Tíminn - 05.11.1994, Blaðsíða 7
Laugardagur 5. nóvember 1994
7
Ingibjörg Davíbsdóttir:
Hvers eiga bömin aö gjalda?
Fyrir skömmu birtist í einu dag-
blaöanna viðtal viö virtan, er-
lendan afbrotafræðing, þar sem
hann lét hafa eftir sér að glæpa-
tíðni á íslandi væri í rauninni
engu lægri en í Bandaríkjunum.
Þetta álit sérfræðingsins ætti
raunar ekki að koma neinum á
óvart sem fylgist með fréttum af
þessum málum hérlendis. Nær
daglega eru til umfjöllunar frétt-
ir af margskonar glæpum, árás-
um og líkamsmeibingum
þannig að það hálfa væri nóg.
Og næstum jafnoft er gengið
framaf meðaljóninum þegar
birtir eru dómar í viðkomandi
sakamálum.
Morðingjar eru dæmdir til allt
að 16 ára fangelsisvistar og ein-
staka ofbeldismaður getur þurft
ab sitja inni í nokkur ár, hafi
hann náð að limlesta fórnar-
lambið nægilega mikib. Fangels-
isdómar nauögara og annarra
öfugugga eru hins vegar mældir
í mánubum. í mörgum tilfellum
er um skilorðsbundna dóma að
ræða, þá þarf sá seki ekki að sitja
af sér dóminn, svo fremi sem
hann brýtur ekki af sér á skil-
orðstímanum. Nýlega var kveð-
inn upp dómur í einu slíku máli.
Þar var um að ræða karlmann
sem hafði beitt ungan dreng
kynferðislegri misnotkun að
tveimur yngri drengjum ásjá-
andi. Fyrir þetta hátterni fær sá
seki 10 mánaða fangelsisdóm og
þar af 7 mánuði skilorösbundna.
Því miður er þetta ekki eins-
dæmi. Nærri því hvern einasta
dag les eða heyrir maður um
aðra og viðlíka dóma fyrir þess-
háttar glæpi. Ekki eykst nú virð-
ing almennings fyrir dómskerf-
inu, þegar dómarnir eru svo oft
á tíðum mildabir í meðferð
Hæstaréttar.
Samkvæmt þessu virðast ís-
lensk lög ekki meta kynferðis-
legt ofbeldi gegn börnum eöa
nauðganir meiri glæp en meðal
ávísanafals.
Ingibjörg Davíbsdóttir
Þegar betur er að gáð, þá er
það kannski ekki svo undarlegt
að lögin tryggi ekki rétt barna
betur en raun ber vitni. Börn
hafa hingað til ekki verið talin
sjálfstæðar persónur með til-
heyrandi réttindum, heldur sem
hluti af persónu og réttindum
foreldra sinna. í annan stað þá
er það athyglisvert ab allflestir
dómarar eru sama kyns og kyn-
ferðisafbrotamennirnir sjálfir.
Þessi staðreynd gefur tilefni til
hugleiðinga um hvort ekki sé
rétt að breyta samsetningu þess
hóps sem dæmir í viðkomandi
málum. Ég er ekki frá því að
fjölgun kvenna í dómarasætum
myndi leiða til réttlátari refsinga
í slíkum málum.
í þessu samhengi er líka at-
hyglisvert að skoða þær kenn-
ingar um tilurð nauögana, að
mikill hluti þeirra sé fórnar-
lömbunum sjálfum að kenna.
Þ.e.a.s. að konur bjóði í rauninni
upp á það að vera nauðgað sök-
um þess hve æsandi þær klæðist
og liggi oft á tíðum vel við
nauðgun, sökum áhrifa áfengis.
Það væri gaman að sjá eða heyra
útskýringar á sambærilegum
glæpum gagnvart börnum og á
hvaða hátt þau bjóða hættunni
heim. Er það kynæsandi klæðn-
aðurinn eða hin eggjandi fram-
koma, sem leiðir kynferðisaf-
brotamennina til glæpsins, eða
gæti það hugsast að um afbrigði-
lega hegðun væri að ræða?
Eg tel að fyrir löngu sé kom-
inn tími til að skerpa hressilega
á refsiviðurlögum varöandi
nauðganir og aðra kynferöislega
misnotkun. Og að sjálfsögðu al-
gjörlega án tillits til aldurs eöa
kyns fórnarlamba. Það getur
ekki verið réttlætanlegt að verö-
launa slíkt óeðli með hlægilega
lágum dómum, sem eru ekkert
annað en hreinasta vanvirða og
móðgun við þá, sem í þessari
hræðilegu ógæfu lenda og bíða
þess sjaldan eða aldrei bætur.
Höfundur er BA í stjórnmálafræbi og
þátttakandi í prófkjöri Framsóknarflokks-
ins í Reykjavík.
Valgerbur Sverrisdóttir:
Höldum konu í baráttusætinu
í síðustu alþingiskosningum
munaði litlu að Framsóknar-
flokkurinn fengi tvo þing-
menn kjörna í Reykjavík. Ásta
R. Jóhannesdóttir skipaði ann-
að sætið á framboðslista
flokksins, eins og flestum er
kunnugt.
Nú um helgina mun full-
trúaráð Framsóknarfélaganna
í Reykjavík velja frambjóöend-
ur flokksins í Reykjavík fyrir
næstu alþingiskosningar. Það
er mjög mikilvægt, aö konur
fái góða kosningu í prófkjör-
inu og að valinn verði traustur
fulltrúi í annað sætið — bar-
áttusætið.
Ásta Ragnheiður hefur sann-
að það á tólf ára ferli í Fram-
sóknarflokknum, ab hún er
Helgi Pétursson:
Nú um helgina göngum við
reykvískir framsóknarmenn til
kosninga í prófkjöri. Sú þunga
ábyrgð er lögð á herðar okkar í
fulltrúarábinu ab velja sigur-
stranglegan lista flokksins í
Reykjavík fyrir næstu alþingis-
kosningar.
Fyrir tæpum fjórum árum
munaði litlu að við næðum
inn tveimur þingmönnum í
Reykjavík. Til þess að ná því
takmarki nú, þurfum við að
velja dugmikla frambjóðendur
í efstu sæti listans.
Ásta R. Jóhannesdóttir, sem
býður sig fram í 2. sætið, er
slíkur fulltrúi. Hún er núver-
andi varaþingmaður Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík og
hefur starfað um árabil innan
flokksins.
Ásta Ragnheiður er þjóð-
kunn af störfum sínum hjá
Ríkisútvarpinu og Trygginga-
stofnun ríkisins. Innan Fram-
sóknarflokksins er hún kunn
af dugnaði og baráttugleði,
sem oft smitar út frá sér.
verðugur fulltrúi flokksins á
Alþingi. Hún tók þátt í próf-
kjöri flokksins fyrir alþingis-
kosningar árið 1983 og á því
kjörtímabili kom hún fyrst
inn á þing sem varaþingmað-
ur Reykvíkinga.
Ég hef starfað með Ástu frá
því að hún kom fyrst til starfa
í flokknum. Hún hefur barist
af krafti fyrir þörfum úrbótum
í mennta- og menningarmál-
um. Ásta hefur starfað að
menntamálum innan þing-
flokksins og hún hefur setib í
útvarpsráði sem fulltrúi Fram-
sóknarflokksins um árabil.
Ásta hefur einnig látið um-
hverfis- og velferbarmál til sín
taka á Alþingi. Hún var fyrst
allra til að vekja máls á aðgerð-
í kosningabaráttunni fyrir
borgarstjórnarkosingamar í
vor vann hún mikið og óeigin-
gjarnt starf fyrir Reykjavíkur-
Valgerbur Sverrisdóttir
listann. Ásta vann að fjáröflun
fyrir listann og sá ásamt öðr-
um um undirbúning glæsilegs
happdrættis okkar. Hún sat
einnig í kynningarnefnd
Reykjavíkurlistans, sem kom
saman daglega og átti stóran
þátt í sigri okkar í Reykjavík.
Ásta Ragnheiður er Reykvík-
ingur í húð og hár. í starfi sínu
sem deildarstjóri upplýsinga-
deildar Tryggingastofnunar
ríkisins hefur hún samband
við fjölda Reykvíkinga á hverj-
um degi. Hún gjörþekkir
vandamál þeirra, sem minnst
mega sín, og hefur barist á Al-
þingi fyrir ýmsum úrbótum í
velferðarmálum.
í Ástu R. Jóhannesdóttur á
Framsóknarflokkurinn verð-
ugan fulltrúa, sem á erindi á
Alþingi. Hún er hæfur fram-
bjóbandi í baráttusætið í
Reykjavík.
Höfundur er
varaborgarfulltrúl.
um til verndar ósonlaginu á
Alþingi, en slík ákvæði eru nú
komin í lög. Nýlega átti hún
sæti í nefnd um eflingu heim-
ilisiðnaðar á vegum forsætis-
ráðuneytisins, en áhrifa frá
vinnu þeirrar nefndar hefur
gætt í uppbyggingu atvinnu-
lífs kvenna um allt land.
Ásta Ragnheiður hefur víð-
tæka reynslu af stjórnmálum
og þjóðmálum, sem nýtist
henni vel í starfi á Alþingi.
Hún hefur starfað ötullega í
Landssambandi framsóknar-
kvenna og var í stjórn sam-
bandsins í átta ár.
Af þrettán þingmönnum
Framsóknarflokksins eru að-
eins tvær konur.
Landssamband framsóknar-
kvenna hefur lengi barist fyrir
auknum hlut kvenna innan
flokksins. Það er nauðsynlegt
ab fleiri konur séu sýnilegar í
forystu flokksins, ef hann á ab
auka fylgi sitt. í könnun, sem
Félagsvísindastofnun gerði í
síðustu viku, kom í ijós að
mun færri konur en karlar
styðja Framsóknarflokkinn.
Flokkurinn nýtur stuðnings
20% karla, en aðeins 13,5%
kvenna.
í prófkjöri flokksins í
Reykjavík eru að þessu sinni
sex konur í framboði. Hér á
fulltrúaráðið möguleika á að
rétta hlut kvenna innan
flokksins og veita þessum
frambjóðendum brautárgengi.
Ásta R. Jóhannesdóttir er
eina konan sem sækist eftir
öðru sætinu á listanum í
Reykjavík. Hún á möguleika á
að stækka hóp framsóknar-
kvenna á Alþingi. Ég vil hvetja
fulltrúaráðið til að tryggja
henni örugga kosningu í bar-
áttusætið.
Höfundur er
alþingismabur.
X'ffXlXvX'XvX'^X'x'XvX'X'x’x'ivXvvl'X’XvX^XvXXvX'X'X'X'X'XvXX'XvXvXvXvX-X'X'X'XvX'X'X'X'X'X'XvX'X'X'X-XvXvXv
FORKÖNNUN
1
1
x;
j:j:
1
I
:S;
Rafmagnsveitur ríkisins og Rafmagnsveita Reykjavíkur
hafa í samstarfi unnið að undirbúningi á endurnýjun
viðskiptakerfa sinna. Um er að ræða hugbúnað sem
notaður er til að halda utan um upplýsingar sem varða
viðskiptamenn og orkusölu til þeirra. Þar á meðal er
meðhöndlun upplýsinga varðandi gerð orkureikninga,
mælabúnað og mælaálestur, heimtaugar, innheimtu og
fleira sem snertir samskiptin við viðskiptavini
orkuveitna.
Aðilum, sem bjóða slíkan hugbúnað,
er bent á að nálgast má gögn um málið á skrifstofu
Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118 Reykjavík,
og hjá Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar
Fríkirkjuvegi 3 Reykjavík,
til 16. nóvember n.k.
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
tAUGAVEGI 118 • 105 REYKJAVÍK
SlMI 91-605500 • BRÉFSlMI 91-17891
I
;;;!
I
1
Ástu í baráttusætið
Helgi Pétursson
■