Tíminn - 03.08.1994, Page 2
2
Whmzm
Mi&vikudagur 3. ágúst 1994
Tíminn
spyr...
Er tími stóru útihátíbanna li&inn?
Egill Ólafsson, fyrrverandi
Stu&ma&ur
Nei, ég held ekki. Ég held ab úti-
hátíöir hafi veriö í lægb undan-
farin ár, en vinsældir þeirra hafa
gengib í sveiflum eins og svo
margt annaö hjá okkur, t.d.
bókaútgáfa og verbbólga.
Gunnar Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri BSÍ
Tími útihátíöa er ekki liöinn en
þær eru aö breytast. Fjölskyldan
er farin aö ferðast meira saman,
ekki síst á útihátíöir. Það er gert
meira af því að höföa til fjöl-
skyldunnar þar sem einstakling-
arnir hafa stuðning hverjir af
öörum.
Magnús Einarsson, lögreglu-
þjónn hjá umfer&ardeild
Nei, ég tel að hann sé ekki liðinn
en útihátíðir em mjög að breyt-
ast. Ástæðurnar em margar, m.a.
sú aö kostnaður viö aö sækja
svona hátíöir er farinn úr bönd-
um. Aöalástæban er þó ab mínu
mati sú aö hjá ungu fólki er aö
veröa áherslubreyting þannig ab
þaö vill nú í auknum mæli hafa
eitthvað sérstakt fyrir stafni og
vinna að ákveðnu markmiði,
ekki síst á svibi ræktunar. Dæmi
um þessa nýju þróun er Síldar-
ævintýrið á Siglufirði sem var
fjölsótt og fór vel fram.
Gubni Björnsson hjá Vímu-
lausri æsku
Nei, okkur sem höfum staöið aö
útihátíðum dettur ekki í hug aö
útihátíðir séu aö líöa undir lok.
Viö vitum betur. Um þessa versl-
unarmannahelgi hefur veður ef-
laust ráðiö aðsókninni. Hins
vegar er nú meiri dreifing á fólki
og hátíöirnar em ab breytast.
Þær verða ömgglega áfram viö
lýöi.
Engin ákvöröun veriö tekin um framboösmál innan kjördœmisráösins vegna haustkosninga.
Hlín Daníelsdóttir, formaöur Alþýöuflokksfélags Reykjavíkur:
Ekki tími fyrir
opiö prófk j ör
Hlín Daníelsdóttir, forma&ur
Alþýöuflokksfélags Reykja-
víkur, segir aö ekkert hafi ver-
iö rætt um hugsanlegar haust-
kosningar innan kjördæmis-
ráösins og því liggi ekki fyrir
hvernig haldiö ver&i á fram-
boðsmálum Alþý&uflokksins í
Reykjavík. Hún segist því aö-
eins geta látið í ljós persónu-
lega skoöun sína á því hvernig
á framboðsmálum veröi hald-
i&.
„Ef haustkosningar eiga aö
vera nú í október þá liggur það
alveg ljóst fyrir að þaö er ekki
tími fyrir opið prófkjör. Það eru
bara tveir mánuöir til stefnu og
því get ég ekki séö aö þaö sé
neinn tími fyrir prófkjör. Ef þaö
á að vera prófkjör þá hlýtur að
veröa aö gefa fólki tíma til aö
kynna sig og svo á eftir aö
kynna listana þannig aö ég get
ekki séö aö neinn tími sé til
þess," segir Hlín Daníelsdóttir.
En er ekki Alþýðuflokknum
talsveröur vandi á höndum
vegna ágreinings Jóns Baldvins
og Jóhönnu og teljið þið að
stuðningsmenn Jóhönnu sætti
sig vib lokað prófkjör?
„Ef þaö verbur, þá veröur bara
tekið á því en ég vil taka fram að
ég er aö segja þaö sem mér
finnst, ég er hreint ekki að tala
fyrir kjördæmisráðið þótt ég sé í
stjórn þar. Nú ef Jóhanna óskar
eftir því aö vera á lista hjá Al-
þýöuflokknum þá mun hún
óska eftir prófkjöri og ég veit
ekkert hvernig farið verður meb
þá ósk. Það er líka spurnig hvort
þaö er opið prófkjör eða lokaö
prófkjör og ég get alveg séö það
fyrir mér aö tími sé fyrir lokab
prófkjör meðal flokksbundinna,
en engu aö síöur þurfa menn og
konur ab hafa tækifæri til ab
kynna sig," sagði Hlín Daníels-
dóttir aö lokum.
Enginn
alvarlega
slasabur
Hópferðabifreið meö 32 erlend-
um ferbamönhum, auk bílstjóra
og fararstjóra, valt í Vatnsskarði
fyrir ofan Bólstaðarhlíðabrekku
í Skagafiröi á laugardagsmorg-
un. Atvikið átti sér stað þegar
tvær rútur mættust á veginum.
Vegurinn var blautur eftir rign-
ingar og er talið að vegkantur-
inn hafi gefið sig. Þegar lögregl-
an á Blönduósi kom á vettvang
var búib ab ná öllum út úr rút-
unni. Að minnsta kosti sjö
sjúkrabílar komu á vettvang og
fluttu þeir alla sem voru í rút-
unni á sjúkrahús á Akureyri,
Blönduósi og Sauðárkróki til
skobunar og aðhlynningar. Eng-
inn er lífshættulega slasaður eft-
ir veltuna en um tíu manns
hlutu beinbrot og mar. Aðrir
sluppu með minni skrámur.
Rútan sem var á noröurleib fór útaf og valt þegar hún mœtti annarri rútu efst í Bólstaöarhlíöarbrekku.
Tímamynd ÁC
Fjármálaráöuneytiö sendir sjálfu sér langhœsta innheimtuseöilinn:
Ríkib sjáíft með 36%
try ggingagj aldsins
Á lista yfir hæstu skattgreib-
endur í hópi lögaöila í Reykja-
vík trónir nú fjármálaráðu-
neytiö sjálft, sem langsamlega
stærsti skattgreiöandi lands-
ins, meö hátt í tveggja millj-
aröa króna heildargjöld.
Heildarálögur skattstjórans í
Reykjavík á lögaöila í borg-
inni, nemur samtals 9,1 millj-
ar&i króna. Þannig aö fjár-
málaráöuneytiö ver&ur a&
senda sjálfu sér rukkun fyrir
rúmlega fimmtungi (21,5%)
heildargjalda lögaöila í
Reykjavík.
Skattálögur á fjármálarábu-
neytiö felast eingöngu í trygg-
ingagjaldinu, sem tók viö af
launaskatti og fleiri launatengd-
um gjöldum á síöasta ári. Trygg-
ingagjaldiö nemur 60% af öll-
um álögum á fyrirtæki í borg-
inni, eöa um 5.470 milljónum
króna. Þar af er hluti launaskrif-
stofu fjármálarábuneytisins
36%. Þar viö mætti t.d. bæta
160 milljónum sem lagöar eru á
Borgarspítala og Lanclakotsspít-
ala en hljóta samt að koma úr
ríkissjóði og svipað rnun vera
ástatt um fleiri stofnanir.
Reykjavíkurborg er annar
hæsti greibandi opinberra
gjalda í borginni, með tæplega
400 milljónir, sem einnig er ein-
ungis tryggingagjald. Samtals
greiða því þessir fjórir opinberu
aðilar rúmlega 2,5 milljarða í
tryggingagjald, eða um 46%
heildarálagningar trygginga-
gjalds lögaðila í borginni.
Til aö standa sjálfu sér skil á
þessum 2,5 milljarða skatti
verða ríki og borg væntanlega
að leggja abra 2,5 milljaröa
skatta á þegna sína.
Samanburður álagbs trygg-
ingagjalds milli ára ætti að gefa
mynd af því hvar launagreiðslur
hafa aukist (vegna fleira fólks
eða hærri launa) og hvar dregist
saman. Af þeim 20 lögabilum,
sem listi skattstjórans nær til,
*r*
hefur Grandi sett algert met,
með 37% hækkun milli ára. Hjá
Olíufélaginu hf. hækkar trygg-
ingagjaldiö um 16% og hjá Stöð
2 og og Olís kringum 10% milli
ára. Með þessu hefur íslenska
útvarpsfélagiö hf. t.d. náð nán-
ast sömu umsvifum og Seðla-
bankinn.
Meö nærri 9% hækkun milli
ára virðist Reykjavíkurborg hafa
aukið umsvif sín verulega, en
hækkunin er 4% hjá fjármála-
ráðuneytinu.
Af fyrirtækjum sem heildar-
launagreiðslur hafa nánast stað-
ið í stað má hins vegar nefna
Flugleiðir, Landsbankann, Hag-
kaup og Húsasmiðjuna. Og fyr-
irtæki sem virðast hafa dregið
saman seglin eru t.d. íslands-
banki, Eimskip, Samskip og
Landsvirkjun.
Tuttugu hæstu greiðendur
tryggingagjalds, og þar meb
umsvifamestu vinnuveitendur í
Reykjavík, eru eftirtaldir:
millj.
Fjármálarábuneytið ....1.954
Reykjavíkurborg..........393
Flugleiðir...............146
Landsbankinn.............130
Borgarspítalinn .........125
íslandsbanki..............83
Eimskip ..................75
Búnaðarbankinn............64
Hagkaup...................55
Landsvirkjun .............52
Samskip...................36
Landakotsspítali .........36
Olíufélagib ..............35
Grandi....................34
Olís ..................i..31
Skeljungur................29
Seðlabankinn..............24
Vátryggingafélag ísl......24
íslenska útvarpsfél.......24
Húsasmiöjan...............20
Samtals 20 efstu:..
.3.372
Þessir 20 aðilar greiða þannig
nærri 62% af tryggingagjaldi
lögaöila í Reykjavík. Hin 38%
skiptast á 3.130 greiðendur. ■
tKf. (tíu m'fyðöíz r/íítmofd Bd ntu iPrinf»r>'loqu