Tíminn - 17.11.1994, Page 2

Tíminn - 17.11.1994, Page 2
2 tfhtftmi Fimmtudagur 17. nóvember 1994 Tíminn spyr... Gubmundur). Gu&mundsson, formaöur Dagsbrúnar, segist ef- ast um ab heilbrigbisstéttir eigi a& hafa verkfallsrétt. Ertu sam- mála því? Ásta Möller, forma&ur Félags íslenskra hjúkrunarfræb- inga „Nei, ég er ekki sammála því. Hins vegar er alveg ljóst aö heilbrigöis- stéttir hafa mjög takmarkaöan verkfallsrétt, bæöi lagalega og siö- feröislega. Siöareglur þeirra setja þeim þær skoröur aö þær mega ekki ganga á rétt skjólstæöinga sinna og einmitt þess vegna er verkfallsrétt- urinn mjög vandmeöfarinn. Þaö hefur samt sýnt sig undanfarin ár aö verkföll hafa veriö eina leiö heil- brigöisstétta til aö ná fram bættum kjörum, sem mér finnst í raun sorg- legt. Þaö á reyndar ekki viö um hjúkrunarfræöinga núna, en hefur átt viö um þá áöur." Edda Sóley Óskarsdóttir, forma&ur Meinatæknafélags íslands „Nei, ég algerlega ósammála því aö blanda verkfallsrétti heilbrigöis- stétta inn í umræöu um kjaradeilur sjúkraliöa núna og meinatækna fyrr á þessu ári. Þaö á hins vegar aö viröa samningsrétt stéttarfélaga og semja viö þessar stéttir um þannig kjör aö þær þurfi ekki aö beita því neyöarvopni sem þær hafa meö verkfallsréttinum." Ögmundur Jónasson, forma&ur BSRB „Verkfallsréttur er alltaf vandmeð- farinn. Sérstaklega er hann vand- meðfarinn á sjúkrahúsum, vegna þess að harövítugar vinnudeilur þar bitna á þeim sem síst skyldi. Ég legg ekki allar vinnudeilur á sjúkra- stofnunum að jöfnu. í þeirri vinnu- ' deilu, sem nú stendur, hvílir ábyrgðin á viðsemjendum sjúkra- liöa, aö mínu mati. Þess vegna spyr ég á móti hvort það sé forsvaran- legt aö fylgja launastefnu sem leið- ir af sér verkföll og vinnudeilur á sjúkrastofnunum. Mitt svar er að það sé ekki forsvaranlegt." Hvernig standa framboösmál flokkanna? Alþýöuflokkurinn: Áhugaleysi og deyfð einkenna flokksstarfið Alþý&uflokkurinn hefur fram til þessa líti& huga& a& fram- boösmálum sínum — nema a& um helgina veröur há& einvígi þeirra Gísla S. Einarssonar al- þingismanns frá Akranesi og Sveins Þórs Elinbergssonar skólastjóra í Ólafsvík. Þab eru fyrstu abgerbir krata í fram- bo&smálunum. í ö&rum kjör- dæmum er þó fariö a& rae&a nokkub frambo&smálin og hvernig haga skal ákvöröunum um framboöslista. Ljóst er aö prófkjör veröa fá, rnest mun mæða á kjördæmisráð- um flokksins viö uppstillingar. Menn eru rólegir á krataheimilinu — en það hafa þeir reyndar veriö áður. Sjálfstæðismenn eru manna fyrstir til að ganga frá málum sín- um, og leyfa síöan prófkjörssár- unum aö gróa í ró og spekt. Alþýöuflokkurinn er um þessar mundir í sárum. Fjölmiölaum- ræöa um meinta siöblindu ein- stakra ráðherra hans hefur lamaö flokkinn, að ekki sé talað um brotthvarf Jóhönnu Sigurðardótt- ur úr þeirra röðum. Skoöanakann- anir að undanförnu benda til verulegs fylgishruns flokksins og svo viröist sem hann sé rúinn trausti hins almenna kjósanda, en fiokkshestarnir einir eftir. Mikil deyfö er yfir framboösmálum flokksins og innra starfi og ljóst aö fólk laöast ekki beint aö flokknum, hvorki til aö taka þátt í framboðum hans né heldur til aö kjósa hann. Fátt eitt nýrra val- kosta viröist því framundan hjá Alþýðuflokknum í framboðsmál- unum. Reykjavík: Sí&asta prófkjör fauk út í buskann „Þaö verður gert, við förum í prófkjör. Það eru lög flokksins að viðhafa skuli prófkjör," sagbi Pét- ur Jónsson, borgarfulltrúi Reykj- avíkurlistans og formaöur kjör- dæmisráðs Alþýðuflokksins í Reykjavík. Hann segir aö flokkur- inn sé ekki síðar á feröinni meö I-----ÖOGG!----------------- framboðsmálin en áður. Síbast hafi prófkjör fyrir alþingiskosn- ingar farið fram í febrúar. Það prófkjör fauk reyndar út í busk- ann, því eitthvert mesta aftaka- veöur sem menn muna, gerði þennan prófkjörsdag áriö 1991, og varla fært á milli húsa daginn þann. Pétur sagöi aö menn færu sér í engu óðslega, nægur tími væri framundan til að koma á fót öfl- ugum framboðslista í höfuðborg- inni. Tíminn hefur þaö eftir góð- um heimildum í flokknum að prófkjörið í Reykjavík veröi hald- iö fljótlega upp úr áramótum og aö það verði þá opið flokksfélög- um og þeim sem undirrita stuön- ingsyfirlýsingu við flokkinn, rétt eins og Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur gert. Pétur sagði ekkert endan- lega ákveðið í þessum efnum. Víst má telja að Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisrábherra muni stefna aö endurkjöri í efsta sæti listans, og ugglaust mun þaö ganga eftir. Össur Skarphéöinsson umhverfisráðherra er líka sagöur stefna hátt, og mun ekki taka því illa að fá kosningu í fyrsta sætiö, sæti formannsins. Taliö er ljóst aö þessir tveir muni halda stöðu sinni á listanum. Reykjanes: Árni e&a Rannveig? Ákveöiö hefur veriö aö efna til prófkjörs seinni hlutann í janúar. Þar mun fara fram baneitruð keppni fyrrverandi og núverandi félagsmálaráöherra, þeirra Guð- mundar Árna Stefánssonar og Rannveigar Guðmundsdóttur, sem bæði munu stefna á fyrsta sæti listans. Alþýðuflokksmenn í kjördæm- inu líta sumir svo á aö Guðmund- ur Árni muni glansa gegnum prófkjöriö. Hann hafi bak viö sig mun öflugri stuðningsmenn en Rannveig. Afsögn Guðmundar Árna úr ráöherraembætti með svo dramatískum hætti hafi líka skap- að honum samúðarfylgi, sem nái ekki aðeins til Hafnarfjarðar, held- ur vítt og breitt um kjördæmiö. Petrína Baldursdóttir er orðub viö þribja sæti listans í Reykjanesi og talin eiga góða möguleika á að hreppa þaö sæti. Enn sem komið er hafa ekki fleiri nöfn heyrst nefnd. Hins vegar telja margir ljóst aö ýmsir úr röðum Reykjaneskrata munu styðja væntanlegan stjórn- málaflokk Jóhönnu Siguröardótt- ur, og það á viö um flokkinn um allt land. Fyrrverandi frambjóð- endur flokksins munu án efa skreyta lista Jóhönnu, þegar þar ab kemur. Vesturland: Gísla S. spáö sigri Tveir vinsælir kratar á Vestur- landi keppa um helgina í próf- kjöri, þeir Gísli S. Einarsson og Sveinn Þór Elinbergsson, eins og fyrr greinir, báðir góðir menn og gegnir. Fyrir skólastjórann úr Ol- afsvík er þó á brattann aö sækja, og talið meira en líklegt að þing- maburinn fari meö sigur af hólmi, enda oft erfitt aö fella þingmann — sérstaklega þegar hann kemur úr góðu kratabæli, sem Akranes veröur aö teljast vera. En sigur Gísla kann þó aö veröa sýnd veiði. Ekki er líklegt, sam- kvæmt skoðanakönnunum, aö Alþýöuflokkurinn fái kjörinn þingmann í þessu kjördæmi. Flokkurinn er nánast aö mást út á landsbyggðinni. Vestfiröir: Sighvati stillt upp Ef nokkuð er víst í tilverunni, þá er þaö sú staðreynd aö kjör- dæmisráö mun senn stilla Sig- hvati Björgvinssyni upp í fyrsta sæti listans á Vestfjöröum. Pétur Sigurösson verkalýðsforingi er ekki talinn líklegur til framboðs fyrir Alþýöuflokkinn. Fremur muni hann styðja Jóhönnuflokk- inn, en innanborðs í honum eru Siguröur Pétursson, sonur Péturs, og Ólína Þorvaröardóttir, tengda- dóttir hans. Ekki hafa nein nöfn heyrst sem vilja fá annaö sætiö. Nor&urland vestra: Einvígi um vonleysi Ljóst er aö fyrsti maöur krata á Norðurlandi vestra mun eiga sára- litla möguleika á aö komast ná- lægt Alþingi, nema helst á áhorf- endapallana. Engu aö síöur er þarna gert ráö fyrir prófkjöri — eöa uppstillingu. Það veröur ákveöið í byrjun næsta mánuðar. Tveir keppa um fyrsta sætið, þeir Kristján Möller á Siglu- firði og Jón Hjartarson, skólastjóri á Sauðárkróki. Jón Sæmundur Sig- urjónsson, efsti maöur á listanum síöast, fallkandídat, er nú yfirlýst- ur stuöningsmaður Jóhönnu. Nor&urland eystra: Sigbjörn í fyrsta Kjördæmisþing um næstu helgi mun ákveöa hvort fram fer próf- kjör eða uppstilling. Síðast var prófkjör, sem skapaði mikiö erg- elsi. Sigbjörn Gunnarsson alþing- ismaöur er talinn öruggur um fyrsta sætiö, enda vaxandi þing- maöur. Nú er leitað aö konu hon- um við hlið á listanum. Austurland: Allt vi& þaö sama Séra Gunnlaugur Stefánsson er öruggur sem krataleiðtogi á Aust- urlandi, þegar stillt verður upp í kjördæminu. Óvænt kom flokkur- inn manni á þing í því kjördæmi síðast. Dvínandi fylgi flokksins gerir þó áframhaldandi þingsetu Heydaiaklerksins næsta ótrúlega. Þó mun hann njóta vinsælda í kjördæmi sínu. Abrir, sem oröabir eru við toppsæti, eru Hermann Níelsson, íþróttaleiötogi á Egils- stööum, og verkalýösleiðtoginn Eiríkur Stefánsson á Fáskrúösfirði. Su&urland: Hljótt um framboö Fátt eitt hefur heyrst frá fá- mennum hópi krata í Suöurlands- kjördæmi. Bændur á Suöurlands- undirlendinu eru lítt hrifnir af Evrópusinnuöum krötum, en helst mun nú leitaö aö frambæri- legum manni í efsta sætiö í Vest- mannaeyjum. Þá kemur án efa upp nafn Guðmundar Þ.B. Ólafs- sonar æskulýðsleiðtoga, sem nýt- ur mikilla vinsælda langt út fyrir sinn litla flokk. ■ JU, /WÐVITAÐ TEKURGUÐ- RÚN V/Ð. HÚN FÆR S£R BFRF) SlÆÐU OG K//NN- SK! NVJ/) HARGRE/ÐSL U.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.