Tíminn - 01.02.1995, Side 6
6
9CSmðatu
Miðvikudagur 1. febrúar 1995
UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM
Frá undirskrift samningsins um kaup björgunarsveitarinnar Víkverja
á húsi Víkurprjóns ídesember.
r nÉrmnl nn i n
SELFOSSI
Víkverji í Mýrdal kaupir
hús Víkurprjóns:
Björgunarsveit-
armenn úr
þrengslum í
rúmgott hús-
næöi
Björgunarsveitin Víkverji í
Vík í Mýrdal hefur keypt nú-
verandi verksmiöjuhús Vík-
urprjóns hf. en fyrirtækið
flyst í nýtt húsnæði í vor.
Samningur þessa efnis var
undirritaöur í desember sl.
en með nýja húsinu stækkar
húsnæði Víkverja um rúma
200 fermetra.
„Núverandi húsnæði sveit-
arinnar er um 130 fermetrar
og er orðið alltof lítið. Við
höfum t.d. þurft að láta
hluta af tækjunum standa
úti undanfarin ár. Nýja hús-
ið er 332 fermetrar að
grunnfleti en auk þess eru
loft yfir hluta af því sem nýt-
ast vel sem geymslur," sagbi
Grétar Einarsson, formabur
Víkverja, í samtali við Sunn-
lenska.
„Við þurfum mjög litlu að
breyta í innréttingum og
getum nánast flutt inn um
leið og við höfum fengið
húsið í hendur," sagði Grét-
ar ennfremur.
Ölfus:
Arnarungará
gæsaveiöum
Nýlega sást til tveggja arna
þar sem þeir réðust á gæs í
Soginu þar sem þaö rennur
úr Álftavatni.
Að sögn Guðmundar Þor-
valdssonar á Bíldsfelli í
Grafningi voru ernirnir með
hvítar fjaðrir í stéli og því
líklega ungar frá því í sumar.
Það bendir til að arnarvarp
hafi komist upp í nágrenni
Ingólfsfjalls en ernir hafa
sést í og við fjallið öðru
hvoru í mörg undanfarin ár.
Ab sögn Guðmundar var
slagur arnanna vib gæsina
með þeim hætti að þeir
steyptu sér niður að henni
en hún sökkti sér á kaf í
hvert skipti. Svo virðist sem
gæsin hafi ekki þorað ab
fljúga upp undan örnunum
en um leikslok var Guð-
mundi ekki kunnugt.
BORGFiRDINGUR
BORGARNESI
Nýtt búvélaverk-
stæöi aö Skips-
nesi
„Ég vil vera hér áfram,"
segir Stefán Ármannsson, en
hann tók nýlega í notkun
nýtt búvélaverkstæði í Leir-
ár- og Melahreppi ásamt
konu sinni. Verkstæðið er í
nýju stálgrindahúsi sem sér-
staklega var reist til starfans.
Að sögn Stefáns var að-
dragandinn sá að hann vildi
skapa sér aukna atvinnu á
jörðinni úr því að hann var
kominn þangað á annað
borð. Jörðin hefur ekki mik-
inn kvóta og samdráttur hef-
ur verið í tamningum á
hrossum, sem hann heur
einnig sinnt, svo hann hefur
orðið ab vinna annars stab-
ar.
Búvélaverkstæðið hefur
umboð fyrir Ingvar Helga-
son, véladeild, svo og frá
Gljá hf. sem flytur inn Poly-
bale, grænt umhverfisvænt
rúllubagga-polyplast.
Héraösbókasafn-
iö tölvuvætt
í vetur verða teknar í notk-
un tvær tölvur á Héraðs-
bókasafni Borgarfjarðar.
Önnur tölvan verður með
tengimöguleika við net og
verbur m.a. hægt að leita í
Gegni, sem er forrit Lands-
bókasafns - Háskólabóka-
safns, og getur fólk leitab þar
að bókum eftir höfundum
og titlum. Þar er líka tíma-
ritaskráning sem gagnast t.d.
þeim sem eru að vinna við
ritgerðir.
Hin tölvan verður meb rit-
vinnslu og töflureikni til
nota fyrir almenning. Sama
þóknun verður fyrir þessa
þjónustu, þ.e. gjald fyrir út-
prentun. Vaxandi þáttur í
starfsemi bókasafnanna hef-
ur veriö að þjónusta nem-
endur sem eru að vinna
verkefni í tengslum vib nám
sitt og og vonandi verða þær
breytingar sem nú standa
fyrir dyrum til þess að þjón-
usta batni enn frekar.
Dalvíkurhöfn:
Veöurfréttir all-
an sólarhringinn
Við Dalvíkurhöfn er nú
verið að koma fyrir veðurat-
hugunartækjum og er hægt
ab fylgjast meb veðri og
reyndar sjólagi í höfninni á
tíu mínútna fresti allan sól-
arhringinn. Á næstunni
verður hægt að hringja í
stjórnstöðina og fá upplýs-
ingar um veðrið með aðstoð
hljóðgervils.
Það er ekki Veðurstofan
sem stendur fyrir þessum at-
hugunum heldur eru þær að
frumkjæbi Hafnamálastofn-
unar en hún stendur undir
kostnaði við þær ásamt
Hafnasamlagi Éyjafjarðar.
Alls hafa verið settar upp 14
sambærilegar veðurstöðvar
víða um land, þar af 8 sem
tengjast höfnum.
Nemarnir voru settir upp í
fremra mastrið á norður-
garbinum og skrá þéir sjálf-
virkt á tíu mínútna fresti
vindstyrk, bæði meöaltal og
hvössustu byljina, vindátt,
hitastig, loftraka og astöðu
loftvogar. í höfninni er búið
að koma fyrir öðrum nema
sem fylgist með flóðhæð og
soginu í höfninni.
Eggert Bollason, starfsmaöur Hafnasamlags Eyjafjarbar, vib tölvu-
skjáinn í vigtarskúrnum þar sem hœgt er ab fygjast meb veburat-
hugunum vib höfnina á tíu mínútna fresti.
Eldur kom upp í verslunarkjarna á Húsavík:
Tu^milljóna
krona tjón í eldi í
matvöruverslun
Mikib tjón varb þegar eldur kom
upp á lager matvörumarkabarins
Þingeyjar á Húsavík á þribja tím-
anum abfaranótt mánudags. Ab
auki urbu skemmdir í öbmm fyr-
irtækjum, sem hafa absetur í
sama húsi, og í íbúb á annarri
hæb þess. Mabur, sem býr í þeirri
íbúb, varb eldsins var þegar reyk-
skynjari í versluninni fór í gang,
og komst út um glugga á íbúb-
inni. Mikill reykur var í húsinu
og hefur reykskynjarinn líklega
bjargab lífi mannsins.
Ab sögn Hannesar Höskuidsson-
ar, annars eigenda verslunarinnar,
er tjónib mikib, vörulager fyrir
rúmar 10 milljónir er ónýtur og
ekki ólíklegt ab allar innréttingar
séu meira og minna ónýtar einnig.
Þab er því ekki ólíklegt ab tjónib í
Þingey sé vel á annan tug milljóna;
skemmdir eru miklar af reyk og
sóti, auk eldskemmda. Hannes
sagði að í gær hefðu menn frá
tryggingafélögunum verið á staðn-
um til að meta tjónið, en sagði að
hjá sér væri allt vel tryggt, bæði
fyrir skemmdum og rekstrarstöðv-
un. „Já, þetta er vel tryggt og ég
vona að tjónið, sem tryggingar
bæta ekki, verði ekki mikið þegar
upp er staöið, þó alltaf verði um
eitthvert tjón að ræða," sagði
Hannes. Hann sagðist gera ráð fyrir
að verslunin yrði lokuð í það
minnsta tvær vikur, á meðan verið
væri að hreinsa og endurnýja það
sem þarf, bæði búnað, innréttingar
og vörur.
í húsinu eru einnig sex önnur
fyrirtæki: snyrtivöruverslun, vefn-
aðarvöruverslun, bensínsala, gjafa-
vöruverslun og bakarí, auk þess
sem Póstur og sími hefur aðsetur
sitt í norðurenda hússins. Á efri
hæð eru einng tvær íbúðir og eins
og áður kom fram er önnur þeirra
yfir þeim stað þar sem eldurinn
kom upp.
Skemmdir urðu einnig í snyrti-
vöruversluninni, bakaríinu og
vefnaðarvöruversluninni vegna
sóts.
Eldurinn kom upp í kælipressu á
lager og að sögn lögreglu á Húsavík
var eldur ekki mjög mikill og
slökkvistarf tókst mjög vel.
Starfsmenn slökkviliðsins á
Húsavík eru þrír talsins og eru þeir
í hlutastarfi. Auk þess eru sjálf-
boðaliðar kallaðir til við útköll hjá
slökkviliöinu. Slökkviliðið er vel
búið og hefur yfir að ráða nýrri
slökkvibifreið, auk tveggja eldri bif-
reiða. ■
Sitjandi eru Sigrún jóhannsdóttir (t.v.) og Hrafnhildur Magnúsdóttir. Hin-
ar eru fulltrúar fyrir abra verblaunahafa.
Dregið í AEG-
KRAFT leiknum
Dregib var í fyrra sinn í AEG-
KRAFT leik Efnaverksmibjunnar
Sjafnar 25. janúar sl. Til ab taka
þátt í leiknum þurftu þátttak-
endur ab klippa strikamerki af
KRAFT-þvottaduftspakka og
senda til Sjafnar, en alls bárust
hátt í 1000 mibar. í vinninga
voru ein AEG-þvottavél og 5
AEG-kaffivélar.
Hinir heppnu vinningshafar
voru Sigrún Jóhannsdóttir, Bugðu-
iæk 6, Reykjavík, er hlaut þvotta-
vélina, en kaffivélar hlutu Þóra
Jónsdóttir, Reykjaheiðarvegi 10,
Húsavík, Halla Einarsdóttir, Dals-
gerði 1 d, Akureyri, Hrafnhildur
Magnúsdóttir, Æsufelli 7 f, Reykja-
vík, Páll Helgi Buch, Einarsstöðum,
Reykjahverfi, S.-Þing., og Bára Ól-
sen, Beykilundi 3, Akureyri.
Vinningar voru afhentir vinn-
ingshöfum föstudaginn 27. janúar
hjá Sjöfn í Garöabæ. Dregið verður
í seinna skiptið 28. febrúar n.k.
Frambobslisti Alþýbuflokksins í
Norburlandskjördæmi eystra
1. Sigbjörn Gunnarsson, alþingis-
mabur, Dalsgerði 2c, 600 Akureyri.
2. Anna Karolína Vilhjálmsdóttir,
frkvstj. hjá íþróttasambandi fatl-
aðra, Hrísmóum 5, 210 Garöabæ.
3. Aöalheiður Sigursveinsdóttir,
verslunarmabur, Hrafnagilsstræti
34, 600 Akureyri.
4. Pálmi Ólason, skólastjóri, Ytri-
Brekkum, 680 Þórshöfn.
5. Halldór Guðmundsson, bifvéla-
virki, Ólafsvegi 2, 625 Ólafsfirði.
6. Hanna Björg Jóhannesdóttir,
starfsmaöur Barnaskóla Akureyrar,
Löngumýri 9, 600 Akureyri.
7. Viðar Valdemarsson, matreibslu-
meistari, Sandskeibi 16, 620 Dalvík.
8. Hilmar Ágústsson, útgerðarmab-
ur, Abalgötu 44, Raufarhöfn.
9. Rósa Jóhannsdóttir, starfsstúlka
FSA, Móasíbu 9e, 603 Akureyri.
10. Trausti Gestsson, skipstjóri,
I.angholti 27, 603 Akureyri.
11. Áslaug Einarsdóttir, fyrrv. bæj-
arfulltrúi, Goðabyggb 4, 600 Akur-
eyri.
12. Guðmundur Hákonarson, fram-
kvæmdastjóri, Sólvöllum 7, 640
Húsavík.