Tíminn - 16.11.1994, Qupperneq 13

Tíminn - 16.11.1994, Qupperneq 13
ffirmvn 13 Mibvikudagur 16. nóvember 1994_ || FRAMSÓKNARFLOKKURINN Fundarbob Framhaldsaöalfundur Framsóknarfélags Mýrasýslu ver&ur haldinn 16. nóvember í húsnæbi félagsins a& Brákarbraut 1, í Borgarnesi. Fundurinn hefst kl. 20.30. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: 1. Fundur settur. 2. Skýrsla gjaldkera. 3. Skýrsla húsrá&s. 4. Lagabreytingar. 5. Kosningar í stjórn. 6. Kosningar á kjördæmisþing. 7. Kosningar á flokksþing. 8. Önnur mál. Formaöur Framsóknarfélogs Mýrasýslu Fundur stjórnar SUF og formanna FUF-félaga Ákve&i& hefur verib ab halda sameiginlegan fund stjórnar Sambands ungra fram- sóknarmanna og formanna FUF-félaga á skrifstofu Framsóknarflokksins ab Hafnar- stræti 20, Reykjavík, næstkomandi laugardag 19. nóvember kl. 17.15. Dagskrá: 1. Undirbúningur flokksþings. 2. Samstarf FUF-félaga og SUF. ^ 3. Önnur mál. 4. Léttar æfingar. Framkvcemdastjórn SUF Mibstjórnarfundur SUF Næsti fundur mibstjórnar Sambands ungra framsóknarmanna ver&ur haldinn föstu- daginn 25. nóvember n.k. á Hótel Sögu í Reykjavík. Nánar auglýst sí&ar. Framkvcemdastjórn SUF 23. flokksþing framsóknar- manna 23. flokksþing framsóknarmanna ver&ur haldib á Hótel Sögu, Reykjavík, dagana 25.- 27. nóvember 1994. Um rétt til setu á flokksþingi segir í lögum flokksins eftirfarandi: 7. grein. Á flokksþingi framsóknarmanna eiga sæti kjörnir fulltrúar flokksfélaga. Hvert flokks- félag hefur rétt til a& senda einn fulltrúa á flokksþing fyrir hverja byrja&a þrjá tugi fé- lagsmanna. Fulltrúar skulu þó aldrei vera færri en 1 fyrir hvert sveitarfélag á félags- svæbinu. jafnmargir varamenn skulu kjörnir. 8. grein. Á flokksþinginu eiga einnig sæti mi&stjórn, framkvæmdastjórn, þingflokkur, for- menn flokksfélaga og stjórnir LFK, SUF og kjördæmissambanda. Dagskrá þingsins ver&ur auglýst sí&ar. FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ Húsnæði óskast Ríkissjóður leitar eftir kaupum á 550-600 m2 skrifstofuhús- næbi í Reykjavík. Æskilegt er aö húsnæðib sé á einni til tveimur hæbum í gamla mibbænum eba næsta nágrenni. Tilbob, er greini stabsetningu, stærb, byggingarár og - efni, brunabóta- og fasteignamat, afhendingartíma og söluverb, sendist eignadeild fjármálarábuneytisins, Arnar- hvoli, 150 Reykjavík, fyrir 25. nóvember 1994. Fjármálarábuneytib, 15. nóvember 1994. UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ Staða veiöistjóra Laus er til umsóknar staba veibistjóra skv. 4. gr. laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veibar á villtum fuglum og villtum spendýrum, meb aðsetur á Akureyri. Staban veitist frá og með 1. febrúar 1995. Embætti veiöi- stjóra hefur umsjón meb og stjórn á þeim aðgerbum af opinberri hálfu, sem ætlab er ab hafa áhrif á stofnstærb og útbreibslu villtra dýra eða tjón af þeirra völdum. Embættib sér um útgáfu veiðikorta og endurskoðun reikninga vegna kostnabar vib refa- og minkaveibar. Þab birtir árlega yfirlit um veiðar á fuglum og spendýrum og stundar hagnýtar rannsóknir á villtum dýrum í samvinnu við aðrar stofnanir skv. ákvæbum laga. Veibistjóri skal vera líffræbingur með sérþekkingu sem nýtist honum í starfi. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf, þ.á m. vísindastörf, sendist ráöuneytinu fyr- ir 8. desember nk. Nánari upplýsingar fást í rábuneytinu. U m hve rf isrábu neytib. Vansœla ríka stúlkan, sem fann loks hamingjuna: Gloria Vanderbilt „Aumingja litla ríka stúlkan" var hún kölluð. Þrátt fýrir ab vera erfingi einna mestu auð- aefa í Ameríku, gætti þess ekki í uppvexti hennar. Klæðnaður hennar var fá- brotinn, minnti á engan hátt á þann lúxus sem umlukti hana á allar hliðar. Gloria sá kampavínið flæða og kavíar- inn borinn fram, en hún bragðaði ekki á krásunum og ástríki móður hennar var af skornum skammti. Hún vog- abi sér varla að snerta á skart- klæðum móður sinnar, af ótta við ab aflaga eða óhreinka eitthvað. Svo byrjaði slagurinn um forræði yfir litlu stúlkunni. Frænka Gloriu, sem hún hafði búib hjá um tíma, vildi veita henni meiri og betri umhyggju en hin kaldlynda móðir hennar, Gloria Morg- an Vanderbilt, sýndi henni. Réttarhöldin vöktu heimsat- hygli. Fólk vorkenndi Gloriu og samúðin var öll hennar megin. Frænkan sigraði í átökunum. Gloria varð ham- ingjusöm og fékk að búa hjá frænku sinni áfram. Frænkan var í sigurvímu, móbirin var niðurbrotin. Um tíma var litla ríka stúlkan gleymd. En bara um tíma. Þá flytur hún aftur til móður sinnar. Þegar Gloria fer ab fara „út á lífið", fer út ab borða með þekktum mönnum, verður hún aftur á forsíðum allra stórblaðanna. Svo taka við hjónaböndin, hvert á fætur öðru. Þau báru frekar merki örvinglunar en hamingju. í endurminn- ingum sínum segir hún, að móðir sín sé eina mann- eskjan sem hún hafi elsk- að. Það segir alla söguna um eigin- menn hennar. Þab átti þó eftir að slettast upp á vinskap dóttur og móður um tíma, en Glor- ia fann sér aft- ur tilgang í líf- inu og sneri sér nú ab fata- framleiðslu og náði langt á þeirri braut, ásamt ritstörf- um. Og með góðum ár- angri. Hún sættist við móður sína og varð ham- i n g j u s ö m . Naut auðæf- anna, þrátt fyrir allt. C loria Vanderbilt. Jeanne Calment er 119 ára og Elsta kona í heimi „ Eitt sherryglas og smá súkkulabibita verb ég ab fá mér á hverjum degi. En ég er alveg hœtt ab reykja." Hún var fædd í Arles í Subur- Frakklandi 21. febrúar 1875. Átti vel stæða foreldra. 21 árs giftist hún Ferdinand, sem var þre- menningur við hana að skyld- leika. Hjónin ráku vefnaðarfyrir- tæki og gerðu það gott. Við- skiptavinirnir voru margir og tryggir. Meðal þeirra var hinn þekkti listmálari Vincent van Gogh. Jeanne og Ferdinand áttu bara eina dóttur, Yvonne, en hún dó 36 ára gömul. Barnabarn Jeanne var þekktur háls-, nef- og eyrna- læknir; hann lést í bílslysi 43 ára gamall. Jeanne hefur lifað alla sína ættingja og vini og á enga afkomendur á iífi. Ótrúlegt en satt, hefur hún búið ein þar til hún var 110 ára gömul. Þá gat læknirinn hennar fengið hana til að flytjast á elliheimili. 114 ára gömul fótbraut hún sig, þeg- ar hún var vib leikfimisæfingar, og þurfti að fara í skurðaðgerö. Nú er hún næstum blind og heyrnarlaus, en heilinn er í lagi og kímnigáfa hennar með ólík- indum. Þegar hún fer á fætur á morgnana, veit hún alveg í hvaða kjól hún vill fara í, og eins og margar konur hefur hún mikib dálæti á skóm. Hún þarf hjálp við að borða, hefur ágæta matarlyst og þarf ekki sérStakt fæði. í SPEGLI TÍMAJMS Lyfseöill Jeanne fyrir löngu lífi Hún ólst upp við góðan og næringarríkan mat á þeim árum sem margir voru vannærðir, og segir að hún hafi algjörlega komist hjá „stressi". Það er lík- lega alveg rétt hjá henni, segir læknirinn hennar, dr. Victor Lie- bre, sem stjórnar deildinni á elli- heimilinu sem Jeanne dvelur á og sem hefur fengið nafnið: „Je- anne Calments deild". Að lokum hefur Jeanne þetta að segja: „Ég hefi lifaö alla sem mér þótti vænt um. Þaö hafa verið góbar og vondar stundir, en ég hefi ekki kvartað. Ég ætla að bera höfuöið hátt til hinstu stundar." Þess má geta að !ok- um, að aldursmetið hingað : á Japani. Hann dó 1985, þ£ 120 ára gamall. Það met gæti Jea ■ ne komið til með að slá. ■

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.