Tíminn - 01.11.1994, Side 7
Þri&judagur 1. nóvember 1994
7
Alþýöubandalagiö á Suöurlandi:
Ekki forval
Frá Þorsteini Gunnarssyni, fréttaritara
Tímans í Vestmannaeyjum:
Á aðalfundi kjördæmisráðs Al-
þýðubandalagsins á Suðurlandi
á dögunum var ákveðið að hafa
ekki forval í flokknum fyrir Al-
þingiskosningarnar í vor eins og
fyrir síðustu kosningar. í stað-
inn munu félög flokksins í kjör-
dæminu koma meö tilnefningar
úr sínum röðum til uppstilling-
arnefndar fyrir 15. nóvember
nk. Kjördæmisráðið ákveður
síðan endanlega listann.
Margrét Frímannsdóttir, þing-
maður flokksins í Suðurlands-
kjördæmi, mun gefa kost á sér
áfram í 1. sæti. Ragnar Óskars-
son frá Vestmannaeyjum hefur
verið varaþingmaður Alþýðu-
bandalagsins á kjörtímabilinu
og sagðist hann í samtali við
Tímann gefa áfram kost á sér í 2.
sæti, sé það vilji félaga sinna.
Ragnar segir að þar sem Margrét
njóti mikils stuðnings í 1. sætið
og ekki stefni í keppni um það,
séu önnur viðhorf til forvals og
því hafi uppstillingarleiðin ver-
iö valin að þessu sinni. ■
Alpan á Eyrarbakka:
Pottar o§ pönnur
veröa rafbrynjaðar
Alpan hf. á Eyrarbakka hefur
fest kaup á alsjálfvirkri sam-
stæðu til rafbrynjunar á pott-
um og pönnum fyrirtækisins,
sem tekin veröur í gagnið fyr-
ir jól. Rafbrynjunin verður til
þess að yfirborð varanna end-
ist betur og hefur það þegar
veriö þrautreynt og gefið góða
raun á nokkrum bestu veit-
ingahúsum iandsins og í
Þýskalandi, kröfuharðasta
markaðnum.
Útkoman er sú að vömr Alpan
sameina nú allt það sem ein-
kennir góða pönnu eða pott.
Þær hafa góða varmaleiðni og
jafna hitadreifingu, þykkan
botn sem ekki verpist, sleipa
húð sem þarf litla feiti og auð-
veldar þrif, hitaþolnar höldur
sem þola bakarofn og slitsterka
húð sem ekki tærist. Ákveðið
hefur verið að setja þessa nýju
framleiðslu fyrst á markað hér-
lendis í þakklætisskyni fyrir hlý-
hug landans og stuðning við
þennan frumkvöðul í fram-
leiðslu og markaðssetningu á
fullunninni neytendavöru er-
lendis.
AMARO hf. heildverslun á Ak-
ureyri sér um dreifingu vörunn-
ar, en helstu vörumerkin eru
Look, Gundel og Anodur.
37. þing BSRB motmœlir harölega skattastefnu
stjórnvalda. Á milli áranna 7 993 og 7 994 hefur
skattbyröi launafólks aukist til muna:
Skattbyrði meðal-
BSRB-fólks aukist á
þriðja tug þúsunda
A milli alagningararanna
1993 og 1994 jókst skattbyröi
meðaltekjufólks innan BSRB
um vel á þriðja tug þúsunda,
miöaö við um 1280 þúsund
króna árstekjur. Þetta kom
fram á 37. þingi BSRB í sl.
viku.
Á nýafstöðnu þingi bandalags-
ins var skattastefnu ríkisstjórn-
ar harðlega mótmælt og þá
einkum þeim áformum hennar
að afnema hátekjuskatt og
hætta við að leggja á fjármagns-
tekjuskatt. Þingiö telur það
einnig forkastanlegt að stjórn-
völd skuli leggja sífellt þyngri
byröar á launafólk á sama tíma
og létt er á skattbyrði hátekju-
fólks og fyrirtækja. Þingið telur
nauðsynlegt að fram fari al-
menn endurskoðun á skatt- og
bótakerfinu í þeim tilgangi að
auka réttlætið í skattamálum.
í ályktunum þingsins um
skattamál er þess m.a. krafist að
tekinn verði upp hátekjuskattur
og þá sem viðbótarþrep í stað-
greiðslukerfinu, settur verði á
fjármagnstekjuskattur, skatt-
leysismörk eignaskatts verði
hækkuð, skattaeftirlit verði
stóreflt og tekið verði á skatt-
svikum eins og hverju öðru fjár-
svikamáli. Þá vill þingið að
kveðið verði skýrar á í skatta-
lögum um einkareikninga í
bókhaldi fyrirtækja og spornað
verði við því að einkaneysla
verði skrifuð á fyrirtækin.
Ábyrgðir verði lagðar fram
vegna útgáfu VASK-númera og
reiknað endurgjald einyrkja
verði ekki lægra en meðallaun í
viðkomandi starfsgrein.
Opinberir starfsmenn vilja að
persónuafsláttur veröi upp-
reiknaður eftir lánskjaravísitölu
frá árinu 1988 og að hann mið-
ist framvegis við hana, tvískött-
un lífeyrissjóðstekna verði af-
numin tafarlaust, heimilt verði
að fullnýta persónuafslátt maka
og við útdeilingu á bótum s.s.
barnabótaauka og vaxtabótum
veröi miðað við nettótekjur,
þ.e. tekjur eftir skatt.
Þing BSRB krefst þess einnig að
það komi skýrt fram í skattalög-
um hver sé frádráttur vegna
menntunarkostnaðar barna og
hann verði hækkaður. Þá verði
þeir þættir endurskoðaðir og af-
numdir úr skattakerfinu sem
valda mismunun á milli skatt-
þegna, og unniö verði að því að
lækka hlutfall í virðisaukaskatti
og undanþágur afnumdar í
áföngum. Þess í stað vill þingið
að tekið verði upp endur-
greiðslukerfi til þeirra sem ekki
eiga að bera skattinn endan-
lega.
Tölvumynd af fyrirhugabri þjónustumibstöb í Sundahöfn. ^
Eimskip semur við Istak
um byggingu þjónustu-
miðstöbvar frystivöru
Páll Sigurjónsson, framkvœmdastjóri ístaks (t.v.), og Hörbur Sigurgests-
son, forstjóri Eimskips, vib undirritun verksamningsins.
Undirritaður hefur verið verk-
samningur milli Eimskipafé-
lags íslands hf. og ístaks hf.
um byggingu þrjú þúsund fer-
metra þjónustumiðstöövar
fyrir frystivöru á athafna-
svæbi fyrirtækisins í Sunda-
höfn. Gert er ráð fyrir aö
byggingarframkvæmdir hefj-
ist í þessum mánuði og verk-
inu ljúki í lok maí á næsta ári.
í þjónustumiðstöðinni verður
ein fullkomnasta frystigeymsla
hér á landi, samtals um 1.600
fermetrar. Þar verður komið fyr-
ir færanlegum hillukerfum með
geymslurými fyrir um 3.000
bretti. í miöstöðinni verður
einnig 900 fermetra forrými þar
sem aðstaða verður fyrir mót-
töku vöru, hleðslu vöm í gáma
og ýmiss konar umhleðslu og
meðhöndlun á vörunni. Auk
þess veröur um 450 fermetra
stoðrými þar sem m.a. verður
skrifstofu- og skoðunaraðstaða
fyrir viðskiptavini, þar sem
hægt verður að afþíða vöruna
og taka úr henni sýni. Heildar-
kostnaður við bygginguna og
tækjabúnað er áætlaður um 300
milljónir króna. Bygging mið-
stöðvarinnar er nokkuð flókin í
útfærslu og kemur þar til útbún-
aður eins og fjarstýrð færanleg
hillukerfi, brettafæribönd,
tölvustýrð frystikerfi, hurða-
búnaður á geymslum og fleira.
Vegna þessa var mikilvægt að fá
samstarfsaðila sem byggt hafa
slík mannvirki. ístak hefur í
þessu skyni, með milligöngu
Icecon, stofnað til samstarfs
m.a. við finnska fyrirtækið Mor-
us, sem hefur víðtæka reynslu af
sambærilegum verkefnum er-
lendis.
Markmið Eimskips með þessari
nýju byggingu er að koma til
móts við þær þarfir sem mynd-
ast hafa á seinni árum í kjölfar
breytinga í veiðum, vinnslu og
sölu sjávarafurða. Þannig hefur
þörf fyrir geymslur aukist með
tilkomu frystitogara, breyttrar
pökkunar vörunnar og aukins
innflutnings á hráefni til
vinnslu. Einnig hefur sam-
keppni í sölu sjávarafurða
harðnað og kaupendur erlendis
gera nú kröfur um tíðari afskip-
anir og fjölbreyttari samsetn-
ingu pantana. Islensk útflutn-
ingsfyrirtæki þurfa því að geta
brugðist hratt við og einn liður í
því er uppbygging á þjónustu-
miðstöð á endanlegum útskip-
unarstað. Þar hefur seljandi
greiðan aðgang að vörunni í
gegnum öflugt upplýsingakerfi
og hægt er að raöa saman pönt-
unum með litlum fyrirvara. Öll
meðhöndlun vörunnar verður
innandyra, sem bætir alla vöru-
meðferð til muna frá því sem
verið hefur hér á landi til þessa.
Áætlað er að þetta verkefni
veiti á milli 40 til 50 manns at-
vinnu fram á vor og er þá átt við
innlenda starfsmenn hjá ístak
og undirverktökum. Fyrir ístak
hefur þetta í för með sér að upp-
sagnir á nokkrum fjölda starfs-
manna veröa dregnar til baka.
■
Bætt þjónusta og breytt-
ur afgreiðslutími hjá
Tryggingastofnun
Nýr afgreiöslutími tekur gildi
hjá Tryggingastofnun ríkisins
nú um mánaðamótin. Trygg-
ingastofnun verður opin frá
kl. 8.05 til kl. 15.00 alla virka
daga frá og meö 1. nóvember.
A næstunni verður tekið í
notkun nýtt tölvukerfi hjá
stofnuninni, sem tengist Lífeyr-
issjóði opinberra starfsmanna.
Meö því fá viðskiptavinir ná-
kvæmari upplýsingar á nýjum
greiðsluseðlum um hvers kyns
breytingar á lífeyrisgreiðslum.
Afgreiðslutíminn var lengdur
fyrr á árinu í tilraunaskyni.
Reiknað er með að nýja tölvu-
kerfið spari viðskiptavinum
heimsóknir til Tryggingastofn-
unar og er því horfið til fyrri af-
greiðslutíma.
Karl Steinar Guðnason, for-
stjóri Tryggingastofnunar, sagö-
ist vona aö viðskiptavinir tækju
vel breyttum opnunartíma.
„Veriö er að endurskipuleggja
deildir Tryggingastofnunar með
því að bæta þjónustu og upplýs-
ingamiðlun til viðskiptavina.
Einnig er unnið að hugsanleg-
um flutningi stofnunarinnar,
sem myndi gera okkur kleift að
bæta þjónustuna enn frekar." ■