Tíminn - 05.11.1994, Page 1
SÍMI
631600
78. árgangur
STOFNAÐUR 1917
Laugardagur 5. nóvember 1994
Stakkholti 4
Inngangur frá
Brautarholti
209. tölublað 1994
Góbœri í rœkjuibnabi hefur ekki skilab sér í hœrra
rœkjuverbi til útgerbar:
Skipta rækju
fyrir síld
Sverrir Leósson, útgeröarma&ur
lo&nuveiöiskipsins Súlunnar
EA 400, segir a& margir útger&-
armenn, sem eiga innan vi&
200 tonna rækjukvóta, skipti
honum fyrir 1220 tonna síldar-
kvóta. Hann segir hagkvæmis-
sjónarmiö rá&a þessu hjá út-
ger&um nótaskipa, sem geta
notaö sömu vei&arfæri vi& síld-
og lo&nuveiöar. í útger& loönu-
skipa sem og raunar í allri út-
ger& kappkosta menn vi& a&
reyna a& hámarka tekjumar og
halda kostnaöi í lágmarki.
Sverrir segir a& þaö sé engin
hætta á ab rækjukvótinn muni
ekki veiðast og telur ab fleiri skip
séu'á rækjuveiðum en oft á&ur.
Me&al þeirra er hans eigið skip
sem er meö 138 tonna rækju-
kvóta. Hann gagnrýnir talsmenn
rækjuverksmiðja fyrir að horfa á
málin abeins út frá þröngum sér-
hagsmunum í stað þess að líta á
þau af raunsæi. Á sama tíma og
góbæri er í rækjunni, en Þjób-
hagsstofnun telur að rækjuiðn-
aðurinn sé rekinn með 19%
hagnaði miðað við rekstrarskil-
yrði í ágúst sl, þá séu verksmiðj-
urnar aö greiða sama verið fyrir
úthafsrækjuna og þær hafa gert
undanfarin ár.
Eins og fram hefur komib þá
hafa hagsmunaaðilar í rækjuibn-
aði, og þá einkum fyrir vestan og
norðan, gagnrýnt útgerðarmenn
þeirra sem skipa sem eiga ein-
hvern slatta af rækjukvóta fyrir
ab nýta hann ekki sem skyldi á
sama tíma og verksmiðjurnar sjá
fram á hráefnisskort. Sérstaklega
þegar haft er í huga að marks-
verð á rækju er á uppleib á
heimsmarkabi vegna skorts á
rækju. Það stafar m.a. af því að
rækjuveiðar í Barentshafi hafa
brugbist og sömuleiðis veiðar á
svokallaðri Oregonrækju við
strendur Bandaríkjanna, auk
þess sem framboð af eldisrækju
hefur minnkab vegna sýkingar.
Stöbvum unglingadrykkju:
Vill aðgerðir
gegn landasölu
Átakið Stöðvum unglinga-
drykkju hvetur til aukinna að-
gerba gegn ólöglegu áfengi. í
bréfi frá framkvæmdastjóra
átaksins til lögreglustjóra og
sýslumanna segir að margir
þeirra sem séu stórtækir í landa-
framleiðslu beini sölunni fyrst
og fremst að unglingum. Vitað
sé að margir þeirra séu forhertir
og hafi sumir jafnvel blandað
ofskynjunarsveppum í landann
Slasabist
alvarlega
Maður slasabist alvarlega í hörðum
árekstri á Austurvegi á Selfossi síö-
degis í gær. Áreksturinn varð með
þeim hætti að bifreið sem var ekið
inn á Austurveginn skall utan í
annan bíl sem hentist á ljósastaur
við höggiö. Ökumaður bifreiðar-
innar var fluttur á Sjúkrahúsið á
Selfossi og var jafnvel talið ab hann
yröi fluttur þaðan á Borgarspítal-
ann. ■
Valt út í sjó
Bíll valt út af veginum við Hafrafell
rétt innan viö ísafjörð í gær og end-
aöi úti í Skutulsfirði. Bílstjórinn var
einn á ferð og slapp hann ómeidd-
ur úr byltunni. Honum tókst að
koma sér út úr bílnum af sjálfsdáö-
um og upp á land. Bíllinn er lítið
skemmdur að sögn lögreglu. ■
til ab auka vímuna og gera neyt-
endur háðari en ella. Margir
þeirra annist jafnframt sölu og
dreifingu á öðrum vímuefnum.
Forsvarsmenn átaksins telja
réttlætanlegt að leggja talsvert
fé í aðgeröir gegn framleiðend-
um og söluaðilum landa vegna
sparnaðar sem þær gætu leitt til
á öbrum svibum. ■
r=
-
LOGREGLflN
POLICE
IV |
íí á* B W^»^<a.iwwáawÉiB
Framsókn á
Reykjanesi:
Þrjár konur
vilja 1. sætiö
Fram kom hjá Unni Stefáns-
dóttur á fundi framsóknar-
kvenna í fyrrakvöld a& yfir-
lýsingu hennar, um aö hún
stefndi á öruggt sæti á lista
Framsóknarflokksins í
Reykjanesi í kosningunum í
vor, bæri a& túlka sem svo a&
hún stefndi á 1. sæti Iistans.
Þetta þýðir að þrjár konur gefa
kost á sér til að leiöa listann á
Reykjanesi, en þær eru auk
Unnar þær Siv Friöleifsdóttir og
Drífa Sigfúsdóttir. Aðeins einn
karlmaður, Hjálmar Árnason
skólameistari, hefur gefib út yf-
irlýsingu um að hann sækist
eftir fyrsta sætinu. ■
Framfaradag-
ur á Miöborg-
arstöö lög-
reglunnar
„Þetta er stór dagur og dagur
framfara hérna hjá okkur á
Miðborgarstöð lögreglunnar,"
sagði Oskar Bjartmarz varð-
stjóri í spjalli við Tímann í gær.
„Hér er verið aö setja upp skilti
á stöðina meö áletruninni POL-
ICE," sagði hann. Eftir þessari
merkingu hefur lengi verið kall-
að og nú er skiltið komið upp.
Að sjálfsögðu eru alltaf ein-
hverjir í sívaxandi hópi er-
lendra ferðamanna sem hingaö
koma, sem þurfa ab leita til lög-
reglu. Það er ljóst að sú leit hef-
ur verið nokkuð torveld, enda
segir skiltið LÖGREGLA ná-
kvæmega ekkert fyrir annarra
þjóða fólk. ■
Hér má sjá skiltib góba og tög-
regiumennina jóhann Löve og
Císla Gubmundsson.
Tímamynd CS
Ástandiö í húsnœöismálum geöfatlaöra í Reykjavík er uggvœnlegt, segir Lára Björnsdóttir, fé-
lagsmálastjóri borgarinnar
38 geðsjúkir eru nánast á götunni
38 ge&fatla&ir íbúar Reykjavík-
ur áttu hvergi höfbi sínu a&
halla sí&astli&iö vor. Þetta fólk
var á götunni sem kallaö var.
Auk þess býr stór hluti þessara
sjúklinga vi& afar óörugga bú-
setu og sumir dvelja á gistiheim-
ilum. Þetta kemur fram í skýrslu
samstarfshóps Svæöisskrifstofu
málefna fatla&ra í Reykjavík, Fé-
lagsmálastofnunar Reykjavíkur-
borgar og Hússjó&s Óryrkja-
bandalagsins sem birt var ný-
lega í félagsmálará&i borgarinn-
ar. Hér er um a& ræ&a fólk sem
skilgreint er sem krónískir geö-
sjúklingar sem ekki er talið a&
geti ná& bata. Sumt af þessu
fólki er auk veikindanna há&
ýmsum fíkni- og ávanalyfjum.
„Við höfum vissulega miklar
áhyggjur af þessu ástandi sem í
skýrslunni birtist og nú er leitað
úrræða hjá þeim aðilum sem að
málinu koma," sagði Lára Björns-
dóttir, félagsmálastjóri Reykjavík-
urborgar í samtali við Tímann í
gær.
Samantektin sem samstarfshóp-
urinn gerbi leiðir í ljós ab 27 geð-
fatlaðir einstaklingar voru á sam-
ræmdum biðlista eftir búsetu.
Eftir því sem vitab var reyndust
38 á götunni, 12 bjuggu á gisti-
heimili, 134 í óöruggu húsnæði,
og 43 á áfanga- og langlegudeild-
um.
Af þeim sjúklingum sem voru á
götunni reyndust vera 33 karlar
og 5 konur, meðalaldur þeirra 37
ar.
Þrjár stofnanir eru meb búsetu-
úrræbi fyrir gebfatlaða í Reykja-
vík:
Öryrkjabandalagiö, en á heildar-
biðiista þar voru 568 einstakling-
ar, af þeim 179 geðfatlaðir. Nú
þegar búa 55 í Hátúnshúsunum
en í þeim húsum búa milli 230 og
240 manns. Auk þess búa 10 í
íbúbum sem hafa þjónustu frá
Geðdeild Landspítala og 13 á
vegum Svæðisskrifstofu Reykja-
víkur. Abrir búa í íbúðum á veg-
um Hússjóðs bandalagsins hing-
að og þangað um borgina. Biö-
tími einstaklinga er orðinn 3-4 ár
og biðlistanum hefur verið lokað
um óákveðinn tíma.
Félagsmálastofnunin er með
398 umsóknir um íbúðir fyrir
fólk á aldrinum 16-66 ára. Af
þessum umsóknum eru um 150
frá öryrkjum en ekki sundur-
greint hvers eðlis örorkan er.
Stofnunin rekur 1.045 íbúöir. Fé-
lagsmálastofnun er í samvinnu
við geödeildir Landspítala og
Borgarspítala um rekstur á vernd-
uðum heimilum fyrir gebsjúka,
10 heimili alls.
Svæðisskrifstofa Reykjavíkur er
meb um 200 einstaklinga á biðl-
ista, þar af eru um 50 geðfatlaöir.
Skrifstofan rekur 12 sambýli, þar
af eitt fyrir geðfatlaða, auk þess
sem 15 gebfatlaöir búa í 10 íbúð-
um á vegum skrifstofunnar. Einn-
ig þarna er langur biðtími eftir úr-
lausnum. ■