Tíminn - 12.11.1994, Blaðsíða 8
8
Laugardagur 12. nóvember 1994
Haavrðinqaþáttur
Jón minn Baldvin býsna klár
Brussel sílofaði,
fylgdi Davíð fjögur ár
og fylgi helmingaði.
Þjóstólfur
Prófkjörsþankar
r
Eftir prófkjör íhalds í Reykjavík:
Út þeir stóra gera gnoð,
gaspra margt furðu skrýtið.
En að hafa í hálfum flokki stoð
helvíti finnst mér lítið.
Reykjanes
Salóme var sett á haug,
sextug og lapparbrotin.
Á meðan Ámi montinn flaug,
en Óli var nœstum skotinn.
Suöurland
Við atkvœðin var áköfjagt,
ýmsir trúi ég voli,
því Drífa hefur með djörfung lagt
dólginn á Bergþórshvoli.
Framsókn í Reykjavík
Hjá Framsókn sýnist fríðleikshjörð,
Finnur á undan gengur.
Konunum var kosning hörð,
knár reyndist Óli drengur.
Jón Leví
Dýrt kveönar vísur ýta greinilega viö hagyrðingum, því
eftir að hagmælt frú sendi okkur sléttubandavísu sýna
fleiri getu sína og senda vísur sem ortar eru undir því erf-
iða bragformi.
Sjálfsbjargarviðleitni
Á hann réðust eins og Ijón,
einhver nafnlaus krataflón.
Hann sig varði,
í borðið barði.
Björgun reyndi EFTA-Jón.
Þ.Dan
Mannlýsing (sléttuband)
Rœðir málið, aldrei er,
innsti feldur stökkur.
Glœðir bálið. Hvergi hér,
hrœlogs elda krökkur.
Aftur á bak er vísan svona:
Krökkur elda hrœlogs hér,
hvergi bálið glæðir.
Stökkur feldur innsti er,
aldrei málið rœðir.
Það var Pétur Stefánsson sem sendi þessa vísu og eftirfar-
andi kveðskap lét hann fylgja þau ummæli að gott sé að
búa á íslandi, hvernig sem viörar.
Ei skal kvíða kafaldshríð,
kal þó svíði jörðu.
Það er víða verri tíð,
valdastríðin hörðu.
Pétur sendir einnig fyrriparta og er sá fyrri sléttubönd og
hinn síðari hringhendur, og er nú lag að reyna sig við
erfiðar rímþrautir.
Setur drífu niður nú,
naprir vindar hvína.
og
Hér skal syngja hátt við raust,
hagyrðingar góðir.
Botnar og vísur sendist til Tímans
Stakkholti 4
105 Reykjavík P.s. SKRIFIÐ GREINILECA
Forspár, litgreining
og karakterskyggni
ans, því ég hækka engin verb á
námskeiðum, en hef haft sama
verð og frá haustinu 1990 og þá
þóttu mín námskeið ekki dýr.
Nú hafa hlutirnir samt breyst,
svo að þau þykja dýr vegna
hrakandi lífskjara og kaupmátt-
ar og hvað þetta er allt kallað.
Ég ætla samt ekki að lækka
veröiö, því það væri heldur
slæmt afspurnar að fara á útsölu
þegar maður er kominn með
grafarfibringinn. Frekar en að
lækka verðið á litgreiningu og
fatastíls- og framkomunám-
skeiðum og förðunarnámskeiö-
um, þá ákvað ég að búa til ódýr-
ari námskeið, sem samt helm-
ingi ódýrari en önnur, og nýta
mér mitt næmi eða skyggnigáfu
öðrum til upplýsingar.
Andlegheitin í
fyrirrúmi
Þetta námskeið er hentugra
en hin að því leyti að það er
mjög þægilegt að koma því fyrir
í heimahúsum. Fólk þarf ekkert
endilega að koma til mín, ég get
mætt á staðinn.
Svona verður hægt að fá spáð
fyrir sér og horft í karakterinn
með spilum og kaffibollaspám
og jafnframt fá litgreiningu,
framkomutilsögn og fleira og
fleira. En lögð er aðaláherslan á
andlega vellíban auk góörar
framkomu og ytri glæsileika. En
þeir, sem áhuga hafa, verða aö
hafa biðlund, því margir bíða
eftir svona alhliða námskeiðum
og verður að panta hjá mér tíma
meb góðum fyrirvara. ■
Heiðar snyrtir er ekki aöeins sjá-
andi á útlit fólks, framkomu og
klæðaburð, heldur sér hann
lengra en nef hans nær inn í
hugskot og framtíð manna og
kvenna. Andleg fegurð er hon-
um ekki síöur hugleikin en sú
sem augaö sér og það þarf að
fara saman, fágun hið innra og
ytra.
Því er hann farinn að bæta
vib námskeið sín og er nú á
andlega svibinu ekki síður en
hinu efnislega, enda má til
sanns vegar færa að siðfágun er
ekki síður huglæg en efnisleg.
Því er sú spurning fyrir hann
lögð í hverju nýjungar hans í
námskeiðahaldi liggi.
Svar: í ofanálag við það sem
ég hef verið að gera í sambandi
vib námskeið hefur meðfætt
huglægt næmi sett mig af stað
með ab koma með nýtt nám-
skeið og öðruvísi en þau sem ég
hef áður boðið upp á.
Það veröur nokkur bið á því
að ég geti boðið upp á nýja
námskeibið, því miðlar og spá-
konur borga ekki vaskinn, það
er virðisaukaskattinn, og þarf ég
að standa í leiðréttingum á því.
En það á víst að fara að taka
þetta fólk fyrir og láta það
borga, eftir því sem ég hef frétt.
HI6 ytra og hiö
innra
Þab, sem ég ætla ab gera, og
hefur gert mikla lukku hjá
kvenþjóöinni og strák og strák
innan um, er að í nýja nám-
skeiðinu kemur fólk með bolla
að heiman frá sér, sem þab er
búib að drekka úr.
Ég les þab ítarlega karakter-
\
Hvernig
áég ab
vera?
Heiðar Jónsson, snyrtir,
svarar spurningum lesenda
augum og geri um leið litgrein-
ingu, sem sagt augnkarakterlit-
greiningu. Síðan les ég úr skrift
fólksins, en til hliðar vib þann
lestur er ég með bolla viðkom-
andi og legg tíu spila spilaspá.
Þegar þessu lýkur, held ég
stutta snyrtivörukynningu og
fólki er velkomib að versla ef
það langar til.
Virbisaukaskattur af
spádómum
Þetta er svolítib í anda tím-