Tíminn - 12.11.1994, Qupperneq 1

Tíminn - 12.11.1994, Qupperneq 1
SÍMI 631600 78. árgangur STOFNAÐUR 1917 Laugardagur 12. nóvember 1994 Stakkholti 4 Inngangur frá Brautarholti 214. tölublað 1994 Halldór Ásgrímsson: Geröi þab eina sem hann gat „Guömundur Árni gerði það eina sem hann gat gert. Stjórn- arandstaðan flutti vantraust á ríkisstjórnina og einstaka ráð- ■ herra en ríkis- Mi stjórnin ákvað að vísa málinu frá. Þar með var það ljóst að hún tók málin í sínar hend- ur. Ríkisstjórnin ákvað hins vegar að fresta málinu með mjög ein- kennilegum hætti að mínu mati með því aö vísa málinu til Ríkis- endurskoðunar. Það skapaði nokk- urn umhugsunarfrest en þá hafði þegar komið skýrt fram að Guð- mundur Árni hafði ekki ótvíræðan stuðning sinna flokksmanna og margar vísbendingar komu fram um að hann nyti ekki trausts sam- starfsflokks síns. Við slíkar aöstæð- ur getur ráðherra ekkert annað gert en farið. Hann fer greinilega mjög sár og boöar að það sé nauðsynlegt að taka upp ýmis önnur mál sem snerta stjórnmálamenn. Ég á því von á því að þessi orrahríð haldi áfram og þaö verði áframhaldandi átök innan ríkisstjórnarinnar. Ég á von á því að ríkisstjórnin sitji fram á vor en það er greinilegt að heil- indi eru lítil þar á bæ og þess vegna held ég að stjórnin verði nánast óstarfhæf það sem eftir lifir." ■ Kristín Ástgeirsdóttir: Betra seint en aldrei „Betra er seint en aldrei. Af- sögnin kom auðvitað ekki á óvart en hann hefði auðvitað átt að vera bú- inn að segja af sér fyrir lifandi löngu. Það sýnir hans siðferðilega mælikvarða að hann skuli ekki hafa gert það. Ræð- an sem hann flutti í gær var ótta- legt yfirklór, því málið snýst ekki um fjárútlát í heilbrigðisráöuneyt- inu heldur fyrst og fremst um það siðferði sem einkenndi hans störf sem ráðherra, þar sem hann hefur greinilega ofboðið siðferðiskennd almennings. Það er í sjálfu sér gott að það sé komin niðurstaða í þetta mál en ríkisstjórnin situr eftir veik- ari með sárt ennið. Frá sjónarhóli þjóðarinnar hefði verið best að fá kosningar strax. Ég hef það þó á til- finningunni núna að ríkisstjórnin muni lafa til vors og reyna að sleikja sárin." ■ Ólafur Ragnar Crímsson, formaöur Alþýöubanda- lagsins: Væri best ab kjósa strax „Þegar ég til- kynnti fyrir tveimur vikum að ég myndi beita mér fyrir vantrauststill- ögu á félags- málaráðherra lýsti ég því jafnframt yfir aö ég teldi skyn- samlegra að hann tæki sjálfur þá ákvörðun, eða forystumenn ríkis- stjórnarinnar fyrir hann. Það væri nauðsynlegt að í íslensku stjórnkerfi skapaðist sú siðvenja að ráðherra sem býr ekki lengur við traust segi af sér. Þess vegna finnst mér hann hafa brugðist rétt við þótt hann taki þessa ákvörðun aö mínum dómi allt of seint. Tíminn sem hefur liðið hefur skapað meiri erfiðleika og sett verri blæ á þetta mál en þurft hefði. Framhaldið verður á þann veg að ríkisstjórnin heldur áfram aö veikjast. Það segir sína sögu aö forsætisráðherra hafi tvisvar sinnum á fjórum mánuðum ver- ið kominn á fremsta hlunn með að efna til kosninga. Það segir líka sína sögu um Alþýðuflokk- inn að eingöngu tveir áf upphaf- legum ráðherrum hans eru enn í þessari ríkisstjórn og tveir vara- formenn flokksins hafa sagt af sér embættum sem ráðherra. Sam- búöinni innan ríkisstjórnarinnar er best lýst með því að Guð- mundur Árni skuli kjósa að ráð- ast á þrjá ráðherra Sjálfstæðis- flokksins á blaðamannafundi sín- um. Allt er þetta með þeim blæ aö best væri auðvitaö fyrir þjóð- ina að kjósa strax." ■ Cubmundur Árni Stefánsson tilkynnir afsögn sína í gœr. Tímamynd C S Rannveig tekuj* við af Guðmundi Arna Átök eru í uppsiglingu milli Rannveigar Guömundsdóttur, fráfarandi þingflokksfor- manns Alþýbuflokksins, og Gubmundar Árna Stefánsson- ar, fráfarandi heilbrigbisráö- herra, en Rannveig mun taka vib embætti Gubmundar sem félagsmálaráöherra og hún sækist auk þess eftir fyrsta Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarmaöur í Félagi frjálslyndra jafnaöarmanna: Hætti líka sem varaformaður „Eg tel ab þetta hafi verib rétt ákvörbun hjá Gubmundi Árna þótt ég hefbi líka viljab sjá hann segja af sér varaformennsku í flokknum," sagbi Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarmabur í Fé- lagi frjálslyndra jafnabarmanna, í samtali vib Tímann í gær. Félag frjálslyndra jafnabarmanna krafðist á dögunum að Guömund- ur Arni segði af sér ráðherradómi og hætti sem varaformaöur í flokknum. „Það á síðan eftir að koma í ljós hver viðbrögð flokks- manna verða, hvort þeir telja þetta nægilegt. Mér sýnist stefna í þaö en persónulega þætti mér eðlilegt framhald að Guömundur Árni hvíldi sig líka á varaformannssæt- inu," sagði Vilhjálmur. Margrét S. Björnsdóttir, annar stjórnarmaður í FFJ, sagðist í gær fagna ákvörðun Guðmundar þar sem mál hans hefði lamað flokkinn undanfarnar vikur auk þess sem þetta væri í fyrsta sinn sem ráðherra segði af sér vegna alvarlegra mistaka í starfi. Hún vonar að þetta skapi nýja hefð í íslenskum stjórnmál- um. ■ sæti á lista Alþýbuflokksins í Reykjanesi, sem Guömundur Árni hefbi ab öbru jöfnu talib sig eiga. Guömundur Árni Stefánsson félagsmálarábherra tilkynnti Davíð Oddssyni forsætisráö- herra í gær að hann myndi segja af sér ráöherradómi. Forsætis- ráðherra hefur meðtekið lausn- arbeiöni Guðmundar og boöað að hann muni leggja til vib for- seta íslands á ríkisrábsfundi í dag að hún fallist á lausnar- beiðnina. Davíð Oddsson sagði í gær að skýrsla Ríkisendurskob- unar hafi ekki verið þess eölis að fullkomin kyrrð gæti skapast um málið þótt hún hefði á margan hátt ekki verið ráðherr- anum óhagstæð. Á þingflokks- fundi Alþýðuflokksins í gær var ákveðið að Rannveig Guð- mundsdóttir, formaður þing- flokksins, tæki við sem félags- málaráðherra og mun Rannveig taka við embættinu á ríkisráös- fundinum í dag. Þessi ráðstöfun þingflokksins mun tvímæla- laust styrkja Rannveigu mjög í sessi í kjördæmi sínu, Reykja- neskjördæmi, og í gær lýsti hún því yfir að hún ætlaði sér efsta sætib á lista flokksins í kosning- unum í vor. Guðmundur Árni hins vegar telur sig eiga kröfu á þetta sæti og ef marka má við- brögð krata í Hafnarfirði í gær mun fara fram mikil barátta um þetta sæti og sögðu stuðnings- menn Guðmundar aö þab yröi ekki gefið eftir. ■

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.