Tíminn - 03.11.1994, Page 6

Tíminn - 03.11.1994, Page 6
6 Fimmtudagur 3. nóvember 1994" UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM SAUÐARKROKI Sútunarverksmiöjan Lobskinn: Athugab meb gærur frá Ástralíu Birgir Bjarnason, framkvæmda- stjóri sútunarverksmiðjunnar Lobskinns, segir að í athugun sé aö brúa það bil, sem enn er í hráefnisöfluninni, með því að flytja inn gærur, líklega frá Ástr- alíu. Loðskinn keypti nýlega 4000 gærur þaðan og var verðið á þeim hingaö komnum lægra en á innlendu gærunum. Loð- skinn hefur tryggt sér 120 þús- und gærur, þar af 15 þúsund gærur frá Grænlandi, en vonir stóðu til að fyrirtækið fengi til vinnslu 180-200 þúsund gærur næsta árið. „Við fengum prufusendingu af áströlsku gærunum í vor og þá kom í Ijós að þær komu vel út í vinnslunni. Þetta er samt öðm- vísi vara, gærumar eru stærri og nokkuð frábrugðnar þeim ís- lensku. Viö eigum eftir að sjá hvernig markabir okkar taka þessari framleibslu. Að því leyti erum við óvibbúnir, en vib bjuggumst vib ab geta tryggt okkur íslensk skinn á þennan markab í vetur," sagði Birgir. Þeir sláturleyfishafar, sem seinastir voru til ab selja sínar gærur þetta haustib, seldu allir hæstbjóðanda gærurnar, Skinnaibnabi á Akureyri. Þetta voru KASK á Hornafirði, KVH á Hvammstanga, KH á Borbeyri og Afurðastöbin í Búbardal. „Vib getum ekki keppt við þessi verð," sagði Birgir. „Rekstur Loðskinns hefur gengib vel á þessu ári. Við tók- um þá ákvöröun síðasta haust ab greiöa hluta skulda okkar í gegnum nauðasamninga, en samkeppnisabilinn kaus ab fara í gjaldþrot og þar með að greiða ekki sínar skuldir. Rekstraraf- gang hafa fyrirtækin notað á þessu ári, við til aö greiða niöur skuldir og þeir til aö yfirborga skinn. Það virðast allir hæst- ánægðir meö þetta nema við," sagði Birgir Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Loðskinns. Kaupfélag Skagfiröinga: » Verulegur rekstrar- bati frá síbasta ári Samkvæmt átta mánaöa upp- gjöri hjá Kaupfélagi Skagfirð- inga var tæplega 24 milljóna kr. hagnabur á félaginu á þessum tíma. Þetta er talsverður bati frá síðasta ári, en þá var hagnabur- inn um níu milljónir á sama tíma. Dótturfyrirtæki KS eru ekki inni í þessum útreikning- Þórólfur Gíslason kaupfélags- stjóri skýrir þennan bata að verulegu leyti með lækkun á fjármagnskostnaði milli ára, hann sé 10 milljónum lægri á þessu tímabili en í fyrra. Þá hafi orðið 3% veltuaukning, en þess má geta að velta KS fyrir utan dótturfyrirtæki er um 2,8 millj- arðar. Bruggverksmibja gerb upptæk á Króknum Lögreglan á Saubárkróki gerði upptæka bruggverksmiðju í heimahúsi á Sauðárkróki á laug- ardagsmorgun. Fullorðinn mab- ur var búinn að brugga talsvert af gambra, en suða var ekki komin upp. Lögreglan hellti nibur úr tveimur 200 lítra tunn- um auk nokkurra 25 lítra brúsa. Eystra-b horwl Upplýsinga- og þjónustumiðs.töðin á Höfn: Kært til Sam- keppnisstofnunar Haustfundur Ferðamálafélags Austur- Skaftafellssýslu var haldinn á Hótel Höfn nýlega. Miklar umræður urðu um rekst- ur Upplýsinga- og þjónustu- miðstöbvarinnar (UÞ) á Höfn. Sá orðrómur hefur verið í gangi ab starfsmenn Jöklaferða mis- noti þar abstöbu sína í einka- þágu og fyrir sína vini. Hefur máliö m.a. veriö kært til Sam- keppnisstofnunar. Tryggvi Árnason svaraði þeim ásökunum og sagði þær ekki eiga við nein rök ab styðjast. Þar fyrir utan væru UÞ einka- rekin og því væri ofvaxið hans skilningi hvab Samkeppnis- stofnun hefði með málib að gera. Tryggvi sagði einnig ab starfsemi UÞ væri þríþætt: upp- lýsingamiðstöð, þjónustumiö- stöö og tjaldsvæbi og Jöklaferð- ir hf. Það kostaði 2.5 milljónir á ári aö reka upplýsingaþjónust- una, en hinir tveir þættirnir stæðu algjörlega undir sér. Því hálfu Jöklaferða, sem leigja Upplýsinga- og ferbaþjónustu- miðstöðina, að aðrir tækju vib upplýsingaþjónustunni. Sundlaugin á Höfn opin allt árib? RARIK hefur ákvebib að lækka verb á heitu vatni og rafmagni til sundlaugarinnar'á Höfn. Hefur þar með verið komið til móts við óskir bæjarstjórnar, sem fór þessa á leit við Raf- magnsveiturnar fyrr á þessu ári. Hafa nú opnast nýir möguleikar á að lengja opnunartíma sund- laugarinnar, en hún hefur verið lokuð hálft árib fram ab þessu. iFiREimiB VESTMANNAEYJUM Stórgjöf til Hraun- búöa Kvenfélagið Heimaey í Reykja- vík er félagsskapur kvenna sem á rætur sínar að rekja til Vest- mannaeyja. Heimaey hefur um árabil látiö sér sérlega annt unu- málefni Hraunbúða og hefur á undanförnum árum gefið stór- gjafir til heimilisins. Nýlega sótti stjórn félagsins Hraunbúbir heim og færði að gjöf þrjú fullkomin sjúkrarúm, rafknúin og meö öllum fylgi- hlutum. Þær Rósa Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur og Lea Oddsdóttir hjúkrunarforstjóri veittu gjöfinni vibtöku fyrir hönd Hraunbúöa og þökkuðu þann hlýhug sem Heimaey hef- ur frá upphafi sýnt Hraunbúb- um. Kæruleysi sjómanna: Hættulegt dufl í ruslagámi Nýlega fannst stórhættulegt dufl í ruslagámi við ísstöbina í Friðarhöfn. Við athugun kom í ljós að þetta var seguldufl með innbyggbum sprengibúnaði til að eyöa duflinu eftir ab þab haföi veriö í ákveðinn tíma í sjónum. Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar geröu sprengibúnaðinn óvirkan og fóru meb duflið til Reykjavíkur. Hjá Landhelgisgæslunni feng- ust þær upplýsingar að þetta væri í þribja skipti sem komið er ab landi meb dufl í Vest- mannaeyjum án þess ab það sé tilkynnt. Er þetta vítavert kæru- leysi og stórhættulegt, því ef duflin eru brennd í lokuðu rými, t.d. Sorpbrennslustöð- inni, skapast sprengihætta sem gæti haft ófyrirsjáanlegar afleið- ingar. „Okkur ber að eyða duflunum og er þetta sjómönnum algjör- lega ab kostnabarlausu," segir Sigurður Ásgrímsson, sprengju- sérfræðingur Landhelgisgæsl- unnar. „Vib höfum átt mjög gott samstarf við lögreglu. Hún tekur dufl í sína vörslu þangab til vib komum á staðinn." um. væri algjörlega sársaukalaust af Frá afhendingu gjafarinnar ab Hraunbúbum. Frá vinstri: Rósa Magn- úsdóttir, Lea Oddsdóttir, Sólveig Gubjónsdóttir, Sigríbur Lárusdóttir og Gyba Steingrímsdóttir. Úr uppfoerslunni á „Alltaf má fá annab skip" á listahátíbinni í Tönder í sumar. Skagaleikflokkurinn fékk góba gagnrýni í Danmörku, en abra lakari eftir heimkomuna — Arnar Sigurbs- son um gagnrýnina á flokkinn: „Fór eitthvaö fyrir brjóstið á einhverjum" „Mér skilst ab einhverjir abrir hafi viljab fara í þessa ferö, og það fari eitthvaö fyrir brjóstib á þeim," sagði Arnar Sigurbsson, formaöur Skagaleikflokksins, í samtali við Tímann í gær. Ferðalag flokksins til Tönder á Jótlandi í sumar virbist hafa dregið nokkurn dilk á eftir sér. Skagaleikararnir sýndu tvívegis leikritiö Alltaf má fá annað skip, eftir Kristján Kristjánsson á Nor- rænu-Baltnesku móti áhugaleikfé- laga í sumar. Hópurinn fór í ferð- ina eftir að valnefnd Bandalags ís- lenskra leikfélaga valdi flokkinn og leikrit hans til utanferðarinnar. „Við fengum sérlega hagstæða gagnrýni. Menn töldu sig heyra öldugjálfur og finna saltlykt þegar þeir horfbu á verkiö. Þegar heim var komið urðum við vör viö minni hrifningu, vægast sagt," sagði Arnar. Gagnrýnin kemur einna helst frá bænum handan vib Faxaflóann, Keflavík. Ritar Gísli Gunnarsson frá Leikfélagi Keflavíkur grein um máliö í Leiklistarblabiö, Skagaleik- flokknum til mestu sárinda. Virð- ist honum mislíka að ýmis aðild- arfélög Bandalags íslenskra leikfé- laga studdu utanferöina með framlagi, 5 þúsund krónur hvert þeirra. Hins vegar vill blaðið ekki birta nema sem allra minnst um þessa ferb Skagaleikflokksins. Bergmann Þorleifsson leiktjaldasmiöur segir að grein um feröina hafi ekki fengist birt í blaöinu, en flokkn- um sé sýnt tómlæti. „Þarna hefð- um viö auövitaö átt að fá forsíð- una og opnugrein," segir Berg- mann. Skagaleikflokkurinn frumsýnir á föstudag. Þar er um aö ræba leik- rit sem ber nafn, sem dæmigert er fyrir fótboltabæinn, Mark! heitir það og er eftir Bjarna Jónsson. Verkið fjallar um knattspyrnu- þjálfara, og sagt að fyrirmyndar- innar sé ekki langt að leita. Heyrst hefur ab Guöjón Þórðarson, Skagamaöur og nú þjálfari KR, sé fyrirmyndin, en ekki seljum vib þá sögu dýrar en við keyptum hana. ■ Bamabætur leiðréttar Fjármálaráðuneytib hefur ákvebiö að afturkalla þær breytingar, sem gerðar voru vib greiðslu barnabóta og barnabótaauka þann 1. nóv- ember sl. Samkvæmt lögum um tekju- og eignaskatt skal greiða út barna- bætur og barnabótaauka ab frá- dregnum ógoldnum tekjuskatti og útsvari og öðrum ógreiddum álögöum gjöldum. Ástæöa hefur verið talin til ab gera nokkrar breytingar á þessari framkvæmd, m.a. vegna nýrra laga sem sett hafa verið á síðustu árum. Áformað var að hluti þeirra kæmi til framkvæmda nú um þessi mánaðamót. Eftir að bæt- urnar voru greiddar út sl. þriðju- dag, kom í ljós að skuldajöfnun- in varö víbtækari en áformað hafði verib. Því hefur verið ákveöiö ab leiðrétta greiðslur þannig að skuldajöfnun verði með sama hætti og verið hefur. ■

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.