Tíminn - 11.11.1994, Side 10

Tíminn - 11.11.1994, Side 10
10 tlNIÍtW Föstudagur 11. nóvember 1994 Brœburnir jónas og jón Múli Árnasynir ásamt Karli jóhanni Sighvatssyni, en hann annabist nótnaskrift ásamt Hlöbveri Smára Haraldssyni. Einu sinni á ágústkvöldi — Söngvasafn meb nótum Út er komin hjá Hörpuútgáfunni á Akranesi ný bók, Einu sinni á ág- ústkvöldi, söngvasafn Jónasar Árnasonar. Söngvar Jónasar eru framar ööru til þess fallnir ab gera fólki glatt í geöi, laða fram bros á vör, kveikja leiftur í auga. Því skal þó ekki gleymt aö hér eru ekki á boðstólum innantómir trúðleik- ar. Jónasi er oftar en ekki alvara með gamanseminni. Honum þykir vænt um venjulegt fólk og er ekki mikið gefið um sýndar- mennsku og framapot. Við bros- um og skemmtum okkur með Jónasi — en við skyldum ekki láta okkur sjást yfir að því er eins var- ið með hann og lóuna: En þó hún syngi bara dirrindí, fannst mér vera þó nokkurt vit í því. í bókinni eru 118 söngtextar meö nótum. Nótnaskrift unnu Karl Jóhann Sighvatsson og Hlöð- ver Smári Haraldsson. Þá eru í bókinni 130 myndir eftir valin- kunna listamenn. Einu sinni á ágústkvöldi er 260 bls. Prentvinnslu annaðist Oddi hf. Forsíðumynd gerði Kjartan Guðjónsson. ■ Kvennasaga, fjölskyldusaga, mannKynssaga Mál og menning hefur sent frá sér eina vinsælustu bók síð- ustu missera, Villta svani. Þrjár dœtur Kína eftir Jung Chang. Villtir svanir er í senn kvennasaga, fjölskyldusaga og mannkynssaga. í bókinni segir höfundurinn sögu fjölskyldu sinnar frá sjónarhóli þriggja kynslóða kvenna: sjálfrar sín, móður sinnar og ömmu. Les- andinn fær í bókinni óvenju- lega innsýn í sögu Kína á þess- ari öld, en um leiö er bókin lýsing á örlögum einstaklinga sem urðu fórnarlömb maó- ismans. Bókin Villtir svanir hefur farið sigurför um öll Vesturlönd frá Fréttir af bókum því hún kom út í Bretlandi ár- ið 1991 ogjiefur hún trónað á metsölulistum víða um lönd. Gagnrýnendur hafa hvarvetna hlaðið hana lofi og jafnað henni við sögulegar skáldsög- ur eins og þær gerast bestar — nema í Villtum svönum er hvert orö satt. Hjörleifur Sveinbjörnsson þýddi. Bókin er 485 bls., prentuö í Prentsmiðjunni Odda h.f. Ingibjörg Eyþórsdóttir gerði kápuna. Villtir svanir verða seldir sem Bók mánaðarins á 30% af- slætti, 2700 kr. í nóvember, en hækkar síðan í 3880 kr. ■ Æsispennandi kattasaga íslenski kiljuklúbburinn hefur sent frá sér þrjár nýjar bækur. Heimskra manna ráð er skáld- saga eftir Einar Kárason. Aðal- persónur þessarar bókar, Sig- fús Killian bílapartasali, Sól- veig kona hans og æði misvel heppnaðir afkomendur þeirra, eru aðalpersónur þessarar sögu, skrautlegt lið í miðju því grátbrosléga klúðri sem lífið vill verða. Og smám saman raðast fjölskrúðugir atburðir sögunnar saman í mynd af draumum og sorgum, göfug- um markmiðum og lítilsigld- um framkvæmdum nýríkra og síblankra íslendinga á þessari öld. Bókin er 233 blaðsíður og kostar 899 krónur. Lýðurinn eftir Mariano Azuela er tímamótaverk í suður-amer- ískri bókmenntasögu, áhrifa- mikil og afhjúpandi saga um skæruliða í mexíkönsku bylt- ingunni snemma á öldinni. Höfundurinn kynntist átök- unum af eigin raun, fyrst sem Einar Kárason læknanemi en síðar sem stjórnmálamaður. Löndum Azuela þótti sagan óhróður um byltinguna, en hún hefur haldið nafni hans á lofti víða um heim og ruddi brautina fyrir ^verk Juans Rulfo og Gabríels García Márquez. Hér birtist hún í nýrri þýðingu Guðbergs Bergssonar. Bókin er 164 blaðsíður og kostar 799 krónur. Feliade eftir Akif Pirincci er al- lóvenjuleg spennusaga, því að hún gerist meðal katta. Kött- urinn Francis er nýr í hverf- inu. Hann og Gústaf, eigandi hans, flytja inn í gamalt hús sem er fullt af undarlegri lykt og voveiflegu andrúmslofti. Brátt verður hann þess var að einstaklingar af hans tegund eru myrtir einn af öðrum án sýnilegrar ástæðu. Francis ákveður að rannsaka málið. Og nú fer af stað æsispenn- andi atburðarás þar sem mannleg og kattaleg fólska af versta tagi kemur við sögu. Bergljót og María Kristjáns- dætur þýddu bókina, sem er 238 blaðsíður. Hún kostar 799 krónur. Philip Morris lands- og Evróputvímenningurinn 1994 Vonast eftir metþátttöku Föstudagskvöldið 18. nov. nk. veröur spilaður Philip Morris lands- og Evróputvímenningurinn. Undanfarin ár hefur verib spilað á 230 stöðum á íslandi og miðað viö höfðatöluna frægu hefur ísland verib í efstu sætum meb fjölda þátttakenda und- anfarin ár. í Reykjavík veröur spilað í Þönglabakka 1, nýju húsnæði Bridgesambandsins, og verbur þab fyrsta keppnin sem haldin veröur þar. Skráning er hafin á skrifstofu Bridgesambands íslands í síma 91- 619360 og eru bridgespilar- ar sem ætla að spila í Reykjavík beðnir um að skrá sig sem fyrst. Ætlunin er að fylla húsið þetta opnunarkvöld og slá met í þátttöku lands- og Evróputví- menningsins. Þetta mót er sér- stætt á margan hátt, aöeins er spilað þetta eina kvöld og keppendur taka þátt í þremur keppnum í einu. í fyrsta lagi í félaginu sem tekur þátt í keppninni þetta kvöld og þar fá efstu menn í hverjum riðli verðlaunaskjal og penna í verðlaun. Hver riðill getur mest veriö 36 pör. Spilað er um tvöfaldan bronsstigaskammt í félögunum. í öðru lagi er spil- uö keppni yfir landið þar sem sigurvegararnir 'verða landství- menningsmeistarar, þar er spil- að um gullstig og í jóriðja lagi er keppt um alla Evrópu. Spilin verða forgefin eins og undanfarin ár em sú breyting verður nú aö aðeins 24 spil gilda til útreiknings í Evrópu- tvímenningnum og verður það haft eins í landstvímenning- um. Einnig er breyting á út- reikningi þar sem hann er nú í impum í stað skalans 1-100. Bæklingum með spilum keppninnar og útskýringum Omars Sharif verður dreift til keppenda eftir spilakvöldið. Undanfarin ár hafa um 600 spilarar tekið þátt í þessari keppni en í ár er markmiðið 1000 keppendur en það hefst ekki nema meb mikilli all- mennri þátttöku um allt land þannig að um er að gera að skrá sig sem fyrst hjá félaginu eða BSI í síma 91-619360. Undanúrslit og úrslit bikarkeppni BSÍ1994 Undanúrslit Bikarkeppni Bridgesambands íslands verða í Þönglabakka 1, laugardaginn 19. nóvember og hefjast kl. 11.00. Þar eigast við sveitir Tryggingamiöstöðvarinnar og Glitnis annars vegar og sveitir Ragnar T. Jónassonar og S. Ár- manns Magnússonar hinsveg- ar. Úrslitaviöureignin er spiluð sunnudaginn 20 nóv. Fjölmargir fletir Spil vikunnar kom upp í sveita- keppni á Bretlandseyjum fyrir nokkrum árum. S/Allir ♦ KT9863 ¥ ÁC54 ♦ T9 ♦ 2 4 ÁC54 ¥ T3 ♦ K52 * T653 N V A S D7 K9 DC843 KDG4 4 2 ¥ D8762 ♦ Á76 + Á987 Á einu borðinu opnaði norb- ur eftir pass suðurs og vesturs á veikum tveimur í spaða sem voru passabir út. Sá samningur stóð slétt. Þaö þykja hins vegar vondar tvíbökur að opna á veikum tveimur meb 4-lit í hinum hálitnum enda varð niðurstaöan allt önnur á hinu borðinu. Subur Vestur Norður Austur pass pass 1 * pass 2v pass 4v allir pass Útspilið var lauf og eftir það vann sagnhafi sitt spil en spurningin er hvort suður geti unnið spilið með einhverju öðru útspili? Segjum ab vestur spili hjarta- þristinum. Austur drepur á kóng og spilar aftur hjarta sem suður drepur heima og spilar spaða. Vestur drepur með ás og spilar réttilega tígli. Suöur drepur, tekur laufás og trompar lauf. Kastar tígli í spabakóng, spilar spaðatíu og kastar aftur tígli. Vestur fær slag á spaða- gosann en þab verður síðasti slagur varnarinnar. En ef vestur dúkkar spaðann í upphafi. Þá tapar sagnhafi eng- um slag á spaba en vegna sam- gangserfiðleika fær sagnhafi abeins 6 slagi, 6 á tromp, einn á spaða og ásana tvo. Enn er einn möguleiki sem lesendur hafa kannski komið auga á. Það er að drepa á hjartaás strax, spila laufi á ás og spaba að heiman. Nú er komin upp allt önnur staða. Vestur dúkkar og sagnhafi á þessi spil í 6-spila endastöðu. + Á ¥ T ♦ K52 + T ♦ T98 ¥ G ♦ T9 4 - N V A S 4 - ¥ K ♦ DC843 * - + - ¥ D8 ♦ Á76 + 9 Suöur hefur fengið sjö fyrstu slagina og trompar með átt- unni spaðatíuna. Síðan trom- par hann lauf í boröi — austur yfirdrepur — en hjartádrottn- ingin og tígulás verða 9. og 10. slagur sagnhafa. Bridge er eng- an veginn einfalt mál. íslandsmót eldri spilara: Þórir og Þorsteinn ísfandsmeistarar Fyrsta íslandsmótið í tvímenn- ingi eldri spilara fór fram í Sigtúni um síöustu helgi. Hlutskarpastir urðu Þórir Leifsson og Þorsteinn Pét- ursson með 108 stig. Arnar G. Hinriksson og Einar V. Kristjánsson lentu í öðru sæti meb 101 stig en Guðmundur M. Jónsson og Þórður Sig- fússon höfnubu í þriðja sæti.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.