Tíminn - 31.05.1994, Page 4

Tíminn - 31.05.1994, Page 4
4 IPíSJfífftí Þribjudagur 31. maí 1994 STOFNAÐUR 1 7. MARS 1917 Utgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: Jón Kristjánsson Ritstjórn og auglýsingar: Stakkholti 4,105 Reykjavík Inngangur frá Brautarholti. Sími: 631600 Símbréf: 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Prentun: Prentsmibja Frjálsrar fjölmiblunar hf. Mánabaráskrift 1400 kr. m/vsk. Verb í lausasölu 125 kr. m/vsk. Kosningaúrslitin — tíðindi í stjórnmálum Úrslitin í sveitarstjórnarkosningunum síðastliðinn laugardag eru pólitísk tíðindi. Þar ber hæst að meirihluti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fellur nú í annað sinn á 60 árum, í þetta skipti fyrir bandalagi fjögurra flokka. Þessi árangur náðist með góðri samstöðu þeirra. Sú aðferð að stilla borgarstjóraefninu í fremstu víglínu gekk upp. Samfylkingin gegn Sjálfstæðisflokknum í borg- inni skýrist fyrst og fremst af þeim langa tíma sem hann hefur haft þar tögl og hagldir og byggt upp sitt valdakerfi. Sú þörf að brjóta það upp vék flokkshagsmunum til hliðar og þjappaði fólki saman. Þetta er baiátta sem á sér ekki hliðstæðu í stjórnmálasögu síðustu ára, og átti sér ekki hlið- stæðu annars staðar á landinu. Þessi tíðindi eiga eftir að draga dilk á eftir sér, einkum í ljósi þess hvað valdakerfi Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík er ríkur þáttur í uppbyggingu flokksins. Það er áfall fyrir ímynd flokksins að tapa borginni. Það er vandi fyrir Reykjavíkurlistann að spila úr sigrinum og það hvílir mikil ábyrgð á því fólki sem tekur forustuna í borgarmálunum nú. Það skiptir miklu máli að sá samstarfsvilji, sem fram kom í kosningunum, endist. í flestum stærri bæjarfélögum landsins var kosn- ingabaráttan háð undir merkjum flokkanna. Nið- urstaðan var yfirleitt sú að stjórnarandstöðuflokk- arnir komu betur út en Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn. Framsóknarmenn mega vel við útkomuna una og fékk þeirra fólk mjög góða kosn- ingu víðast hvar; má nefna Akureyri sem dæmi, þar sem flokkurinn vann stórsigur. Flokkurinn vinnur einnig á í sveitarstjórnum í þéttbýlinu á Reykjanesi, þar sem hann hefur átt á brattann að sækja; má þar einkum nefna Mosfellsbæ og Garða- bæ, þar sem útkoman er mjög góð. Einnig var afar góð útkoma í hinum stóra þéttbýliskjarna á Suður- landi á Selfossi. í sveitarstjórnarkosningum verður það ávallt svo að málefni einstakra sveitarfélaga, persónur og staðbundnar aðstæður ráða miklu. Svo var einnig í þessum kosningum. í hinum minni sveitarfélög- um var um hreint persónukjör að ræða. Látið hefur verið að því liggja að samstarfið í Reykjavík sé upphaf að miklum breytingum í flokkakerfi landsmanna. í því sambandi verður að hafa í huga að það er tilkomið af sérstökum að- stæðum, eins og áður er minnst á. Bent hefur ver- ið á að í landsmálum gildir öðru máli og þar grein- ast skoðanir um breiðar línur í málefnum atvinnu- veganna og utanríkismálum, svo eitthvað sé nefnt. Það er því allt of snemmt að spá kollsteypu flokkakerfisins eftir þessar kosningar. Hitt er mjög athyglisvert að nú virðast allir færast inn á miðj- una í sínum málflutningi. Sigur þessara kosninga er fyrst og fremst sigur félagslegra viðhorfa um allt land. Tíminn á þá ósk til sveitarstjórnarmanna um land allt að þeim vegni vel í sínu mikilvæga starfi. Davíb, raunvinur R-listans til Rey^nga cfUr „ éc VvWW' > Þá er búib að bjarga borginni úr klóm Sjálfstæbisflokksins, í ann- ab sinn á 60 árum. Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði að vinna kosningarnar á glundroba- kenningunni. Það vopn snerist hins vegar í höndunum á þeim, vegna þess að glundroðakenning- in virkar þá og því aðeins að rétt- ar forsendur og umhverfi séu fyr- ir hendi. Til þess að einhver geti notað glundroðakenninguna með sann- færandi hætti þarf a.m.k. þrennt ab vera til staðar: Andstæðingur- inn þarf að vera í mörgum fylk- ingum; sá sem segir glundroöa einkenna andstæðing sinn þarf að hafa allt í lagi í sínum eigin garði, og í þribja lagi verbur sá sem beitir glundroöakenning- unni aö kynna sig sem hinn eina ábyrga málefnalega valkost og haga málflutningi í samræmi viö það. Grímuglundroði full langsóttur Ekkert af þessu var fyrir hendi hjá sjálfstæbismönnum aö þessu sinni og því fór sem fór. R-listinn var skýr og afmarkaður valkostur, sem allt of langsótt var að bendla vib einhvem grímuklæddan glundroða. Allra síst var það væn- legt hjá sjálfstæðismönnum, í ljósi þess að þeir höfðu haft þrjá borgarstjóra og meiriháttar hreinsanir og uppgjör höfðu átt sér staö í flokknum, bæöi hvað varðar menn og málefni. Sjálf- stæðisflokkurinn var m.ö.o. ekki í neinu formi til að beita glundroðakenningunni á aðra. Síðast en ekki síst þá var málflutn- ingur flokksins á köflum lítið annað en fúkyrðaflaumur, götu- strákatal sem gerði allt annað en skapa traust til flokksins sem ábyrgs stjómmálaafls. Sá, sem ber höfuöábyrgðina á því aö þessi þrjú atriði, þessar for- sendur glundroðakenningarinn- ar, vom ekki til staðar hjá Sjálf- stæðisflokknum, er hins vegar ekki Ámi Sigfússon. Og jafnvel ekki Markús Örn Antonsson. Að- alsökin liggur hjá Davíö Odds- syni, sem skildi viö borgarstjórn- arflokkinn í uppnámi og haföi persónulega forgöngu um að nauðsynlegt uppgjör milli ólíkra manna og sjónarmiða fór ekki GARRI fram fyrr en 70 dögum fyrir kosn- ingar. Moggagrein jafnar aug- lýsingamisvægi Það er því fyrir tilverknað Davíðs sjálfs, formanns Sjálfstæðisflokks- ins, að innanflokksglundroðinn brýst fram svo skömmu fyrir kosningar. En Davíð reyndist sámkvæmur sjálfum sér allt til enda. Því auk þess að hafa búið um glundroðahnútana með þess- um hætti, var hið opinbera fram- lag hans til kosningabaráttu D- listans þannig aö mátt heföi ætla að maðurinn vildi sem mest skemma fyrir sínum eigin flokki. í ávarpi til kjósenda á kjördag gerir forsætisráðherra lýðveldisins sér lítiö fyrir og fer yfir sviöið eins og bóndi sem er að dreifa mykju á tún. Í nafni glundroðakenningar- innar þeytir hann mykjunni í kringum sig og virðist ekkert hafa fram ab færa nema skítkast á frambjóðendur R-listans. Götu- strákastíll í stað ábyrgs og mál- efnalegs talsmáta verður þannig til þess að ásakanir um glundroða snúast upp í andhverfu sína. Trú- lega hefur þessi eina grein forsæt- isráðherra og formanns Sjálfstæð- isflokksins náð því aö vega upp þá slagsíðu, sem var á auglýsinga- magni listanna Reykjavíkurfram- boðinu í óhag. Ef sjálfur formaður Sjálfstæðisflokksins og yfiroddviti D-listans í Reykjavík hefur ekkert að segja við kjósendur á kjördag um stefnu og málefni og ábyrgð sinna manna, en lætur hins vegar dæluna ganga um ab einn and- stæðingurinn hafi nú fyrir tíu ár- um ekkert getað talað um annað en að hækka skatta og ab annar ætti nú ab eiga heima á Höllu- stöðum o.s.frv., þá er ekki von að menn telji mikið á minni spá- mönnum flokksins að græða. Garri vill nota þetta tækifæri og þakka Davíð Oddssyni fyrir Morg- unblaösgreinina og fyrir ab hafa af ræktarsemi og áralangri þolin- mæöi stuðlað að því ab sjálfstæb- ismenn töpubu borginni í þessum kosningum. Garri Vond fjárfesting Að kosningum loknum vita allir að svona hlutu þær að fara. í Reykjavík voru skobanakannanir búnar að undirbúa jaröveginn svo vel að kosningamar vom staðfesting á þeirri stabreynd sem fjórar samhljóða kannanir sýndu, að hlyti að verða niöurstaðan. Breytingin varb ekki önnur en sú að sigur R- listans varö heldur meiri en síðustu kannanir gáfu til kynna. Því var það furðulegt þegar frá- farandi borgarstjóri lýsti yfir að heföu kosningamar farib fram tveim vikum síðar, hefði hann og flokkur hans sigraö. Á orðum hans mátti skilja aö ekki heföi unnist tími til að koma réttum skilaboðum til kjósenda á síðasta kjörtímabili sem var tveim vikum of stutt í annan endann fyrir D- listann. Þaö gerði gæfumuninn. í leikverkinu Deleríum Búbónis var jólunum frestab til að hægt væri að græða á þeim. í kosninga- deleríum íhaldsins hefði þaö gert sama gagn að fresta kjördegi sam- kvæmt kokkabók Áma Sigfússon- ar. Öflugasta vopnib Bágt er af voma auga á hvaða stob tvegg|d vikna lenging kosn- ingabaráttu átti að gera til ab auka sjálfstæðismönnum fylgi. Þeir hefðu að vísu getað eytt ein- hverjum tugum eða hundmöum milljóna til viðbótar í auglýsingar og gert sig mjúkláta í framan og fjölskylduvæna. En ab þaö hefði umtumað skoðunum fjögur þús- unda kjósenda er ofætlan og í raun ekki annað en vanvirða gagnvart því fólki sem ætlað er að mynda sér skobanir eftir auö- Á víbavangi viröilegu auglýsingaskmmi. Gífurlegu fjármagni er varib til að auglýsa ágæti einstakra lista og veröleika frambjóðenda. Á kosn- ingakontómm em þau trúar- brögð í heiðri höfð að peninga- austur sé öflugasta vopnið til að vinna kosningabaráttu. Ab koma brosandi andlimm á framfæri og upphrópunum um vitsmuni og stjórnvisku sem að baki hinna hým ásjóna býr, er mál mála að viðbættum vangaveltum um að vibkomandi ætli ab gera eitthvab í atvinnumálunum. Það er stabföst trú undimtaðs ab þeir sem græöa á frambobsauglýs- ingum séu einkum þeir sem búa þær til og þeir fjölmiðlar sem birta þær. Kjósendur hafa annað ab leiöar- ljósi þegar þeir gera upp hug sinn um hverja þeir velja til ábyrgöar. Það er meö ólíkindum hvað Reykjavíkuríhaldib hefur auglýst fyrir kosningarnar sem það tapaði á laugardaginn. Útvörp, sjón- vörp, sími blöð og glæsibæklingar vom full af keyptum og útspekúl- emðum áróðri sem átti að hafa áhrif á kjósendur. Því fjármagni sem í þetta fór var illa varið og skilaöi engum ár- angri því atkvæði Reykvíkinga verða ekki keypt með þessum hætti. Auglýsingaskmmið tók á sig ýmsar myndir, sumar miður geðslegar. Það versta við þær er aö þær ofbjóða almennri skynsemi og em vanvirða við það fólk sem þeim er ætlab að höfða til. Að halda að svona fmmstæður heilaþvottur, gauragangur og skmm nái tilætluðum árangri sýnir í besta falli hugarfar þeirra sem þessum aðferðum beita og kalla innlegg í stjómmálabaráttu. Árni Sigfússon gemr sem best huggað sig við að tveggja vikna auglýsingaaustur til viðbótar hefði fært honum sigur. En þar vanmetur hann frjálsan vilja ein- staklinganna til að taka afstöðu án þeirra tilburða sem peninga- valdiö hefur í frammi til að ráðsk- ast með ákvarðanir þeirra. Annars er þab greinilega vondur bisniss að styrkja íhaldið. Þeir miklu fjármunir sem það varði til að verja meirihluta sinn í borgar- stjóm em roknir út í vebur og vind án þess ab nokkuö komi í staðinn. Hverjir borga brúsann, er ekki á almanna vitorði fremur en hvernig innheimtan gengur eftir að gamli meirihlutinn sem öllu réði er oröinn valdalítill minni- hluti og léleg fjárfesting. Maður hlýmr að taka undir uppáhalds- frasa þeirra efnuöu:. Peningar em ekki allt. OÓ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.