Tíminn - 17.11.1994, Blaðsíða 11

Tíminn - 17.11.1994, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 17. nóvember 1994 * — -- RniillSrsttlil-SA 11 Upptaka sameiginlegr- ar fiskveiðistefnu EB Um fiskveiðistefnu Evrópu- bandalagsins (EB) er fyrir mælt í 3. grein Rómarsamningsins: „í augnamibi, tilgreindu í 2. grein, skal starfsemi Samfélagsins taka til ... (d) viðtöku sameiginlegrar stefnu á sviði landbúnaðar ..." Og í 38. grein, fyrstu málsgrein, segir: „Sameiginlegi markaður- inn nær til landbúnaðar og verslunar með landbúnaðaraf- urðir. Með „landbúnaðarafurð- um" er átt við afurðir af jarð- rækt, búfjárhaldi og fiskveiðum og afurðir fyrsta stigs beinnar vinnslu vegna þessara afurða." — Um starfsemi og mál innan EB gilda lög þess og aö auki til- skipanir, en útfærsla þeirra er einatt látin aðildarríkjum eftir. Úrskurðir stjórnvalda þess binda hendur viðkomandi og loks dómar Evrópudómstólsins. Framkvæmdastjórnin gerir tillögur um setningu laga til ráðherraráðsins, sem um þær fjallar, en getur ekki breytt þeim nema með samhljóða atkvæð- um. (Fram til 1994 hefur aðeins einu sinni til þess komiö í fisk- veiðimálum.) Til samþykktar tillögunum í ráðherraráðinu þarf skilyrtan meirihluta (nú 54 hinna 74 atkvæða þess), en framkvæmdastjórnin getur dregið tillögur til baka, áður en þær eru bornar undir atkvæði. Samþykki Evrópuþingsins þarf til setningar laga að slíkum hætti sem tilgreindur er í Róm- arsamningnum. Um samráð ráðherraráðsins, framkvæmda- stjórnarinnar og Evrópuþings- ins er á kveðið í lögunum um sameiginlegan evrópskan mark- að. Um fiskveiðar fjallar á þing- inu undirnefnd landbúnaðar- nefndarinnar, en formlega er aðeins til hennar leitab, ab væntanlegar tillögur um laga- VIÐSKIPTI setningu heyri undir 43. grein Rómarsamningsins. Á sjötta áratugnum fengu fiskiskip Belgíu, Frakklands, Hollands, Ítalíu og Þýskalands nálega 90% afla síns utan þriggja mílna fiskveiðilögsögu (landhelgi) sinnar. Upptaka jafn hárra tolla á fiski og fiskafurð- um aðildarlanda á milli kom frönskum og ítölskum útvegi illa. Frakkland og Ítalía æsktu þá setningu reglna, sem heimiluðu styrkveitingar úr sjóðum Efna- hagsbandalagsins til endurnýj- unar fiskiskipa. Lét fram- kvæmdastjórnin þá semja álits- gerö um stöðu fiskveiða, „Basic principles for a common fisheri- es policy" (Meginreglur um sameiginlega fiskveibistefnu). Aballega er í henni fjallab um markabi, útflutning og félags- . mál, en í einum kafla (Producti- on) um verndun fiskstofna, var lagt til að styrkir til fiskveiða yrðu upp teknir og greiddir úr European Agricultural Guid- ance and Guarantee Funds (FEOGA). í niðurstöðum álits- gerðarinnar voru lögb drög aö stefnu EB í fiskveibimálum fram til 25. janúar 1983, ab það tók upp sameiginlega fiskveiði- stefnu ab segja má. Mótun hennar í heild sinni tók þannig 15 ár, en umfjöllun um vernd- un fiskstofna 7 ár. Tildrög Á ofanverðum sjöunda ára- tugnum voru skiptar skoðanir á meðal aðildarríkja um upptöku styrkveitinga til fiskveiða. Sjáv- arútvegur í Þýskalandi, Hollandi og Belgíu þarfnabist þeirra ekki og sáu þau ekki ástæðu til þeirra. í þeim efnum breyttist staban við umsókn Bretlands, Danmerkur, írlands og Noregs um aðild að EB. Fiskveiðar þriggja af upphaflegu abildar- ríkjunum sex var að stórum hluta í lögsögu eöa á nálægum mibum þeirra. „Ef „ríkin sex" yrðu ekki ásátt um stefnumörk- un fyrir inngöngu þeirra, gætu þessi nýju aðildarríki haft áhrif á framvindu mála, einkum ab- stöðu til fiskveiða og aðgang að lögsögu (national waters) aðild- arríkja. Ab markaðri stefnu fyrir inngöngu þeirra, yröu nýju að- ildarríkin ab sætta sig vib orb- inn hlut í acquis communitaire. „Ríkjunum sex" tókst naumlega að ná samkomulagi á síðustu stundu um tvær reglugerðir, reglugerð rábherraráðsins (EEC) nr. 2142/70 um sams konar skipan á mörkubum með fiskaf- urðir og reglugerb rábherraráðs- ins (EEC) nr. 2141/70 um sams konar aðbúnab (common structural policy) í sjávarútvegi ... Umdeildustu atriði þeirra voru í 1. málsgrein 2. greinar reglugerðarinnar nr. 2141/70, sem reglugerð nr. 101/76 leysti síöar af hólmi, en þau hljóbuðu svo: „1. Að reglur vibhafðar í hverju einu aðildarríki með til- liti til fiskveiða á hafsvæðum undir fullveldi þeirra eba lög- sögu skulu ekki leiða til, að gert verði upp á milli aðildarríkja. — Sérstaklega skulu aðildarríki tryggja, ab öllum fiskiskipum undir fána aöildarríkja og skráð- um á landsvæðum Samfélagsins sé búin jöfn aðstaða til aðgangs ab og afnota af fiskimiöum til- greindum í undanfarandi máls- grein." (Mike Holden: The Common Fisheries Policy, Lond- on, 1994, bls. 19) Markmib stefnunnar í fisk- veiðimálum voru svo fram sett í reglugerð nr. 101/76: „... að stuðla ab samræmdri og alhliða framvindu þessarar atvinnu- greinar í allsherjar hagkerfinu og að hvetja til skynsamlegrar nýtingar lífrænna auðlinda sjávar og vatna og áa (inland waters)." — Tekiö skal fram, að til 1994 hafa stjórnvöld EB ekki haft afskipti af veiðum í ám og vötnum. — ítarlegar voru stefnumiöin tilgreind 18. des- ember 1986 í reglugerð ráð- herraráðsins (EEC) nr. 4028/86, sem þau: „... að auðvelda breyt- ingar í sjávarútvegsgeiranum að vibmiðunum sameiginlegu fisk- veiðistefnunnar ... með því að veita fjárhagslega Samfélagsað- stob til: a) umbreytingar, endurnýj- unar og nýtæknivæðingar fiski- flotans; b) eflingar fiskeldis og mörk- unar verndaðra sjávarsvæða í því skyni ab bæta stjórnun fiski- miða á strandsvæðum (inshore fishing grounds); c) umvendinga í fiskveiðum með útgerð leiðangra til fiski- leitar, umhönnun (redeploy- ment), samstarfi um útgerð og samstarfsfyrirtækjum; d) tilhnikun veiðigetu með því að leggja fiskiskipum um sinn eða endanlega; e) fyrirgreiðslu í höfnum til að bæta skilyrði til öflunar og löndunar afurða; 0 leitar ab nýjum sölustööum fyrir umframmagn af umfram- veiddum eða vanveiddum teg- undum og fyrir afurðir fiskeldis, en sakir örs vaxtar þess eru tor- merki á, að þau gangi út á mörk- uðum Samfélagsins." ■ DAGBÓK Fimmtudaqur nóvember 321. dagur ársins - 44 dagar eftir. 46. vika Sólris kl. 10.02 sólarlag kl. 16.23 Dagurinn styttist um 7 mínutur Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Bridskeppni, tvímenningur, kl. 13 í dag í Risinu. Jólakortin afgreidd á skrif- stofu félagsins. 21. nóv. kl. 17: Fundur í Ris- inu. Fundur hjá AL-ANON Opinn afmælis- og kynning- arfundur AL-ANON samtak- anna verður haldinn föstudag- inn 18. nóvember kl. 20. Þar munu þrír félagar í AL-ANON og einn félagi í AA-samtökun- um koma fram og segja sögu sína. Kaffiveitingar verða að fundi loknum. AL-ANON eru samtök að- standenda alkóhólista. Nánari upplýsingar um samtökin fást á skrifstofu samtakanna í Hafnarhúsinu við Tryggva- götu, s. 19282. Skrifstofan er opin alla virka daga nema mánudaga frá kl. 13-16. Gjábakki, Fannborg 8, Kópavogi í dag: Leikfimi kl. 10.20 og 11.10. Kóræfing kl. 18.15. Heitt á könnunni og heima- bakað meðlæti með. Fundur um ESB-mál Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna halda opinn fund um áráttuna til samruna Evrópuríkja og þýðingu henn- ar fyrir ísland. Yfirskrift fund- arins er: „Evrópusambandið — víti til varnabar". Fundurinn er að Vatnsstíg 10 í kvöld, fimmtudag, kl. 20.30. Erindi flytja: Anna Ólafs- dóttir Björnsson alþingiskona og Björn Stefánsson landbún- aðarhagfræðingur. Anna mun meðal annars fjalla um hvaba þýbingu Evrópubandalagið hefur fyrir konur. Erindi Björns heitir: „ísland sem út- kjálki efnahagsstjórnarsvæð- is". Nám í Cranio-Sacral jöfnun Námskeið í höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð verður haldið dagana 28. nóv.-4. des. næstkomandi. Höfuðbeina- og spjald- hryggsmeðferb (Cranio-Sacral balancing) byggist á nærfær- inni meðhöndlun á höfuð- beina- og spjaldhryggs-kerfi. Þetta er sú líffræðilega um- gjörð, sem miötaugakerfið þarf tii að geta þroskast og haldið sér við ævina á enda. Leiðbeinandi á námskeiöinu verbur Heike Pfaff, „Heilp- raktikerin" frá Þýskalandi, en hún hefur sérhæft sig í kennslu og meðferð á þessu sviði. Nánari upplýsingar um námiö gefur Gunnar Gunnars- son sálfræðingur. Basar kristnibobs- kvenna Hinn árlegi basar Kristni- boðsfélags kvenna í Reykjavík verður haldinn laugardaginn 19. þ.m. í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58, og hefst kl. 14. Á basarnum verður margt góðra muna, ódýrar jólagjafir og jólaskraut, einnig kökur o.fl. Jafnframt basarnum verö- ur kaffisala. Basarinn er fastur liður í fjár- söfnun kvennanna. Allur ágóðinn rennur til starfsemi Kristniboðssambandsins. Þýskir höfundar lesa upp í Þjóbleikhúskjall- aranum í tilefni útkomu bókarinnar „Sögur frá Þýskalandi" eru væntanlegir hingað til lands á vegum Goethe- stofnunarinn- ar þrír þýskir rithöfundar, sem verða kynntir með upplestri Iaugardaginn 19. nóvember. Þetta eru þeir Gert Heidenre- ich, forseti þýska PEN-klúbbs- ins, Khalid AI-Maaly, pólitísk- ur flóttamaður frá Irak, og Franz Hodjak, sem upphaflega kemur frá þýskumælandi minnihlutanum í Rúmeníu. Auk þeirra kemur annar rit- stjóra bókarinnar, Wolfgang Schiffer, til landsins. Upplesturinn verbur í Þjóð- leikhúskjallaranum kl. 14 á laugardaginn. Höfundarnir verða kynntir, þeir lesa brot úr verkum sínum og svo verða lesnar íslenskar þýðingar á smásögum þeirra. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. APÓTEK Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka ( Reykjavlktrá 11. tll 17. nóvember er I Garis apó- tekl og Lyfjabúðlnnl lóunnl apðtekl. Þaó apótek sem lyrr er netnt annast eltt vörsluna frá kl. 22.00 að kvöldl tll kl. 9.00 að morgnl vlrka daga en kl. 22.00 á sunnudögum. Upplýslngar um læknls- og lyfjaþjónustu eru gefnar I slma 18888. Neyóarvakt Tannlæknalélags Islands er starfrskt um helgar og á stórhátíðum. Símsvari 681041. Hafnarfjórður: Hafnarijarðar apðtek og Norðurbæjar apð- tek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiplis annan hvem laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-12.00. Upplýsingar í símsvara nr. 51600. Akureyrl: Akureyrar apðtek og Stjörnu apötek eru opin virka daga á opnunartima búöa. Apötekin skiptast á sina vikuna hvort aö sinna kvök)-. nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er opiö I þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, 61 kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00-12.00 og 20.00- 21.00. Á öðrum tímum er lyfjafræðingur á bakvakt. Upplýs- ingar eru gefnar i sima 22445. Apótek Kcflavfkur: Opið virka daga frá kl. 9.00-19.00. Laugard., helgidaga og aimenna fridaga kl. 10.00-12.00. Apótek Vestmannaeyja: Opk) virka daga frá kl. 8.00- 18.00. Lokaö i hádeginu miili kl. 12.30-14.00. Selloss: Selfoss apðtek er opið til kl. 18.30. Opið er á laug- ardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00. Akranes: Apðtek bæjarins er opið virka daga til Id. 18.30. Á laugard. kl. 10.00-13.00 og sunnud. kl. 13.00-14.00. Garóabær: Apðtekið er opið rúmhelga daga kl. 9.00- 18.30, enlaugardagakl. 11.00-14.00. ALMANNATRYGGINGAR HELSTU BÓTAFLOKKAR: 1. nðvember 1994. Mánaóargrelðslur Elli/örorkulíleyrir (grunnlifeyrir)......... 12.329 1/2 hjónalífeyrir............................11.096 Full tekjutrygging ellillfeyrisþega..........22,684 Full tekjutrygging örorkulífeyrisþega........23.320 Heimilisuppbót...............................7,711 Sérstök heimilisuppbót........................5,304 Bamalileyrir v/1 bams...................... 10.300 Meðlagv/1 barns..............................10.300 Mæðralaun/feðralaun v/1 bams..................1.000 Mæðralaun/feðralaun v/2ja bama................5.000 Mæðralaun/feðralaun v/3ja bama eða lleiri...10.800 Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaða..............15.448 Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða.............11.583 Fullur ekkjulífeyrir.........................12.329 Dánarbætur í 8 ár (v/slysa).................15.448 Fæðingarstyrkur.............................25.090 Vasapeningar vistmanna.......................10.170 Vasapeningar v/sjúkratrygginga...............10.170 Daggreiðslur Fullir læðingardagpeningar.................1.052.00 Sjúkradagpeningar einstaklings...............526.20 Sjúkradagpeningar fyrir hvert barn á Iramfæri ...142.80 Slysadagpeningar einstaklings................665.70 Slysadagpeningar fyrir hvert barn á Iramlæri ....142.80 GENGISSKRÁNING 16. nóvember 1994 kl. 10,51 Opinb. Kaup viðm.gengi Sala Gengi skr.fundar Bandarfkjadollar.... 67,99 68,17 68,08 Sterlingspund 106,96 107,26 107,11 Kanadadollar 49,82 49,98 49,90 Dönsk króna 11,187 11,221 11,204 Norsk króna 9,988 10,018 10,003 Sænsk króna 9,169 9,197 9,183 Flnnskt mark 14,315 14,359 14,337 Franskur frankl 12,736 12,774 12,755 Belglskur franki 2,1254 2,1322 2,1288 Svissneskur frankl 51,96 52,12 52,04 Hollenskt gylllnl 39,01 39,13 39,07 Þýsktmark 43,74 43,86 43,80 jtölsk llra ...0,04275 0,04289 6,233 0,04282 6,223 Austurrlskur sch.„. '.6,213 Portúg. escudo 0,4285 0,4301 0,4293 Spánskur pesetl 0,5258 0,5276 0,5267 Japanskt yen 0,6897 0,6915 0,6906 irsktpund 104,86 105,20 105,03 Sárst. dráttarr 99,50 99,80 99,65 ECU-Evrópumynt... 83,33 83,59 83,46 Grlsk drakma 0,2840 0,2850 0,2845 BILALEIGA AKUREYRAR 1 MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM LANDIÐ i MUNIÐ ÓDÝRU 1 HELG ARP AKKAN A OKKAR REYKJAVÍK 91-686915 AKUREYRI 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS interRent Europcar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.