Tíminn - 25.03.1995, Qupperneq 11
Laugardagur 25. mars 1995
fflfottWtU
11
Klifiö í Esjunni, fjalli Reykvíkinga, en Ólafur Örn gefur sér tima til aö hverfa úr amstri kosningabaráttunnar til aö
njóta náttúrunnar. Ólafur segist fá aöra sýn á kjördœmiö frá þessum sjónarhóli, en Reykjavík sést í baksýn.
landinu? Stjórnvöld ráða því
auðvitað ekki hvemig einkafyr-
irtœki launa sitt fólk en í þjón-
ustu hins opinbera eru menn
með svimandi háar tekjur og
margfalt hœrri en til að mynda
ráðherrar sem þó þykja scemi-
lega haldnir, miðað við þá sem
minnst hafa. Líka eru dcemi
um bankastjóra sem hafa jafn-
vel á aðra milljón á mánuði
fyrir vinnu sína?
- Þaö þarf að taka launakerfi
ríkisins til algerrar endurskoðun-
ar og leggja þar til grundvallar
nýtt starfsmat. Ég held að það sé
ekkert óeðlilegt við það að borga
há laun fyrir ákveðna vinnu.
Þessar tölur sem þú ert að nefna
eru auðvitað fjarstæðukenndar,
en við verðum þó að launa
þannig að við séum samkeppn-
isfær við önnur lönd. Annars
lendum við í því að missa vel
menntað og þjálfað fólk til ann-
arra landa.
- Þannig að íslenzk banka-
stjórastétt flytjist til útlanda ef
launin verða lcekkuð og fái þar
störf sem eru jafnvellaunuð og
þau sem hún gegnir nú.
- Nei, ég held að þeir geti ekki
fengið þessi laun annars staðar
og ef verið er að borga þeim yfir
markaðsverði, þá eru þeir of hátt
launaöir. Þessu geta stjórnmála-
menn breytt. Þeir hafa tæki til
að ráða allmiklu um tekjuskipt-
inguna í landinu.
- Þeim hefur þá ekki gengið
vel að ná tökum á þeim taekj-
um.
- Nei, annað hvort hefur skort
vilja til að beita þessum tækjum
eða menn hafa einfaldlega ekki
haft hæfni til að gera það.
- Þú nefnir nýtt starfsmat og
uppstokkun launakerfisins. Er
þetta eitthvað sem þú munt
beita þér fyrir?
- Já, ég mun gera það í sam-
vinnu við aðra stjórnmálamenn.
Ég vil taka þátt í slíku starfi.
- Geturðu séð fyrir þér að
þetta yrði gert að skilyrði fyrir
myndun ríkisstjórnar sem
Framsóknarflokkurinn cetti að-
ild að?
- Ekki skilyrði, nei. Það eru
mjög fá mál sem stjórnmála-
flokkur getur sagt að sé skilyrði
fyrir stjórnarmyndun, en um all-
mörg mál má hins vegar segja
að þau varði megináherzlur. Og
ein aðalháherzlan hlýtur að vera
þessi: Það er stór hópur fólks hér
á Islandi sem býr ekki við mann-
sæmandi lífskjör. Við höfum all-
ar aðstæður til að breyta þessu,
upplýsingar, auðlindir og nauð-
synleg tæki, og það er áreiðan-
lega brýnasta viðfangsefni land-
stjórnarinnar á næsta kjörtíma-
bili að breyta þessu.
- Hvað telur þú að séu mann-
scemandi laun fyrir átta
stunda vinnudag?
- Því get ég ekki svarað. Að-
stæður manna enr svo missjafn-
ar, — eigna- og skuldastaða
þeirra, svo og fjölskylduaðstæð-
ur, en til þess er skattakerfið aö
bæta úr því ranglæti að ein-
hverjir búi við kröpp kjör. Á
þessu landi er óviöunandi aö svo
sé.
Til að varpa ljósi á það hvað
ástandið er orðið alvarlegt þá get
ég sagt að mér brá í brún þegar
ég hitti ungan mann í gær, góð-
an vin minn úr fjallamennsk-
unni, kominn vel á þrítugsaldur.
Hann er að ljúka starfsnámi.og á
konu sem er að gera það líka.
Hann segir við mig: Við erum að
hugleiða það mjög rækilega að
við munum ef til vill ekki hafa
efni á því að eignast barn. Við
sjáum ekki ljóslega fram á að
kljúfa það fjárhagslega, miöað
við þau laun sem við munum
hafa.
Þetta er harðduglegur maður.
Þegar ungt fólk hugsar svona, þá
er mikil alvara á ferðum.
Ég hef ekki aðeins áhyggjur af
því að hér séu að myndast stórir
og varanlegir láglaunahópar, svo
og hópar sem em atvinnulausir
og hópar sem hvorki hafa efni á
því að fara í skóla eða senda
börnin sín í skóla.
Hér em líka byrjaðir að mynd-
ast þjóðfélagshópar þar sem of-
beldi og fíkniefni eru hluti af
heimsmyndinni og því lífs-
mynstri sem verður ríkjandi hjá
þeim sem svo er ástatt um.
Að þessu leyti erum við nú á
sama stigi og borgir í Skandinav-
íu vom á ámnum upp úr 1970,
en þaö er þó bót í máli að við er-
um ekki komin lengra í þessu
þróunarferli en svo. Hér stefna
félagsleg vandamál í nákvæm-
lega sama félagslega óefnið og
nú er við að etja þar.
Ég veit ekki hvort íslendingar
gera sér almennt grein fyrir
þeim félagslegu vandamálum
sem veröa alvarlegri með hverju
árinu sem líður, en orsökin er
meðal annars sú að staða fjöl-
skyldunnar er orðin veik, ekki
sízt vegna lélegrar afkomu. Ég er
viss um að sterkari fjölskyldur
gæm leyst mikinn vanda en þá
verður þjóðfélagið líka að koma
til móts við fólkið með bættri
stefnu í fjölskyldumálum og og
samræmdum aðgerðum í þessa
þágu.
Það er nú í tízku að tala um
þjóðarátak, en ef það á einhvers
staðar rétt á sér þá er það í þjóð-
arátaki þar sem sagt er: Við ís-
lendingar ætlum ekki að láta
okkar þjóðfélag þróast svona.
Við eigum að standa upp,
koma út úr húsunum okkar, en
gera ekki veggina enn þykkari
en þeir em og siga bara lögregl-
unni á einkennin, eins og nú er
gert í alltof ríkum mæli.
Við eigum að taka á þessu áð-
ur en vandamálið verður óvið-
ráðanlegt, en til þess að svo
megi verða er nauðsynlegt aö
jafna lífskjörin og ganga hik-
laust til þess verks. Það ætlar
Framsóknarflokkurinn sér að
gera og ég vil taka þátt í því
starfi.
Texti: Áslaug Ragnars
Ólafur Örn varö landsfrœgur þegar hann gekk þvert yfir Grœnlandsjökul
ásamt syni sínum Haraldi Erni og Ingþóri Bjarnasyni áriö 7 993. Hér sjást
þeir á hábungu jökulsins.
ÚTBOÐ
F.h. Reykjavíkurhafnar er óskaö eftir tilboðum í tímaleigu á vinnu fyrir jarð-
ýtu á efnistippum á hafnarsvæðinu og nefnist útboðið:
Aðkeypt ýtuvinna 1995
Lýsing:
Stæröarflokkur á jaröýtu Caterpillar D6 C
Komatsu 65E
eöa sambærilegt
Áætlaður vélatími 400 klst.
Útboösgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi B, Reykjavík, gegn
10.000 kr. skilatryggingu.
Tilbobin verða opnub á sama stað, miðvikudaginn 5. apríl 1995, kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
(REYKJAVÍK PURCHASING CENTER) Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Hnorræna félagið
Sænskunámskeiö í
Framnesi í Noröur-
Svíþjóö
Kjöriö tækifæri til ab sameina sumarleyfi
og sænskunám.
Norræna félagið á íslandi, í samvinnu við Norraena fé-
lagið í Norrbotten í Norður-Svíþjóð, gefur 15 íslend-
ingum kost á 2ja vikna sænskunámi í Framnás folkhög-
skola dagana 24. júlí til 4. ágúst næstkomandi.
Kenndar verða 6 stundir á dag og auk þess fer fram
kynning á lífi og starfi fólks á Norðurkollu.
Námskeiðið kostar um 68.000 krónur. Innifalið er ferð-
ir báðar leiðir, kennsla og dvalarkostnaður meðan á
námskeiðinu stendur.
Eftir námskeiðið gefst kostur á þriggja daga ævintýra-
ferð um Lappland.
Umsóknir skal senda til skrifstofu Norræna félagsins,
Norræna húsinu í Reykjavík, á sérstöku eyðublaði sem
þar fæst.
Opið mán.-fös. kl. 9-12 og 13-16. Sími 5510165.
Umsóknarfrestur er til 22. apríl 1995.
Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofunni.
T11 IíWIK««3
Tilbob óskast í eftirtaldar bifreibar og tæki sem verba til sýnis
þribjudaginn 28. mars 1995 kl. 13-16 í porti bak vib skrifstofu
vora ab Borgartúni 7 og víbar.
1 stk. Ford Explorer 4x4 1991
1 stk. Subaru Legacy CL station 4x4 1990
4 stk. Subaru 1800 station 4x4 1988-91
1 stk. Toyota Corolla station 4x4 1990
1 stk. Toyota Tercel station 4x4 1988
1 stk. Mazda 323 station 4x4(Skemmdur eftir umf.óh.) 1993
1 stk. Toyota Hi Lux Double cab 4x4 1990
2 stk. Toyota Hi Lux 4x4 1985-87
1 stk. Saab 900 fólksbifreib 1988
1 stk. Volvo 240 fólksbifreiö 1989
1 stk. Volvo 440 1989
1 stk. Toyota Corolla 1988
1 stk. Chevrolet Monza 1988
1 stk. Mercedes Benz 1719 vörubifreiö m/krana 1978
Til sýnis í birgðastöö Vegageröarinnar í Crafarvogi, Rvk.:
1 stk. rafstöb Dawson-K30 kw í skúr á hjólum 1973
Til sýnis hjá Vegagerðinni í Vík í Mýrdal:
1 stk. vatnstankur 10.000 I með 3" dælu 1980
Til sýnis hjá Vegageröinni á Saubárkróki:
1 stk. dráttarvél Massey Ferguson 699 4x4 meö
ámoksturstækjum 1984
Til sýnis hjá Rannsóknarstofnun byggingariðnabarins,
steypudeild Keldnaholti:
1 stk. Hita/rakaskápur. Blikkklæddur, einangraöur með
steinull. Innanmál 3,5 m meb opnun 0,8 x 3,0 m.
Tilbobin verða opnuð á skrifstofu vorri sama dag kl. 16.30 að vib-
stöddum bjóðendum. Réttur er áskilinn til að hafna tilboðum sem
ekki teljast vibunandi.
® RÍKISKAUP
^SSS Útbo6 t k 11 a á r a n g r i I
BORGARTÚNI 7, 105 REYKJAVÍK SÍMI 91-26844,
BRÉFASÍMI 91-626739