Tíminn - 26.11.1994, Side 6
6
Wmmm
Laugardagur 26. nóvember 1994
Einmana
sálir
Nokkrum augnablikum ábur
en hún var reyrö niður í raf-
magnsstólinn í Sing-Sing
fangelsinu áriö 1951, til-
kynnti Martha Beck: „Saga
mín er ástarsaga er þeir einir,
sem hafa liöið fyrir ást sína,
geta skilið hvaö ég meina."
Þessi orð sýna hvernig hin
feitlagna, fráskilda kona
missti öll tök á tilverunni í
sjúklegri ást sinni til manns
sem hún dýrkaði.
Það er e.t.v. vafamál hvort
hægt er að tala um ástarsam-
band eða aðeins kynferðislegt
samneyti, en kynni Mörthu
Beck af Raymond Fernandez,
illræmdum flagara, urðu
fyrsta skrefið á dimmum stíg
sem endaði í rafmagnsstóln-
um.
Einkamáladálkurinn
Árið 1947 vann Martha
hörbum höndum við hjúkrun
í Pensacola, Flórída. Hún
hafbi fyrir tveimur börnum að
sjá eftir að eiginmaður hennar
hafði framið sjálfsmorð —
sumir segja að hann hafi kosið
dauðann fremur en að búa
með hinni ráðríku eiginkonu
sinni. Martha var óaðlaðandi,
feitlagin kona sem fæstir
menn höfbu áhuga á.
Skömmu eftir fráfall eigin-
mannsins brá hún á það ráð
að auglýsa í einkamáladálkum
dagblaðanna. Það var upphaf-
ið að kynnum hennar við
kvennabósann Raymond.
Raymond Fernandez, frá
Hawaii, þóttist hafa gríðarleg
tök á konum og hélt því fram
að hann gæti dáleitt þær til að
verða ástfangnar af sér. Hann
hafði viðurværi sitt af því að
ginna eldri konur til að gefa
sér fé, en þegar hann var bú-
inn að þurrausa sjóði þeirra
tóku við nýjar konur og ný
búseta.
Þegar hann kynntist Mört-
hu, sá hann strax að hún var
ekki ákjósanlegt fórnarlamb í
þessum efnum. Fyrir það
fyrsta var hún aðeins 26 ára
gömul og í öbru lagi var hún
illa stæð. Því var lítil von til að
Fernandez hefði mikinn fjár-
hagslegan ávinning af því að
kynnast henni. Samt svarabi
hann henni strax er hún aug-
lýsti í einkamáladálkinum.
Martha beit þegar á agnið.
Mánubi seinna skildi hún
börnin eftir hjá ættingjum og
tók rútu til New York borgar.
Ráöabruggib
Fernandez var allt sem
Mörthu hafði dreymt um.
Hann var myndarlegur, hátt-
vís og hafbi fágaðra tungutak
en Martha haföi áður kynnst.
Þrátt fyrir að Martha væri
ógæfuleg kona, var eitthvað
sem heillaði Fernandez í fari
hennar. Eftir nokkra ástarf-
undi trúði hann henni fyrir
því hvernig hann hefbi séð sér
farborða hingaö til, en við-
brögð Mörthu voru undarleg.
í stað þess ab fyllast fyrirlitn-
ingu, fannst henni Raymond
enn meira spennandi fyrir
vikið. Um síbir fór svo að þau
ákváöu að vinna saman.
Raymond af peningagræðgi
Delphine Downing varö fyrsta fórn-
arlambiö.
SAKAMAL
Mörtu varð síðar til að tortíma
þeim báðum.
Fyrsta fórnar-
lambið
Fyrsta fórnarlambið var
Myrtle Young, 35 ára kona frá
I.ittle Rock, Arkansas. Síðast
var vitað til að hún hafði tekið
4000 dollara af bankareikn-
ingi sínum og hélt til Cook
County, Illinois, þar sem hún
giftist Raymond. „Systirin"
Martha var vottur við athöfn-
ina. Innan við sólarhring eftir
brúbkaupið byrlabi Martha
brúðinni eitur og síðan rændu
skötuhjúin hana öllu fémætu.
Nokkrum dögum síðar dó
Myrtle af völdum lifrar-
skemmda.
Sagan endurtekur sig
Janet Fay var annað fórnar-
lambið. Hin 66 ára gamla
ekkja kom meb 6000 dollara
Raymond Fernandez.
Þau nýttu sér veik-
leika fórnarlamb-
anna og einmana-
leika. Éftir eitt morö
var strax hafist
handa viö þaö
nœsta. Áöur en yfir
lauk uröu þau 17
konum aö bana.
einni saman, en Martha sá að
hún átti ekki annars kost, ef
hún átti ekki að missa Raym-
ond alveg.
Á næstu mánuðum þóttist
Martha vera systir hans og
saman unnu þau að því ab
finna álitleg fórnarlömb. Eftir
því sem konunum fjölgaði, óx
afbrýðisemi hennar og að lok-
um varð hún haldin þrá-
hyggju þar sem hún sá Raym-
ond sífellt fyrir sér í örmum
ástkvenna sinna. Græðgi
skötuhjúanna og afbrýðisemi
inn í sambúð með Raymond
og „systur" hans. Nokkrum
dögum síðar réðst Martha á
hana í heiftarlegu afbrýðisem-
iskasti með hamar og sló hana
margsinnis í höfuðið. „Raym-
ond lauk við verkið með því
að hengja hana með trefli,
þegar hann kom heim," sagbi
hún lögreglunni síbar. Sam-
kvæmt framburði Mörthu
elskuðust þau Raymond af
óvenju miklum bríma á gólf-
inu vib hlibina á líkinu ábur
en þau höfðu fyrir því að
hreinsa upp blóðið og losa sig
vib líkið!
Daginn eftir grófu þau holu
og vörpuðu líkinu ofan í. Það
fannst ekki fyrr en sjö mánuð-
um síðar.
Ekki er vitað með vissu hve
mörg fórnarlömb Raymond
og Martha sviku og myrtu á
næstu mánuðum, en Rainelle
Downing, 28 ára gömul ein-
stæð móðir, varb síðust í röð-
inni.
Rainelle hvarf sporlaust í
mars í Grand Rapids, Michig-
an, árib 1949. Hún hafði svar-
að auglýsingu Raymonds í
einkamáladálki og það var
bróður hennar kunnugt, sem
lét lýsa eftir henni.
Martha Beck.
Martha á leiö í rafmagnsstólinn.
Moröæöi
Eftir ítarlega leit fundust lík-
in af Rainelle og 3ja ára dóttur
hennar í kjallara einbýlishúss,
sem hún hafbi tekið á leigu
eftir að hún kynntist Raym-
ond.
Lögreglan hafði skjótt upp á
Raymond og hann reyndist
samræðufús, enda stoltur af
því hvernig hann sá sér far-
borða, að sögn. Hann viður-
kenndi allt fyrir lögreglunni
og talaði um að líklega hefðu
morðin verið alls 17 á þeim
sjö mánubum sem hann hafði
starfað með Mörthu.
í júlí 1949 komu Martha og
Raymond fyrst fyrir rétt vegna
glæpa sinna. Bæbi báru við
stundarbrjálæbi vegna glæpa
þeirra er þau voru ásökuð um.
Köld til hinstu
stundar
Verjendur reyndu að sanna
að skötuhjúin væri haldin
„folie á deux", veruleikablekk-
ingu þar sem hvort hafði áhrif
á hitt til að fremja óeðlilegt at-
hæfi, án þess ab hugsa um af-
leiðingarnar. Dómendur voru
aftur á öðru máli og voru þau
bæði dæmd til lífláts. Þegar
dómurinn var kveðinn upp,
hrópaði Martha til Raymonds:
„Ég elska þig, ég elska þig," en
Raymond lét sér fátt um finn-
ast, enda voru tilfinningar
hans til Mörthu annars eðlis.
Fernandez var fyrst tekinn
af lífi. „í kvöld dey ég eins og
maður," sagði Raymond við
prestinn sem veitti honum
hinstu blessun áður en aftak-
an fór fram. Honum brást hins
vegar kjarkur á leiðinni í stól-
inn og varð að bera hann síð-
ustu metrana.
Hin grimmlynda Martha,
sem vó um 140 kíló undir það
síðasta, borðaði hinsvegar þrjá
diska af kjúklingum rétt fyrir
aftökuna og var hnarreist og
róleg þegar hún mætti örlög-
um sínum.
Síðustu orð hennar voru
upphafsorð þessarar greinar.