Tíminn - 16.11.1994, Blaðsíða 8

Tíminn - 16.11.1994, Blaðsíða 8
8 wW w Miðvikudagur 16. nóvember 1994 Margar ræbur voru fluttar í afmælisveislunni. Hér er Finnbogi Eyjóifsson í Heklu, mágur Sæmundar, ab brillera ab vanda. Sæmundur sjötugur Allir þekkja þá tilfinningu að kikna í hnjáliðunum, þegar þeir koma á biðstofu bankastjóranna og biðja um viðtal. Þá er yndislegt aö tals- maður bankans sé hugulsamur öðl- ingur, sem vill allra manna vanda leysa, eins og bankastjórarnir sjálf- ir. Einn slíkur, Sæmundur Jónsson í Búnaðarbankanum, varð sjötugur um daginn og hélt uppá það með pompi og prakt í FÍH-salnum. 250 manns mættu, Signý óperusöng- kona, dóttir afmælisbarnsins, stjómaði fjöldasöng og skellti sér líka í Kattadúettinn með Elínu Ósk Óskarsdóttur óperusöngkonu, vin- konu sinni. Kvartettinn Út í voriö söng og svo voru ótal ræöur og veisluföng svo glæsileg að borðin svignuðu. ■ Sæmundur í góbra vina hópi. Frá hœgri: Afmœiisbarnib, Stefán Pálsson bankastjóri Búnabarbankans, Magnús Árnason múrarameistari, jón Cubmundsson stórbóndi ab Reykjum í Mosfellsbæ og Árni jónsson landnámsstjóri. Afmælisbarnib Sæmundur jónsson meb konu sinni, frú Svanfríbi Ingvars- dóttur. Katla fremur galdur á Baldri Mar- íussyni og klippir sparibindib hans í tvennt. Mann- lífs spegill GUÐLAUGUR TRYGGVI KARLSSON Inga Cleaver, formabur EAPS á íslandi, til vinstri, en gegnt henni situr Katla Smith Henje, veislustjórinn, og vib hlib hennar er Margrét Pétursdóttir hjá Skeljungi, þá Sigurveig Aiexandersdóttir hjá Tryggingu og vib gluggann er jóna Kristinsdóttir, lögfræbingaritari. EAPS- ritarar í stubi Hulda Halldórsdóttir: Hvab sagbi fíllinn vib bera manninn? „Þú lyftir nú ekki miklu meb þessu, væni minn." Vilborg Kristjánsdóttir kunni marg- ar góbar. Allir stórforstjórar og fram- kvæmdastjórar veraldarinnar eru fyrir löngu búnir ab upp- götva það, að án ritara síns eru þeir ekki uppá marga fiska. Sumir eru líka alfarið búnir að taka þá gáfulegu ákvörðun að fela ritara sínum dagléga stjórn fyrirtækisins, meðan þeir dunda við það ab fylla keppnislista golfsveita á ólíklegustu stöbum á jarökringlunni eða mæta á völlinn með bikarinn í keppn- inni, sem þeir fá að kosta — ut- an þess sem þeir segja brandara í laugunum eða ríða bara út. Þvílíkt veldi, sem þessir ritarar eru, hafa þær auðvitab fyrir löngu stofnað með sér alheims- samtök, EAPS — European As- sociation of Professional Secret- Sigurvegarar í vísubotnakeppninni voru jón Valdimarsson, Alma Möller og Ólafur Briem. aries — og funda þær árlega á flottustu hótelum veraldar — frítt, sem ritarinn stjórnar að sjálfsögðu. Stofnandi alþjóba- Samtakanna var heiðursgestur á árshátíð EAPS á íslandi í fyrra og hafði hún bæbi komið nálægt stjórn Atlantshafsbandalagsins og Evrópubandalagsins. Af- koma og friður sem sagt tryggð. Myndirnar eru frá árshátíbinni í ár. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.