Tíminn - 25.11.1994, Page 2
2
Föstudagur 25. nóvember 1994
Tíminn
spyr...
Er eblilegt ab opinberir abilar
geri sérstaka starfslokasamn-
inga um eingreibslur, biblaun
og/eba sérverkefni vib starfs-
menn sem láta af störfum sam-
kvæmt samningsbundnum
skilmálum?
Benedikt Davíbsson,
forseti ASÍ:
Ég þekki ekki þessar reglur
en ef sérstakar reglur eru um
slíka samninga getur verið
að þeim þurfi að breyta. Ef
reglur eru til um þetta þá á
auðvitað að fara eftir þeim,
en kerfið er fáránlegt.
Jón Sigurðsson,
lektor við Samvinnu-
háskólann:
Nei, mér finnst það ekki
eðlilegt, en ég viðurkenni að
við höfum úreltar reglur um
embættismenn sem við
þurfum að breyta sem fyrst.
Birgir Rafn Jónsson,
formabur Félags íslenskra
stórkaupmanna:
Ab sjálfsögðu á ekki að ráða
menn með þeim hætti í op-
inbera þjónustu að þeir geti
ekki hætt störfum án þess að
gerðir séu við þá sérstakir
samningar um háar greiðsl-
ur. Eðlilegast væri ab kjör
opinberra starfsmanna og
embættismanna væru með
sama hætti og gerist á al-
mennum markaði.
Whmmi
Hugmyndir um sínkverksmiöju á íslandi — stóriöju sem gœti skipt sköpum fyrir atvinnulífiö:
Hröb framvinda mála en
mörg ljón í veginum
Eins og fram kom í Tímanum í
gær eru menn nú talsvert bjart-
sýnir á ab bandarískir fram-
leibendur á sínki séu tilbúnir
til áframhaldandi vibræbna
um framleibslu hér á landi.
Hér er um ab ræba stórkostlegt
sóknartækifæri fyrir íslend-
inga og hundrub beinna at-
vinnutækifæra sem mundu slá
verulega á atvinnuleysib í
landinu, en slíkur verksmibju-
rekstur býbur ennfremur upp á
fjölda óbeinna starfa sem slík-
um rekstri fylgir. Rætt er um
verksmibju sem gæti framleitt
75 þúsund tonn af sínki, eba
um 1% af heimsnotkuninni.
Byrjabi meb úttekt á
Áburbarverksmibj-
unni
Upphaf sínkmálsins er á þann
veg ab Benedikt Jóhannesson,
stærbfræbingur og framkvæmda-
stjóri Talnakönnunar hf., fékk
þab verkefni fyrr á þessu ári hjá
landbúnabarrábherra, Halldóri
Blöndal, reyndar frænda sínum,
ab kanna framtíbarmálefni
Áburbarverksmibju ríkisins.
Ljóst er ab frá næstu áramót-
um verður óheftur innflutriingur
á tilbúnum áburbi og ekki ljóst
hvort verksmibjan standist er-
lendum keppinautum snúning,
verbi þar minni framleibni en nú
er. í Áburbarverksmiðjunni
vinna nú um 100 manns og
framleibir hver starfsmabur 500
tonn á ári. Erlendar verksmibjur
framleiba fjórfalt þab magn og
tala um ab auka enn framleiðni á
hvern starfsmann.
Hákon Björnsson, forstjóri
Áburðarverksmibjunnar, sýndi í
þessu máli lofsamlega árvekni.
Hann leitabi til Halldórs Blöndal
landbúnabarrábherra í tíma og
ræddi um væntanlegan vanda
sem verksmibjan yrbi ab horfast í
augu vib um áramótin
1994/1995. Á þessu máli var tek-
ib og nú liggur fyrir ab hlutverk
Áburðarverksmibjunnar kann ab
breytast í framtíbinni.
C rundartangi. Þar er rœtt um aö
hluti framleibslunnar fari fram.
Mágar komu ferlinu
af stað
Þeir mágarnir, Benedikt og
Gubmundur Franklín Jónsson,
verðbréfamiblari í New York,
ræddu málin síban í sínum hóp
snemma á þessu ári og upp kom
hugmyndin um sínkverksmiðju
á íslandi, sem nú má búast vib að
fari hrabferð gegnum stjórn-
sýslukerfib. Benedikt var í vanda-
málum meb minnstu áburbar-
verksmibju í heimi en Guð-
mundur Franklín þekkti vel til
sínkframleiðenda vestra. Ættu
menn því í framtíbinni ekki að
fordæma frænd- og mágsemi að
óathuguðu máli, enda ljóst að í
þessu tilviki eiga slíkir fordómar
ekki við.
Viljayfirlýsing og
heimsókn
Málin gengu hratt. Þab var 31.
júlí síbastlibinn ab undirritabur
var samningur milli bandarísku
fyrirtækjanna Zink Corporation
of America og Allied Resource
Corporation annars vegar og
Áburbarverksmibju ríkisins,
Markabsskrifstofu ibnabarrábu-
neytisins og Landsvirkjunar hins
vegar um ab skoba sameiginlega
hagkvæmni þess ab reisa verk-
smibju hér á landi til ab fram-
leiba sink. Frumkvæbib í málinu
kemur frá Áburbarverksmibju
ríkisins.
Komu hingað til lands sex
fulltrúar hinna erlendu sam-
starfsabila til vibræbna og gagna-
öflunar dagana 8. til 11. septem-
ber síðastliðinn. Var tíminn nýtt-
ur vel, rætt við fjölmarga abila
sem hugsanlega koma ab málinu
og margir staðir skoðabir.
I hópnum sem hingab kom
voru forstjóri Allied Resource
Corporation, Heinz Schimmel-
busch og Nils Kindwall, stjórnar-
mabur í Allied Resource; og Dav-
id O. Carpenter, forstjóri Horse-
head Industries, móburfyrirtækis
Zink Corporation, Robert L.
Sunderman, forstjóri Sink Corp.,
James V. Derby, abstobarforstjóri
og John Ferrighetto, verkfræb-
ingur. í hópnum sem kom frá
Bandaríkjunum var einnig Gub-
mundur Franklín Jónsson, verb-
bréfamiblari hjá Burnham Secu-
rities Inc. í New York.
Miklar þreifingar
Hópurinn átti vibræbur vib
Hákon Björnsson, forstjóra, Run-
ólf Þórðarson, verksmiðjustjóra
og Teit Gunnarsson hjá Áburbar-
verksmiðjunni — auk Benedikts
Jóhannessonar í Talnakönnun
hf., ráðgjafa verksmibjunnar. Þá
var rætt við Geir Gunnlaugsson,
stjórnarformann Markabsskrif-
stofu iðnaðarrábúneytis, og fé-
laga hans tvo, þá Garbar Ingvars-
son framkvæmdastjóra og Asgeir
Svanbjörnsson yfirverkfræðing.
Rætt um „stóru
spurninguna''
Rætt var um „stóru spurning-
una", raforkuverbib vib fulltrúa
Landsvirkjunar, þá Jóhannes
Nordal, stjórnarformann, Hall-
dór Jónatansson, forstjóra, Jó-
hann Má Maríusson, abstobar-
forstjóra, Elías Elíasson, verk-
fræbing og Þorstein Hilmarsson,
upplýsingafulltrúa.
Ennfremur fóru fram vibræb-
ur um lög og reglugerðir vqrö-
andi umhverfismat og starfsleyfi
fyrir verksmibju af þessu tagi. Var
þá rætt vib Sigurbjörgu Sæ-
mundsdóttur, deildarstjóra í um-
hverfisráðuneytinu, og Ólaf Pét-
ursson, deildarstjóra í Hollustu-
vernd ríkisins. Ennfremur var
rætt vib fulltrúa verktaka og ráb-
gjafaverkfræbinga. Skoðunar-
ferðir voru farnar ab járnblendi-
verksmibjunni á Grundartanga
og rætt þar vib hæstrábendur og
trúnabarmenn starfsmanna og
farib yfir verkalýbsmálaþáttinn.
Áburbarverksmiðjan í Gufunesi
var og grandskobub og farib var í
heimsókn til ísal í Straumsvík.
Fleiri stabsetningarmöguleikar
voru skoðabir, þar á mebal
Helguvík og Keilisnes.
Hvaba málmur er
sínk?
íslenska alfræbibókin svarar
því: Sínk er frumefni sem tilheyr-
ir hópi mjúkra málma. Bláleitt
efni, tvígiit í efnasamböndum.
Sínk er einkum notað til að húba
eba galvanísera járn og stál til
varnar tæringu. Einnig er þab
notab í málmblöndur, t.d. látún
og leturmálm. Sem snefilefni er
sínk mikilvægt í lífverum.
Sínkvinnsla er kostnaðársöm
vegna mikillar raforkunotkunar,
enda er bræðslumark þess 419,6
grábur á Celsíus, og subumark
907 grábur.
Heildarframleibslan fyrir 10
árum var 6,8 milljónir smálesta,
en mun nú nálgast 8 milljónir.
Kanadamenn og Rússar eru
stærstu framleibendur sínks, en
framleibsla fer einnig fram í Ástr-
alíu, Perú og Mexíkó. ■
H£VXÐU J0HANNA 1 ÉG HFLD
/)Ð HHNÍV SJOH/V S£ ORÐ-
LNN AF3RÝÐ/SRMUR !!
'30GGI'
Áburöarverksmiöja ríkisins í Cufunesi. Möguleikar eru á aö þar fari fram
hluti af framleiöslu á sínki.