars, stendur Eismm smgg- ur af hinum fjölmenna rúss- neska þjóðemisminnihluta þarlendis. í Rússlandi er ma- fíuplágan komin á það stig ab sagt er að vesturlenskir fjár- festar hafi aö mestu gefið það land upp á bátinn. Um það er greinilega aðra sögu ab segja frá Eistlandi. Það bendir til þess að vesmrienskir fjárfestar og fjármálamenn hafi trú á efnahagslegum bata Eistlands. Hugsanlega er hér einnig að baki áhugi fyrir því að styðja Eystrasaltslönd gegn Rúss- landi. Sá áhugi er ekki einung- is verulegur á Norðurlöndum, heldur og hemr hans undan- farið í auknum mæli gætt í Þýskalandi og á Bretlandi. Lífskjör em áfram bág hjá mörgum í Eistlandi og versna hjá sumum, vegna þess að verðlag er þar farið að verða vestrænt án þess að tekjur mikils hluta landsmanna hækki aö sama skapi. Sérstak- lega býr eftirlaunafólk og sum- ir verkamanna við þröngan kost, og bændur em reiðir stjórninni vegna þess að hún styrkir ekki landbúnaðinn, en leyfir innflutning á landbún- aðarvömm frá ríkjum Vestur- landa sem styrkja sinn land- búnað. Þrátt fyrir þetta benda niburstöður skoðanakannana til þess aö næstum helmingur landsmanna búist viö hröðum efnahagsbata og bættum lífs- kjörum. Það er miklu meiri bjartsýni um þesskonar en mælist í öðmm fyrrverandi sovétlýöveldum. „Ég hygg að við (Eistar) mun- um komast á sama efnahags- og lífskjarastig og Skandína- var, þótt það taki nokkur ár," hefur bandaríska tímaritib Newsweek eftir Toomasi Sildmae, framkvæmdastjóra Finest, eistnésk-finnskrar hót- elkebju.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.