Tíminn - 26.11.1994, Qupperneq 11
Laugardagur 26. nóvember 1994
flokkurinn er reiöubúinn að
taka á með aðilum vinnumark-
aðarins í þessum efnum. Við
viljum veg verkalýðshreyfing-
arinnar mikinn en við teljum
jafnframt nauðsynlegt að end-
urskoða vinnulöggjöfina og
færa hana í nútímalegra horf.
Ég nefndi fyrr á þessu ári að
endurskoöun vinnulöggjafar-
innar væri nauðsynleg. Því var
illa tekið af ýmsum forystu-
mönnum í verkalýðshreyfing-
unni. Ég er ánægður að heyra
aö þeir hafi snúið við blaðinu
og eru tilbúnir í þá vinnu. Það
sýnir mér jafnframt að þatb er
nauðsynlegt að við stjórn-
málamenn setjum fram skoð-
anir á grundvelli sannfæringar
okkar en séum ekki hikandi
vib að skapa umræðu.
Ég sætti mig ekki við að geta
ekki sagt hispurslaust frá því ef
ég sé ab það er verið að spilla
skattkerfinu og vinna gegn
hagsmunum láglaunafólks.
Það hef ég gert og hlotið gagn-
rýni fyrir. Ég lít á það sem
skyldu mína að setja mig inn í
mál og tala á grundvelli þeirrar
niburstöbu sem ég kemst að
jafnvel þó það kunni að vera
óþægilegt. Ég vil að við temj-
um okkur slík vinnubrögð í
Framsóknarflokknum. Við sem
erum í forystu verðum ab þola
gagnrýni og við verðum að
ætlast til að forystumenn ann-
arra félagslegra hreyfinga séu
menn til ab gera það líka. Ef
við hugsum ekki með þessum
hætti, þá verða framfarir engar
og réttlætið mun aldrei ná yf-
irhöndinni. Sjaldan hefur ver-
ið jafn mikil þörf á umræðu
um þab sem betur má fara og
aðferðir til ab ná fram meiri
jöfnuði. En það skortir hrein-
skilni og réttsýni í þá umræðu.
Horfum fram á veg
Ég sagði í ræðu minni á mið-
stjórnarfundi í vor að okkur
skorti framtíðarsýn. Það var
skortur á framtíðarsýn sem
gerði það að verkum að við
gengum of nærri fiskimiðun-
um. Þab var skortur á framtíð-
arsýn sem varð þess valdandi
ab við höfum gengið of nálægt
okkar ástkæra landi. Við höf-
um oft ekki úthald til að bíða
eftir árangri og sýna þraut-
seigju á sviði rannsókna og
þróunar. Langtímasjónarmið í
auðlindanýtingu er undirstaða
velferbar í framtíðinni. Við
eigum fiskveiðistjórnunarkerfi
sem getur tryggt þessa hags-
muni ef því er beitt með rétt-
mætum hætti. Það tók allt of
langan tíma að koma því á
vegna þess að menn vildu ekki
viðurkenna einföldustu stað-
reyndir.
Mikill áhugi landsmanna til
að rækta upp landið er þakkar-
verður. Við eigum að styðja
við bakið á öllu áhugafólki
sem vill sinna þessu mikilvæga
verkefni og nú síðast undir
kjöroröinu „Yrkjum landið". í
þessu felst ræktarsemi vib
landið og áhugi á að horfa
langt fram á veg.
Stöbug breyting á löggjöf
hér á landi er merki um óróa
og skammtímasjónarmið.
Skattalögum er breytt í tíma
og ótíma og skattkerfið kemst
aldrei yfir að framkvæma.
breytingarnar. Niburstaban er
^ aukin skattsvik og lítil virðing
fyrir lögunum. Menn setja
langa og flókna lagabálka um
hvernig eigi ab lána út á íbúðir
og halda því fram ab skólinn
verbi fyrst og fremst bættur
með því að setja nýja löggjöf.
Oftrúin á nýjum lögum virkar
hamlandi á framfarir.
Framtíðarsýnin þarf líka að
ná til vísinda, menntamála,
11
Ingibjörg Pálmadóttir alþingismabur hvetur konur til hertrar sóknar í
stjórnmálum:
Veröum jafn-
margar körlum
á þingi áriö 2015
utanríkismála og allra þeirra
málaflokka sem geta haft áhrif
á afkomu komandi kynslóða.
Framsóknarflokkurinn verbur
með störfum sínum að halda
áfram að horfa fram á veg og
vinna með þeim þjóðfélagsöfl-
um sem hefur svipaða hugsun
og vill ekki lifa fyrir líbandi
stund.
Styrkustu stoöirnar
Á tímum umróts og gífur-
legra breytinga er mikilvægt að
gera sér grein fyrir hvar menn
hafa fast land undir fótum.
Þab er líka nauðsynlegt að rifja
upp hverjar eru styrkustu stoð-
irnar undir þjóðlífi okkar og
hvernig við getum styrkt þær
enn betur. Samstarfib við lýð-
ræðisþjóðirnar í Evrópu og
Ameríku hefur verið farsælt.
Norðurlandasam.starfið og
þátttaka okkar í Sameinuðu
þjóðunum hefur styrkt sjálf-
stæði okkar.
Þrátt fyrir aukið vægi alþjóð-
legrar samvinnu erum þab við
sjálf, þrek okkar, þekking og
framtíbarsýn sem skiptir
mestu máli. Grunnstoðirnar í
þjóðlífinu eru heimilin og at-
vinnulífið. Þessar stoðir eru
styrktar af ríkisvaldinu meb
einum eða öðrum hætti, í
gegnum skólann, heilbrigðis-
kerfið, húsnaeðismálin, lífeyris-
sjóðina, lánastofnanir, menn-
ingarstofnanir, kirkjuna og
margvíslegt samstarf sem
auðgar mannlífið og gefur því
gildi.
Við framsóknarmenn viljum
standa vörð um velferðarkerf-
ið. Við viljum standa fyrir
nýrri sókn í atvinnumálum.
Þetta viljum vib gera til að
skapa traustari grundvöll og
styrkja meginstobir samfélags-
ins.
Ég hef í þessari ræðu gert
grein fyrir hvar ég tel áherslur
í íslensku þjóðlífi liggi og
hvernig nálgast á helstu úr-
lausnarefni samfélagsins. Á
þessum grunni og 29 ára þátt-
töku í starfi Framsóknarflokks-
ins mun ég á sunnudag óska
eftir stuðningi ykkar til for-
mennsku í flokknum. Ef ég fæ
þennan stubning sem til þarf
kemur í minn hlut ab leiða
flokkinn í næstu kosningum,
kosningum sem skipta sköp-
um um hvort landsmenn
ganga með reisn til móts við
nýja öld.
Okkur er öllum ljóst að við
fáum engu áorkað, nema fólk-
ið í landinu treysti okkur og
trúi því ab áhrif Framsóknar-
flokksins verbi til heilla fyrir
framtíb íslands. Flokkurinn
hefur hingað til notið mikils
trausts í íslensku þjóðlífi og sér
þess víða stað. Við munum
enn sem áður leita eftir því að
byggja slíkt traust á staðfestu,
raunsæi og hógværð.
Framfarir byggjast ekki á lof-
orbaglamri og gífuryrðum í
garð annarra.
Þeim sem vilja
vakna og skilja
vaxa þúsund ráð.
Segir í íslandsljóði Einars
Benediktssonar skálds.
Enginn þarf að velkjast í vafa
um að vib höfum vilja til að
taka á. Úrræbi þau og lausnir
sem mótaðar verða á þessu
flokksþingi verba lögð í dóm
þjóðarinnar á vordögum. Það
er okkar hlutverk allra sem hér
erum að sjá til þess ab bob-
skapur okkar hljómi í öllum
byggbum landsins.
Við munum leggja mál okk-
ar í dóm þjóðarinnar og þann
dóm þurfum vib ekki að óttast.
Ingibjörg Pálmadóttir alþingis-
maður telur miklar líkur á að
konur verbi kjörnar í tvær af
þeim stöðum sem kosiö veröur
um á flokksþingi Framsóknar-
flokksins um helgina. Það yrði í
fyrsta skipti í sögu flokksins
sem þab gerðist.
Umræða um veg kvenna í
stjórnmálum hefur verið hávær
undanfarið. Ýmsir hafa talaö
um bakslag í þeim efnum og
sagt greinilegt að konur eigi erf-
itt uppdráttar í hinum hefð-
bundnu stjórnmálaflokkum.
Tíminn átti vibtal við Ingi-
björgu Pálmadóttur alþingis-
mann af þessu tilefni en hún
leiðir lista Framsóknarflokksins
á Vesturlandi fyrir komandi
kosningar.
Eiga konur erfiðara uppdrátt-
ar í stjómmálum en karlar?
„Það er ekki löng hefð fyrir
því í hefðbundnum stjórnmála-
flokkum að konur séu þar jafn-
margar og karlar. Út af fyrir sig
er ekki óeðlilegt að það taki
eina kynslóð aö ná því tak-
marki. Því ber þó ekki að neita
ab karlahefð er ríkjandi í öllum
flokkunum nema Kvennalist-
anum. Karlarnir hafa skapað
vissar reglur sín á milli sem eru
ekki endilega þær reglur sem
við, konurnar, viljum halda í.
Vib hugsum flestar öðruvísi en
karlar og viljum haga málum á
annan hátt en gamla karlahefð-
in býöur.. Hefbirnar breytast
hins vegar ekki fyrr en við verð-
um jafn margar og karlar á
þingi, sem ég á von á að verði
árib 2015."
Ertu sammála því að úrslit
prófkjöra að undanfomu sýni að
konur í stjórnmálum eigi núna
venju fremur undir högg að
scekja?
„Mér finnst mjög slæmt ef
konur líta svo á í hvert skipti
sem þeim er hafnað að það sé
Mótmælafólk Greenpeace um
borft í skipinu Solo stöbvabi í
gær Trident kjarnorkukafbátinn
Vanguard, sem ber 96 kjarna-
odda samanboriö vit) „abeins" 32
í Polariskafbátunum. Komib var
fyrir nebansjávar hindrunum vib
Faslane-flotastöbina norbvestur
af Glasgow, sökkt var fjölda
tunna fylltum steinsteypu en út
úr þeim standa stálfleinar í ýms-
um lengdum sem gera siglingu
skipsins út á úthafib ómögulega.
„Vanguard getur flutt sem svar-
ar 640 Hírósíma-sprengjum og get-
ur valib sér skotmörk næstum því
hvar í heiminum sem er", sögbu
Ingibjörg Pálmadóttir, alþingis-
mabur: Finnst ómaklega vegib ab
stjórnmálamönnum, bœbi konum
og körlum.
vegna þess að þær séu konur.
Við veröum að muna að fjölda
karlmanna er líka hafnað í öll-
um prófkjörum, það er alls ekki
bundið viö konur. Við göng-
umst undir vissar leikreglur og
veröum að fara eftir þeim, en
hvort prófkjör eru konum erfið-
ari en körlum kann ég ekki skil
á."
Hvað með hið tvöfalda vinnu-
álag kvenna, getur verið að það
dragi úr þátttöku þeirra í stjóm-
málum?
„Vib verðum ab hætta að
hugsa svona ef við ætlum að
taka þátt í stjórnmálum. Þetta
er svo tímafrekt. Kröfurnar inni
á heimilunum breytast ekki og
við verðum einfaldlega að við-
urkenna þab og fá hjálp meb
börnin og heimilisstörfin ef
þess þarf. Það má heldur ekki
gleymast að feöurnir hafa auð-
vitab sömu skyldur og við kon-
urnar, og við eigum ekkert ab
vorkenna þeim ab axla þá
ábyrgð."
Grænfribungar í gær. Fram kom ab
Moskva er ekki eitt af skotmörkun-
um í tölvum skipsins.
„Þetta er andstyggileg stigmögn-
un á auknum kjamorkustyrk Breta
aðeins tveim mánuðum áður en
Sameinuðu þjóðirnar hyggjast
ræða kjarnorkuafvopnun og út-
breiðslu kjarnorkuvopna", sagbi Ja-
net Convery um borð í skipi Græn-
friðunga, Solo, í gærdag.
Smíði Trident-kafbátanna hefur
kostað breska skattborgara skild-
inginn, þeir verba fjórir talsins og
kosta 30 milljarba punda eba um
3.200 milljaröa íslenskra króna, —
þrítugföld fjárlög íslenska ríkisins.B
Hvað finnst þér um þá um-
rœðu að Framsóknarflokkurinn sé
að veröa flokkur miðaldra karla?
„Mér finnst oft mjög ómak-
lega vegiö að fólki í stjórnmál-
um, bæði konum og körlum.
Mér finnst til dæmis ómaklegt
að talað sé á niðurlægjandi hátt
um fólk af því að það er komið
á miðjan aldur. Það hlýtur að
vera nauðsynlegt í öllum
stjórnmálaflokkum að þar starfi
bæði kynin og fólk á ólíkum
aldri. Það er mikilvægt að kyn-
slóðirnar vinni saman og auki
þannig skilning sín á milli."
Flokksþingi Framsóknarflokks-
ins verður fram haldið um helg-
ina. Telurðu að konur eigi mögu-
leika á að ná kjöri í einhver þau
embcetti sem þar verður kosið
um?
„Þótt ég persónulega sækist
ekki eftir kjöri tel ég aö konur
eigi mjög mikla möguleika í
kosningum til æðstu stjórnar
flokksins. Það sem er kannski
ánægjulegast er að það eru ör-
ugglega margar konur sem eru
tilbúnar til að gefa kost á sér og
mjög hæfar til þess. Mér finnst
t.d. sjálfsagt að Valgerður Sverr-
isdóttir gefi kost á sér í ein-
hverja af þeim stöðum sem kos-
ið er um. í dag eru allar æðstu
stöðurnar skipaðar körlum en
ég sé fyrir mér að í fyrsta skipti
í sögu flokksins verði a.m.k.
tvær af þessum stöðum skipað-
ar konum. Ég vona það að
minnsta kosti." ■
Utanríkisrábherra:
Lystug mús,
su íslenska
Gro Harlem Brundtland,
krati og samherji Jóns Bald-
vins Hannibalssonar utanrík-
isráðherra, sér rautt þegar
litla íslands er getib. Það var
haft eftir henni ab rödd ís-
lands á Evrópuvettvangi væri
nánast eins og músartíst.
Jón Baldvin svarabi þessu að
bragði: „Ja, þab er þá lystug
mús, hún er búin ab éta meira
en fimmtíu þúsund tonn af
þorski úr Barentshafi, eftir því
sem Gro segir sjálf". ■
800 milljaröa Trident kjarnorkukafbátur Breta meö
sprengikraft 640 Hírósíma-sprengja um borö:
Greenpeace lokaði
útsiglingarleiöinni