Tíminn - 16.11.1994, Síða 6
6
WtWÚWtt
Mi&vikudagur 16. nóvember 1994
UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM
Eystra-h
hornl
HÖFN í HORNAFIRÐI
Móögun vib
Bubba
Poppgoöið og trúbadorinn
Bubbi Morthens var á ferö-
inni hér um þarsíðustu helgi.
Hann áritaði m.a. geisladisk-
inn sinn, Þrjá heima, í Vöru-
húsi KASK. Aðdáendahópur-
inn sem flykktist á staðinn
var í yngri kantinum og
þurfti Bubbi að árita ýmislegt
fleira en geisladiskinn svo
sem fótbolta, pappírssnepla
og fleira.
Á föstudagskvöldið hélt
Bubbi tónleika í Víkinni fyrir
troöfullu húsi svo að ýmsum
þótti nóg um. Töluverð ölvun
var meðal gesta og virtist það
fara illa í Bubba enda hefur
hann lýst því yfir að hann
hreinlega „meiki" það ekki að
spila fyrir drukkið fólk.
„Það var eins og honum
hundleiddist þegar hann var
að spila," sagði einn tónleika-
gesta. Mælirinn fylltist svo al-
veg þegar einn tónleikagesta,
kófdrukkinn, slangraði utan í
hljóðnemann og keyrði í and-
litið á Bubba. Stóð goöið upp
og gekk á dyr og var greini-
lega stórlega misboðið.
Móttökur sem þessar eru
auðvitað móðgun við svo
virtan listamann og okkur
heimamönnum ekki til hróss.
Við verðum bara að vona að
Bubbi sé fljótur að fyrirgefa
og fljótur að gleyma.
Vel heppnuö
feröamálaráö-
stefna
Ferðamálaráðstefna íslands
var haldin í Sindrabæ á Höfn
-nýlega. Um 150 manns sóttu
ráðstefnuna. Gestir voru
mjög ánægðir og hrósuðu
allri framkvæmd hennar.
Mörg mál voru á dagskrá
og nefnir Tryggvi Árnason,
framkvæmdastjóri Jöklaferða,
að mjög gagnlegir fyrirlestrar
hafi verið fluttir, t.d. um
tryggingamál með liti til auk-
inna krafna EES. Einnig er-
indi um samræmingu á
skipulagi og rekstrargrund-
velli upplýsingamiðstöðva.
Fjallað var um átakið ísland
sækjum það heim og sú álykt-
un gerð aö nota skyldi sama
slagorðið áfram í kynningum
og auglýsingum.
FEYKÍR
1 »>M > f „6i
SAUÐARKROKI
Steinullarverksmiðjan:
15% söluaukning
milli ára
Sala Steinullarverksmiðj-
unnar á Sauðárkróki fyrstu 10
mánuði ársins nam 384,6
milljónum króna sem er 15%
aukning miðað við sama
tímabil í fyrra. Salan innan-
lands nam um 236 milljón-
um sem er 6% aukning milli
ára en verðmæti útflutnings
hefur aukist úr 111 millj.
1993 í 148,8 millj. í ár.
Stærstu útflutningmarkaðirn-
ir eru Bretland og Þýskaland.
Samkvæmt átta mánaða
uppgjöri var þriggja milljóna
kr. hagnaður af rekstri fyrir-
tækisins í samanburði við
66,4 millj. tap á þessu tíma-
bili. Afkomubatann má þakka
aukinni sölu, einkum á út-
flutningsmörkubum auk þess
sem gengisþróun hefur verið
fyrirtækinu hagstæð.
Einar Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Steinullarverk-
smiðjunnar, segist vongóbur
um að reksturinn verði í jafn-
vægi um áramót og afkoman
nálægt núlli. Áætlanir og
vinna ab markabsmálum sé
ab skila árangri.
Fæbingardeildin á
Sauöárkróki:
Ekki fæöst jafn fá
börn í áratugi
Óvenjulítib hefur verið ab
gera hjá ljósmæðrum á Sjúkra-
húsi Skagfirðinga þetta áriö. Að
sögn Birnu Gunnarsdóttur ljós-
móður stefnir í ab aðeins 45
börn fæbist á deildinni í ár sem
er fjórðungs fækkun frá meðal-
ári. 60-70 börn fæbast að jafn-
aði í Sjúkrahúsi Skagfirðinga.
Að sögn Birnu þarf ab fara
tugi ára aftur í tímann til að
finna svo fáar fæbingar. Lægsta
talan er síðan 1962, sama ár og
sjúkarhúsið var tekið í notkun.
Starfsmenn Steinullarverksmiöj-
unnar sníba nibur steinull í
kubba sem þykja sérlega þægi-
legir til einangrunar utan á stór-
ar f)ölbýlishúsabyggingar í aust-
urhluta Þýskalands.
Þá fæddust 48 börn en íbúar
Sauðárkróks voru allt að helm-
ingi færri þá en þeir em í dag.
Miðað vib þá fólksfjölgun
sem orðið hefur á Saubárkróki
undanfarna áratugi og á svæð-
inu í heild, má leiða líkum ab
því ab Skagfirðingar hafi ekki
fjölgað sér jafn lítið frá alda
öbli. Þetta stingur nokkuð í stúf
við það orð sem farið hefur af
Skagfirðingum lengi og þeir
hafa sjálfir verið duglegastir að
útbreiða, að þeir séu miklir
söngmenn, hestamenn,
kvennamenn og þá líklega
kynsælastir líka. Það skyldi þó
aídrei vera ab þeir hafi gert of
mikib úr verðleikum sínum
Suuutolzft
FRÉTTABLAÐIÐ
SELFOSSI
Bóndi hætt kom-
inn vegna gas-
myndunar
Bóndi í Hrunamannahreppi
var hætt kominn vegna gas-
myndunar í fjósi sínu nýlega
og mátti litlu muna að illa færi
ab sögn kunnugra.
Gasmyndunin er rakin til
þess ab veriö var að hræra upp
í haugnum undir fjósinu.
Ekki fyrir löngu kom upp
álíka tilfelli í Austur-Landeyj-
um þar sem aöstæður vom þær
sömu, stillur í vebri og gufa fer
beint upp í fjósið.
Sveppir í landa
„Landinn getur verið görótt-
ari drykkur en margur heldur
og dæmi em um ab ofskynjun-
arsveppum sé blandab í hann í
Reykjavík. Vib höfum þó ekki
orðib varir við það hér fyrir
austan," segir Þorgrímur Ó. Sig-
urðsson, rannsóknarlögreglu-
maður á Selfossi.
Sveppaneysla ungmenna á
Eyrarbakka fyrir sömmu hefur
vakib upp spurningar um hvort
slík neysla sé ab aukast í hérað-
inu en Þorgrímur Óli segir að
lögreglan hafi ekki merkt það.
Hins vegar sé full ástæða til ab
hvetja bæbi ungmenni og for-
eldra til að vera á varöbergi í
þessum efnum.___________
Fœbingum hefur fækkab mikib á sjúkrahúsinu á Saubárkróki. Fjóla
Þorleifsdóttir Ijósmóbir og Cubrún Helgadóttir móbir.
Evrópskar nýjungar í múrverki kynntar hér:
Puðið í múrverki
er senn að baki
Gamla þrælapuðib við múr-
verk er senn ab baki, þegar
ný tækni heldur innreiö sína
hér á landi eins og gerst hefur
í Evrópu. Fyrirtækið ímúr, ís-
lensk múrverk, hefur verib ab
rybja þessari tækni rúms á
síbari árum. Hún er fólgin í
notkun sílós á byggingarstab.
í þab er blandab efnunum og
vatni bætt út í eftir kúnstar-
innar reglum.
Mannshöndin kemur hvergi
nærri við þessa múrblöndun.
Áður fyrr handmokubu menn
fjandann ráðalausan og hrærbu
saman hrærurnar fyrir múrar-
ana og reyndust þær þá nokkuð
mismunandi að gerð og gæð-
um.
Þetta verklag hefur í för með
sér mun stöðugri gæði, aukin
afköst og betri nýtingu efna —
að ekki sé talað um minna lík-
amlegt álag á múrurum og
handlöngurum og hreinlegra
og hollara vinnuumhverfi en
fyrr.
ímúr kynnir hina nýju tækni
í sal Múrarafélags Reykjavíkur í
dag, miðvikudag, kl. 15. Þar
heldur þýskur sérfræðingur,
Hans-Peter Luhr, fyrirlestur.
Þegar líf liggur viö:
• •
Oryggistækið
á bak og burt
Um þessar mundir er Slysa-
vamafélag íslands meb átak í
gangi í öryggismálum hafna.
Félagib býöst til aö styrkja
þetta verkefni meb því til
dæmis ab útvega merkingar
og fleira. Ef um er ab ræba
mjög bágborib ástand og ekki
búist viö endurbótum, má
gera ráö fyrir ab SVFÍ útvegi
allan nauösynlegan öryggis-
búnab og geri þab sem hafn-
arstjórnum er skylt ab gera
lögum samkvæmt. Slysa-
varnadeildir um land ailt
gera úttekt á öryggisbúnaði,
bryggjustigum og björgunar-
tækjum í höfnum og gefa fé-
laginu skýrslu um ástandib.
Því miður hefur ýmsum ör-
yggisbúnaði við sumar hafnir
landsins verið áfátt í ýmsu —
til dæmis hefur það iðulega
komið fyrir að símar í almenn-
ingssímaklefum eru brotnir eða
rifnir niður af veggjum og
símaskrár er þar sjaldnast að
finna. Margt fleira hefur verið í
NEYÐARTILFELLI — og þá kann
þetta ab blasa vib: rústabur síma-
klefi.
megnu ólagi í sumum hafn-
anna.
Þórir Gunnarsson hjá Slysa-
varnafélaginu segir þó að marg-
ar hafnir séu til fyrirmyndar í
öryggismálum og muni félagið
veita viburkenningar fyrir það
sem vel er gert. ■
Fjármálaráöherra meö niöurskuröarhníf á lofti og rceöst
gegn fríöindum háskólaborgara landsbyggöarinnar:
Æskir fækkunar á
embættisbústööum
Fjármálarábherra hyggst
þrengja mjög að fríðindum ým-
issa opinberra starfsmanna,
sem haft hafa húsnæði á leigu
fyrir Iítið fé víba um landið.
Hér er einkum um að ræða
lækna, presta, lögfræbinga vib
sýslumannsembætti og fleiri
háskólamenntaba hópa. Slíkt
húsnæbi var upphaflega notab
sem agn til ab fá háskólaborg-
ara til starfa utan höfubborgar-
svæbisins.
„Ástæða þess að ríkið hefur
lagt sumum starfsmönnum sín-
um til húsnæði er meðal annars
að þannig fást frekar sérfræðing-
ar til ab flytjast út á land. Á þessu
hefur orðið breyting, þannig að
ekki er talin þörf á að kaupa sér-
fræðinga með þessum hætti til
að setjast ab úti á landi," segir
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra í bréfi til ríkisstjórnarinnar
þar sem hann ræðir endurskoð-
un á lögum og reglum um emb-
ættisbústabi.
Ný reglugerb um þetta efni var
sett í árslok 1992, en sú reglugerð
þrengir talsvert tíu ára gamla
reglugerð um embættisbústaði.
Meðal annars var þá á fleiri stöð-
um óheimilt að leggja starfs-
mönnum ríkisins til húsnæbi,
undanþáguákvæði voru gerð
skýrari og skilyrt var að gera
þyrfti skriflegan húsaleigusamn-
ing. Segir Friðrik að framkvæmd
reglugerðarinnar hafi tekist vel.
En nú vill fjármálaráðherra
þrengja enn kost embættis-
manna þeirra sem starfa á lands-
byggbinni. Leggur hann til að
komið verbi á fót nefnd sem í
eiga að sitja fulltrúar þeirra ráðu-
neyta sem hafa á sínum snærum
flesta embættisbústaði. Á hún að
gera tillögu um hvernig fækka
megi embættisbústöðum með
markvissum hætti. ■