Tíminn - 03.11.1994, Page 10
10
Fimmtudagur 3. nóvember 1994
ættu ab gera sér ferð til Durham-
borgar, miðaldaborgar í Dur-
hamsýslu, „lands biskupaprins-
anna". Frá Durhamborg stjórn-
uðu biskupaprinsarnir sýslunni
sem nokkurs konar ríki í ríkinu í
nærri 800 ár.
Durhamborg stendur á höfða,
sem er umlukinn skógivöxnum
dal sem áin Wear bugðast eftir.
Margar byggingar frá miðöldum
eru uppistandandi í Durham, en
frægasta bygging sýslunnar er án
efa dómkirkjan, sem er önnur af
tveimur alþjóðlegum arfleifðum
í Northumbria. Bygging dóm-
kirkjunnar hófst árið 1093 og
henni var lokiö árið 1133. Dóm-
kirkjan í Durham var fyrsta stóra
dómkirkjan sem var byggð í
Norðvestur-Evrópu og fyrir-
mynd margra dómkirkna sem á
eftir komu. Dómkirkjan hefur
margsinnis verið valin fegursta
bygging heims og hún er eitt af
því sem allir verða ab skoða sem
eiga leib um þennan hluta Eng-
lands.
Háskólinn í Durham er sá þriðji
elsti í Englandi, á eftir Oxford og
Cambridge. Durhamkastali, sem
áður var heimili biskupaprins-
anna, er í dag stúdentagarðar
fyrir háskólastúdentana.
Fyrir áhugamenn um söguna er
heimsókn í Beamish-safnið í
Durhamsýslu ómissandi. Beam-
ish- safnið er í raun heilt þorp
þar sem reynt er að sýna hvernig
lífi fólks var háttað í norðurhluta
Englands á fyrri hluta þessarar
aldar. í þorpinu er hægt ab
heimsækja m.a. verslanir, skóla,
læknastofu, tannlæknastofu og
sælgætisverksmiðju, sem allt
hefur verið endurbyggt eins og
það var um síöustu aldamót. Aö
sjálfsögðu er hægt að kaupa sæl-
gæti sem framleitt er í sælgætis-
verksmiðjunni.
Síðast en ekki síst er í Beamish
eina kolanáman sem enn er opin
í héraðinu. Gestum gefst kostur
á að fara niður í námuna í fylgd
fyrrverandi námumanna, sem
lýsa því hvernig vinnan fór
fram. Heimsókn í námuna er
einstök leið til ab átta sig á því
hversu gífurlegt harbræði námu-
vinnan hefur verið. Fyrir flesta
íslendinga er þó nauðsynlegt að
sperra eyrun vel, því kolanámu-
mennirnir fyrrverandi tala mál-
lýsku heimamanna, Geordies,
sem getur verið erfitt ab skilja,
en er því skemmtilegra að hlusta
á. ■
Durhamborg er sérlega falleg borg
í nágrenni Newcastle. Hún er eink-
um fræg fyrir byggingarlist, en þar
má sjá margar fallegar byggingar
frá miböldum. Ekki spillir fyrir
frœgb borgarinnar ab skjaldar-
merki hennar er eins og íslenski
fáninn.
„Kolavinnslan" í Beamish-safninu.
Þar er eina kolanáma hérabsins
sem enn er opin, þótt kol séu ekki
lengur unnin þar.
Newcastle
— ekki bara fótboltaliö!
Borgin Newcastle stendur vib
ána Tyne í Northumbria-hér-
aði í noröausturhluta Eng-
lands. Newcastle er í dag
einna þekktust fyrir knatt-
spymulib sitt og hina frægu
Tynebrú, en fyrr á ámm var
kolavinnsla helsta einkenni
héraðsins. Northumbria hef-
ur gegnum söguna verið um-
deilt landsvæöi, sem Skotar
og Englendingar hafa barist
um. Ýmsar minjar þessa alda-
langa hernaðar er að finna í
héraöinu og þar er skosk arf-
leifb áberandi. Undanfarin
haust hafa sífellt fleiri íslend-
ingar heimsótt Néwcastle,
bæbi til ab versla og notfæra
sér abra afþreyingu sem borg-
in og nágrenni hennar hafa
upp á ab bjóba.
Vibskiptin blómstra á sunnudagsútimarkabnum vib Quayside undir Tynebrúnni.
Saga, byggingar-
list og verslanir
Borgin
Tynebrúin er tákn Newcastle og
hún er áberandi þegar komib er
inn í borgina. Tynebrúin var
byggð árin 1925-28 og var á
þeim tíma lengsta brú í heimi án
miðjustólpa. Tynebrúin var opn-
uð á undan hinni víðfrægu brú í
Sydney í Ástralíu, en brýrnar em
nákvæmlega eins ab öllu leyti
nema stærðinni. Menn eru ekki
sammála um hvor brúin hafi
verið fyrirmynd hinnar, þótt
Newcastlebúar séu aubvitað ekki
í vafa um það. Alls eru sex brýr
yfir ána Tyne, þótt engin hinna
fimm séu jafn frægar og brúin í
Newcastle.
Hjarta miðborgar Newcastle er
við hið 40 metra háa minnis-
merki um Grey jarl (sem Earl
Grey teib heitir eftir), föður end-
urbótalaganna frá árinu 1832,
en þá var Grey jarl forsætisráð-
herra. Grey Street er nefnt eftir
Grey jarli. Það þykir vera ein feg-
ursta gata Bretlands og meistara-
verk klassískrar byggingarlistar.
Miðborg Newcastle er frekar lít-
il. Fyrir vikið eru ókunnugir
fljótir að átta sig á henni og auð-
velt er að finna það sem ferða-
langurinn leitar að.
Verslun
Newcastle svíkur ekki þá sem
hafa áhuga á dæmigerðri versl-
unarferð. í Gateshead (eins kon-
ar Kópavogi, rúmlega 4,5 km frá
mibborg Newcastle) er stærsta
verslunar- og afþreyingarmið-
stöð Evrópu, Metro Center, með
um 350 verslunum og þjónustu-
fyrirtækjum undir einu þaki.
Otal veitingastaöir eru í Metro
Center, kvikmyndahús, keilusal-
ur og innitívolí. Þar eru margar
af stærstu verslunarkeðjum Evr-
ópu meb verslanir. Metro Center
nær yfir gífurlegt flæmi, en til að
auðvelda fólki að finna það sem
það leitar að eru fjögur eins kon-
ar verslunarþorp þar innan dyra.
í þorpunum eru ýmsar sérversl-
anir og nöfn þeirra segja til um
hvernig verslanir er ab finna í
hverju. Yfir 25 milljónir manna
heimsækja Metro Center árlega.
Aðal verslunargatan í miðborg
Newcastle er Northumberland
Street, sem stundum er kallað
„Oxford Street norðursins".
Northumberland Street er
göngugata og þar er ab finna
stærstu Marks og Spencer versl-
un héraðsins, C&A, Littlewoods,
Next og margar aðrar þekktar
verslanir. Við götuna er gengið
inn í Eldon Square, sem er stór
verslunarmiðstöð með yfir 160
verslunum, tómstundamiðstöb
og veitingasvæði.
Á sunnudögum er tilvaliö ab
heimsækja markabinn á Quay-
side undir Tynebrúnni. Þar eru á
hverjum sunnudegi um 200
sölubásar og hægt að gera gób
kaup, ef fólk gefur sér tíma til að
skoða þab sem er á boðstólum.
Land biskupa-
prinsanna
Þeir sem koma til Newcastle,
Minnismerkib um Creyjarl, föbur endurbótalaganna frá 1832, íhjarta
mibborgar Newcastle.