Tíminn - 25.03.1995, Page 2
2
^tumm
Laugardagur 25. mars 1995
Ingi Björn Albertsson segir áherslu á fjölnota íþróttahús
hvalreka fyrir íþróttamenn:
Treystir
Halldóri best
Ingi Björn Albertsson. Tímamynd: cs
Ingi Björn Albertsson, heild-
sali, knattspyrnuþjálfari og
fráfarandi þingmabur, segist
vera kominn á þá skobun aö
Halldór Ásgrímsson sé sá pól-
itíski forustumabur sem hann
treysti best í dag. Eftir a&
fram komu hugmyndir hjá
framsóknarmönnum í vik-
unni, þar sem þeir segjast
ákve&iö vilja hefja undirbún-
ingsvinnu a& fjölnota íþrótta-
húsi á næsta kjörtímabili,
segir Ingi Björn hafa komi&
fram þa& mál sem reiö bagga-
muninn um þab aö hann
muni styöja Framsóknar-
flokkinn í kosningunum í
vor.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í viðtali Tímans við Inga
Björn um stjórnmálin og íþrótt-
irnar, en Ingi Björn hefur lagt
stjórnmálabaráttuna til hliðar í
bili og snúiö sér að þjálfun og
heildsölunni sem kennd er við
Albert Guðmundsson, föður
hans. Ingi Björn var spurður að
því hvort íþróttir sem mála-
flokkur nyti skilnings hjá
stjórnmálamönnum?
„íþróttirnar eiga mjög erfitt
uppráttar í heimi stjórnmál-
anna. Þær eru misnotaðar af
stjórnmálamönnum á tyllidög-
um og viö hátíðleg tækifæri eru
allir vinir íþróttanna. Á slíkum
stundum segjast menn sjá fyrir
sér gildi íþróttanna í uppeldinu
og uppvexti ungviðis, sem lið í
forvarnarstarfi gegn vímuefn-
um og annað eftir því. Þegar
hins vegar kemur að því að fara
aö sýna hug sinn í verki þá fer
minna fyrir þessum sömu
mönnum. Það er þess vegna
sem ég vil orða þaö svo að
íþróttimar sé misnotaðar. Þau
átta ár sem ég hef setib á þingi
hef ég notað hvert tækifæri sem
ég hef haft til þess að verja mál-
stað íþrótta og auka skilninginn
fyrir þeim inni á þjngi, en hefur
gengið mjög illa. Ég held þó að
þessi barátta hafi skilaö ein-
hverjum árangri og satt að segja
hefur mér fundist ég helst fá
stuðning úr Framsóknarflokkn-
um við þessi sjónarmið mín. Ég
nefni sérstaklega tvo þing-
menn, þá Finn Ingólfsson og
Stefán Guðmundsson, sem hafa
verið einna mest áberandi í
þessum málaflokki."
— Nú eru einmitt framsóknar-
menn me& útspil þessa dag-
ana um a& þeir vilji reisa hér
fjölnota íþróttahús og segjast
munu hefja undirbúning und-
ir þab á kjörtímabilinu.
Hvernig líst þér á þaö?
„Já, það var ákaflega ánægju-
legur morgun þegar ég sá það í
baksíöufrétt í Tímanum aö
Framsóknarflokkurinn hafi sett
það á sína stefnuskrá að byggt
verði fjölnota íþróttahús og
undirbúningur aö því hafinn á
næsta kjörtímabili. Þetta er slík-
ur reki á fjörur íþróttamanna að
annað eins hefur ekki gerst i
mínu minni. Ég held að svona
nokkuð hljóti að vekja íþrótta-
menn og íþróttaáhugamenn til
umhugsunar um það hvaða
flokk þeir ætla að styðja i kos-
ingunum. Hér er verib ab hreyfa
máli sem íþróttahreyfingin hef-
ur beðið eftir mjög lengi. í ljósi
reynslu minnar af framsóknar-
mönnum í samstarfi að íþrótta-
málum í gegnum árin á alþingi
þá kemur það mér kannski ekki
á óvart að tillaga af þessu tagi
skuli einmitt hafa komið úr
þessari átt.
Ég vil líka undirstika að svona
hús á eftir þaö þjóna mjög fjöl-
þættum verkefnum öðrum en
íþróttum. Þetta yrði ráðstefnu-
hús, menningarhús undir tón-
leikahald, ljóðalestur, sýningar
og hvað sem nöfnum tjáir að
nefna. Aðalatriðið er að það sé
hugmyndaríkur aöili sem tekur
að sér rekstur hússins og þá ætti
ekki ab skorta verkefnin."
— Þú heldur ekki a& þa& muni
ganga erfiölega a& telja stjórn-
málamönnum og ö&rum trú
um a& raunveruleg þörf sé fyr-
ir svona hús í ljósi þess ab nú
er komin lending var&andi
HM höllina og hún geti dug-
a&?
„Nei, ég held ekki og það
væru í þab minnsta mjög
þröngsýnir menn sem ekki
kæmu auga á þessa þörf. íþrótt-
irnar í landinu búa viö afar mis-
jafna abstöðu og hús af þessu
tagi myndi t.d. nýtast frjálsum
íþróttum mjög vel. Sú grein býr
nú við afar lélega aðstöðu sem
öllum er ljóst ab' verður að
bæta. Bara það eitt er næg þörf
en auk þess myndi svona hús
skipta sköpum fyrir aðrar grein-
ar eins og t.d. knattspyrnuiðkun
og í raun og vera allra annara
íþróttagreina. Þarna inni ætti að
vera hægt að stunda allar hefð-
bundnar íþróttir allan ársins
hring, nema e.t.v. sund, og
þetta er einfaldlega sú aðstaða
sem ekki er til í landinu í dag. Ef
þetta væri hins vegar fyrir hendi
þá mætti búast vib að innan til-
tekins tíma gætum við farið að
sjá afreksmenn á sviði frjálsra
íþrótta koma upp hér, sem við
höfum ekki séð í nógu ríkum
mæli í allt of langan tíma vegna
þess aö við höfum dregist aftur
úr hvab abstöðu varðar. Afreks-
íþróttamenn eru nefnilega
mjög mikilvægir varðandi fram-
gang íþróttanna og það má ekki
vanmeta gildi þess varðandi for-
varnarstarf og að unglingarnir
hafi einhvern sameiginlegan
vettvang sem þau fá tækifæri til
að alast upp á."
— Hef&i svona íþróttahús ver-
i& eitt af þínum áherslumál-
um ef þú hefbir ekki hætt vi&
sérframbob?
„Já, þaö er engin spurning.
Þetta var eitt af því sem var
mjög ofarlega á blaði hjá mér,
eins og íþróttir almennt eru. Ég
tel einfaldlega ab það sé slíkt
gmndvallaratriði fyrir sérhvert
þjóbfélag að eiga sæmilega að-
stöðu fyrir íþrótta— og æsku-
fólk, ab þessi mál hefðu komið
sterídega við sögu hjá okkur og
hefði verið barist hart fyrir því.
— En þú heföir ekki getaö bar-
ist fyrir þessu innan Sjálfstæö-
isflokksins?
„Ég var reyndar löngu búinn
að taka þá ákvörðun að vera
ekki áfram í Sjálfstæðisflokkn-
um — þab kom aldrei til greina.
Þannig aö annabhvort var ab
berjast fyrir þessum málum í
sérframboði og vera þá meö að-
stöðu til að tala fyrir þessu inni
á þingi, eða eins og staðan er í
dag ab taka undir hjá þeim sem
vilja berjast fyrir þessum góða
málstaö."
— Ber a& skilja þetta sem svo
a& þú munir styöja Framsókn-
arflokkinn í vor?
„Já, ég mun íhuga það mjög
alvarlega að styðja Framsóknar-
flokkinn, meöal annars út af
þessu."
— Þú segir „me&al annars", er
fleira sem kemur inn í þessa
mynd?
„Ég hef sagt að ég vilji fyrir
alla muni viðhalda þeim stöð-
ugleika sem náðst hefur hér í
þjóbfélaginu og jafnframt hef
ég áður lýst því mati mínu að
líklegast sé að stóri Framsóknar-
flokkurinn, þ.e. Sjálfstæðis-
flokkurinn og Framsóknar-
flokkurinn, muni taka viö hér
að loknum kosningum. Þannig
að með því að styðja annan
hvorn flokkinn held ég að maö-
ur væri aö styðja áframhald-
andi stöðugleika. Stefnur þess-
ara tveggja flokka eru að mörgu
leyti mjög líkar, t.d. í sjávarút-
vegsmálum og landbúnaðar-
málum þar sem nákvæmlega
sömu sjónarmibin eru uppi í
flokkunum, en síðan koma
kannski önnur minni mál þar
sem skilur á milli. Og þá er
maður líka kominn í þá stöðu
að þurfa ab velta því fyrir sér
hvaða flokksleiðtoga maður
treystir best til þess að fram-
fylgja því sem hann lætur sinn
flokk bera á borð fyrir kjósend-
ur. Ef maður lítur yfir sviðið og
á forustu flokkanna þá eru kost-
irnir þessir: Kvennalistinn er
allt að því að deyja út og það
grátbroslega við það er að það
hafi þurft kvenmann til að
drepa kvennalistann. En það
virðist vera þab sem Jóhanna er
að gera og það verður kannski
hannar stóri minnisvarði í ís-
lenskri pólitík. Síðan er það Al-
þýðuflokkurinn sem hefur skipt
um fjóra ráðherra á einu og
sama kjörtímabilinu og fimmta
ráðherraígildið er Karl Steinar.
Þar er flokkur sem hefur farið á
mjög vafasaman hátt með sín
völd eins og þjóðin þekkir. Ól-
afur Ragnar og Alþýðubanda-
lagið eru þannig að sporin
hræða. Persónuleg kynni mín
af forustusveit Sjálfstæðis-
flokksins hefur verið þannig að
ég er ber ekki mikið traust til
þeirra manna. Þá er Halldór Ás-
grímsson eftir og af mínum
kynnum af honum gegnum tíð-
ina, þó það sé langt frá því aö
við höfum verið sammála alla
tíð, þá hefur hann reynst
traustur mabur og sjálfum sér
samkvæmur. Ég treysti því að
þegar Halldór leggur sína stefnu
fram þá standi það, og á því t.d.
líka von á því að það muni
standa þegar hann segir blákalt
að hefja eigi undirbúning aö
þessu íþróttahúsi á kjörtímabil-
inu. Þannig að ég íhuga það
mjög alvarlega að setja mitt á
þennan stað í kosningunum.
— Þú tala&ir um þín persónu-
legu kynni af forustu Sjálf-
stæ&isflokksins og hefur á&ur
talaö um a& klíkur rá&i ferö-
inni í Sjálfstæ&isflokknum og
hefur þá nefnt Davíö Odd-
sson, Hrafn Gunnlaugsson og
Hannes Hólmstein Gissurar-
son. Sem fyrrverandi innan-
hússma&ur í þessum flokki
sýnist þér þá a& átök kraumi
undir yfirbor&inu, sem geti
gosiö upp þá og þegar?
„Ég ætla rétt ab vona það því
ég held að það þurfi að frelsa
flokkinn úr þeirri herkví sem
hann er í. Eins og er þá er hon-
um stjórnab af fámennri klíku
sem hefur mannfyrirlitningu,
finnst mér nánast, að leiðar-
ljósi. Það er auðvitað mjög
slæmt að stærsta stjórnmála-
flokki landsins er stjórnað með
slíku hugarfari."
— BG
Tjolmenn íerö Sorpumanna og bœjarfulltrúa fyrirhugub til Evrópu. „Pólitiskur
hanaslagur , segir Ogmundur Einarsson í Sorpu. Cunnar Birgissan, bœiarfulltrúi
og st/ornarmabur í Sorpu:
„Þetta er lúxusferð á
kostnað skattborgara
’BOGGi'
Hópur bæjarfulltrúa og starfs-
manna og stjórnarmanna Sorpu
fer utan til Evrópu 26. mars
næstkomandi til að kynna sér
nútím**
iö aö fara einhverja /erö til Aust-
urríkis, Þýskalands og Frakklands
aö athuga meö sorpeyöingarmái *
ár frá því aö staríser
skipulögö. Síöan þ
6Um/)R ÆTl/Jf? GREJNI
l£G/) /Ð H£Ll/) S££
) SIÐVÆÐ/NGUNA /