Tíminn - 19.11.1994, Síða 9
Laugardagur 19. nóvember 1994
9
Verktaki sem varö gjaldþrota vill stefna Vegagerö ríkisins og fá tugmilljóna bœtur. Hann segir:
Útboðslýsingin var
hrein della
„Ég held ab Vegagerð ríkisins ætti
ab viburkenna ab útbobslýsingin
var stórlega göllub í heild sinni
og ab þar á bæ ættu menn ab
skammast til ab viburkenna ab
þeim hafi orbib á í messunni. Þab
er til háborinnar skammar ab rík-
isfyrirtæki láti hanka sig á „gráu
svæbi" hvab vibskiptasibferbi
varbar," sagbi Rögnvaldur Rafns-
son, ungur, gjaldþrota verktaki í
Hafnarfirbi. Hann bendir á ab
Vegagerbin sé búin ab vibur-
kenna mistök meb því ab bjóba
honum bætur. Hann var lægst-
bjóbandi í vegagerb á Ólafsvíkur-
vegi norban Dalvíkur á síbasta
ári. Mál Rögnvaldar varb tilefni
fyrirspurnar og svara rábherra á
Alþingi á dögunum.
Rögnvaldur segir ab Halldór
Blöndal samgönguráðherra hafi
viöurkennt á Alþingi nýlega, að
Vegagerb ríkisins beri ábyrgb á
„röngum og villandi útboösgögn-
um".
„Það viðurkenna nánast allir í
dag, að útboðsgögnin í þessu
verki voru nákvæmlega þetta:
röng og villandi, og í raun hin
mesta della," segir Rögnvaldur.
Vegamálastjóri:
Yfirleitt smámunir
„Við getum ekki kallað það svo,
að rammt kvebi að gölluðum út-
boðsskilmálum okkar. í svona
jarðvinnuverkum, sérstaklega
þeim sem ná yfir stór svæði, er
aldrei hægt að komast hjá því
meb viðráðanlegum kostnaði að
skilgreina alla hluti, eðli jarðvegs-
ins og magn, aö því marki að ekki
þurfi að gera einhverjar leiðrétt-
ingar eftir að verkið er komið í
gang. Yfirleitt eru þetta smámun-
ir sem einfalt er að leiðrétta og
valda ekki deilum," sagbi Helgi
Hallgrímsson vegamálastjóri í
samtali við Tímann.
Lögmaöurinn:
Þrotabúiö í mál gegn
Vegagerö?
Rögnvaldur Rafnsson segist
lengi hafa íhugað málaferli gegn
Vegagerb ríkisins. Vegna fjár-
skorts hefði hann ekki ráðið við
ab leita réttar síns. Nú má hins
vegar allt eins gera ráð fyrir að bú-
stjóri þrotabús hans, Ólafur
Rafnsson lögfræöingur, fari fram
á að búið höfði slíkt mál á hendur
Vegagerð ríkisins.
I samtali við Tímann sagði Ól-
afur að of snemmt væri að full-
yrða neitt í þessu efni. Mörg for-
dæmi væru fyrir því ab þrotabú
færu í slík málaferli. Enn væru
tveir mánuðir eftir af kröfulýsing-
arfresti í þrotabúi Rögnvaldar.
Um þessar mundir ynni hann að
því að fá ýmsar skýringar, meðal
annars frá Vegageröinni og fleiri
aðilum.
Ráöherra:
einhverjar kröfur í
mörgum verkum"
Fyrirspurn kom fram á Alþingi
um útbobsmál Vegageröar ríkis-
ins á dögunum. Gísli S. Einarsson
alþingismaður gerði fyrirspurnina
og svaraði samgönguráðherra,
Halldór Blöndal, tveim vikum
síöar. Meðal annars sagði rábherr-
ann að fram kæmu „einhverjar
kröfur af hálfu verktaka í mjög
mörgum verkum", eins og Hall-
dór orðaði það.
Helgi Hallgrímsson segir að
langoftast sé um óverulega hluti
ab ræða, stundum stærri hluti, en
abeins sé um að ræða tvö dóms-
mál á síðari árum, gerðardóms-
mál og annað sem fór fyrir bæjar-
þing Reykjavíkur síbustu fimm ár-
in. Segir Helgi ab niðurstaðan
hafi oröiö mjög í stíl vib það sem
Vegagerðin lagöi til.
„Þetta gefur vísbendingar um
að vib séum ekki mjög ósann-
gjarnir í samningum. Óg almennt
séð get ég sagt að við erum ekki
með ósanngjarna útboðsskil-
málá," sagði Helgi. '
Vegamálastjórl:
Ekki ákjósanlegasta efniö
Vegamálastjóri segir ab Vega-
gerðin hafi bobib Rögnvaldi bæt-
ur. Rögnvaldur krafðist 20 millj-
óna, en sú tala hafi verið að breyt-
ast í 16- 17 milljónir. Vegagerð
ríkisins samþykkti að bæta Rögn-
valdi skaða sinn með 2,6 milljón
króna lokagreiðslu. Helgi sagbi að
ef Rögnvaldur færi í mál, myndi
hann eflaust leita til gerðardóms
Verkfræðingafélags íslands, enda
gert ráð fyrir því í samningum að-
ilanna.
Aðspurður um malarnámuna
norður í Eyjafiröi, sem verktakan-
um var gert að nýta, sagbi Helgi
að því miður væri það ekki bara í
þessari námu heldur mörgum
öðrum, að þær bjóða ekki allar
ákjósanlegustu vegageröarefni.
„Það er misjafnt efnið og við er-
um auðvitað að reyna að nota þab
sem nærtækast er, eftir því sem
talið er fært," sagði Helgi.
Jaröfræöingur:
Þetta er ekki vegagerö-
arefni
Jarðfræöingur, Björn Jónasson,
sem rannsakaði efnisinnihald
námunnar fyrir norðan, hefur
lýst því yfir að efnið sé meb öllu
óvinnanlegt sem vegagerðarefni
Rögnvaldur Rafnsson verktaki.
Tímamynd GS
samkvæmt stöðlum Vegagerðar-
innar.sjálfrar.
En hvað segir vegamálastjóri
um þetta atriði?
„Staðallinn er ágætur, en jarð-
efnið er breytilegt og sumt jarð-
efni er þannig að það er langt yfir
staðlinum og engum vafaatriðum
bundið. Önnur eru þannig að þó
þau fullnægi staðlinum þá eru
þau vibkvæm fyrir bleytu og
slíku, þannig að það þarf að um-
gangast þau með gát og skipu-
leggja verkið í samræmi við það,"
sagði Helgi Hallgrímsson vega-
málastjóri.
Vegamálastjóri var spurður um
hvort ekki væri viss áhætta sam-
fara því að semja við nýgræðinga,
eins og í þessu tilviki.
„Við reynum að meta þetta, en
okkur missýnist í þessu stöku
sinnum. Við vöruðum Rögnvald
vib og honum var gefinn kostur á
að hætta við þetta. Það er ekki
alltaf að viö semjum við lægst-
bjóðanda," sagði Helgi Hallgríms-
son.
Verktakinn:
Hvers vegna fékk ég ekki
rannsóknirnar?
Rögnvaldur Rafnsson sagði í
viðtali við Tímann að það væri
rangt hjá vegamálastjóra að rann-
sóknir á sandnámunni hefðu ekki
verið fyrir hendi.
„Rannsóknirnar voru til stað-
ar," segir Rögnvaldur, „og þær
hefðu átt að fylgja með í útboð-
inu. Þab er meginmáliö og hefði
getað bjargað miklu. í raun var ég
því ginntur til að taka verkið að
mér."
Þá segir Rögnvaldur Rafnsson
ab krafa hans á hendur Vegagerð-
inni hafi ekki lækkað úr 20 millj-
ónum, heldur eðlilega hækkað og
næmi nú nálægt 25 milljónum
króna.
„Varðandi staðalinn ÍST-30,
sem Vegagerðin notar, þá er það
um hann að segja að hann er
vægast sagt verkkaupavænn
staðall, en tekur lítið eða ekkert
tillit til verktakans. Það kom
einmitt glöggt í ljós varöandi
útboð mitt, þar var flest brotiö
sem hægt var að brjóta. í mín-
um huga er enginn vafi um að
staðli skal fylgt, enda þótt hann
sé þannig úr garði gerður að
hann sé verkkaupa í hag. Þann-
ig hefði Vegagerðin átt að af-
henda mér og öðrum bjóðend-
um þær rannsóknir á jarðvegi
sem fyrir hendi voru. Ég fékk
hinsvegar ekkert slíkt í hendur,
né heldur nokkra lýsingu á því
hvaða efni skyldi nota, né kröf-
ur um efni og vinnu í heild. Þá
finnst mér það einkennilegt hjá
vegamálastjóra að tala um ab
menn hafi reynt að telja mér
hughvarf áöur en ég tók við
verkinu. Þessar svokölluðu að-
varanir þeirra voru auðvitað
settar fram á alröngum forsend-
um, og því fór sem fór. Ég var
einfaldlega blekktur," sagöi
Rögnvaldur Rafnsson. ■
V1
„Eg er /aus við sveiflur íútgjöldum.
Ég borga bara eina fasta greiðslu
mánaðarlega."
Sigurður Sveinsson, handknattleiksmaður
Með greiðsludreifingu Heimilislínunnar er útgjaldaliðum ársins,
einum eða fleiri, dreift á 12 jafnar mánaðargreiðslur.
Sama upphæð er millifærð mánaðarlega af launareikningi yfir á.
útgjaldareikning og bankinn sér um að greiða reikningana.
I stað gluggaumslaga færðu sent mánaðarlegtyfirlit
yfir greidda reikninga.
/^BÚNAÐARBANKI
Vö' ÍSLANDS
HEIMILISLINAN
- Einfaldar fjármálin