Tíminn - 25.11.1994, Blaðsíða 8

Tíminn - 25.11.1994, Blaðsíða 8
8 Föstudagur 25. nóvember 1994 Listasafn íslands er 110 ára um þessar mundir og í því tilefni veröur laugardaginn 26. nóvember opnuö sýning á stofngjöfinni. Á sýning- unni er úrval verka eftir nor- ræna málara, aöallega danska, frá síöari hluta 19. aldar. Þessi gjöf er eitt heild- stæöasta safn erlendrar myndlistar í eigu Listasafns- ins og hefur ekki veriö sýnt síöan 1974, en nú hafa myndirnar veriö hreinsaöar og er nú nær öll stofngjöfin sýnd í heild sinni. Listasafn íslands var stofnaö 1884 af stórhuga listunnanda, Birni Bjarnarsyni, sem síöar varð sýslumaöur og alþingis- maður. Hann stóö sjálfur fyrir söfnun verkarma í Kaup- mannahöfn, fékk norræna málara til að gefa myndir til safnsins og skipulagði fjár- söfnun meðal íslendinga til að kosta innrömmun þeirra og flutning. Björn var langt á undan samtíð sinni í skilningi á mik- ilvægi safna fyrir almenning. í grein, sem hann skrifaði í tímaritið Heimdall í júlí árið 1884, stendur eftirfarandi: „Söfnin eru ekki að eins til skemmtunar, heldur nauðsyn- leg, og alveg ómissandi ef vís- indi og fagrar listir eiga að geta blómgast; ... og auk þess að stór og góð söfn eru ómissandi fyrir lista- og vísindamenn eru þau mjög menntandi fyrir alla alþýðu, því að jafnvel þeir, sem skoða þau sjer til skemmt- unar, læra á því margt fyrir- hafnarlaust og hjá mörgum getur vaknað löngun til þess að læra meira." Málverk eftir Anders M. Askevold: „Selför". Myndin erfrá 1884. Er myndirnar komu til landsins, lét landshöfðinginn, Bergur Thorberg, koma þeim fyrir í nýbyggðu húsi Barna- skólans í Reykjavík, sem var á horni Pósthússtrætis og Hafn- arstrætis. Þar voru þau al- menningi til sýnis um sumar- ið, en voru síðan hengd upp í lestrarsal Alþingishússins, sem hýsti safnið næstu árin og gat almenningur skoðað verkin um helgar. í stofngjöfinni er margt úr- vals verka og má þar nefna málverk listmálaranna Anna Ancher og Peter Severin Kroyer. Árið 1887 fólu forsetar Alþingis umsjónarmanni sín- um, Jónasi Jónssyni, að gera skrá yfir þau verk Listasafnsins sem þá voru komin til lands- ins. Flest þau verk, sem þar eru skráð, má Hta á sem upphaf- legan stofn safnsins, en þar að auki eru nokkrar gjafir, þ.á m. dánargjöf Edvalds J. Johnsens læknis í Kaupmannahöfn, en Edvald var frá Húsavík. í gjöf hans voru 28 málverk og vatnslitamyndir. Til stofngjaf- arinnar teljast öll þau verk, sem safninu bárust til alda- móta, en þá tilheyrðu safninu 74 myndverk og 2 höggmynd- ir, auk grafískra verka. í tengslum við sýninguna verður gefin út bók, prýdd fjölda ljósmynda af málverk- unum auk greinar um stofn- gjöfina eftir Beru Nordal. Sýningin verður opin dag- lega nema mánudaga frá kl. 12-18, fram til 5. febrúar á næsta ári. Hægt ér'að panta leiðsögn um sýninguna fyrir hópa. VESTURFARARNIR \nWf A Brattahlíö, bæ Eiríks, uröu fljótt mikil umsvif. Eiríkur geröist mikill höföingi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.