Tíminn - 03.11.1994, Blaðsíða 10
10
^pmtwm
Fimmtudagur 3. nóvember 1994
Newcastle
— ekki bara fótboltaliö!
Borgin NeWcastle stendur vib
ána Tyne í Northumbria-hér-
abi í norbausturhluta Eng-
lands. Newcastle er í dag
einna þekktust fyrir knatt-
spyrnulib sitt og hina frægu
Tynebrú, en fyrr á árum var
kolavinnsla helsta einkenni
hérabsins. Northumbria hef-
ur gegnum söguna yerib um-
deilt landsvæbi, sem Skotar
og Englendingar hafa barist
um. Ýmsar minjar þessa alda-
langa hernabar er ab finna í
hérabinu og þar er skosk arf-
leifb áberandi. Undanfarin
haust hafa sífellt fleiri íslend-
ingar heimsótt Néwcastle,
bæbi til ab versla og notfæra
sér abra afþreyingu sem borg-
in og nágrenni hennar hafa
upp á ab bjóba.
Vibskiptin blómstra á sunnudagsútimarkabnum vib Quayside undir Tynebrúnni.
Saga, byggingar-
list og verslanir
Borgin
Tynebrúin er tákn Newcastle og
hún er áberandi þegar komib er
inn í borgina. Tynebrúin var
byggö árin 1925-28 og var á
þeim tíma lengsta brú í heimi án
mibjustólpa. Tynebrúin var opn-
uð á undan hinni víbfrægu brú í
Sydney í Ástralíu, en brýrnar eru
nákvæmlega eins ab öllu leyti
nema stærbinni. Menn eru ekki
sammála um hvor brúin hafi
verib fyrirmynd hinnar, þótt
Newcastlebúar séu aubvitab ekki
í vafa um þab. Alls eru sex brýr
yfir ána Tyne, þótt engin hinna
fimm séu jafn frægar og brúin í
Newcastle.
Hjarta mibborgar Newcastle er
vib hib 40 metra háa minnis-
merki um Grey jarl (sem Earl
Grey teib heitir eftir), föbur end-
urbótalaganna frá árinu 1832,
en þá var Grey jarl forsætisráb-
herra. Grey Street er nefnt eftir
Grey jarli. Þab þykir vera ein feg-
ursta gata Bretlands og meistara-
verk klassískrar byggingarlistar.
Mibborg Newcastle er frekar lít-
il. Fyrir vikib eru ókunnugir
fljótir ab átta sig á henni og auö-
velt er ab finna þab sem ferba-
langurinn leitar ab.
Verslun
Newcastle svíkur ekki þá sem
hafa áhuga á dæmigerbri versl-
unarferð. í Gateshead (eins kon-
ar Kópavogi, rúmlega 4,5 km frá
mibborg Newcastle) er stærsta
verslunar- og afþreyingarmið-
stöð Evrópu, Metro Center, með
um 350 verslunum og þjónustu-
fyrirtækjum undir einu þaki.
Ótal veitingastabir eru í Metro
Center, kvikmyndahús, keilusal-
ur og innitívolí. Þar eru margar
af stærstu verslunarkebjum Evr-
ópu meb verslanir. Metro Center
nær yfir gífurlegt flæmi, en til ab
aubvelda fólki ab finna það sem
það leitar að eru f jögur eins kon-
ar verslunarþorp þar innan dyra.
í þorpunum eru ýmsar sérversl-
anir og nöfn þeirra segja til um
hvernig verslanir er ab finna í
hverju. Yfir 25 milljónir manna
heimsækja Metro Center árlega.
Abal verslunargatan í mibborg
Newcastle er Northumberland
Street, sem stundum er kallab
„Oxford Street norðursins".
Northumberland Street er
göngugata og þar er að finna
stærstu Marks og Spencer versl-
un héraðsins, C&A, Littlewoods,
Next og margar aðrar þekktar
verslanir. Við götuna er gengið
inn í Eldon Square, sem er stór
verslunarmiðstöð með yfir 160
verslunum, tómstundamiðstöö
og veitingasvæði.
Á sunnudögum er tilvalið ab
heimsækja markaðinn á Quay-
side undir Tynebrúnni. Þar eru á
hverjum sunnudegi um 200
sölubásar og hægt ab gera góð
kaup, ef fólk gefur sér tíma til aö
skoða það sem er á boöstólum.
Land biskupa-
prinsanna
Þeir sem koma til Newcastle,
ættu ab gera sér ferb til Durham-
borgar, miðaldaborgar' í Dur-
hamsýslu, „lands biskupaprins-
anna". Frá Durhamborg stjórn-
ubu biskupaprinsarnir sýslunni
sem nokkurs konar ríki í ríkinu í
nærri 800 ár.
Durhamborg stendur á höfba,
sem er umlukinn skógivöxnum
dal sem áin Wear bugðast eftir.
Margar byggingar frá miðöldum
eru uppistandandi í Durham, en
frægasta bygging sýslunnar er án
efa dómkirkjan, sem er önnur af
tveimur alþjóðlegum arfleifðum
í Northumbria. Bygging dóm-
kirkjunnar hófst árið 1093 og
henni var lokið árið 1133. Dóm-
kirkjan í Durham var fyrsta stóra
dómkirkjan sem var byggð í
Norðvestur-Evrópu og fyrir-
mynd margra dómkirkna sem á
eftir komu. Dómkirkjan hefur
margsinnis verið valin fegursta
bygging heims og hún er eitt af
því sem allir verba ab skoða sem
eiga leið um þennan hluta Eng-
lands.
Háskólinn í Durham er sá þribji
elsti í Englandi, á eftir Oxford og
Cambridge. Durhamkastali, sem
áður var heimili biskupaprins-
anna, er í dag stúdentagaröar
fyrir háskólastúdentana.
Fyrir áhugamenn um söguna er
heimsókn í Beamish-safnið í
Durhamsýslu ómissandi. Beam-
ish- safnið er í raun heilt þorp
þar sem reynt er að sýna hvernig
lífi fólks var háttað í norburhluta
Englands á fyrri hluta þessarar
aldar. í þorpinu er hægt að
heimsækja m.a. verslanir, skóla,
læknastofu, tannlæknastofu og
sælgætisverksmiðju, sem allt
hefur verið endurbyggt eins og
það var um síðustu aldamót. Að
sjálfsögðu er hægt að kaupa sæl-
gæti sem framleitt er í sælgætis-
verksmiðjunni.
Síðast en ekki síst er í Beamish
eina kolanáman sem enn er opin
í héraðinu. Gestum gefst kostur
á aö fara niður í námuna í fylgd
fyrrverandi námumanna, sem
lýsa því hvernig vinnan fór
fram. Heimsókn í námuna er
einstök leið til að átta sig á því
hversu gífurlegt harbræði námu-
yinnan hefur verið. Fyrir flesta
íslendinga er þó nauðsynlegt að
sperra eyrun vel, því kolanámu-
mennirnir fyrrverandi tala mál-
lýsku heimamanna, Geordies,
sem getur verið erfitt að skilja,
en er því skemmtilegra að hlusta
á. ¦
I '. ,1/,' ¦ i . í« • !¦' ¦ .' i ,'-'.
Minnismerk'ib um Greyjarl, föbur endurbótalaganna frá 1832, íhjarta
mibborgar Newcastle.
Durhamborg er sérlega falleg borg
í nágrenni Newcastle. Hún ereink-
um fræg fyrir byggingarlist, en þar
má sjá margar fallegar byggingar
frá miböldum. Ekki spillir fyrir
frœgb borgarinnar ab skjaldar-
merki hennar er eins og íslenski
fáninn.
„ Kolavinnslan " í Beamish-safninu.
Þar er eina kolanáma hérabsins
sem enn er opin, þótt kol séu ekki
lengur unnin þar.