Tíminn - 19.11.1994, Side 1

Tíminn - 19.11.1994, Side 1
SÍMI 631600 78. árgangur STOFNAÐUR 1917 Laugardagur 19. nóvember 1994 Stakkholti 4 Inngangurfrá Brautarholti 219. tölublaö 1994 Aöeins mœldust 570 þúsund tonn af hrygn- ingarloönu. Hafró: Sáralítið af loönu í nýafstö&num haustleiöangri skipa Hafrannsóknarstofnunar mældust aðeins um 570 þúsund tonn af hrygningarloönu, sem er miklu minna en búist var við. Nánast hvergi fundust veiðanlegar torfur og fullorðna loðnan var óvenju rýr. Þá fannst engin loöna í Græn- landssundi og Norðurdjúpi. Fiskifræðingar telja því aö enn sé óvissa um raunverulega stærö veiðistofnsins. Þetta eru helstu niöurstöður úr árlegum haustleiðangri skipa Haf- rannsóknastofnunar sem lauk fyrir skömmu. Þar kemur m.a. fram að ástand sjávar var gott á Norður- og Austurmiðum. Loðn- an hélt sig hinsvegar um og utan við landgrunnskantinn frá Hala og austur fyrir Langanes. Mest var um misþéttar dreiflóðningar og svipar ástandinu mjög til þess sem verið hefur að haustlagi síð- ustu ár. Hinsvegar virtist vera mikið af ársgamalli smáloðnu og staðfestu haustmælingarnar niðurstööur mælinga sem gerðar voru á þess- um hluta stofnsins í ágúst sl. Sérfræðingar Hafró telja að litl- ar líkur séu á því að meira sé af fullorðinni loðnu í landgrunns- kantinum. En miðað við reynslu undanfarinna ára var farið yfir sennilegasta útbreiöslusvæði veiðistofnsins. ■ Meö gamla sjálfblekungnum varö Sniglaveislan til... Tímamynd GS Ab loknum vinnudegi sínum w'ð stjórn eins af Sony-fyrirtœkjunum í Bandaríkjunum hverfur Ólafur jóhann Ólafsson á vit rithöfundarstarfa heima fyrir. Hann segist hafa þörf fyrir oð stunda þab starf. Ólafur sest nibur meb gamlan Parker gullpenna sem hann fékk ab launum fyrir góba rit- gerb í Menntaskólanum í Reykjavík vib stúdentsprófib þaban. Sá penni er orbinn slitinn og líf hans framlengt af vibgerbarmönnum ce ofan í æ. Þribja skáldsaga Ólafs jóhanns kom út hjá Vöku-Helgafelli í gœr. Hún heitir Sniglaveislan og þar koma vib sögu léttari persónur en Pétur í Fyr- irgefningu syndanna. Ólafur jóhann segir ab slegib sé á léttari strengi íþessari bók en fyrri bókum.Ólafur jóhann var á ferbinni á íslandi undir lok vikunnar og Tíminn tók hann tali. - SJá bls. 2 Útgeröir Blika og Hegraness telja öll afskipti Norömanna af veiöum fyrir Hágangsmáliö ólögleg: Munu þrýsta á um skaða- bótamál við Norðmenn Inn og ut um gluggann Bragi Guðbrandsson tók í gær til starfa sem aðstoðarmaður nýja fé- lagsmálaráðherrans, Rannveigar Guðmundsdóttur, að því er félags- málaráðuneytið hefur tilkynnt. Áð- ur en Rannveig fór á þing var hún aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðar- dóttur fyrrverandi félagsmálaráð- herra en lét af því starfi er hún fór á þing 1991. Þá gerðist Bragi aðstoð- armaður Jóhönnu en hætti þegar Guðmundur Árni Stefánsson tók við embætti félagsmálaráðherra í júní á þessu ári. Nú er Bragi kom- inn aftur í aðstoðarmannsstólinn og spyrja nú sumir hvort það sé fyr- irboöi þess að hann verði félags- málaráðherra áður en yfir lýkur. ■ Umhverfisráöherra hefur úrskurö- að að ekki sé þörf á að kanna frek- ar umhverfisáhrif lagningar Hval- fjaröarganga eða tengivega aö þeim og staðfest nýtt aðalskipulag fyrir svæðið í framhaldi af því. Eftir úrskurð ráðherra eru dóm- stólar eina leiöin fyrir þá sem vilja koma í veg fyrir lagningu gang- Einar Svansson, útgeröarstjóri Skagfirðings hf., telur að allar aðgerðir Norðmanna fyrir töku Hágangs II. séu ólöglegar, ef dómur sem féll í málinu á miövikudag verður staðfestur fyrir yfirrétti. Hann segir að þrýst verði á um að skaöabóta- málum vegna klippinga norsku strandgæslunnar á tog- víra Hegraness og Blika frá Dalvík verði flýtt. anna. Ólafur Sigurgeirsson, bóndi á Þaravöllum, er einn þeirra sem stóðu að kærunni til ráöherra. Hann segir að íbúar sveitarinnar eigi eftir að hittast og ræða hvert næsta skref þeirra verði í málinu. „Það er auðvitað við ofurefli að etja þar sem kerfið er. Það versta er aö enginn virðist bera ábyrgð Samkvæmt dómi undirréttar í Tromsö í Hágangsmálinu hafði norska strandgæslan ekki heim- ild til að skera á togvíra skipa sem voru að meintum ólögleg- um veiðum í Barentshafi. Dóm- urinn frá því á miðvikudag bygg- ir á eldri reglugerðinni um rétt Norðmanna til fiskveiöistjórn- unar í Barentshafi, en ný reglu- gerð var sett eftir að Hágangur II. var færður til hafnar. íslenskir heldur er málinu velt frá einum aðila til annars. Við gefumst samt ekki upp svona auðveldlega. enda held ég að enginn íbúi hérna í hreppnum sé samþykkur þessari framkvæmd. Við höldum enn í vonina um að mannlegur neisti leynist einhvers staðar í kerfinu," segir Ólafur. ■ úthafsútgerðarmenn velta því nú fyrir sér hvort þessi dómur, verði hann staöfestur fyrir yfir- rétti í Noregi, þýði í raun ekki að allar hindranir á veiðum íslend- inga fyrir töku Hágangs II. séu ólöglegar og þar með skaöabóta- skylda fyrir hendi. „Ef klippingarnar byggjast ekki á lögum sýnist mér að öll af- skipti norsku gæslunnar af okkar skipum, sem hamlað hafa veið- um, séu líka ólögleg. Hvort sem það eru klippingar eða eithvað annað," segir Einar Sveinsson. Hann segir að í ljósi þessa væri hægt að byggja skaðabótamál á öllum slíkum aðgerðum hvort sem það væri klipping eða heft- ing á veiðum þegar menn hafi verið reknir af ákveðnum svæð- um. „Ef þetta er sú niðurstaða sem verður fyrir endalegum dómi í Noregi eru Norðmenn í mög vondum málum," segir Einar. Útgerð Skagfirðings hefur vídeó- tökur af klippingum norsku strandgæslunnar á Hegranesinu frá því í vor og hann fullyrðir að hafi gæslan ekki haft lagaheim- ild til að klippa togvíra aftan úr Hágangi II. séu skaðabótamál Skagfirðings og útgerðar Blika frá Dalvík unnin. Útgerðir togaranna tveggja kærðu norsku standgæsluna eftir að hún klippti á togvíra þeirra í vor. Lögfræðingar eru að undir- búa málssókn á hendur Norð- mönnum. Búið er að taka sjó- próf af áhöfnum Blika og Hegra- nessins og Siglingamálastofnun hefur óskað eftir sjóprófum í Noregi. Það er hins vegar ekki búist við aö strandgæslan mæti í sjópróf þar sem henni er það ekki skylt, því aðgerðirnar séu túlkaðar sem hernaðaraðgerðir. „Það skiptir bara engu máli," segir Einar Svansson. „Ef norskir dómstólar komast að þeirri nið- urstöðu að þeir hafi ekki haft lagastoð erum við með mörg mál þarna unnin. Það er alveg ljóst að við munum þrýsta á um , að okkar málum verið hraöað í gegnum norska dómskerfiö.'^ ■ Umhverfísrábherra gefur vegtengingu ab Hvalfjarbargöngum grœnt Ijós: Ólafur gefst seint upp

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.