Tíminn - 01.02.1995, Síða 9
Miðvikudagur 1. febrúar 1995
9
UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . . . UTLÖND
Flóöin í N-Evrópu:
150 þúsund hafa
flúið heimili sín
Amsterdam - Reuter
Tugþúsundir manna fengu í
gær fyrirmæli um að yfirgefa
heimili sín vegna verstu flóöa í
Noröur-Evrópu í sextíu ár, og
lætur þá nærri að um 150 þús-
und séu nú heimilislausir á
flóðasvæðunum. Ekkert lát er á
vatnavöxtum. Auk manntjóns
og öngþveitis á flestum sviðum
er ljóst að gífurlegt tjón er þegar
orðið á mannvirkjum og sér þó
ekki fyrir endann á því.
í Niðurlöndum fara nú fram
mestu fólksflutningar vegna
flóða í meir en fjörtíu ár. Spáö er
áframhaldandi úrhelli, auk
hvassviðris, á svæðum þar sem
ástandiö er alvarlegast, en eftir
því sem hvessir eykst hætta á
því að flóðgarðar láti undan.
Veðurspáin næstu daga bendir
ekki til þess aö flóðin fari að
réna fyrr en á föstudaginn, í
fyrsta lagi.
Þessar náttúruhamfarir hafa
vakið upp hatrammar deilur í
Niðurlöndum og eru stjórnvöld
sökuð um að hafa látið það
dragast von úr viti að styrkja
flóðavarnagarða sem frá gamalli
tíð hafa verib einskonar for-
senda byggbar þar sem landið
liggur svo lágt sem raun ber
vitni á þessum slóðum.
Evrópsku verslunarráöin:
Efnahagslífib á upp-
leið en atvinnan ekki
Briissel - Reuter
Samtök verslunarráöa • í Evr-
ópu álíta aö efnahagslífið í álf-
unni sé á uppleið en atvinnu-
horfur muni ekki batna ab ráði
á næstunni. Þetta kemur fram í
ársskýrslu samtakanna sem birt
var í gær, en þar segir ma.:
„Efnahagslíf í Evrópu snerist til
betri vegar á árinu 1994, eftir
þann efnahagslega samdrátt
sem verið hefur og væntingar
manna í einkarekstri eru þær að
á árinu 1995 verði um staðgóð-
an efnahagsbata að ræba." í
skýrslunni er þó varað við að í
ýmsum atvinnugreinum megi
búast við fækkun starfsmanna á
árinu, enda þótt fyrirtækin
hyggi á fjárfestingar.
„Atvinnumál verða áfram eitt
helsta áhyggjuefnib í rekstri evr-
ópskra fyrirtækja," sagbi forseti
samtakanna, Robert de Vilder,
er hann kynnti skýrsluna. „Þeir
atvinnurekendur eru fáir sem
ætla að fjölgá starfsfólki svo ein-
hverju nemi."
Efni skýrslunnar grundvallast
á upplýsingum frá 120 þúsund
fyrirtækjum af öllum stærðum,
hvaðanæva að úr álfunni. Fram
kemur að í tveimur löndum hafi
hraði framvindu efnahagsbat-
ans þegar náb hámarki og muni
að líkindum hægja á sér á árinu.
Er þar um að ræða Bretland og
írland.
Samtök verslunarrábanna,
eba Eurochamber, komast að
þeirri niðurstöðu að óhjákvæm-
legt sé að gera meiriháttar breyt-
ingar á pólitískri stefnu í félags-
og kjaramálum, ef evrópsk fyrir-
tæki eigi að geta orðib sam-
keppnisfær á ný. Mælt er með
auknum sveigjanleika og því að
hlutastörf veröi tekin upp í vax-
andi mæli.
í skýrslunni er mælt með því
aö einn gjaldmiðill í ESB-ríkjum
verði að veruleika sem fyrst, en
þó er tekiö fram að sjálf tíma-
setningin skipti minna máli en
stöðugleiki í vaxtamálum, gengi
gjaldmiðla og verðlagi á vörum
og þjónustu. ■
Fyrsta breska negrakonan
hlaut prestsvígslu í ensku- biskupakirkjunni í gœr. Hún heitir Eileen Lake
og er hér ab ganga ásamt stallsystrum sínum íklerkastétt til dómkirkju
Páls postula þar sem vígslan fór fram. Konum hefur gengib vel ab koma
ár sinni fyrir borb innan ensku biskupakirkjunnar á undanförnum árum
og hafa um tólf hundrub tekib vígslu.
Minnimáttar urðu verst úti
Rússar rembast en víg-
línan haggast ekki
Moskvu - Reuter
Rússneska innrásarliðiö í Tsét-
senju herti á sprengjuregninu á
virki heimamanna í Grosníu í
gær. Ekki fer á milli mála að Rúss-
ar leggja nú á það ofuráherslu að
brjóta Tsétsena á bak aftur. Þrátt
fyrir mikla liðsflutninga, aukinn
vígbúnab og stórherta sókn verð-
ur þess þó ekki vart að Tsétsenar
hafi hopað eða að víglínan færst
til síðustu daga.
Bardagar geisuðu í kringum
Argun, sem er um 15 kílómetra
utan við Grosníu, svo og í Sama-
skí, þorpi sem er um 60 kílómetra
vestur af höfuðborginni.
Síöustu daga hefur ekkert lát
orðið á digurbarkalegum yfirlýs-
ingum af hálfu rússneskra her-
stjóra og ráðamanna. Inntakið er
að nú sé komið ab lokasókninni,
að sigurinn sé á næsta leiti og ekk-
ert sé því lengur til fyrirstöðu að
uppreisnarlýöurinn í Tsétsenju
verði sigraður, þannig aö rúss-
neska ríkið libist ekki í sundur.
Kobe - Reuter
Eins og verða vill þegar hörm-
ungar og náttúruhamfarir dynja
yfir, voru það gamalmenni, fá-
tæklingar og aörir minnimáttar
sem uröu verst úti í jaröskjálft-
anum sem lagði borgina Kobe í
Japan nánast í rúst fyrir tveimur
vikum.
-Fjölmiðlar telja sig hafa áreið-
anlegar heimildir um ab 52%
þeirra 5.097, sem taldir eru af
skv. nýjustu tölum, hafi verið
yfir sextugu. Það er í hverfum
efnalítils fólks sem eyðilegging-
in er mest, en flest hús í hverf-
um efnaðs fólks standa uppi.
Enn er saknað þúsunda heyrn-
arlausra og blindra borgarbúa
sem enginn veit hvað um varð
þegar ósköpin dundu yfir 17.
janúar sl.
Tomio Ito er prófessor i bygg-
ingalist vib hásólann í Osaka og
hann segir að hús í þeim hverf-
um sem verst eru farin hafi yfir-
leitt verið úr timbri og þar hafi
byggðin verið mjög þétt, en
margir íbúanna hafi flust í hús-
næði sitt rétt eftir stríö. Hverfiö
sem varð verst úti og þar sem
eyðileggingin er algjör, þar sem
flest hús voru hálfgerð hrófa-
tildur og urðu auk þess eldinum
að bráð eftir að þau hrundu, var
ekki fátækrahverfi þótt þar hafi
búiö fremur efnalítið fólk. Fólk
sem komið er á efri ár sækist eft-
ir því að búa á fyrstu og annarri
hæð húsa, en þar var flest af því
fólki sem varð undir rústunum.
Forsetinn í Alsír ætlar ab
„útrýma skrímslunum"
Túnis - Reuter miklum hraða, „beint inn í hús-
ib" sem lögreglustöðin var í. Svo
öflug var sprengingin að gígur,
sem er tveir metrar í þvermál,
myndaðist.
Þeir sem særbust voru fluttir í
sjúkrahús og þar fást þær upplýs-
ingar að sjö þeirra séu enn í lífs-
hættu en aðrir 76 séu stórslasaöir.
Þetta er mannskæðasta ofbeld-
isverk sem unnið hefur verið í Al-
sír síðan óöld hófst í landinu fyrir
þremur árum, en á þeim tíma
hafa um 30 þúsund manns látið
líf sitt.
Nú er ljóst að fjörutíu manns
hafa látið lífið í sprengjuárásinni
á lögreglustöð í Algeirsborg í gær
og Liamine Zeroual, forseti lands-
ins, heitir því að „útrýma skrímsl-
unum" sem stóbu fyrir henni. í
sprengingunni særðust 256, þar
af fjöldi barna.
Dagblöð í Alsír sögbu frá því í
gær að sprengingin hefði orðið
meb þeim hætti aö sjálfsmorðs-
sveitarmabur úr röðum íslamskra
öfgasinna hafi ekið stolnum hvít-
um Fiat, sem hlaðinn var 100
kílógrömmum af sprengiefni, á
inisÉiar
bopparfulltrúa
í Reykjavík
í upplýsingaþjónustu ráðhússins
ertekið á móti bókunum
og þar eru veittar frekari upplýsingar
um viðtalstíma borgarfulltrúa
í síma 563 2005
ÍBt
.
Alfreð Þorsteinsson mánudaga frá kl.12-13 í húsi Rafmagnsveitu Reykjavíkur Suðurlandsbraut 34, sími 560 4600
Árni Sigfússon þriðjudaga frá kl.15:50-17 í ráðhúsinu
Árni Þór Sigurðsson miðvikudaga frá kl.10:30-12 á skrifstofu Dagvistar barna, Hafnarhúsinu, sími 552 7277
Guðrún Ágústsdóttir föstudaga frá kl.10-12 í ráðhúsinu
Guðrún Zoega föstudaga frákl.11-12 í ráðhúsinu
Guðrún Ögmundsdóttir miðvikudaga frá kl.13-15 í ráðhúsinu
Gunnar Jóhann Birgisson mánudaga - frá kl.10-11 í ráðhúsinu
Hilmar Guðlaugsson mánudaga frá kl.11-12 í ráðhúsinu
Inga Jóna Þórðardóttir fimjntudaga frá kl.10-12 í ráðhúsinu
Jóna Gróa Sigurðardóttir þriðjudaga fré kl.11-12 i ráðhúsinu
PéturJónsson miðvikudaga frá kl.14-15 í ráðhúsinu
Sigrún Magnúsdóttir miðvikudaga frá kl.10:30-12 í ráóhúsinu
Steinunn V. Óskarsdóttir mánudaga frá kl.13-15 á skrifstofu ÍTR Fríkirkjuvegi 11, sími 562 2215
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson þriðjudaga og föstudaga frá kl.10-11 í ráðhúsinu
Viðtalstímar borgarstjóra eru á miðvikudögum milli kl. 10 og 12.
Panta þarf tíma i síma 563 2000 kl. 8:20 daginn áður.
Skrifstofa borgarstjóra