Tíminn - 17.11.1994, Qupperneq 3

Tíminn - 17.11.1994, Qupperneq 3
Fimmtudagur 17. nóvember 1994 3 Frœösluátakiö INN - lönaöur, nemendur og nýsköpun meöal 14 ára grunnskólanemenda í borginni: Nýstárlegt fræbslu- átak í ibnmenntun Nýstárlegt fræösluátak um ibn- menntun meðal grunnskóla- nema í höfuöborginni var kynnt í gær. Átakiö er liöur í því aö bæta iönfræöslu 14 ára grunn- skólanema og vinna aö breytt- um viöhorfum þeirra til iönaö- arins. Þaö eru Fræösiuskrifstofa Reykjavíkur, Skólamálaráö, Afl- vaki, Samiön og Samtök ibnab- arins sem standa sameiginlega ab þessu átaki. Markmiö og tilgangur þessa átaks er aö breyta viöhorfum ungs fólks til iönnáms og iönaðarstarfa meö áherslu á nýsköpun og fjölg- un atvinnutækifæra. Átakið nær ekki aðeins til nemenda heldur er því ekki síður beint til foreldra og annarra sem hafa áhrif á skoðana- myndun ungs fólks. Á blaðamannafundi í gær kom m.a. fram aö aðeins 32% af ungu fóiki fer í verknám á meðan þetta hlutfall er allt uppí 70% í Þýska- landi og í öörum nálægum lönd- um. Áhersla var jafnframt lögð á gildi iönmenntunar, atvinnu- möguleika og að iðnmenntaðir einstaklingar fá einatt mun betri laun en þeir sem ljúka námi í há- skólum og vinna hjá hinu opin- bera. Meöal annars var bent á aö mánaðarlaun rafiðnarmanna séu 150 þúsund krónur, samkvæmt því sem fram kemur hjá Kjara- rannsóknarnefnd. Iönfræðsluverkefniö INN, þ.e. iðnaður, nemendur og nýsköpun felur í sér keppni annars vegar og fræöslu um iðnaö og iönfyrritæki hinsvegar. Til aö byrja meö munu fjórir grunnskólar í höfuðborginni taka pátt í sérstöku iönfræösluverkefni, en þaö eru Álftamýrarskóli, Voga- skóli, Fellaskóli og Tjarnarskóli. Þessir skólar munu fá afhent fræöslugögn um iðnaö og þeim veröur úthlutað iönfyrirtækjum til samstarfs. Þá hefur Kassageröin út- búiö sérstaka tösku undir göngin sem einnig veröa send á bókasöfn annarra grunnskóla. Auk iönfræöslunnar veröur efnt til hugmyndasamkeppi meöal allra 14 ára grunnskólanema í borginni. í þeirri keppni geta nem- endur sent inn hygmynd um nýja vöru til að framleiða eöa hug- mynd sem kemur iönaði almennt til góða. Þótt þetta átak sé bundiö viö höfuðborgina til aö byrja meö, þá er stefnt aö því aö grunskólanemar á landsbyggðinni fái einnig aukna fræöslu um iðnmenntun, þótt síö- ar verði. ■ Borgarráö: Átak um bætt viöhald húsa Borgarráð hefur samþykkt aö beita sér fyrir átaki um bætt vibhald húsa í borginni. Átakiö á að þjóna þeim þrí- þætta tilgangi að skapa aukna atvinnu, fegra ásjónu borgar- innar og hvetja til aukinnar notkunar innlendra byggingar- efna. Ráðgert er að leita sam- starfs við ýmis samtök sem mál- ið er skylt, svo sem Samtök iðn- aðarins, Húseigendafélagið, Samiðn og Arkitektafélagið. Meðal annars á að huga að auk- inni kynningu og fræðslu á inn- lendum byggingarefnum og gildi þess að viðhalda uppruna- legu svipmóti húsa. Þá á ab leita leiða til ab auðvelda einstak- lingum að fjármagna endur- bætur á eldra húsnæði í gegn- um Húsnæðisstofnun ríksins eða með öðrum hætti. Framsóknarmenn á Noröurlandi eystra: Framboð ákveðið 10. desember Frá Þórbi Ingimarssyni, Akureyri: Ákveðið hefur verið aö efna til aukakjördæmisþings framsóknar- manna í Noröurlandskjördæmi eystra 10. desember næstkom- andi. Verkefni þingsins verður að velja fólk á framboðslista fram- sóknarmanna í kjördæminu fyrir komandi alþingiskosningar, en eins og komið hefur fram felldi kjördæmisþing framsóknar- manna, sem haldið var á dögun- um, tillögu um að viöhafa próf- kjör í kjördæminu. Samkvæmt sérstökum reglum um tilnefning- ar og prófkjör framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi eystra eiga fulltrúar á kjördæmisþingi, ásamt tveimur varamönnum fyrir hvern fulltrúa, sæti á aukakjördæmis- þinginu, þannig að alls munu um 200 manns taka þátt í vali á list- ann. Á kjördæmisþinginu 10. desem- ber næstkomandi veröur kosið um sjö efstu sæti listans á þann hátt aö fyrst verður kosið um þá, er gefa kost á sér í fyrsta sætið, og síðan veröur kosiö á sama hátt um hvert sæti af öbru. Kosning kjör- dæmisþingsins er bindandi fyrir þessi sjö efstu sæti. Núverandi þingmenn Framsóknarflokksins í Norburlandskjördæmi eystra eru Gubmundur Bjarnason, Valgerð- ur Sverrisdóttir og Jóhannes Geir Sigurgeirsson og er gert ráö fyrir að þau muni öll sækjast eftir sæti á framboðslistanum. Eins og fram hefur komið, fækkar þingsætum í kjördæminu um eitt vegna bú- setubreytinga og miðað við það má gera ráð fyrir ab þriðja sæti framsóknarmanna falli út af þingi í komandi kosningum. Bókmenntaverölaun Tómasar Guömundssonar: 9 ' Bryndís Gunnarsdóttir meö barnabörnum sínum, Kristínu 8 ára og Brynjari 5 ára. Tímamynd: CS Verður úthlutab annab hvert ár Breytingar á úthlutunarreglum vegna bókmenntaverölauna Tómasar Guömundssonar hafa verið samþykktar í borgarráði. Helstu breytingamar eru þær að hér eftir veröur verðlaununum út- hlutað annað hvert ár, næst árið 1996. Skipan dómnefndar er einnig breytt ab því leyti ab ekki er gert ráð fyrir tilnefningu frá Almenna bóka- félaginu. Tími dómefndar til að ljúka störfum er jafnframt rýmkað- ur. Þá er gert ráð fyrir að útgáfurétt- ur verðlaunahandrits verði í hönd- um höfundar eða þess forlags sem hann ákveður. Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar eru veitt fyrir óprentað skáldverk frumsamib á ís- lensku, þ.e. skáldsögu, smásagna- safn, ljóðabók eða leikrit. Jafnréttisumrœöan hefur ekki breytt því hvernig börn leika sér: Strákar í bíló, stelpur í mömmó Leikir átta ára barna eru mjög misjafnir eftir kynjum. Tölvuleik- ir og bílaleikir eru vinsælustu strákaleikirnir en stelpur leika sér frekar í barbíleik og mömmuleik. Þetta er mebal niburstabna könn- unar Bryndísar Gunnarsdóttur, Útflutningur á vatni Thorspring til Bandaríkjanna gengur vel: Óska eftir lind og frá Vatnsveitunni lögn Stjórn Þórsbrunns hf. hefur snúib sér til borgarstjórnar Reykjavíkur og óskab eftir ab hlutur Vatn- sveitu Reykjavíkur í fyrirtækinu verbi aukinn. Vegna nýrra laga í Bandaríkjun- um um hvab kalla má lindarvatn þarf að tappa vatninu á mjög nálægt opinni uppsprettu. Vatnsöflun þarf einnig ab vera aðskilin frá mann- virkjum Vatnsveitu Reykjavíkur. Fer fyrirtækið fram á að Vatnsveitan auki hlut sinn í fyrirtækinu í 20% og leggi fram lind og lögn samtals að verðmæti 35 milljónir króna. Ár- angur í markaðssetningu Thor- spring-vatns frá íslandi hefur gengiö vel í Bandaríkjunum, þar er mark- aðshlutdeildin 12% í Chicago og 13,3 í Indianapolis. Langtímamark- miöið er ab selja um öll Bandaríkin og ná 5% markabshlutd. í vatnssölu. Tilmæli Þórsbrunns fara fyrir stjórn Veitustofnunar til afgreiðslu. ■ kennara vib Kennaraháskóla ís- lands, á barnamenningu átta ára íslenskra barna. Könnunin var gerb árin 1988 og 1991 og lögð fyrir átta ára börn í sextán skólum víðsvegar um land- ið, en niðurstöður voru m.a. kynnt- ar í erindi á málþingi um barna- menningu á dögunum. Niðurstaðan varðandi leiki barn- anna er mjög afgerandi eftir kynj- um. Flestir drengjanna segjast oft- ast fara í tölvuleik þegar þeir eru einir heima og næstflestir í bílaleik. Flestar stúlkurnar leika sér hins veg- ar í barbíleik og næstflestar lesa sér til ánægju. Sumt af því sem börnin nefna er sameiginlegt, t.d. að teikna, spila, leggja kapal og horfa á sjónvarp. Annab er algerlega kynbundið t.d. segist enginn drengur lita eða fara í barbíleik eða mömmuleik og enginn stúlknanna segist leika sér oftast með Transformers eða Action Force sem er hvorttveggja á lista drengjanna. Bæði kynin nefna tölvuleiki, en helmingi fleiri strákar en stúlkur. Uppáhalds leikföng barnanna eru í samræmi við þá leiki sem þau leika sér helst í. Þannig finnst drengjunum skemmtilegast að leika sér ab bílum, tölvum og að hjóla en barbídúkkur, hjól og dúkkur eru í þremur efstu sætunum hjá stúlkun- um. Útileikir virðast ekki vera jafn kynbundnir og innileikir. Þó er fót- bolti langvinsælastur hjá strákum en hann lendir í fimmta sæti hjá stelpunum. Næst flestum strákum finnst skemmtilegast að hjóla og eltingaleikur er í þriðja sæti hjá þeim. Hjá stelpunum eru þrír vin- sælustu leikirnar að hjóla, sippa og snú snú og eltingaleikur er í fjórða sæti. Enginn strákur segist hafa mest gaman af að sippa eða leika sér í snú snú og byssuleikur og bílaleik- ur komast ekki á blað hjá stelpun- um. ■

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.