Tíminn - 09.11.1994, Blaðsíða 6
6
MÍ&Wkudagur 9. fióvem'ber 1994
__RmÍIHt_
ÚR HÉRAÐSFRÉTTABLÖÐUM
Gríbarlegar skemmdir voru unnar á golfvelli Ólafsfirbinga, þegar stór-
virkar vinnuvélar athöfnubu sig inni á vellinum vib lagningu Ijósleib-
ara.
Ausimíand
Umferb komin á
nýju brúna yfir
Jökulsá á Dal
Nú er búið ab flytja umferð-
armerkingar að nýju brúnni
yfir Jökulsá á Dal og er nú
öll umferö komin um nýju
brúna, en undanfarið hafa
báðar brýrnar verið í notk-
un.
Að sögn Einars Þorvaröar-
sonar, yfirverkfræðings
Vegagerbarinnar á Austur-
landi, verður nýja brúin þó
ekki tekin formlega í notkun
fyrr en ári eftir að bundib
slitlag hefur verið lagt að
henni.
Snjómoksturs-
kostnaöur á ár-
inu sá sami og á
öllu síbasta ári
Kostnaður við snjómokstur á
Austurlandi það sem af er ár-
inu er orðinn jafnmikill og
hann var í fyrra, eða tæpar
70 milljónir. Nýjar snjó-
mokstursreglur tóku gildi í
vor, en þær eru ekki mark-
tækar í samanburöi við
moksturskostnað vegna þess
hve seint þær komu. Nánast
enginn snjómokstur hefur
verið það sem af er vetri, en
hálka er nú á flestum fjall-
vegum.
Rjúpnaskyttur
skutu hreindýr í
stab rjúpu
Gestkomandi skyttur á
Fljótsdalsheiðinni skutu
hreindýr á dögunum. Varla
hafa rjúpnaskytturnar tekið
feil á rjúpunni og hrein-
kúnni, en búib var að gera
að dýrinu þegar lögreglan
kom á staðinn. Lögreglan á
Egilsstöðum hefur rökstudd-
an grun um að nokkuð sé
um ólöglegar hreindýraveið-
ar þessa dagana, þótt ekki
hafi sannast nema þetta eina
tilfelli.
MÚLI
OLAFSFIRÐI
Golfvöllur Ólafsfjarðar:
Stórskemmdur
vegna lagningar
Ijósleibara
„Maður hefur verið að vinna
vib þennan völl í 20 ár og
svo koma allt í einu stórvirk-
ar vinnuvélar og valta yfir
þetta allt saman," segir Gest-
ur Sæmundsson, fyrrum
stjórnarmaður Golfklúbbs
Ólafsfjarbar og mikill golf-
áhugamaður, og var mikið
niðri fyrir.
Miklar skemmdir voru
unnar á golfvelli Ólafsfirð-
inga fyrir skömmu, þegar
stórvirkar vinnuvélar at-
höfnuðu sig á svæbinu við
lagningu ljósleibara. Nýbúið
var að útbúa „grín" á vellin-
um, sem kostaöi 700.000
þúsund krónur, þannig að
ljóst er að um töluvert tjón
er að ræða. Ekki er enn vitað
um eftirmála þessa atviks.
Tvennt frá Ólafs-
firbi á Ólympíu-
leika æskunnar
Garbar Guðmundsson og
Svava Jónsdóttir voru nýlega
Svava jónsdóttir.
Garbar Gubmundsson.
valin til aö verða fulltrúar ís-
lands á Ólympíuleikum æsk-
unnar, sem haldnir verða í
Andorra á Spáni. Leikarnir
verða í febrúar næstkom-
andi.
„Þetta er auðvitað alveg
æðislega spennandi og gam-
an," sögðu Garðar og Svava,
er þeim var tilkynnt valið.
Quðurnesja
FRETTI n
„Þetta var eins
og í bíómynd"
Fjórum starfsmönnum lór-
anstöðvar Pósts og síma á
Keflavíkurflugvelli brá aldeil-
is í brún fyrir hálfum mán-
uði, en þá stóðu yfir heræf-
ingar bandaríska hersins.
Starfsmennirnir voru í sak-
leysi sínu að vinna störf sín í
lóranstöðinni, þegar banda-
rískur hermaöur í fullum
herklæðum og þungvopnað-
ur réðst inn í stöðina og rak
þá út meb öskmm og látum.
Bjarni Magnússon, stöbvar-
stjóri lóranstöövarinnar,
sagði að þetta hefði verið
eins og í bíómynd, þegar út
var komið. Skothvellir
heyröust allt í kring og fullt
af hermönnum á svæðinu.
„Það þýddi ekkert í byrjun
að tala við hermennina og
benda þeim á að við mætt-
um ekki yfirgefa stöðina, þar
sem hún er eina lóranstöðin
í Norður-Atlantshafi sem er
alltaf mönnuð," sagði Bjarni.
Eftir að þetta hafði verið ít-
rekað við mennina og þeim
bent á skilti við inngöngu-
hurð lóranstöðvarinnar þar
sem sagði til um hvaða starf-
semi fór þar fram, virtust
hermennirnir hafa áttað sig
á því að starfsmenn Pósts og
síma höfðu ekki hugmynd
um þessa heræfingu sem
þarna var í gangi. „Mér
skildist svo seinna ab þeir
hafi átt ab taka svæðið, en
ekki fara inn í húsin sem
þarna eru."
Seinna kom íslenska lög-
reglan og herlögreglan á
stabinn og tóku skýrslu af
þeim. Daginn eftir kom svo
yfirmaður landgönguliðanna
og ræddi við þá og baðst. af-
sökunar og segir Bjarni enga
eftirmála eftir þetta. „Maður
er hins vegar nokkuð sjokk-
eraður eftir þessa lífsreynslu
og ég hef eiginlega engan
hug á að endurtaka hana,"
sagði Bjarni Magnússon að
lokum.
Flugleibir segja
upp þjónustu-
samningi vib
Flugafgreibsluna
Flugleiðir hafa sagt upp
samningum við Flugaf-
greiðsluna hf. um afgreiðslu
á flugvélum fyrirtækisins og
ræstingu þeirra. Ef samning-
ar nást ekki milli aðila, hætt-
ir Flugafgreiðslan þjónustu
vib flugvélar Flugleiða 1.
mars 1995.
Flugafgreiðslan hf. hefur
séb um þjónustu flugvéla
Flugleiða um nokkurra ára
skeib, eða allt síðan fyrirtæk-
ið bauð út þennan þátt í
rekstrinum á Keflavíkurflug-
velli. Sigurbjörn Björnsson,
framkvæmdastjóri Flugaf-
greiðslunnar, sagði að upp-
sögn samningsins væri sam-
kvæmt ákvæðum í sam-
komulagi milli Flugafgreibsl-
unnar og Flugleiba. Vibræð-
ur væm í gangi og mundi á
næstu vikum koma í ljós
hvort samningar tækjust.
110 manns vinna hjá Flugaf-
greibslunni hf.
Guillermo Figueroa.
Gunnar Kvaran.
Gunnar Kvaran
leikur meb S.í.
Tónleikar verða hjá Sinfóníu-
hljómsveit íslands í Háskólabíó
á morgun, 10. nóvember, kl.
20.00.
Hljómsveitarstjóri er Guillermo
Figueroa og einleikari er Gunnar
Kvaran sellóleikari.
Á efnisskránni eru: Forleikur að
Jónsmessunæturdraumi eftir
Mendelssohn, Sellókonsert eftir
Boccherini, og Sinfónía nr. 41,
„Júþíter", eftir Mozart.
Það var í maí 1965 að ungur og
efnilegur sellóleikari sté á pall
með Sinfóníuhljómsveit íslands
og lék einleik í hinum gullfallega
sellókonsert eftir Boccherini. Nú,
tæpum 30 árum síðar, mun þessi
sami sellóleikari, Gunnar Kvaran,
leika sama konsertinn, sem ekki
he/ur heyrst hér á landi í 30 ár.
Á efnisskrá tónleikanna utan
sellókonsertsins verður forleikur-
inn að Jónsmessunæturdraumi
eftir Felix Mendelssohn. Mend-
elssbhn var aðeins 17 ára þegar
hann las leikritið Draumur á Jóns-
messunótt eftir Shakespeare. Hin
ævintýralega stemmning leikrits-
ins gaf hugmyndaflugi unga tón-
skáldsins lausan tauminn og úr
varð leikandi tónlist.
Síðasta verk á efnisskrá tónleik-
anna er „Júpíter"-sinfónía Moz-
arts. Mozart samdi sinfóníu árið
1788, en það ár var honum mjög
erfitt. Faðir hans var nýlátinn,
dóttir hans Theresa dó þab sama
ár og hann og kona hans áttu við
mikla vanheilsu að stríða og pen-
ingavandræbi voru mikil. í von
um að eitthvað kæmi í aðra
hönd réðst Mozart í aö semja 3
sinfóníur á 6 vikna tímabili þetta
ár. Er það meb ólíkindum að slíkt
afrek skuli vera mögulegt. Þessar
þrjár sinfóníur Mozarts, sem
jafnframt urðu hans síðustu, hafa
jafnan verið taldar fegurstu sin-
fóníur hans.
Eftir að einleikarinn Gunnar
Kvaran hafði lokið námi hér
heima hleypti hann heimdragan-
um og fór til Danmerkur þar sem
hann stundaði framhaldsnám
hjá Erling Bl. Bengtssyni. Síðar
varð Gunnar aðstoðarkennari Er-
lings. Gunnar er mjög virkur í
flutningi kammertónlistar og
hefur hann haldiö tónleika víða
um lönd. Gunnar, sem er einn af
stofnendum Tríós Reykjavíkur, er
nú kennari vib Tónlistarskólann í
Reykjavík.
Hljómsveitarstjórinn og fiðlu-
leikarinn Guillermo Figueroa er
fæddur í Puerto Rico. Hann nam
í New York og það var í New
York sem hann fékk tækifæri lífs
síns, þegar hann var beðinn um
að stjórna tónleikum í forföllum
annars og svo vel tókst til að frá
þeirri stundu var framtíð hans
sem hljómsveitarstjóra ráðin.
Figueroa hefur komið hingab til
lands tvisvar sinnum áður, þ.e.
árið 1974 er hann lék m.a. með
Sinfóníuhljómsveitinni á 1100
ára afmæli íslandsbyggðar á
Þingvöllum. Þá stofnaði hann
ásamt Guðnýju Guðmundsdótt-
ur konsertmeistara og Halldóri
Haraldssyni píanóleikara kamm-
ermúsíkhópinn ISAKfER, sem lék
víba á íslandi. Síðar var hann
einn af félögum í kammermúsík-
hópnum Reykjavík Ensemble, sem
hélt tónleika bæði innanlands og
utan.
Þessir tónleikar eru þeir fyrstu í
grænni áskriftarröb.
Samtök um kvennaathvarf:
Meöferð fjár-
muna ábótavant
Gerðar hafa verið athuga-
semdir vib meðferö fjármuna
Kvennaathvarfsins. í fram-
haldi af því hefur verið kosin
ný bráðabirgðastjórn, sem á
að endurskoða og endur-
skipuleggja lög og stjórnsýslu
samtakanna og, ef meö þarf,
rekstur athvarfs og þjónustu-
miöstöðvar, s.s. starfshætti,
starfsmannahald og meðferð
fjármuna.
Á aðalfundi Samtaka um
kvennaathvarf, sem haldinn
var 1. þessa mánaðar, var lagb-
ur fram ársreikningur fyrir árið
1993 og árshlutareikningur
1994, endurskoðabir af Endur-
skoðunarmiðstöðinni Coopers
& Lybrand hf. Á grundvelli nið-
urstaöna hennar gerðu félags-
lega kjörnir endurskoðendur og
gjaldkeri samtakanna athuga-
semdir vib rekstur athvarfsins
og þjónustumiðstöðvar þess og
óskilvirkni stjórnkerfis. í kjöl-
farið var samþykkt ab kjósa
bráðabirgðastjórn fimm
kvenna, sem allar eru fjárhags-
lega óháðar rekstri samtakanna.
Bráðabirgbastjórnina skipa:
Hildigunnur Ólafsdóttir for-
maöur, Margrét Pála Ólafsdótt-
ir, Ólöf Sigurðardóttir, Ragn-
heiður Margrét Guðmundsdótt-
ir, Sjöfn Ingólfsdóttir. ■