Tíminn - 17.11.1994, Side 3
Fimmtudagur 17. nóvember 1994
3
Frœösluátakiö INN - lönaöur, nemendur og nýsköpun meöal 14 ára grunnskólanemenda í borginni:
Nýstárlegt fræbslu-
átak í ibnmenntun
Nýstárlegt fræösluátak um ibn-
menntun meðal grunnskóla-
nema í höfuöborginni var kynnt
í gær. Átakiö er liöur í því aö
bæta iönfræöslu 14 ára grunn-
skólanema og vinna aö breytt-
um viöhorfum þeirra til iönaö-
arins. Þaö eru Fræösiuskrifstofa
Reykjavíkur, Skólamálaráö, Afl-
vaki, Samiön og Samtök ibnab-
arins sem standa sameiginlega
ab þessu átaki.
Markmiö og tilgangur þessa
átaks er aö breyta viöhorfum ungs
fólks til iönnáms og iönaðarstarfa
meö áherslu á nýsköpun og fjölg-
un atvinnutækifæra. Átakið nær
ekki aðeins til nemenda heldur er
því ekki síður beint til foreldra og
annarra sem hafa áhrif á skoðana-
myndun ungs fólks.
Á blaðamannafundi í gær kom
m.a. fram aö aðeins 32% af ungu
fóiki fer í verknám á meðan þetta
hlutfall er allt uppí 70% í Þýska-
landi og í öörum nálægum lönd-
um. Áhersla var jafnframt lögð á
gildi iönmenntunar, atvinnu-
möguleika og að iðnmenntaðir
einstaklingar fá einatt mun betri
laun en þeir sem ljúka námi í há-
skólum og vinna hjá hinu opin-
bera. Meöal annars var bent á aö
mánaðarlaun rafiðnarmanna séu
150 þúsund krónur, samkvæmt
því sem fram kemur hjá Kjara-
rannsóknarnefnd.
Iönfræðsluverkefniö INN, þ.e.
iðnaður, nemendur og nýsköpun
felur í sér keppni annars vegar og
fræöslu um iðnaö og iönfyrritæki
hinsvegar.
Til aö byrja meö munu fjórir
grunnskólar í höfuðborginni taka
pátt í sérstöku iönfræösluverkefni,
en þaö eru Álftamýrarskóli, Voga-
skóli, Fellaskóli og Tjarnarskóli.
Þessir skólar munu fá afhent
fræöslugögn um iðnaö og þeim
veröur úthlutað iönfyrirtækjum til
samstarfs. Þá hefur Kassageröin út-
búiö sérstaka tösku undir göngin
sem einnig veröa send á bókasöfn
annarra grunnskóla.
Auk iönfræöslunnar veröur efnt
til hugmyndasamkeppi meöal
allra 14 ára grunnskólanema í
borginni. í þeirri keppni geta nem-
endur sent inn hygmynd um nýja
vöru til að framleiða eöa hug-
mynd sem kemur iönaði almennt
til góða.
Þótt þetta átak sé bundiö viö
höfuðborgina til aö byrja meö, þá
er stefnt aö því aö grunskólanemar
á landsbyggðinni fái einnig aukna
fræöslu um iðnmenntun, þótt síö-
ar verði. ■
Borgarráö:
Átak um bætt
viöhald húsa
Borgarráð hefur samþykkt aö
beita sér fyrir átaki um bætt
vibhald húsa í borginni.
Átakiö á að þjóna þeim þrí-
þætta tilgangi að skapa aukna
atvinnu, fegra ásjónu borgar-
innar og hvetja til aukinnar
notkunar innlendra byggingar-
efna. Ráðgert er að leita sam-
starfs við ýmis samtök sem mál-
ið er skylt, svo sem Samtök iðn-
aðarins, Húseigendafélagið,
Samiðn og Arkitektafélagið.
Meðal annars á að huga að auk-
inni kynningu og fræðslu á inn-
lendum byggingarefnum og
gildi þess að viðhalda uppruna-
legu svipmóti húsa. Þá á ab leita
leiða til ab auðvelda einstak-
lingum að fjármagna endur-
bætur á eldra húsnæði í gegn-
um Húsnæðisstofnun ríksins
eða með öðrum hætti.
Framsóknarmenn á Noröurlandi eystra:
Framboð ákveðið
10. desember
Frá Þórbi Ingimarssyni, Akureyri:
Ákveðið hefur verið aö efna til
aukakjördæmisþings framsóknar-
manna í Noröurlandskjördæmi
eystra 10. desember næstkom-
andi. Verkefni þingsins verður að
velja fólk á framboðslista fram-
sóknarmanna í kjördæminu fyrir
komandi alþingiskosningar, en
eins og komið hefur fram felldi
kjördæmisþing framsóknar-
manna, sem haldið var á dögun-
um, tillögu um að viöhafa próf-
kjör í kjördæminu. Samkvæmt
sérstökum reglum um tilnefning-
ar og prófkjör framsóknarmanna í
Norðurlandskjördæmi eystra eiga
fulltrúar á kjördæmisþingi, ásamt
tveimur varamönnum fyrir hvern
fulltrúa, sæti á aukakjördæmis-
þinginu, þannig að alls munu um
200 manns taka þátt í vali á list-
ann.
Á kjördæmisþinginu 10. desem-
ber næstkomandi veröur kosið
um sjö efstu sæti listans á þann
hátt aö fyrst verður kosið um þá,
er gefa kost á sér í fyrsta sætið, og
síðan veröur kosiö á sama hátt um
hvert sæti af öbru. Kosning kjör-
dæmisþingsins er bindandi fyrir
þessi sjö efstu sæti. Núverandi
þingmenn Framsóknarflokksins í
Norburlandskjördæmi eystra eru
Gubmundur Bjarnason, Valgerð-
ur Sverrisdóttir og Jóhannes Geir
Sigurgeirsson og er gert ráö fyrir
að þau muni öll sækjast eftir sæti
á framboðslistanum. Eins og fram
hefur komið, fækkar þingsætum í
kjördæminu um eitt vegna bú-
setubreytinga og miðað við það
má gera ráð fyrir ab þriðja sæti
framsóknarmanna falli út af þingi
í komandi kosningum.
Bókmenntaverölaun Tómasar Guömundssonar:
9 '
Bryndís Gunnarsdóttir meö barnabörnum sínum, Kristínu 8 ára og Brynjari 5 ára.
Tímamynd: CS
Verður úthlutab
annab hvert ár
Breytingar á úthlutunarreglum
vegna bókmenntaverölauna
Tómasar Guömundssonar hafa
verið samþykktar í borgarráði.
Helstu breytingamar eru þær að
hér eftir veröur verðlaununum út-
hlutað annað hvert ár, næst árið
1996. Skipan dómnefndar er einnig
breytt ab því leyti ab ekki er gert ráð
fyrir tilnefningu frá Almenna bóka-
félaginu. Tími dómefndar til að
ljúka störfum er jafnframt rýmkað-
ur. Þá er gert ráð fyrir að útgáfurétt-
ur verðlaunahandrits verði í hönd-
um höfundar eða þess forlags sem
hann ákveður.
Bókmenntaverðlaun Tómasar
Guðmundssonar eru veitt fyrir
óprentað skáldverk frumsamib á ís-
lensku, þ.e. skáldsögu, smásagna-
safn, ljóðabók eða leikrit.
Jafnréttisumrœöan hefur ekki breytt því hvernig börn leika sér:
Strákar í bíló,
stelpur í mömmó
Leikir átta ára barna eru mjög
misjafnir eftir kynjum. Tölvuleik-
ir og bílaleikir eru vinsælustu
strákaleikirnir en stelpur leika sér
frekar í barbíleik og mömmuleik.
Þetta er mebal niburstabna könn-
unar Bryndísar Gunnarsdóttur,
Útflutningur á vatni Thorspring til Bandaríkjanna gengur vel:
Óska eftir lind og
frá Vatnsveitunni
lögn
Stjórn Þórsbrunns hf. hefur snúib
sér til borgarstjórnar Reykjavíkur
og óskab eftir ab hlutur Vatn-
sveitu Reykjavíkur í fyrirtækinu
verbi aukinn.
Vegna nýrra laga í Bandaríkjun-
um um hvab kalla má lindarvatn
þarf að tappa vatninu á mjög nálægt
opinni uppsprettu. Vatnsöflun þarf
einnig ab vera aðskilin frá mann-
virkjum Vatnsveitu Reykjavíkur. Fer
fyrirtækið fram á að Vatnsveitan
auki hlut sinn í fyrirtækinu í 20% og
leggi fram lind og lögn samtals að
verðmæti 35 milljónir króna. Ár-
angur í markaðssetningu Thor-
spring-vatns frá íslandi hefur gengiö
vel í Bandaríkjunum, þar er mark-
aðshlutdeildin 12% í Chicago og
13,3 í Indianapolis. Langtímamark-
miöið er ab selja um öll Bandaríkin
og ná 5% markabshlutd. í vatnssölu.
Tilmæli Þórsbrunns fara fyrir stjórn
Veitustofnunar til afgreiðslu. ■
kennara vib Kennaraháskóla ís-
lands, á barnamenningu átta ára
íslenskra barna.
Könnunin var gerb árin 1988 og
1991 og lögð fyrir átta ára börn í
sextán skólum víðsvegar um land-
ið, en niðurstöður voru m.a. kynnt-
ar í erindi á málþingi um barna-
menningu á dögunum.
Niðurstaðan varðandi leiki barn-
anna er mjög afgerandi eftir kynj-
um. Flestir drengjanna segjast oft-
ast fara í tölvuleik þegar þeir eru
einir heima og næstflestir í bílaleik.
Flestar stúlkurnar leika sér hins veg-
ar í barbíleik og næstflestar lesa sér
til ánægju. Sumt af því sem börnin
nefna er sameiginlegt, t.d. að
teikna, spila, leggja kapal og horfa á
sjónvarp.
Annab er algerlega kynbundið
t.d. segist enginn drengur lita eða
fara í barbíleik eða mömmuleik og
enginn stúlknanna segist leika sér
oftast með Transformers eða Action
Force sem er hvorttveggja á lista
drengjanna. Bæði kynin nefna
tölvuleiki, en helmingi fleiri strákar
en stúlkur.
Uppáhalds leikföng barnanna
eru í samræmi við þá leiki sem þau
leika sér helst í. Þannig finnst
drengjunum skemmtilegast að leika
sér ab bílum, tölvum og að hjóla en
barbídúkkur, hjól og dúkkur eru í
þremur efstu sætunum hjá stúlkun-
um.
Útileikir virðast ekki vera jafn
kynbundnir og innileikir. Þó er fót-
bolti langvinsælastur hjá strákum
en hann lendir í fimmta sæti hjá
stelpunum. Næst flestum strákum
finnst skemmtilegast að hjóla og
eltingaleikur er í þriðja sæti hjá
þeim. Hjá stelpunum eru þrír vin-
sælustu leikirnar að hjóla, sippa og
snú snú og eltingaleikur er í fjórða
sæti. Enginn strákur segist hafa
mest gaman af að sippa eða leika sér
í snú snú og byssuleikur og bílaleik-
ur komast ekki á blað hjá stelpun-
um. ■