Tíminn - 26.11.1994, Side 19

Tíminn - 26.11.1994, Side 19
Laugardagur 26. nóvember 1994 WiW-tUM 19 öld, en Sovétiö laföi í sjötíu ár. En seint munu þeir Framsóknar- kommar á Neskaupstaö leiöa því- líkar hörmungar yfir Austfiröinga sem Sovéttrúboöiö eystra. Enda ólíku saman að jafna — útgerð- inni á Neskaupstað eða ryökláf- um kjarnorkuveldisins, sem nú mara í kafi undan Novaya Zemlya. Austfiröingar trúöu Lúövík Jós- epssyni snemma fyrir litlu. Og hann var settur yfir mikiö, enda brást hann ekki trúnaði þeirra. Við munum lengi minnast sjáv- arútvegsráöherrans Lúövíks Jós- epssonar, sem meö undirskrift sinni færði út landhelgina, fyrst í 12 mílur 1958 og síöar í 50 mílur 1972. Víst er þaö svo aö Hans G. Andersen, þjóöréttarfræöingur, lagði traustan grundvöll aö þess- ari nýju sjálfstæðisbaráttu meö framsýnni löggjöf um vísindalega verndun landgrunnsins þegar árið 1948. Og lagði á ráöin um sókn og vörn í því máli í tvísýnni atskák við rétttrúnað ríkjandi lögfræði og hagsmunavörslu stór- þjóða. En Lúðvík Jósepsson var líka réttur maöur á réttum staö. Hann hafði hafist af litlu úr sjávarplássi noröur við Dumbshaf. Hann þekkti af eigin reynslu haröa lífs- baráttu íslenskra sjómanna. Hann vissi aö afkoma þjóöarinn- ar var undir því komin að auð- lindin yrði ekki rányrkt af út- lendum togaraflota. Hann var ekki. haldinn neinni vanmeta- kennd gagnvart útlendum stór- bokkum og vissi vel, hvers hann var megnugur. Hann var réttur maður á réttum staö. Og heimurinn tók eftir þessum harðsnúna útkjálkamanni. Sagan segir að hann hafi komist næst því, íslenskra stjórnmálamanna, að prýða forsíöu Time Magazine sem byltingarforinginn, sem stóö upp í hárinu á ríkisstjórn hennar hátignar, Bretadrottningar. En annar hvor þeirra Makaríosar erkibiskups á Kýpur eöa Nassers Egyptalandsforseta hafi rutt hon- um af forsíðunni á seinustu stundu. Time hefði væntanlega selst vel í Neskaupstaö þann dag- inn. En varla hefði þá Lúðvík, Bjarna og Jóhannes grunaö það þá að þyrlubjörgunarsveit Varn- arliðsins ætti eftir aö lenda á Rauöatorginu og taka þátt í há- 'tíðahöldunum á sjómannadag- inn sem sérstakir heiöursgestir arftaka þeirra í bæjarstjórn Nes- kaupstaðar. Þaö mega gjarnan heita „sögulegar sættir". Fyrir hönd okkar íslenskra jafn- aöarmanna votta ég eftirlifandi eiginkonu Lúðvíks, Fjólu Steins- dóttur, afkomendum þeirra, vin- um og vandamönnum samhygð og virðingu. Jón Baldvin Hannibalsson, fomiaður Alþýðuflokksins — Jafhaðannannaflokks íslands Sigurjón Viðar Alfrebs Vinur minn Sigurjón Viöar Al- freös er farinn, horfinn, dáinn. Þaö var eins og ljós heföi slökkn- aö. Ljós sem maöur hafði tekið sem sjálfsögöu. Ljós sem einfald- lega alltaf var, og þar með ekki metið aö verðleikum, fyrr en það hvarf. Við höfðum unnið saman gegnum árin, á íslandi og í út- löndum, og þegar viö hjónin stofnuðum félagið okkar Atlanta, þá kom Sigurjón meö okkur í baráttuna. Sigurjón var flugumsjónarmaö- ur aö mennt, og vann í fyrstu sem slíkur, en gekk jafnframt í öll önnur störf eöa allt annaö sem þurfti að gera og þaö á hvaða tíma sem var hvar sem var, og það er nú einu sinni svo, að þeg- ar maður vinnur möglunarlaust allt sem þarf, þá er endalaust bætt á og veröur þá gjarnan lítið um þakkir. En þó seint sé, vil ég meö þessum fátæklegu oröum þakka fyrir samveruna og sam- starfið. Þegar ég horfi til baka, rennur upp fyrir mér hversu stór maður Sigurjón var. Hann var með geö- prúðustu mönnum og var alltaf í sínu einstæða sólskinsskapi. Hann var fyrstur til að finna ef t MINNING eitthvað bjátaöi á hjá einhverjum og þá fyrstur meö orö til hjálpar og styrktar. Oft þegar ég stóð frammi fyrir erfiðleikum sem mér fannst á stundum óyfirstíganleg- ir, og sá enga lausn á, kom hann, lagöi hendina á öxlina á mér og sagði: „O, þetta lagast fóstri." Lausnirnar á vanda, litlum eða stórum, hafði hann alltaf tiltæk- ar. Ein lítil saga frá því við opn- uðum fyrirtækiö okkar fyrst í Mosfellsbænum kom upp í huga mér. Við höfðum keypt notuð skrifstofuhúsgögn sem Sigurjón fann á einhverri útsölu, en þegar við vorum stoltir búnir að koma öllu saman og á sinn stað sáum við okkur til hrellingar að fínu húsgögnin okkar voru öll í risp- um. Þetta var hið versta mál, því við höfðum boöið nokkrum gest- um um kvöldið. Nú, Sigurjón dó ekki ráðalaus og hljóp yfir götuna í matvöruverslunina og keypti sósulit sem hann síöan bar á, og allar rispur hurfu samstundis, og hafa ekki sést að ráði síðan og þessi húsgögn enn í notkun. Sigurjón hafði þann einstaka hæfileika aö eignast vini hvar sem hann fór. í Líbýu, þar sem Sigurjón var stöðvarstjóri um tíma, var oft lítið um kræsilegan mat, en Sigurjón fór bara og „tal- aði" og samdi við vini sína bænd- urna í nágrenninu og aflaði fanga, svo sem eins og kjúklinga og eggja. Hvaða tungumál hann talaði eða hvernig hann fór að þessu hef ég aldrei komist að, en eitt er víst að ekki talaði hann ar- abísku og ekki töluðu þeir neitt það tungumál sem hann kunni, en matinn kom hann með. Þann- ig var Sigurjón, hann einfaldlega viöurkenndi ekki vandamál. Svona litlar sögur geymi ég marg- ar og á eftir að minnast þeirra með hlýju um mína ókomnu daga. En nú hefur Sigurjón komið að endalokum þessa lífs, og við sem eftir erum minnumst góðs drengs og vinar með djúpum söknuði og björt minning hans mun geym- ast okkur um framtíö. Um leið og við þökkum fyrir samveruna, viljum við, Birna mín, votta þér og Báru, börnum ykkar, tengdabörnum, barna- börnum svo og öðrum ættingj- um, okkar dýpstu samúð. Megi guð fylgja ykkur. Amgrímur og Þóra DAGBÓK IVAAyVAAJUWUUV/UUI Lauqardaqur ié nóvember 230. dagur ársins - 35 dagar eftir. 47. vlka Sólris kl. 10.30 sólarlag kl. 15.39 Dagurinn styttist um 6 mínutur Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Á morgun sunnudag: Brids- keppni, tvímenningur, kl. 13 og félagsvist kl. 14 í Risinu. Dansað í Goðheimum kl. 20. Mánudag 28. nóv. kl. 20.30 er Söngvaka í Risinu. Stjórnandi Vigdís Einars- dóttir. Barbstrendingafélagib og Djúpmannafélagið Minnum á félagsvistina í dag kl. 14 á Hallveigarstööum. Allir vel- komnir. Veitingar. Gjábakki, Fannborg 8 Laufabrauðið er í dag kl. 13. Kór- arnir syngja kl. 15. Ný 3ja vikna námskeið hefjast í næstu viku. Upplýsingar í síma 43400. Kolrassa krókríöandi meb hljómleika Hljómsveitin Kolrassa krókríb- andi heldur stórtónleika í Tjarn- arbíói í kvöld, laugardag. Hljóm- sveitin Maus hitar upp og húsið opnar kl. 22. Miðaverð er í algeru lágmarki, eða aðeins kr. 300, pg auk þess fá heppnir gestir glaön- ing. Allir, sem eru 16 ára og eldri, eru velkomnir! Abventuhátíbir í Bú- stabakirkju og Neskirkju Á morgun er fyrsti sunnudagur í aðventu. í Bústaðakirkju verður aðventuhátíð um kvöldiö og hefst hún kl. 20.30. Ræðumaður kvöldsins veröur Ólafur Ragnars- son bókaútgefandi. Barnakórinn syngur ásamt yngri bjöllukór undir stjórn Erlu Þórólfsdóttur. Gréta Bentsdóttir syngur ein- söng, Hanna Björk Guðjónsdóttir og Ingunn Osk Sturludóttir syngja tvísöng. Kirkjukórinn ásamt 20 manna hljómsveit úr Tónlistarskóla Hafnarfjarðar syngja innlend og erlend lög. Guðni Þ. Guðmundsson stjórnar. í Neskirkju verður aöventusam- koma kl. 17. Pétur Guðmundar- son flytur ávarp. Ræðumabur verður dr. Gunnlaugur A. Jóns- son. Af tónlistaratriðum má nefna tónverkiö Lag fyrir ljúfan draum fyrir flautu, píanó og selló eftir Steingrím Þórhallsson, og er hann einn flytjenda. Þá mun Finnur Bjarnason syngja einsöng við undirleik Reynis Jónassonar og kirkjukórinn syngur þrjú lög. Lokaorð flytur séra Guðmundur Óskar Ólafsson. Jólavaka Barnabókarábsins Hin árlega jólavaka Barnabóka- bráösins, íslandsdeilar IBBY, verbur í Norræna húsinu á morg- un kl. 15. Lesið verður úr nýjum ísl. barnabókum, upplesarar eru Ármann Kr. Einarsson, Jóhanna Steingrímsdóttir, Gunnhildur Hrólfsdóttir og Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson. Kynnir er Iðunn Steinsdóttir. Kl. 14.30 verður opnuð sýning í anddyri hússins á jólamyndum eftir börn. Allir eru velkomnir í Norræna húsið kl. 14.30 og ab- gangur er ókeypis. Abventutónleikar Lúbra- sveitarinnar Svans Á morgun, sunnudag, mun Lúbrasveitin Svanur halda sína árlegu aðventutónleika í Lang- holtskirkju. Á efnisskránni eru meðal annars A Messiah Overture eftir Hándel, Mars úr Tannháuser eftir Wagner, jólalög og margt fleira. Stjórnandi er Haraldur Árni Haraldsson. Tónleikarnir eru í Langholtskirkju kl. 17. Leibsögn um sögusýning- una Leibin til lýbveldis Sögusýning Þjóðminjasafns og Þjóðskjalasafns í gamla Morgun- blaðshúsinu í Aðalstræti 6 veröur fram haldið til jóla. Á morgun, sunnudag, kl. 15 veita sérfræð- ingar leiðsögn um hana. Sýning- in og verslunin er opin þriðju- daga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga frá kl. 12-17. Von og vísa í Hafnarborg Anna Pálína Árnadóttir vísna- söngkona og Gunnar Gunnars- son, organisti og djasspíanisti, halda tónleika á morgun, sunnu- dag, í Hafnarborg, Hafnarfirði. Tilefni tónleikanna er útkoma nýrrar geislaplötu sem ber heitið Von og vísa, en á henni eru þekktir sálmar í nýjum og óvenjulegum útsetningum. Tón- leikarnir hefjast kl. 17. Þeir eru öllum opnir og aðgangur er ókeypis. Fréttir í vikulok Lítil lobna Aðeins mældust um 570 þúsund tonn af hrygningarloönu í haustleiðangri Hafrannsóknastofnunar, sem er mun minna en búist var við. Nánast hvergi fundust veiðanlegar torfur og fulloröna loðnan var óvenju rýr. Þá fannst engin lobna á Grænlandssundi og Noröurdjúpi. Fiskifræðingar telja óvissu um stærð stofnsins og verður hann rannsakaöur nánar. Vaxandi atvinnuleysi í október voru að meðaltali 4.539 manns án atvinnu. Þaö jafngildir 3,4% atvinnuleysi, sem er 0,2% aukning frá fyrra mánuði. Atvinnuleysi jókst í öllum landshlutum nema á Austurlandi. Búist er við að atvinnuleysi í nóvember verði enn meira, eða 4.2- 4.8%. Neyðarástand vegna verkfalls sjúkraliða Stjórn Landakots lýsti í vikunni yfir neyðarástandi vegna verkfalls sjúkraliöa. Fundir hafa verið árangurslausir á milli samninganefndar ríkisins og sjúkraliða og virðist málið í hnút. Banaslys vib Akureyri Banaslys varð á Norðurlandsvegi við Akureyri sl. laugardag. Tveir bílar skullu saman í hálku og lést ökumaöur annars þeirra. Bylting í vetrarakstri? Léttari snjónaglar úr hörðu plasti eða áli munu trúlega verða teknir upp á Islandi næsta haust. Notkun slíkra nagla hefur reynst vel í nágrannalöndunum. Þetta mun hafa tugmilljóna sparnað í för með sér, ef af verður, auk þess sem mengun minnkar til muna. Sínkverksmibja í sjónmáli? Bandarísk fyrirtæki hafa áhuga á að byggja sínkverksmiðju á íslandi. Beðið er skýrslu erlendra aðila sem hafa skoðað mál- ið. Rætt er um fjórar deildir, tvær hrávinnslur og tvær deildir sem fullvinna efnið. Reksturinn yrði mögulega bæöi á Grundartanga og í Gufunesi við Reykjavík. Ef af verður, er talið að þrjú ár taki að koma verksmiðjunni upp og myndu skapast um 1000 störf við byggingu hennar. Flutt úr Landsbókasafni Mestu dýrgripir Landsbókasafns eru nú að skipta um aösetur, en Þjóðarbókhlaðan mun leysa gamla Landsbókasafnið af hólmi á næstunni. Á meðal helstu dýrgripa safnsins eru Pass- íusálmar Hallgríms Péturssonar. Óreiba í Kvennaathvarfinu Búið er að segja upp öllum starfsmönnum Kvennaathvarfs og mynda nýja stjórn eftir að starfsmenn urðu uppvísir að fjármálaóreiðu. Ekki er talið tilefni til kærumála vegna fjár- dráttar, en komið hafa fram alvarlegar brotalamir á rekstri at- hvarfsins. Kappkostað verður að koma rekstrinum í lag á næstunni og m.a. verður engin yfirvinna heimiluð og dregið úr aðkeyptri sérfræðiþjónustu í sparnaöarskyni. Lúbvík jósepsson látinn Lúðvík Jósepsson, fyrrverandi alþingismaöur og ráðherra, er látinn. Hann var landskjörinn þingmaður 1942 og sat á þingi allt til 1979. Hann varð tvívegis sjávarútvegsráðherra og gegndi mikilvægu starfi í útfærslu landhelginnar.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.