Tíminn - 18.11.1994, Síða 1
SIMI
631600
78. árgangur
STOFNAÐUR 1917
Föstudagur 18. nóvember 1994
Stakkholti 4
Inngangur frá
Brautarholti
218. tölublað 1994
Dómsniburstaba í Há-
gangsmálinu í Noregi:
Anton fær
30 daga
Anton Ingvarsson, stýrimatmr á
Hágangi II., var í gær dæmdur í
undirrétti í Noregi í 30 daga
óskilor&sbundið varbhald a& frá-
dregnum 5 dögum sem hann sat í
var&haldi á sínum tíma.
Saksóknari í Noregi krafðist 60
daga óskilorðsbundins varðhalds.
Eiríkur Sigur&sson skipstjóri og út-
gerð skipsins voru sýknuð af 2
milljóna kr. sektarkröfu saksókn-
ara. Málskostnaður var felldur nið-
ur. Dómurinn féllst ekki á þá vörn
Antons að hann hefði skotið púð-
urskotum og að hann hefði talið
strandgæsluna vera grænfriðunga.
Hins vegar kemur fram í forsend-
um dómsorðs að strandgæslan hafi
ekki haft heimild til að klippa á
togvíra Hágangs þótt henni hefði
verið heimilt að fylgjast með.
Ekki er í dómnum tekiö á þjóð-
réttarlegum vafamálum varðandi
lögsögu Norðmanna á svæðinu. í
gærkvöldi var ekki búið að ákveða
um áfrýjun málsins en ljóst er að
útgerð skipsins lítur á þessa niður-
stöðu sem stórsigur. ■
Lögreglan á Selfossi kannast
ekki viö grímuklæddan mann
í bœnum:
Dularfullur
Þorsteinn Ólafur Þorsteinsson, talsmaöur starfsmanna Atlanta. Hann og Þóra Guömundsdóttir, fulltrúi eigenda Atlanta, kynntu sjónar-
miö féiagsins fyrir Halldóri Ásgrímssyni, formanni Framsóknarfloksins í gœr. Halldór hefur óskaö eftir utandagsskrárumrœöu um máliö á
Alþingi. Tímamynd GS
prjónahúfu-
maður
„Ég kannast ekkert við þenn-
an grímuklædda mann sem
menn tala um. Hitt er svo
annað mál að sögur hér í
bænum segja frá manni með
prjónahúfu sem á að hafa sést
á hlaupum," segir Hergeir
Kristgeirsson, lögreglufulltrúi
á Selfossi.
Nokkuð hefur verið um það
á Selfossi að undanförnu að
brotist hafi verið í híbýli fólks
— einkum í austanverðum
bænum — og stoliö þaðan
ýmsu smálegu, svo sem mynda-
vél, pennum og peningum.
Þessi mál eru til skoðunar hjá
lögreglu.
-SBS, Selfossi.
Flugvél Atlanta fer til Dyflinnar í dag. Engar samúöaraögeröir stéttarfélaga á Suöurnesjum:
Blöndal bjartsýnn á lausn
Halldór Blöndal samgöngu-
ráðherra sagbist vera bjart-
sýnn á að viðunandi lausn
fyndist í deilu Félags ís-
lenskra atvinnuflugmanna
vib flugfélagið Atlanta ab af-
loknum fundi meö forystu
FÍA í gær. Hann vildi ekki
ræða einstök efnisatriði en
sagðist ræba síbar viö forystu
Frjálsa flugmannafélagsins
og Arngrím Jóhannsson,
flugstjóra og eiganda Atl-
anta, sem er erlendis.
Engin breyting verður á fyr-
irhugaðri brottför flugvélar
Atlanta til Dyflinnar á írlandi á
vegum Samvinnuferða-
Landsýn í dag þar sem stéttar-
félag á Suðurnesjum munu
ekki taka þátt í samúðarað-
gerðum gegn flugfélaginu.
Boðað verkfall FÍA á að koma
til framkvæmda á hádegi í dag.
Hinsvegar hefur boðað verkfall
FÍA staðið yfir frá 18. október
81.
Þorsteinn Ólafur Þorsteins-
son, talsmaður starfsmanna
Atlanta, sagðist í gær vona að
þessi deila myndi leysast og
starfsmennirnir héldu sinni
vinnu. Öllum starfsmönnun-
um 82 var sagt upp í fyrradag.
Þorsteinn segir að flestir séu
meö 3 mánaða uppsagnarfrest
nema flugmenn sem eru með
einn mánuð.
Hann segir að þótt stéttarfé-
lag á Suðurnesjum ætli ekkert
að gera til að stöðva starfsemi
Atlanta þá sé óvissa með hvað
gerist erlendis. FÍA hefur haft í
hótunum um að leita til hags-
munasamtaka erlendis til að
Sjávarútvegsráöherra hefur í tvígang aukib úthafsrœkjukvótann umfram rábgjöf fiskifrœbinga á þessu ári:
Vísindaleg rábgjöf hunsuö
Pétur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Félags rækju- og
hörpudiskframleibenda, telur
að sú viðbót sem sjávarútvegs-
rábherra hefur heimilaö í
veibum á úthafsrækju muni
ekki hafa áhrif á stofnstærð
rækjunnar. Stefán Brynjólfs-
son, fiskifræðingur hjá Hafró,
telur að það muni ekki koma í
ljós fyrr en niöurstöbur liggja
fyrir úr hefðbundnum rækju-
leibangri stofnunarinnar
næsta sumar.
Eins og kunnugt er þá hefur
sjávarútvegsráðherra ákveöiö ab
auka úthafsveiðirækjukvótann
um 13 þúsund tonn, en taliö er
að það muni auka útflutnings-
tekjurnar um 2 milljarða krória.
Þessi kvótaaukning er um þriðj-
ungi meiri en fiskifræbingar hjá
Hafrannsóknastofnun lögðu til,
en þeir mæltu með að kvótinn
yrði aukinn um 10 þúsund
tonn. Þessi ákvörðun ráðherr-
ans vekur athygli og þá einkum
vegna þess að hann hefur ítrek-
að lagt áherslu á mikilvægi þess
að farið sé eftir vísindalegri ráð-
gjöf við ákvarðanir um leyfileg-
an heildarafla einstakra teg-
unda.
Þar fyrir utan er þetta í annað
sinn á skömmum tíma sem ráð-
herra ákveður að heimila meiri
úthafsrækjukvóta en fiskifræð-
ingar hafa ráðlagt. í vor sem leið
mæltu þeir með 45 þúsund
tonna kvóta en ráðherra bætti
við 5 þúsund tonnum þegar
heildarkvótinn var ákveðinn
fyrir yfirstandandi fiskveiðiár.
Pétur Bjarnason, sem hefur
verið fylgjandi því að fariö væri
varlega í nýtingu fiskistofna og
fylgt ráðgjöf fiskifræöinga, segir
að rækjuveiðarnar séu dálítið
sérstakar miðað við veiðar á
öðrum tegundum. Fyrir það
fyrsta hefur ráðgjöf fiskifræö-
inga verið fylgt í meira mæli í
rækjuveiðum en í öðrum teg-
undum og því minni áhætta
verið tekin í þeim efnum en í
öðrum veiðum. í öðru lagi hefur
rækjukvótinn ekki jafn mikil
áhrif á sóknina eins og í öðrum
tegundum, því nánast alltaf
hefur kvóti veriö fluttur á milli
ára. Síðast en ekki síst eru mjög
góö sóknarfæri á rækjumark-
aðnum og því sé það þess virði
að taka einhverja áhættu. ■
stöðva flug Atlanta fyrir þýska
flugfélagið Lufthansa.
A fundi starfsmanna Atlanta
í gær var lýst yfir fullum stuön-
ingi viö eigendur Atlanta og
skorað á forystu ASÍ og önnur
samtök launafólks aö endur-
skoða afstöðu sína í málinu og
fórna ekki starfsmönnum þrátt
fyrir óánægju með að Félags-
dómur hafi úrskurðað Frjálsa
flugmannafélagið lögmætt.
Fundurinn lýsti jafnframt yfir
furðu sinni yfir því að enginn
þeirra aðila eða samtaka sem
hefðu tekið afstöðu í deilu Atl-
anta við FÍA, skyldi hafa rætt
málið við starfsmennina.
Getum hefur verið að því
leitt að Flugleiðir standi á bak
við málatilbúnað FÍA, en tals-
maður starfsmanna Atlanta
segir að ekkert hafi komib
fram sem staðfesti þær getgát-
ur.
Uppsagnir starfsmanna Atl-
anta komu til umræðu á fundi
bæjarráðs Mosfellsbæjar í
fyrradag. í bókun bæjarráðs er
hörmuð sú staða sem upp er
komin í þessari deilu. Ráðið
skorar á deiluaðila ab finna
lausn á ágreiningi sínum svo
atvinnuöryggi tuga fólks verði
ekki stefnt í hættu sem og
starfsemi félagsins í Mosfells-
bæ.
Sjá „Tíminn spyr" bls. 2