Tíminn - 01.11.1994, Qupperneq 9
Þri&judagur 1. nóvember 1994
mtumu
9
UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . .. UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . .
Ný hryllingsskýrsla
um mengun og um-
hverfisspjöll
Hún er ófögur álitsgeröin sem ný
umhverfismálastofnun ESB birti í
Kaupmannahöfn í gær. Þar kem-
ur fram að milljónir Evrópubúa
andi að sér lofti og neyti vatns
sem uppfyllir ekki kröfur um al-
þjóðlega heilbrigðisstaðla og fjöl-
margir eigi þaö yfir höfði sér aö
sýkjast af húðkrabbameini þar
sem ózonlagið sé sífellt að þynn-
ast.
Helstu atriði álitsgerðarinnar eru
þessi: r
- Ózon-lagið yfir Evrópu hefur
rýrnað um 6-7% sl. tíu ár.
- Líklegt er að árið 2030 hafi tvær
milljónir manna látið lífið af
völdum húðkrabbameins sem
stafar af aukinni útfjólublárri B-
geislun, en jafnvel þótt alþjóða-
sáttmálar um aðgerðir til að varð-
veita ózonlagið séu haldnir munu
enn líða um 70 ár þangað til
þynningu þess linnir.
- í flestum stórborgum Evrópu
gýs loftmengun upp fyrir leyfileg
mörk skv. stöðlum Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar a.m.k. einu
sinni á ári.
- Nítröt og önnur eiturefni í
grunnvatni eru yfir mörkum ESB
víðast hvar á meginlandi Evrópu.
- Skógar sem áður þöktu 80-90%
af Evrópu þekja nú aöeins 33%
lands. Allt að 54% skóga í Tékk-
landi hafa að líkindum spillst svo
að þeir eiga sér ekki viðreisnar
von.
- Þriðjungur og jafnvel helming-
ur alls fiskjar, skriðdýra, spendýra
og dýra sem lifa jafnt á láði sem
legi em nú í útrýmingarhættu.
- Stóraukin hætta er af eitur-
mengun frá iðnaöarúrgangi. Yfir
55 þúsund hættulegir sorphaugar
með slíkum úrgangi hafa verið
skráðir í aðeins sex löndum Evr-
ópu. ■
Of gömul til ab
giftast að dómi
ættingjanna
Æstir borgarar ollu umferöar-
öngþveiti er efnt var til mót-
mælaaðgerða á aöalgötunni í
bænum Zafferana á Sikley í gær.
Geöshræringunni olli brúðkaup
Salvatores og Mariu Catena,
sem bæði eru 83ja ára aö aldri
og voru að ganga í heilagt
hjónaband. Mótmælendur telja
að blessuð gömlu hjónin séu
orðin of gömul til að ganga í
hnapphelduna á ný, en bæði
hafa veriö gift áður og misst
maka sína. Ættingjar brúðhjón-
anna eru mótfallnir ráðahagn-
um, ekki síst afkomendur brúð-
arinnar en ekkert sjö barna
hennar lét sjá sig við vígsluna.
„Eitt er víst," segir Salvatore Ca-
tena í viðtali við blaöið La Repu-
blica, „við María eru dauðást-
fangin." í ávarpi sem hann hélt
í brúðkaupsveislunni, þar sem
bekkurinn mun ekki hafa verið
þéttsetinn, sagði hann að ónáð
fjölskyldunnar væri það eina
sem skyggöi á hamingju þeirra.
SÞ í Kaupmannahöfn:
10 þúsund koma
saman til ab
ræða um fátækt
Ekkja
djáknans
Shamils Wadia grœtur sáran þar
sem hún heldur mynd af honum á
lofti viö útför hans sem gerö var í
Bagdad í gœr. Djákninn lét lífiö
ásamt þremur öörum mönnum
þegar sprengja sprakk í gámi meö
barnamat fyrir utan kaþólska
kirkju í borginni sl. sunnudag.
HROSSA-
RÆKTIN
1993
Reuter
Hrossarœktin
1993
er komin út
Fœst hjá Búnaðarfélagi íslands,
síma 91-630300, búnaðarsam-
böndum um land allt og í helstu
hestavöruverslunum.
Verð kr. 2.500 til áskrifenda og kr.
3.400 í lausasölu, að viðbœttu
burðargjaldi.
Búnaðarfélag íslands
Kaupmannahöfn - Reuter
Borís Jeltsín og Francois Mitter-
and verða í hópi 65 þjóðarleib-
toga sem koma saman á fundi í
VINNIN LAUGA ©( (5 3STÖLUR RDAGINN 29. október
2?)(25) (6^ i)® tD
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1 . 5 af 5 0 1.892.308
2. piús5 Cf 82.011
3. 4 af 5 68 8.321
4. 3af 5 2.585 510
Heildarvinningsupphæö: 4.104.530
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
Kaupmannahöfn snemma í
mars á næsta ári. Leiðtogafund-
urinn er haldinn í tengslum við
félagsmálaráöstefnu Sameinuðu
þjóðanna sem efnt er til með
þátttöku um 10 þúsund fulltrúa
frá 187 þjóðlöndum.
Þessari rábstefnu Sameinuöu
þjóðanna er ætlað ab leggja
fram áætlun um að auka at-
vinnu, draga úr fátækt og efla
félagslegt öryggi í þeirri veröld
sem við tók eftir daga kalda
stríðsins, eins og það er oröaö.
Danski þróunarmálaráðherr-
ann, Poul Nielsen, vildi ekki
staðfesta á fréttamannafundi í
gær hvort Bill Clinton kæmi til
leiðtogafundarins, en sagði að
megintilgangur fundarins væri
að efna til hreinskilinna skoð-
anaskipta með fulltrúum ibn-
ríkjanna og ríkjum þriðja
heimsins.
Hjá SÞ er talið að meira en
milljarbur manna búi nú við ör-
birgö og þar af svelti um helm-
ingurinn heilu eða hálfu
hungri. ■
fimmtudaginn 3. nóvember, kl. 20.00
og
laugardaginn 5. november, kl. 14.30
Hljómsveitarstjóri: Everett Lee
Listrœnn stjórnandi: Wayne Sanders
Hinn óviðjafnanlegi
bandaríski söngflokkur
Opera Ebony
samanstendur af
negrasöngvurum og
sérhœfir sig íflutningi
negrasálma og tónlistar.
simi
622255