Tíminn - 16.11.1994, Qupperneq 9
Miövikudagur 16. nóvember 1994
ÍMnði
UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND .
Davíb Oddsson í Noröurlandaráöi:
Útilokar ekki
stefnubreytingu
gagnvart ESB
Davíb Oddsson forsætisráð-
herra útilokar ekki ab ís-
lendingar kunni að skipta
um skoöun varbandi hugs-
anlega aðild ab Evrópusam-
bandi ef ríkjarábstefna ESB,
sem haldin verður 1996,
ákvebi umtalsveröar breyt-
ingar á Maastricht-samn-
ingnum, ab því er segir í frétt
frá NTB.
Þetta kom fram í ræbu sem
forsaetisráðherra flutti á þingi
Noröurlandarábs í Tromsö í
gær, en ab loknum fundi með
öðrum norrænum forsætisráð-
herrum tók hann fram að það
væri ekki tímabært fyrir ís-
lendinga að sækja um aðild að
ESB fyrr en í fyrsta lagi um
aldamót, enda gætu íslending-
ar ekki átt aðild að samband-
inu á meðan fiskveiðistefna
þess væri meb þeim hætti að
þeir hefbu ekki síðasta orðið
um stjórnun fiskveiða á sínum
eigin miðum.
Davíð Oddsson lýsti þeirri
skoöun sinni að fiskveiði-
samningurinn sem Norðmenn
hefbu gert við Evrópusam-
bandið stæðist ekki kröfur ís-
lendinga, en af því tilefni tók
Gro Harlem Brundtland, for-
sætisráðherra Noregs, fram að
Norðmenn hefðu að sjálf-
sögðu ekki gert neinn fisk-
veiðisamning á þeirri forsendu
að fiskveiðistefna Evrópusam-
bandsins ætti að gilda á norð-
urslóðum. Poui Nyrup Rassm-
ussen, forsætisráðherra Dan-
merkur, tók undir þetta sjón-
armið og lagði áherslu á að
ESB legði það ekki í vana sinn
að ganga gegn því sem bundið
væri í samninga, enda hefði
engin tilraun verið gerð til
þess að hrófla við þeim fisk-
veiðisamningum sem Danir
hefðu gert við sambandið fyrir
22 árum. ■
Ný norrœn efnahagsskýrsla:
Kreppunni lokið
á Norðurlöndum
Tromsö - Reuter
Norðurlöndin fimm eru kom-
in upp úr efnahagskreppunni
og eru nú á miðju skeibi efna-
hagsbata sem líklega mun
standa til loka ársins 1995,
segir í nýrri skýrslu sem kynnt
var á þingi Norðurlandaráðs í
Tromsö í gær.
í ár er innanlandsframleiðsl-
an í löndunum fimm að með-
altali 3.5% á þessu ári, sem er
hærra en mebaltalið í OECD-
ríkjunum. Efnahagsbatinn á
íslgndi verður þó hægari en
meðaltal hinna Noröurland-
anna gefur til kynna. í skýrsl-
unni er gert ráð fyrir því að þar
sé um að kenna aflabresti.
Skýrslan gefur til kynna að
innanlandsframleiðslan á
Norðurlöndunum muni
minnka örlítiö á næsta ári frá
því sem veriö hefur 1994, eba
um 0.1%.
Þab er Norðurlandaráð sem
lét vinna þessa skýrslu þar sem
efnahagsbatinn í Danmörku
og Noregi er að hluta til skýrb-
ur með vaxandi eftirspurn
innanlands, á meðan hag-
stæður greiðslujöfnuður við
útlönd er talinn ein meginfor-
senda efnahagsbata á Íslandi,
Svíþjóð og Finnlandi.
Gert er ráð fyrir að verð-
bólga muni aukast dálítið á
Norðurlöndunum á næsta ári,
jafnhliða þessum efnahags-
bata. Þannig er spáb 2.5%
mebaltalsverðbólgu árið 1995
en í ár hefur hún ekki verið
nema 1.8%
Tekið er fram í skýrslunni að
þótt dregib hafi úr hallarekstri
í ríkisbúskap á öllum Norður-
löndunum í ár sé þó hvergi
nærri nóg að gert. Það skipti
meginmáli að áframhald verði
á þeirri þróun, svo og því ab
aukin áhersla verði lögð á þab
ab grynnka á skuldum innan-
lands og utan.
Á Norðurlandaráösþingi var
það samdóma og yfirlýst álit
fjármálaráðherranna ab naub-
synlegt væri að fylgja efna-
hagsstefnu þar sem opinber-
um útgjöldum væri haldið í
skefjum og verðbólgu þaldið
niðri, enda væri ekki hægt að
draga úr atvinnuleysi með
öðru móti. Reyndar er spáð
minnkandi atvinnuleysi á
Norðurlöndunum á næsta ári,
þannig að það verði 9.5% að
meðaltali í stað 10.7% nú. ■
Konur
fá frekar
krabba
Lundúnum - Reuter
Konur eru líklegri en karlar til að
fá lungnakrabbamein af völdum
tókbaksreykinga. Þetta er niður-
staða rannsóknar breskra og
norskra vísindamanna sem birt
var í gær. David Phillips sem
stjórnaði rannsókninni lét þess
getið er niðurstaðan var kynnt að
áður heföu legið fyrir upplýsingar
frá Bandaríkjunum sem bent
hefðu til þess að lungnakrabbi af
völdum reykinga væri helmingi
líklegri hjá konum en körlum, en
rannsóknin nú sannaði að sú til-
gáta væri rétt.
Rannsóknin grundvallast á
DNA-rannsóknum úr lungum
63ja krabbameinssjúklinga. í tób-
aksreyk er vitað um amk. 40
krabbameinsvaldandi efni, en
reykurinn hefur skaðleg áhrif á
erföaefnið í frumunum. Þetta er
löngu vitaö en nú hefur verið sýnt
fram á að hjá konum er erfðaefniö
viðkvæmara fyrir tóbaksreyk. Ekki
liggur fyrir af hverju þetta stafar,
en grunsemdir beinast nú einkum
að svonefndu PAH-efni, eínu
hinna þekktu krabbameinsvald-
andi efna sem er aö finna í tób-
aksreyk. ■
HÚSBY GG JENDUR
Þeim húsbyggjendum, sem þurfa á rafmagnsheim-
taug að halda í hús sín í velur, er vinsamlegast bent
á að leggja inn umsókn um hana sem allra fyrst til
þess að unnt sé að leggja heimtaugina áður en frost
er komið í jörðu.
Gætið þess að jarðvegur sé kominn í sem næst rétta
hæð, þar sem heimtaug verður lögð, og að uppgröft-
ur að húsgrunni, byggingarefni eða annað hindri
ekki lagningu hennar.
Heimtaugar verða ekki lagðar ef frost er komið i
jörðu, nema gegn greiðslu þess aukakostnaðar sem
af því hlýst.
Jafnframt bendir Rafmagnsveitan á að inntakspípur
heimtauga fyrir einbýlis- og raðhús skulu ná út fyr-
ir lóðamörk.
Nánari upplýsingar eru gefnar á heimtaugaaf-
greiðslu Rafmagnsveitunnar, Suðurlandsbraut 34, í
síma 604686.
RAFMAQNSVEITA
REYKJAVIKUR
Bandarísku forsetahjónin
gera nú víbreist um Austurlönd fjær. Á meöan forsetinn sat á
rökustólum í Bogor í Indónesíu um aukna efnahagssamvinnu brá
frú Hillary sér í skoöunarferö í heilsugœslustöö og hampaöi þar
þessau pattaralega barni.
Útboö
Póstur og sími óskar eftir tilboöum í landpóst-
þjónustu frá póst- og símstööinni Fagurhóls-
mýri.
Afhending útboösgagna fer fram hjá stöövar-
stjóra, póst- og símst'ööinni Fagurhólsmýri, frá
og meö 16. nóvember 1994, gegn 2.000 kr.
skilatryggingu.
Tilboöum skal skilaö á sama staö eigi síöar en 7.
desember 1994 kl. 12.00. Tilboö veröa opnuö
sama dag kl. 13.00 á póst- og símstööinni Fag-
urhólsmýri, aö viöstöddum þeim bjóöendum,
sem þess óska.
Réttur er áskilinn til aö taka hvaöa tilboöi sem er
eöa hafna öllum.
PÓSTUR OG SÍMI
Póstmálasviö — 150 Reykjavík
FAXNUMERIÐ
ER 16270
mmm
AIIHÍWEItD. EIMSMIKIL «(,
SKEMMTILEfi BÓK Á LÁ6MARKSVERDI
Sendiherra á sagnabekk
eftir dr. Hannes Jónsson
fv. sendiherra.
Segir frá innlendum og
erlendum mönnum og mál-
efnum úr reynsluheimi
höfundar á löngum ferli
diplómatsins. Full af fróð-
legum og skemmtilegum
frásögnum. Hulunni flett af
utanríkisþjónustunni og
ævintýrum landans, sem
leitar til sendiráðanna vegna
ótrúlegustu vandamála
og klandurs.
Akraseli 22 -109 Reykjavík - Sími 75352