Tíminn - 01.11.1994, Page 3
Þribjudagur 1. nóvember 1994
fiwlBiiiixiingiBmTl
w
3
Drœm þátttaka í prófkjöri sjálfstœöismanna í Reykjavík:
Úrslitin eru ekki bind-
andi fyrir kjömefndina
Forysta Sjálfstæöisflokksins er
mjög óhress meö prófkjöriö í
Reykjavík um helgina. Kjörsókn
var svo dræm að niðurstöðurn-
ar ná því ekki að vera bindandi
fyrir kjörnefnd, en það hefur
ekki komið fyrir áður. Aðeins
48.6% greiddu atkvæði en í
prófkjörinu fyrir síðustu alþing-
iskosningar var kjörsóknin rúm
70%. Ekki vekur síður athygli að
formaður flokksins og forsætis-
ráðherra fær nú atkvæbi aðeins
þriöjungs flokksbundinna sjálf-
stæðismanna í Reykjavík í fyrsta
sætið. Tíminn hefur heimildir
fyrir því að þrátt fyrir kokhreysti
í fjölmiðlum og yfirlýsta
ánægju með glæsilegan árangur
í glæsilegu prófkjöri sé uggur í
mönnum vegna framhaldsins.
Miklar vangaveltur eru um or-
sakir þess að sjálfstæðismenn
hafi hunsað prófkjörið í stórum
stíl, en þær skýringar munu þó
efst á baugi ab fjöldi sjálfstæðis-
manna í Reykjavík sé ósáttur
við stefnu flokksforystunnar í
ESB-málum og margir eigi bágt
með ab sætta sig við slælega
frammistööu hennar í kjör-
dæmamálinu.
Núverandi þingmenn flokks-
ins, þeir sjö sem voru í fram-
boði, röðuðu sér svo í sjö efstu
sætin: Davíð Oddsson, Friðrik
Sophusson, Björn Bjarnason,
Geir H. Haarde, Sólveig Péturs-
dóttir, Lára Margrét Ragnars-
dóttir og Guðmundur Hall-
varðsson. í áttunda sæti varö
Pétur H. Blöndal sem er eina
endurnýjunin á listanum, ef frá
eru talin Katrín Fjeldsted og
Markús Örn Antonsson sem
urðu í níunda og tíunda sæti.
Bæði luku ferli sínum í borgar-
stjórn Reykjavíkur meö snubb-
óttum hætti fyrr á árinu en ætl-
uðu sér nú stóran hlut á lista til
Alþingis.
Auk Evrópumála og atkvæða-
vægis, sem mun vera einskonar
trúaratriði hjá mörgum sjálf-
Könnun Dagvistar barna í Reykjavík:
Mest þörf fyrir
heilsdagsvistun
Könnun Dagvistar barna í
Reykjavík á óskum foreldra um
dagvistarpláss fyrir börn þeirra
leiddi í ljós að mest þörf er fyrir
heilsdagsvistun, þ.e. 8-9 stundir
daglega.
Könnunin var send til alls 7898
foreldra sem eiga samtals 8913
börn á þessum aldri. Svör bárust
frá 3193 sem er 36% svörun. Tæp-
lega 30% foreldra sem eiga.börn í
leikskóla svöruöu og um 45%
þeirra sem eiga ekki börn í leik-
skóla. Árni Þór Sigurðsson, for-
maður Dagvistar barna, segist
telja ab könnunin gefi góba vís-
bendingu um þörfina þar sem lík-
legt sé ab þeir sem óski eftir breyt-
ingum, þ.e. lengri dvalartíma eða
nývistun, svari betur en þeir sem
eru ánægbir meb vistunina eða
óski ekki eftir vistun.
Af þeim foreldrum sem eiga börn
í leikskóla óska 635 eftir lengri
dvöi, flestir vistun í 8-9 stundir.
Óskir þessara foreldra samsvara
um 10 leikskóladeildum en áætl-
að er að raunveruleg þörf sam-
svari 11-12 deildum. Um þribj-
ungur foreldra sem eiga ekki börn
í leikskóla óska eftir heilsdagsvist-
un en abrir eftir vistun í 4-6 tíma.
Óskir þeirra samsvara um 55 leik-
skóladeildum.
Nokkur hluti þeirra foreldra sem
svörubu könnuninni óskuðu eftir
dagvistarplássi við ákveðinn ald-
ur barnsins, flestir við 2ja ára ald-
ur. Þegar allt þetta er tekið saman
er niðurstaban, eins og áður segir,
að þörfin samsvari um 60-66 leik-
skólum og er taliö að hærri talan
sé líklega nær lagi.
stæðismönnum í Reykjavík, er
enn eitt sem heimildarmenn
Tímans telja að hafi vegið þungt
varðandi daufar undirtektir en
það er lítið úrval af alvörufram-
bjóðendum, eins og það er orð-
að. „Það þarf engan að undra
þótt hæft fólk sé tregt aö gefa
kost á sér í keppni þar sem
ströng fyrirmæli eru gefin varð-
andi úrslit," segir ónefndur
sjálfstæbismaður, „en það hefur
verið einskonar heilög skylda að
setja formanninn í fyrsta sæti
og fæstir hafa gert athugasemd-
ir við þetta. En nú er þessi pönt-
unarstarfsemi bara komin út í
öfgar. Það er ekki nóg með að
fyrsta sætið sé frátekið heldur er
er annað sætið frátekið fyrir
varaformanninn og svo gerir sá
sem var í þriðja sæti síðast kröfu
til að halda því áfram. Þessir
menn líta svo á að þeir eigi
þingsætin og það er þetta sem
rúm 60% flokksbundinna sjálf-
stæðismanna eru að mótmæla
þegar þeir „stræka" t.d. á að
setja formanninn í fyrsta sæti.
Auðir og ógildir seblar tala líka
sínu máli en þeir voru á fimmta
hundrað í kosningu þar sem
rúmlega sjö þúsund tóku þátt."
■
Birgitta Spur stendur hér vib „Skrúfu" Sigurjóns Ólafssonar.
Leiöbein-
ingar
séu á ís-
lensku
Framkvæmdastjórn átaksins
„Öryggi barna - okkar ábyrgð"
fagnar ákvæði í nýlegri reglu-
gerð um öryggi leikfanga og
hættulegar eftirlíkingar, þar
sem segir að aliar varúðarmerk-
ingar skuli vera á íslensku.
Um leið minnir stjórnin á mik-
ilvægi þess að notkunarleið-
beiningar með barnavörum og
leikföngum séu á íslensku, enda
megi rekja flest slys — þar sem
öryggisbúnaður eða sérvörur
koma við sögu — til rangrar
notkunar og/eða lélegs viðhalds
búnaðarins. ■
Skrúfan af-
hjúpuö á lóð
listasafns
Stytta eftir Sigurjón Ólafsson,
Skrúfan, var afhjúpuð á lóö
safnsins á Laugarnesi vib há-
tíölega athöfn föstudaginn 21.
október sl., en þab er afmælis-
dagur listamannsins og
vígsludagur safnsins.
Skrúfuna vann Sigurjón í stein-
steypu árið 1968 og er hún eitt
lykilverka listamannsins í vinnu
hans ab íslandsmerki, minnis-
merki um stofnun lýðveldis.
Var minnismerkið reist á Haga-
torgi árib 1977.
Fjöldi gesta var við athöfnina,
sem hófst með ávarpi Birgittu
Spur, forstöðumanns safnsins.
Færbi hún Erlingi Jónssyni
myndhöggvara sérstakar þakkir
fyrir að endurskapa listaverkið í
varanlegt efni. Því næst söng
Signý Sæmundsdóttir íslensk
lög við undirleik Þóru Fríðu Sæ-
mundsdóttur og Baldvin Hall-
dórsson las ljóð sem ort hafa
verib við verk Sigurjóns. For-
maður menningarmálanefndar
Reykjavíkurborgar, Guðrún
Jónsdóttir, afhjúpaði Skrúfuna
og minntist í ræðu sinni á
tengsl Sigurjóns og list hans við
menningarlandslagið Laugar-
nes. Ab lokum voru gestum
boðnar veitingar í kaffistofu
safnsins. ■
Rannsókn á algengi þvagleka meöal kvenna sýnir aö hann er gífurlega algengur:
Falið vandamál yfir
50% kvenna
Niburstaba könnunar sem fram-
kvæmd var í Öxarfjarbarhérabi
á síbasta ári bendir til ab meira
en helmingur íslenskra kvenna
eldri en 20 ára þjáist af þvag-
leka. Fyntu niburstöbur meb-
ferðartilraunar benda til ab
hægt sé ab vinna bug á þessum
vanda meb einfaldri mebferb á
heilsugæslustöb.
Könnunin var framkvæmd af
starfsfólki Heilsugæslustöðvarinn-
ar á Kópaskeri. Niburstöður fyrri
hluta könnunarinnar voru kynnt-
ar á 2. vísindaþingi Félags ís-
lenskra heimilislaekna sem haldib
var á Egilsstöðum um síöustu
helgi.
Tilgangur könnunarinnar var
annars vegar að kanna algengi
þvagleka og áhrif hans á daglegt líf
kvenna og hins vegar hvort hægt
væri aö bæta ástandiö meb tiltölu-
lega einföldum aðferbum á heilsu-
gæslustöö. Sendur var spurninga-
listi til allra kvenna í Öxafjarðar-
héraöi, eldri en 20 ára, sem bjuggu
á einkaheimilum. Alls vor'u kon-
urnar 131 og svör bárust frá 112
þeirra sem er 85% svörun.
Niöurstaðan var sú að 63 konur,
eða 56% af heildinni, væru með
þvagleka. Af þeim voru 32, eða
29%, með talsverð eöa mikil ein-
kenni. Ekki fannst samband á
milli aldurs og þvagleka en sterkt
samband vib fjölda fæöinga.
Þannig átti engin barnlaus kona í
hópnum við þetta vandamál ab
stríöa en yfir helmingur þeirra sem
höfbu átt börn. Af þeim sem áttu 4
börn eba fleiri voru um 75% með
þvagleka. 23 konur (20%) sögöu
þvagleka há sér í daglegu lífi.
Seinni hluti könnunarinnar fólst
í því að konum með væg einkenni
þvagleka voru sendar skriflegar
leiðbeiningar um grindarbotnsæf-
ingar og konum meö talsverð eöa
mikil einkenni var boöið vibtal og
skoðun til nánara mats. í fram-
haldi af því fengu 9 konur ýmsa
meöferö svo sem hormóna eöa
sýklalyf og öllum var boðin þátt-
taka í æfingahópum undir leið-
sögn sjúkraþjálfara og ljósmóður.
í ágúst á þessu ári var síðan send-
ur nýr spurningalisti til allra sem
höfðu þvagleka samkvæmt fyrri
spurningalista. Sigurður Halldórs-
son, læknir á heilsugæslustööinni
á Kópaskeri, segir aö úrvinnslu á
niðurstööum síðari hluta könnun-
arinnar sé ekki aö fuliu lokið en
svo virðist sem grindarbotnsæf-
ingar í hópum skili verulegum ár-
angri. Árangur þeirra sem fengu
sendar leiöbeiningar sé hins vegar
ekki nærri eins góður. „Þær sem
eru í hópum fá stuðning hver af
annarri og þeim er líka kennt að
gera æfingarnar rétt. Fjöldi þeirra
sem taldi þvagleka vera vandamál
sem háði þeim minnkaði umtals-
vert eftir meðferðina," segir Sig-
uröur.
Sigurður segist ekki hafa neina
ástæðu til aö að ætla aö þvagleki sé
algengara vandamál í Öxarfjaröar-
héraði en annars staöar á landinu
og því megi líklega yfirfæra niöur-
stöðurnar á allt landiö. „Það kom
vel í ljós aö þetta er falið vandamál
því aðeins örfáar af konunum
höfðu áöur rætt þennan vanda við
sinn lækni. Að mínu mati sýnir
niöurstaðan okkur að þarna er á
ferðinni vandamál sem er ekki
ástæða til ab þegja yfir, því það er
hægt aö vinna bug á því á tiltölu-
lega einfaldan hátt."
I niðurstöðunum kemur fram að
abeins helmingur kvennanna taldi
sig hafa fengið einhverjar upplýs-
ingar um æfingar og af þeim
kunnu aðeins örfáar ab gera þær
rétt og gerðu reglulega. „Vegna
tengsla við fjölda fæöinga eru ljós-
mæöur í lykilaðstöðu til aö taka á
þessu vandamáli. Eitt af því sem
má læra af könnuninni er að
starfsfólk kvenna- og fæöingar-
deilda má ef til vill vanda sig
meira viö upplýsingagjöf," segir
Sigurður. ■