Tíminn - 14.04.1994, Blaðsíða 13

Tíminn - 14.04.1994, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 14. apríl 1994 HiíiiifWff 13 Hjúkrunarfræðingar Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing sem fýrst að hjúkrunar- og dvalarheimilinu Kumbaravogi. (búð fýrir hendi á staðnum á vægum kjörum. Einnig vantar hjúkrunarfræðinga í sumarafleysing- ar og/eða 3ja árs hjúkrunamema. Frekari upplýsingar í síma 98-31213 milli kl. 08 og 16, utan þess tíma í símum 98-31310 og 98- 31003. HROSSABÆNDA BÆNDAHÖLLINNI hagatorgi Hrossabændur! Vegna útflutnings til Japans er nauðsynlegt að flytja út kjöt að lágmarki af 30 hrossum vikulega. Tilkynnið sláturleyfishöfum eða Félagi hrossabænda (s: 91-630300) um siáturhross. Greitt yfirverð í apríl: 15%, maí: 10% og júní: 5%. Félag hrossabænda. Framhaldsnám við Fósturskóla íslands Skólaárið 1994-’95 verður starfrækt við Fósturskólann framhaldsnám fýrir fóstrur með starfsreynslu. Megin- viðfangsefni námsins verður börn með sérþarfir. Námið verður fullt nám í einn vetur og hefst í sept. ‘94. Umsóknarfrestur rennur út 20. apríl. -----------------------------------'N Elskulegur vinur okkar og frændi Rafn Þorsteinsson bóndi Hrafntóftum verður jarðsunginn frá Oddakirkju laugardaginn 16. april kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaöir. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Odda- kirkju. Pálina Jónsdóttir Björgúlfur Þorvarðsson Grétar Bjömsson og aörir vandamenn _________________________/ Útför Guðjóns Guðjónssonar bónda Hllð f Skaftártungu fer fram frá Grafarkirkju laugardaginn 16. apríl n.k. kl. 14.00. Sætaferðir verða frá Hópferöamiöstööinni, Bfldshöfða 2, kl. 9.00 árdegis. ____________________________________________________J Á göngu í Róm og þá þarf mabur ab drekka í hitanum. ísabella meb Roberto á handleggnum og eldrí dóttur hennar, Elettru. Isabella Rossellini og Michelle Pfeiffer í nýjum hlutverkum Michelle Pfeiffer og Isabella Rossellini eru vanar aö vera í sviösljósinu, enda báöar fræg- ar og fagrar leikkonur. Hitt er sjaldgæfara aö sjá þær í hvers- dagslega lífinu, en hversdags- leikinn hefur einmitt öölast nýtt gildi fyrir þær báöar. Þær ættleiddu báöar böm á síö- asta ári og um þau hefur lífið snúist. Michelle gekk lítilli stúlku frá Kaliforníu, sem heitir Claudia Rose, í móöur staö. Svo skemmtilega vill til aö í haust mun enn fjölga í fjölskyldunni, því Michelle á von á bami með eiginmanninum David Kelley. Isabella átti 9 ára gamla dóttur fyrir, Elettm, sl. ár þegar hún ákvaö aö Iáta draum sinn rætast og eignast strák. Þar sem hún stóð á fertugu, þótti henni ætt- Michelle og Claudia. leiðing álitlegur kostur. Sonur- inn heitir Roberto eftir föður hennar og bróður. Meðfylgjandi myndir sýna Þessi unga dama eignast systkini bráblega, því Michelle Pfeiffer á von á sér í haust. stjömumar tvær með bömum sínum, í stærsta hlutverki þeirra á lífsleiðinni: móðurhlutverk- inu .■ Sœnski poppdúettinn Roxette hyggst taka sér frí frá tónlistarstörfum: Fjölskyldulífið sett á oddinn Sænska hljómsveitin Roxette mun feröast um aUan heim í sumar til aö fylgja nýjasta geisladisknum eftir. Feröin veröur væntanlega sú síöasta, þar sem báöir meölimir hljómsveitarinnar, Marie Fredriksson og Per Gessle, hafa ákveöiö aö einbeita sér aö einkalífinu eftirleiöis. í fyrra eignaðist Marie stúlku, Inez Josefin, með tónlistar- manninum Michael Boylos. Marie er orðin 36 ára gömul og því hugsar hún sér gott til glóð- arinnar aö einbeita sér að fjöl- skyldunni í rólegheitunum eftir mikla velgengni síbustu ára og stressað lífemi því samfára. Per er 35 ára ab aldri og kvæntist fyrir skömmu æskuástinni sinni, Asa Nordin. „Fjölskyldan er öUu öðm mik- ilvægari í lífinu," segir Marie. „Þab er auðvelt ab velja á milli hennar og framans. Mig langar ab eignast fleiri böm og því er rétt ab draga sig í hlé nú, a.m.k. um nokkurt skeið." Það er við því ab búast ab aðdá- endur hljómsveitarinnar verði fyrir vonbrigðum, ef Per og Maria standa vib fyrirætlun sína og hætta í tónlistinni. Þó er von á nýjum diski frá þeim nú um næstu mánaðamót. Marie og Per kynntust fyrst ár- ib 1978, en stofnuðu Roxette ár- ið 1986. Eftir smeUinn „The Look and Joyside" var framtíðin björt og þau hafa notið mikiUa vinsælda um aUan heim. Marg- oft hafa fjölmiblar reynt að spyrða þau saman sem kæmstu- par, en þau segjast aldrei hafa verið annað en vinir. Þau búa bæði skammt frá Stokkhólmi og hafa alla tíð stundab útgerb sína frá Svíþjób. Maríe og Per eru ab senda frá sér 5. geisladiskinn í lok þessa mánabar. Hann verbur vœntanlega sá síbasti. í SPEGLI TÍMANS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.