Tíminn - 19.11.1994, Qupperneq 13
13
Laugardagur 19. nóvember 1994
JVIeö sínu nefi
Lag þáttarins aö þessu sinni er ekki beinlínis nýtt af nálinni, þó
það hafi á dögunum veriö gefið út á geisladiski sem kenndur er
við það. Þetta er geisladiskurinn hans Björgvins Halldórssonar,
sem nýlega kom út og heitir „Þó líði ár og öld". Lagið heitir
þetta einmitt líka og gerði Björgvin það gríðarvinsælt á sínum
tíma. Lagið er erlent, en textinn er eftir Kristmann Vilhjálms-
son. ^
Goða söngskemmtun!
ÞÓ LÍÐI ÁR OG
A E
Alltaf þrái ég þig heitt,
G D
þó líði ár.
Dm A »
- í heiminum getur ei neitt
D E7
þerrað mín tár.
A Físm
Þó líði ár og öld
D A E
er ást mín ætíð ætluð þér.
A Físm D
Þó gleymir þú í heimsins glaum
A E
öllu um mig.
D A
Ég elska þig.
í svefni sem vöku
sé ég þig.
Brosandi augu þín
yfirgefa ei mig.
1
1 ( ►
X 0 1 2 3 0
ÖLD
D Drn
Svo flykkjast árin að
og allt er breytt.
í minningunni brenna þó
augun þín heitt.
Þó líði ár og öld
er ást mín ætíð ætluð þér.
Þó gleymir þú í heimsins glaum
öllu um mig.
Ég elska þig.
Þó líði ár og öld
er ást mín ætíð ætluð þér.
Þó gleymir þú í heimsins glaum
öllu um mig.
Ég elska þig.
Landsbókasafn íslands
— Háskólabókasafn
auglýsir eftirfarandi stö&ur lausar til umsóknar:
Staða forstö&umanns kerfisþjónustu (kerfisbókavarbar). Á vegum
kerfisþjónustu er rekstur tölvukerfisins Gegnis og annarrar tölvuþjón-
ustu í safninu. Krafist er sérmenntunar í bókasafnsfræði, með áherslu á
tölvurekstri í bókasöfnum, ásamt starfsreynslu á því sviði.
Staða deildarstjóra í skráningardeild, sem hefur umsjón með skrán-
ingu íslenskra rita og útgáfu Islenskrar bókaskrár. Krafist er sérmennt-
unar í bókasafnsfræði og starfsreynslu vib skráningarstörf.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, meb upplýsingum um menntun og fyrri störf, skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, merktar landsbókavörður, Sölvhólsgötu 4,
150 Reykjavík, fyrir 12. desember 1994.
Landsbókasafn íslands — Háskólabókasafn,
18. nóvember 1994.
Landsbókasafn íslands
— Háskólabókasafn
auglýsir eftir bókbindara til að veita bókbandsstofu safnsins
forstöðu.
Um er að ræða fjölþætt vibfangsefni í nýrri og vel búinni stofu.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
/
Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu, merkt lands-
bókavörður, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 12. desember
1994.
Landsbókasafn íslands — Háskólabókasafn,
18. nóvember 1994.
(|J FORVAL
F.h. Vatnsveitu Reykiavíkur, er óskað eftir verktökum til að taka
þátt í forvali vegna lokaðs útboðs á byggingu lokahúss við aöal-
æð II.
Áöurnefnt hús verður staðsett í nágrenni Grafarholts og er rúmtak
húss ca. 100 m3 og byggingarefni er steinsteypa.
Forvalsgögn liggja frammi á skrifstofu vorri frá og með þriðju-
deginum 22. november 1994.
Lysthafendur skili forvalsgögnum til Innkaupastofnunar Reykjavík-
urborgar, Fríkirkjuvegi 3, í sloasta lagi þriðjudaginn 29. nóvember
1994 fyrir kl. 16:00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
(REYKJAVÍK PURCHASING CENTER) Fríkirkjuvegi 3 - Simi 25800
6 meðalstórar kartöflur
1 tsk. salt
Smávegis pipar
Smávegis múskat
2 1/2 dl rjómi
1 msk. smjör
Kartöflurnar skrældar, skornar
í þunnar sneiðar, raðað í eld-
fast mót, salti, pipar og músk-
ati stráð yfir. Rjómanum hellt
yfir. Smjörbitum bætt ofaná á
víð og dreif. Sett í heitan ofn
(225°) í ca. 35 mín.
200 gr smjör
200 gr sykur
3egg
1 dl rjómi
100 gr smátt muldar hnetur
70 gr kartöflumjöl
70 gr hveiti
11/2 tsk. lyftiduft
75 gr gróft saxað súkkulaði
100 gr súkkulaði til að
smyrja yfir kökuna, þegar
hún er bökuð, og nokkrir
hnetukjarnar
Mjúkt smjörið er hrært vel
með sykrinum. Eggjarauðun-
um hrært saman við einni í
senn. Myljið hneturnar smátt
og blandið þeim saman við
hveitið, lyftiduftið og kart-
öflumjölið. Hrærið þessu sam-
an við eggjahræruna. Blandið
söxuðu súkkulaðinu saman
við og að síðustu stífþeyttum
eggjahvítunum. Deigið sett í
vel smurt form, bakað við 175°
í 1-1 1/2 klst. Kakan látin að-
eins kólna í forminu áður en
henni er hvolft úr. Súkkulaðið
brætt í vatnsbaði og smurt yf-
ir.
Sa(!a.t m&ðpOLgtcLj
mak oý ^JclU'k^
400 gr pastaskrúfur
1 dós maískorn
1 rauð og græn paprika
Smávegis olía
Safi úr 1/2 sítrónu
Salt og pipar
200-300 gr soöið kjúklinga-
kjöt, eöa aðrir kjötafgangar
Pastað soðið eins og segir til
um á pakkanum. Tekið upp,
vatnið látið renna af. Olíunni
hrært yfir, þá klístrast það
ekki. Kælt. Safinn síaður af
maísbaununum. Paprikan
hreinsuð og sneidd niöur í
smábita. Kjötið sneitt í smá-
bita og öllu blandað saman.
Smávegis olíu, sítrónusafa,
salti og pipar blandað saman
við og allt sett á fat og borið
fram með góðu brauöi.
Pottfcéttu/c
750 gr nautakjöt
50 gr smjörlíki
1 tsk. paprikuduft
2-3 gulrætur í sneiðum
2 púrrur í sneiðum
Salt og pipar
5 dl kjötsoð
1 msk. tómatsósa
Söxuð steinselja
250 gr sveppir
Kjötið er skorið í litla bita.
Brúnað í smjörlíkinu í potti,
paprikudufti stráð yfir. Græn-
metinu bætt saman við og allt
látið brúnast örlítið. Setjið þá
salt og pipar saman við. Hellið
tómatsósu og vatni eða soði
yfir. Soðið í ca. 1 klst. Kryddað
meira eftir smekk hvers og
eins. Sveppirnir hreinsabir og
skornir í sneiðar, brúnaðir í
Hættumerki
víndrykkju
1. Drekkur þú ein(n)?
2. Felur þú vínflöskur?
3. Drekkur þú alla daga?
4. Missir þú minnið við
drykkju?
5. Hefur þú reynt að hætta
að drekka?
6. Færðu þér taugaróandi
töflur með áfenginu?
7. Drekkur þú þar til flask-
an er tóm?
8. Kaupir þú dýrari vínteg-
undir til að drekka minna?
9. Færðu þér drykk að
morgni dags til ab hressa
Þig?
10. Drekkur þú þegar þú
vilt gleyma einhverju
óþægilegu?
Vib brosum
Þessi er nú dálítib skondinn, kannski ekki til að brosa að.
Hjónin og tengdapabbi voru í ökutúr, þegar lögregluþjónn
stöðvaði þau og tilkynnti þeim að þau væru þrjú þúsundasti
bíllinn, sem færi yfir brú eina sem þau voru nýfarin yfir. „Ég
get óskað ykkur til hamingju meb 3000 kr. verðlaun," sagbi
hann. „Hvað vilduð þið nota peningana til?"
Eiginmaðurinn hugsabi sig abeins um ábur en hann svaraði.
„Ja, ég held þelst að ég vildi fá mér ökuskírteini. Það hef ég
aldrei haft."
Eiginkonan reyndi að bjarga málinu og sagði: „Takið ekki
mark á honum, lögregluþjónn. Hann reynir alltaf ab vera
fyndinn þegar hann hefur drukkið vín."
Nú ofbaub tengdapabba í aftursætinu. Hann reis upp og
sagði: „Ég get nú ekki heyrt vel hvab þið segið, en ég vissi
alltaf að maður kemst ekki langt á stolnum bíl."
smjöri á pönnu og settir sam-
an við að síðustu. Borið fram
sjóðandi heitt í pottinum.
lírísgrjón, kartöflur og/eða
salat borið með ásamt góðu
heitu braubi.
Ostaírauð
Einfalt og gott þegar komið
er heim úr skólanum.
Brauðib smurt, tómatar skorn-
ir í sneiðar og lagðir á braubið.
Rifnum osti stráð yfir og
brauðið sett inn í heitan ofn
(200°) þar til osturinn er vel
bráðnaður.
íoooasaíat
300 gr reyktur lax
4 harðsoðin egg
3 dl sýrður rjómi
Smávegis púrra eða gras-
laukur
Harðsjóðið eggin, skolið þau í
köldu vatni og takið skurnina
af þeim. Skerið eggin í mjóa
báta, en laxinn í langar ræm-
ur. Bragðbætið sýröa rjómann
með púrru eða graslauk. Lax-
inum og eggjabátunum rabað
fallega á fat eða forréttadiska.
Sýrði rjóminn borinn sér með
í skál.
^ Eftennurnarerugulleit-
ar, sýnast þær hvítari ef þú
velur þér varalit með hlýj-
um appelsínublæ.
W B-vítamín er mjög húð-
fegrandi, Það fæst m.a. úr
kornmat, lifur, osti, fiski,
eggjum og mjólk.
^ Ef við ætlum að baka úr
smjöri og höfum gleymt að
taka það úr kæliskápnum,
er gott ráð að skera þaö
niður með ostaskera.
W Afskornir túiipanar
endast lengur ef við setjum
1 /2 tsk. af kartöflumjöli út í
vatnið.
Wt Naglalakkið endist mik-
ið lengur ef þú notar
gúmmíhanska við upp-
þvottinn.
W Að hafa alltaf nóg vatn
í pottinum þegar við sjóð-
um pasta. Það á helst að
í vatninu.