Tíminn - 03.11.1994, Qupperneq 6
6
Fimmtudagur 3. nóvember 1994"
UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM
SAUÐARKROKI
Sútunarverksmiöjan
Lobskinn:
Athugab meb
gærur frá Ástralíu
Birgir Bjarnason, framkvæmda-
stjóri sútunarverksmiðjunnar
Lobskinns, segir að í athugun sé
aö brúa það bil, sem enn er í
hráefnisöfluninni, með því að
flytja inn gærur, líklega frá Ástr-
alíu. Loðskinn keypti nýlega
4000 gærur þaðan og var verðið
á þeim hingaö komnum lægra
en á innlendu gærunum. Loð-
skinn hefur tryggt sér 120 þús-
und gærur, þar af 15 þúsund
gærur frá Grænlandi, en vonir
stóðu til að fyrirtækið fengi til
vinnslu 180-200 þúsund gærur
næsta árið.
„Við fengum prufusendingu af
áströlsku gærunum í vor og þá
kom í Ijós að þær komu vel út í
vinnslunni. Þetta er samt öðm-
vísi vara, gærumar eru stærri og
nokkuð frábrugðnar þeim ís-
lensku. Viö eigum eftir að sjá
hvernig markabir okkar taka
þessari framleibslu. Að því leyti
erum við óvibbúnir, en vib
bjuggumst vib ab geta tryggt
okkur íslensk skinn á þennan
markab í vetur," sagði Birgir.
Þeir sláturleyfishafar, sem
seinastir voru til ab selja sínar
gærur þetta haustib, seldu allir
hæstbjóðanda gærurnar,
Skinnaibnabi á Akureyri. Þetta
voru KASK á Hornafirði, KVH á
Hvammstanga, KH á Borbeyri
og Afurðastöbin í Búbardal.
„Vib getum ekki keppt við þessi
verð," sagði Birgir.
„Rekstur Loðskinns hefur
gengib vel á þessu ári. Við tók-
um þá ákvöröun síðasta haust
ab greiöa hluta skulda okkar í
gegnum nauðasamninga, en
samkeppnisabilinn kaus ab fara
í gjaldþrot og þar með að greiða
ekki sínar skuldir. Rekstraraf-
gang hafa fyrirtækin notað á
þessu ári, við til aö greiða niöur
skuldir og þeir til aö yfirborga
skinn. Það virðast allir hæst-
ánægðir meö þetta nema við,"
sagði Birgir Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Loðskinns.
Kaupfélag Skagfiröinga: »
Verulegur rekstrar-
bati frá síbasta ári
Samkvæmt átta mánaöa upp-
gjöri hjá Kaupfélagi Skagfirð-
inga var tæplega 24 milljóna kr.
hagnabur á félaginu á þessum
tíma. Þetta er talsverður bati frá
síðasta ári, en þá var hagnabur-
inn um níu milljónir á sama
tíma. Dótturfyrirtæki KS eru
ekki inni í þessum útreikning-
Þórólfur Gíslason kaupfélags-
stjóri skýrir þennan bata að
verulegu leyti með lækkun á
fjármagnskostnaði milli ára,
hann sé 10 milljónum lægri á
þessu tímabili en í fyrra. Þá hafi
orðið 3% veltuaukning, en þess
má geta að velta KS fyrir utan
dótturfyrirtæki er um 2,8 millj-
arðar.
Bruggverksmibja
gerb upptæk á
Króknum
Lögreglan á Saubárkróki gerði
upptæka bruggverksmiðju í
heimahúsi á Sauðárkróki á laug-
ardagsmorgun. Fullorðinn mab-
ur var búinn að brugga talsvert
af gambra, en suða var ekki
komin upp. Lögreglan hellti
nibur úr tveimur 200 lítra tunn-
um auk nokkurra 25 lítra brúsa.
Eystra-b
horwl
Upplýsinga- og
þjónustumiðs.töðin á Höfn:
Kært til Sam-
keppnisstofnunar
Haustfundur Ferðamálafélags
Austur- Skaftafellssýslu var
haldinn á Hótel Höfn nýlega.
Miklar umræður urðu um rekst-
ur Upplýsinga- og þjónustu-
miðstöbvarinnar (UÞ) á Höfn.
Sá orðrómur hefur verið í gangi
ab starfsmenn Jöklaferða mis-
noti þar abstöbu sína í einka-
þágu og fyrir sína vini. Hefur
máliö m.a. veriö kært til Sam-
keppnisstofnunar.
Tryggvi Árnason svaraði þeim
ásökunum og sagði þær ekki
eiga við nein rök ab styðjast.
Þar fyrir utan væru UÞ einka-
rekin og því væri ofvaxið hans
skilningi hvab Samkeppnis-
stofnun hefði með málib að
gera. Tryggvi sagði einnig ab
starfsemi UÞ væri þríþætt: upp-
lýsingamiðstöð, þjónustumiö-
stöö og tjaldsvæbi og Jöklaferð-
ir hf. Það kostaði 2.5 milljónir á
ári aö reka upplýsingaþjónust-
una, en hinir tveir þættirnir
stæðu algjörlega undir sér. Því
hálfu Jöklaferða, sem leigja
Upplýsinga- og ferbaþjónustu-
miðstöðina, að aðrir tækju vib
upplýsingaþjónustunni.
Sundlaugin á Höfn
opin allt árib?
RARIK hefur ákvebib að lækka
verb á heitu vatni og rafmagni
til sundlaugarinnar'á Höfn.
Hefur þar með verið komið til
móts við óskir bæjarstjórnar,
sem fór þessa á leit við Raf-
magnsveiturnar fyrr á þessu ári.
Hafa nú opnast nýir möguleikar
á að lengja opnunartíma sund-
laugarinnar, en hún hefur verið
lokuð hálft árib fram ab þessu.
iFiREimiB
VESTMANNAEYJUM
Stórgjöf til Hraun-
búöa
Kvenfélagið Heimaey í Reykja-
vík er félagsskapur kvenna sem
á rætur sínar að rekja til Vest-
mannaeyja. Heimaey hefur um
árabil látiö sér sérlega annt unu-
málefni Hraunbúða og hefur á
undanförnum árum gefið stór-
gjafir til heimilisins.
Nýlega sótti stjórn félagsins
Hraunbúbir heim og færði að
gjöf þrjú fullkomin sjúkrarúm,
rafknúin og meö öllum fylgi-
hlutum. Þær Rósa Magnúsdóttir
hjúkrunarfræðingur og Lea
Oddsdóttir hjúkrunarforstjóri
veittu gjöfinni vibtöku fyrir
hönd Hraunbúöa og þökkuðu
þann hlýhug sem Heimaey hef-
ur frá upphafi sýnt Hraunbúb-
um.
Kæruleysi sjómanna:
Hættulegt dufl í
ruslagámi
Nýlega fannst stórhættulegt
dufl í ruslagámi við ísstöbina í
Friðarhöfn. Við athugun kom í
ljós að þetta var seguldufl með
innbyggbum sprengibúnaði til
að eyöa duflinu eftir ab þab
haföi veriö í ákveðinn tíma í
sjónum. Sprengjusérfræðingar
Landhelgisgæslunnar geröu
sprengibúnaðinn óvirkan og
fóru meb duflið til Reykjavíkur.
Hjá Landhelgisgæslunni feng-
ust þær upplýsingar að þetta
væri í þribja skipti sem komið
er ab landi meb dufl í Vest-
mannaeyjum án þess ab það sé
tilkynnt. Er þetta vítavert kæru-
leysi og stórhættulegt, því ef
duflin eru brennd í lokuðu
rými, t.d. Sorpbrennslustöð-
inni, skapast sprengihætta sem
gæti haft ófyrirsjáanlegar afleið-
ingar.
„Okkur ber að eyða duflunum
og er þetta sjómönnum algjör-
lega ab kostnabarlausu," segir
Sigurður Ásgrímsson, sprengju-
sérfræðingur Landhelgisgæsl-
unnar. „Vib höfum átt mjög
gott samstarf við lögreglu. Hún
tekur dufl í sína vörslu þangab
til vib komum á staðinn."
um. væri algjörlega sársaukalaust af
Frá afhendingu gjafarinnar ab Hraunbúbum. Frá vinstri: Rósa Magn-
úsdóttir, Lea Oddsdóttir, Sólveig Gubjónsdóttir, Sigríbur Lárusdóttir og
Gyba Steingrímsdóttir.
Úr uppfoerslunni á „Alltaf má fá annab skip" á listahátíbinni í Tönder í
sumar.
Skagaleikflokkurinn fékk góba gagnrýni í Danmörku,
en abra lakari eftir heimkomuna — Arnar Sigurbs-
son um gagnrýnina á flokkinn:
„Fór eitthvaö
fyrir brjóstið á
einhverjum"
„Mér skilst ab einhverjir abrir
hafi viljab fara í þessa ferö, og
það fari eitthvaö fyrir brjóstib á
þeim," sagði Arnar Sigurbsson,
formaöur Skagaleikflokksins, í
samtali við Tímann í gær.
Ferðalag flokksins til Tönder á
Jótlandi í sumar virbist hafa
dregið nokkurn dilk á eftir sér.
Skagaleikararnir sýndu tvívegis
leikritiö Alltaf má fá annað skip,
eftir Kristján Kristjánsson á Nor-
rænu-Baltnesku móti áhugaleikfé-
laga í sumar. Hópurinn fór í ferð-
ina eftir að valnefnd Bandalags ís-
lenskra leikfélaga valdi flokkinn
og leikrit hans til utanferðarinnar.
„Við fengum sérlega hagstæða
gagnrýni. Menn töldu sig heyra
öldugjálfur og finna saltlykt þegar
þeir horfbu á verkiö. Þegar heim
var komið urðum við vör viö
minni hrifningu, vægast sagt,"
sagði Arnar.
Gagnrýnin kemur einna helst frá
bænum handan vib Faxaflóann,
Keflavík. Ritar Gísli Gunnarsson
frá Leikfélagi Keflavíkur grein um
máliö í Leiklistarblabiö, Skagaleik-
flokknum til mestu sárinda. Virð-
ist honum mislíka að ýmis aðild-
arfélög Bandalags íslenskra leikfé-
laga studdu utanferöina með
framlagi, 5 þúsund krónur hvert
þeirra.
Hins vegar vill blaðið ekki birta
nema sem allra minnst um þessa
ferb Skagaleikflokksins. Bergmann
Þorleifsson leiktjaldasmiöur segir
að grein um feröina hafi ekki
fengist birt í blaöinu, en flokkn-
um sé sýnt tómlæti. „Þarna hefð-
um viö auövitaö átt að fá forsíð-
una og opnugrein," segir Berg-
mann.
Skagaleikflokkurinn frumsýnir á
föstudag. Þar er um aö ræba leik-
rit sem ber nafn, sem dæmigert er
fyrir fótboltabæinn, Mark! heitir
það og er eftir Bjarna Jónsson.
Verkið fjallar um knattspyrnu-
þjálfara, og sagt að fyrirmyndar-
innar sé ekki langt að leita. Heyrst
hefur ab Guöjón Þórðarson,
Skagamaöur og nú þjálfari KR, sé
fyrirmyndin, en ekki seljum vib
þá sögu dýrar en við keyptum
hana. ■
Bamabætur
leiðréttar
Fjármálaráðuneytib hefur
ákvebiö að afturkalla þær
breytingar, sem gerðar voru
vib greiðslu barnabóta og
barnabótaauka þann 1. nóv-
ember sl.
Samkvæmt lögum um tekju- og
eignaskatt skal greiða út barna-
bætur og barnabótaauka ab frá-
dregnum ógoldnum tekjuskatti
og útsvari og öðrum ógreiddum
álögöum gjöldum. Ástæöa hefur
verið talin til ab gera nokkrar
breytingar á þessari framkvæmd,
m.a. vegna nýrra laga sem sett
hafa verið á síðustu árum.
Áformað var að hluti þeirra
kæmi til framkvæmda nú um
þessi mánaðamót. Eftir að bæt-
urnar voru greiddar út sl. þriðju-
dag, kom í ljós að skuldajöfnun-
in varö víbtækari en áformað
hafði verib. Því hefur verið
ákveöiö ab leiðrétta greiðslur
þannig að skuldajöfnun verði
með sama hætti og verið hefur. ■