Tíminn - 25.11.1994, Síða 8
8
Föstudagur 25. nóvember 1994
Listasafn íslands er 110 ára
um þessar mundir og í því
tilefni veröur laugardaginn
26. nóvember opnuö sýning
á stofngjöfinni. Á sýning-
unni er úrval verka eftir nor-
ræna málara, aöallega
danska, frá síöari hluta 19.
aldar. Þessi gjöf er eitt heild-
stæöasta safn erlendrar
myndlistar í eigu Listasafns-
ins og hefur ekki veriö sýnt
síöan 1974, en nú hafa
myndirnar veriö hreinsaöar
og er nú nær öll stofngjöfin
sýnd í heild sinni.
Listasafn íslands var stofnaö
1884 af stórhuga listunnanda,
Birni Bjarnarsyni, sem síöar
varð sýslumaöur og alþingis-
maður. Hann stóö sjálfur fyrir
söfnun verkarma í Kaup-
mannahöfn, fékk norræna
málara til að gefa myndir til
safnsins og skipulagði fjár-
söfnun meðal íslendinga til að
kosta innrömmun þeirra og
flutning.
Björn var langt á undan
samtíð sinni í skilningi á mik-
ilvægi safna fyrir almenning. í
grein, sem hann skrifaði í
tímaritið Heimdall í júlí árið
1884, stendur eftirfarandi:
„Söfnin eru ekki að eins til
skemmtunar, heldur nauðsyn-
leg, og alveg ómissandi ef vís-
indi og fagrar listir eiga að geta
blómgast; ... og auk þess að
stór og góð söfn eru ómissandi
fyrir lista- og vísindamenn eru
þau mjög menntandi fyrir alla
alþýðu, því að jafnvel þeir,
sem skoða þau sjer til skemmt-
unar, læra á því margt fyrir-
hafnarlaust og hjá mörgum
getur vaknað löngun til þess
að læra meira."
Málverk eftir
Anders M. Askevold:
„Selför".
Myndin erfrá 1884.
Er myndirnar komu til
landsins, lét landshöfðinginn,
Bergur Thorberg, koma þeim
fyrir í nýbyggðu húsi Barna-
skólans í Reykjavík, sem var á
horni Pósthússtrætis og Hafn-
arstrætis. Þar voru þau al-
menningi til sýnis um sumar-
ið, en voru síðan hengd upp í
lestrarsal Alþingishússins, sem
hýsti safnið næstu árin og gat
almenningur skoðað verkin
um helgar.
í stofngjöfinni er margt úr-
vals verka og má þar nefna
málverk listmálaranna Anna
Ancher og Peter Severin
Kroyer. Árið 1887 fólu forsetar
Alþingis umsjónarmanni sín-
um, Jónasi Jónssyni, að gera
skrá yfir þau verk Listasafnsins
sem þá voru komin til lands-
ins. Flest þau verk, sem þar eru
skráð, má Hta á sem upphaf-
legan stofn safnsins, en þar að
auki eru nokkrar gjafir, þ.á m.
dánargjöf Edvalds J. Johnsens
læknis í Kaupmannahöfn, en
Edvald var frá Húsavík. í gjöf
hans voru 28 málverk og
vatnslitamyndir. Til stofngjaf-
arinnar teljast öll þau verk,
sem safninu bárust til alda-
móta, en þá tilheyrðu safninu
74 myndverk og 2 höggmynd-
ir, auk grafískra verka.
í tengslum við sýninguna
verður gefin út bók, prýdd
fjölda ljósmynda af málverk-
unum auk greinar um stofn-
gjöfina eftir Beru Nordal.
Sýningin verður opin dag-
lega nema mánudaga frá kl.
12-18, fram til 5. febrúar á
næsta ári.
Hægt ér'að panta leiðsögn
um sýninguna fyrir hópa.
VESTURFARARNIR
\nWf
A Brattahlíö, bæ Eiríks, uröu fljótt
mikil umsvif.
Eiríkur geröist mikill höföingi.