Tíminn - 17.11.1994, Síða 5

Tíminn - 17.11.1994, Síða 5
Fimmtudagur 17. nóvember 1994 5 Marteinn Friöriksson: Blórabögglar Mér fannst utandagskrárumræða á Alþingi í fyrri viku hin fróðleg- asta. Þar var sjálfur fjármálaráð- herrann málshefjandi og leitaði opinberlega eftir svörum frá fyrr- verandi fjármálaráðherra, hvort í hans tíb hefðu verið tilmæli frá ráöuneyti þeirra til skattyfirvalda að heimila skattsvik. Engu er líkara, en alþingis- menn vilji að lítið sé gert með þau lög, sem þeir samþykkja. Auðvitað er alrangt að hér sé um það að ræða, hvort merkjasölu- börn eba blabasalar og blaöburð- arfólk á öllum aldri þurfi ekki að hlíta gildandi skattalögum. Stjórnmálamennirnir eru einfald- lega hræddir vib fjölmiðla, vilja ekki styggja stórgróbaútgáfu dag- blaðanna meb því að krefjast skila á staðgreiðsluskatti, sem öbrum fyrirtækjum í þjóðfélaginu er skylt samkvæmt lögum. Þegar stabgreiðsluskyld laun eru greidd VETTVANGUR „Manni verður samt á að spyrja: Hvemig er það skatteftirlit sem yfirsést um tug- milljóna greiðslur til einstaklinga, sem hafa haft tekjur af tryggingamati, og op- inber tryggingafélög hafa verið að greiða? Em tryggingafélög undanþegin þeirri skyldu að gefa út launamiða eins og dagblöðin?" launþega er búið að draga stað- greiösluna frá og nettóupphæð greidd út, síðan ber launagreið- andanum að skila afdregnu vörslufé. Sé það ekki gert á réttum tíma, bætist við álag og dráttar- vextir. Þegar gjaldaliðir eins og laun við blaðburb koma aldrei inn á launaskrá þessara fyrirtækja, svíkjast þau einnig um að greiða launatengd gjöld, svo sem trygg- ingargjald 6,55% af brúttó launa- upphæð. Aubvitab lækka vasa- peningar blaðburðarfólks ekki við það að þessi auðfélög séu látin skila gjöldum eins og lög mæla fyrir um. Vitað er ab líknarfélög og íþróttafélög hafa verið með fólk á launum, sem ekki hefur verið í umræðunni. Listahátíbir hafa gleymt ab gefa skýrslur um starfs- laun, félagsheimilaveislur ógna veitingamönnum, þó ab þeir hafi hingab til ekki veriö allir taldir bestu framteljendur landsins. Skemmtanabransinn er ab ein- hverju leyti nótulaus, eins og tal- ib er að viðgangist víða hjá við- gerðamönnum bíla og mann- virkja, tannlæknum og mörgum öðrum. Nú segjast skattyfirvöld ætla að láta það sama ganga yfir alla þessa aðila og þá sem þiggja laun hjá heiðarlega reknum at- vinnufyrirtækjum. Manni veröur samt á að spyrja: Hvernig er það skatteftirlit sem yfirsést um tugmilljóna greiðslur til einstaklinga, sem hafa haft tekjur af tryggingamati, og opin- ber tryggingafélög hafa verib að greiða? Eru tryggingafélög und- anþegin þeirri skyldu að gefa út launamiða eins og dagblöbin? Við tölvuvæðingu skattkerfis- ins og flestra alvöru fyrirtækja í landinu hefur tölvudiskur komið í stað þykkra bunka af launamið- um eftir árib og opnað möguleika á að færa allar þær upplýsingar vélrænt inn í skattkerfið í stab þess að starfsfólk vinni í tímafrek- um innfærslum. Þessi tæknibylt- ing virðist ekki til mikilla nota í kerfinu. Og svo er „virðulegasta stofnun þjóðarinnar", Alþingi, upptekið af metingi milli núverandi og fyrrverandi fjármálaráðherra um hvor þeirra hafi heimilað skatt- svik í þetta eba hitt skiptib. Höfundur er framkvæmdastjóri. Jónas Engilbertsson: Hefur Gubrún Helgadóttir gleymt upprunanum? Á fundi í einu af félögum Al- þýðubandalagsins í Reykjavík, eba A.B.R., 13.10. '94 (sem fjölg- ar um eitt á mánuði núna, svona rétt til ab minna á gildi samstöb- unnar), var til umræðu lífskjör og velferö. Þar kom m.a. til tals sá gríðarlegi launamunur sem virðist vera staðreynd á landi voru. Þar sem laun geta verið frá innan við kr. 50.000 á mánubi og í þab ab vera yfir kr. 1.000.000 á mánubi. í ljósi þess- ara staðreynda komu upp hug- myndir sumra ræbumanna um hvort ekki mætti hugsanlega lækka hæstu laun. Reis þá upp alþingiskvenmaöurinn Guðrún Helgadóttir og fann því allt til foráttu ab lækka hæsta kaup og spurði m.a. formann BSRB kaup hverra ætti að lækka. VETTVANGUR „Ég get íþví sam- bandi séð Guðrúnu Helgadóttur fyrir mér t.d. í fiskvinnu í Granda eða við skúr- ingar á Landspítala. Árangur endurhœf- ingarinnar réði því hvort þingmaðurinn œtti erindi aftur á þing." Rök alþingiskvenmannsins virtust helst jáau að hálaunafólkið væri svo fátt, að engu skipti hvað þjóðarkökuna snerti þó þeir væru lækkaðir. Vel má vera að það sé rétt út frá ískaldri hagfræði. Hins- vegar geta verið til móralskar ástæður eða rök fyrir lækkun hæstu launa eða hreinlega sið- gæöisástæður. Er þá ekki átt vib Hafnarfjaröarsiðgæði og vera má að það sé ástæðan fyrir viðhorf- um Gubrúnar Helgadóttur. Rétt er að minna þá á, sem gleymt hafa, að eitt af markmið- um Alþýðubandalagsins er að vinna að jöfnuði. Ekki verður betur séb en Guðrún Helgadóttir hafi gleymt því, og þegar þannig er ástatt er spurning hvort ekki sé tímabært að viðkomandi þingmabur taki sér hvíld eða fari endurhæfingu og kynni sér ör alþýðunnar af eigin raun. Ég get í því sambandi séð Guð- rúnu Helgadóttur fyrir mér t.d. í fiskvinnu í Granda eða við skúr- ingar á Landspítala. Árangur endurhæfingarinnar réði því hvort þingmaðurinn ætti erindi aftur á þing. Ávinningur lífeyrisréttinda getur nefnilega aldrei verið ástæða fyrir setu fólks á þingi. Tími er kominn til að flokkar, sem kenna sig við alþýðu, hætti að fela alþýðuna á framboðslist- um sínum og fari að treysta venjulegu fólki fyrir efstu sæt- um, öruggii sœtunum á listunum. Ella styttist í að fólkib komi með eigin framboð án fræðinga, sem samanstendur af fólki sem þekk- ir kjör alþýðunnar. Höfundur er strætisvagnabílstjóri. Stefnuhnappurinn Fólkslyftur eru mikil þarfaþing í þjóbfélagi þar sem lagt er upp úr ab gera líf borgaranna sem þægilegast. Þessi tækniundur hafa veriö þróuð eins og önnur slík tæki og ýmislegt sem var í gömlu lyft- unum sést ekki lengur. Þannig eru nýjustu lyfturnar svo mjúk- ar í öllum hreyfingum, ab varla finnst þegar þær fara af stað eða stansa. Eins er meb hurðirnar, alsjálfvirkur búnabur stjórnar þeim. Ein tækninýjung í fólkslyft- um eru svokallaðir stefnu- hnappar. Stefnuhnapparnir eru tveir, staðsettir utan við lyftudyrnar. Á hvorum hnappi er mynd af ör. Bendir önnur upp en hin niður og er gert ráð fyrir að þrýst sé á þann hnapp sem vib á hverju sinni, eftir því hvort ferðinni er heitið upp eba niður. Stendur enda skrifað vib hnapp- ana: Þrýstið á réttan stefnu- hnapp. Vib lyftudyrnar er svo gefið til kynna meb Ijósum hvort lyftan sé á leið upp eða niður. Ég var staddur í Perlunni fyrir nokkrum vikum, en þar stóð þá yfir sýning á vegum leigubif- reiðastjórafélagsins Frama. í kjallaranum var kvikmynda- sýning og þangað lagði ég leið mína. Ab sýningunni lokinni ætlaði ég upp á efri hæbir bygg- ingarinnar og beið við lyfturnar tvær sem þar eru. Við hlið mér beið fatlabur maður í hjólastól. Þess var ekki lengi að bíða ab lyftan kæmi niður í kjallarann. Lyftudyrnar opnuðust og inni var hópur fólks. Enginn hreyfði sig til að fara út, og þar sem hjólastóllinn var fyrirferðarmik- ill, ákvábum við fatlaði maður- Frá mínum bæjar- dyrum LEÓ E. LÖVE inn að bíða næstu lyftu. Vib göntuöumst reyndar með að blessab fólkið hefði ekki kunnað á lyftutæknina, það hefði greinilega farið inn á fyrstu hæb og ætlað upp, en ekki gert sér grein fyrir aö lyftan færi fyrst niöur. Fljótlega kom önnur lyfta. Sú var líka full af skilnings- sljóu fólki sem hreyfði sig ekki og var greinilega alveg hissa á aö lyftan hefði farib niður, því það ætlaði sér greinilega ab fara upp. Við félagarnir hættum ab gantast þegar lyftuferðunum fjölgaði og alltaf var sami sauð- arsvipurinn á fólkinu í lyftunni. Enginn hreyfði sig og þótt allir sæju að fatlaður maður komst ekki inn í lyftuna vegna þess að þeir tepptu hana og hefðu eig- inlega „stolið" henni frá fatlaða manninum, datt engum í hug að rýma lyftuna fyrir honum. Fyrst kastaði þó tólfunum þegar lyftudyrnar opnuðust og starfsmaður hússins meb fulla lyftu af húsbúnaði blasti við. Ég hreytti út úr mér hvort hann kynni ekki á lyftuna á vinnustað sínum! Hann var jafn sljór og hinir, lyftudyrnar lokuðust og lyftan fór. Hinu þögla stríöi okkar fatl- aða mannsins lauk ekki fyrr en ég fór upp á fyrstu hæðina, varnaði öllum aðgang að lyft- unni og benti viðstöddum á að þessi lyfta væri á leiö niður til að sækja fatlaðan mann. Þá loks skildu nærstaddir leyndardóma stefnuhnappa og ljósaskilta og vib fatlaði maður- inn komumst leiðar okkar. Ef til vill hefði maburinn þurft að bíða til kvölds, ef ekki hefði komið einhver til sem opnaði augu stefnulausra sam- borgara hans og tók af þeim ráð- in. Ég gekk burt, en í reiði minni gat ég ekki varist þessari hugs- un: Hvernig getur þjóðin tekib ákvarbanir í mikilvægum mál- um, hvernig getur hún til dæm- is kosið rétt, ef hún veit ekki einu sinni á hvaða hnapp skuli þrýsta í lyftum eða hvenær lyft- an ætli upp eða niður? ■

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.